Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1999, Side 4
18 Fermingangjafahandbók DV
MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 1999
Steinunn Anna Kjartansdóttir fenmdist í fyma:
Missti sálmabókina
í gólfið
Á pálmasunnudag í
fyrra gekk Steinunn
Anna Kjartansdóttir að
altarinu í Neskirkju til
þess að fermast. Hún
minnist þessa dags með
mikilli ánaegju frá upphafi
til enda. Fermingar-
fræðslan var skemmti-
leg, fannst henni. Oblát-
an og messuvínið þótti
henni hins vegar hræði-
lega vont.
„Fermingardagurinn var ofsalega
skemmtilegur frá upphafi til enda.
Ég fór í hárgreiðslu snemma að
morgni, þaðan heim til að skipta
um fót og beint upp í kirkju. Við
vorum mjög mörg því þetta var vin-
sælasti fermingardagurinn. Siðan
vorum við kölluð inn í kirkjuna,
stelpurnar fyrstar. Ég var mjög
stressuð allan timann. Ég missti
sálmabókina í gólfið og fannst sem
allir kirkjugestir heyrðu hávað-
ann,“ segir Steinunn Anna Kjart-
Hálfum mánuði eftir fermingardaginn fór Steinunn Anna aftur í myndatöku. Þá var hún í hversdagsfötunum, með
hjólabrettið og vin sinn Plató. Hann hafði sérstaka ánægju af því að stilla sér upp fyrir Ijósmyndarann. Ljósm. Bonni
Nýfermd og mesta spennan horfin. Ljósmyndarinn tók bæði myndir í
svarthvítu og lit.
ansdóttir, nemi í Hagaskóla. En
auðvitað heyrði enginn þegar
sálmabókin datt enda sat Steinunn
aftast og innst. Hún segir að kirkjan
hafi verið full af fólki og sérstakt að
vera í þeirri stöðu að allir horfi á
mann. „Ég var svo tilbúin að mér
fannst ég heyra nafnið mitt kallað
oft og mörgum sinnum. Maginn var
fullur af fiðringi og spennu," segir
hún og brosir. Báöir sóknarprestar
Neskirkju, sr. Halldór Reynisson og
sr. Frank M. Halldórsson, sáu um
fermingarmessuna.
„Við vorum spurð hvort við vild-
um lifa í samfélagi kristinna, fórum
með Faðir vor og trúarjátninguna.
Ég hafði lært mest af þessu áður í
barnaskólanum," segir Steinunn
Anna. Barnaskóla sótti hún hjá kaþ-
ólskum í Landakoti. Eftir ferming-
una var altarisganga sem foreldrar
og nánasta fjölskylda tóku þátt í.
„Mér fannst oblátan og messuvín-
ið alveg hræðilega vont. Ég gat
varla kyngt þessu,“ segir hún um
altarisgönguna.
Sáum um poppmessu
Steinunn Anna sótti fermingar-
fræðsluna allan veturinn með mik-
illi ánægju. Hún segir að fermingar-
börnin hafi tekið virkan þátt í
messuhaldi vetrarins.
„Okkur var ætlað ákveðið hlut-
verk í hvert sinn sem gerir þetta
skemmtilegra. Til dæmis mættum
við í miðnæturmessu á aðfangadag.
Þá gekk ég fremst með krossinn og
félagar mínir á eftir með logandi
kerti. Við venjulegar messur dreifð-
um við sálmabókum. Síðan héldum
við tvær poppmessur sem við sáum
um sjálf með aðstoð prestanna. Það
var mjög gaman að skapa okkar eig-
in umgjörð."
Steinunn Anna er vön að sækja
messur með foreldrum sínum á jól-
Allt fyrir vciðimanninn í fjölskyldunni
nON THOMPSON
Spinnhjól með
5 kúlulegum,
_ _. .. jafnvægisstillingu,
Ron Thompson ve.ði,akkar |ír|uraðlra> aukaHsp’ólu og 5
með ondunarfilmu fra áraábyrgð
9.990.
Fluguhnýtingarsett fyrir byrjendur og atvinnumenn
frá 3.Z40.
Okuma hjól frá 2.990.
° F N A Ð 1 9
d O
VEIÐIHORNIÐ
—jj Sage flugustangirnar frábæru, frá 22.900.
Hafnarstræti - veiðibúðin í bænum.
Opið alla daga og til kl. 22 á fimmtudögum.
Sími 551 6760 - Fax 561 4800.
Systkinin Vilhjálmur og Steinunn
Anna á fermingardaginn hennar.
um. I fyrra fór hún í messu í kaþ-
ólska söfnuðinum. Hún er nefnilega
að velta fyrir sér kaþólskunni.
„Ég var í Landakotsskóla og þar
er bænahald á hverjum degi. Ég er
trúuð og finnst gott að biðja og fara
í kirkju. Mér líður alltaf betur á eft-
ir. Því fylgir friður,“ segir hún.
Fer til Skotlands í sumar
Fermingarveislan var haldin í há-
deginu eftir ferminguna. Boðið var
upp á kalt borð sem móðir Stein-
unnar og vinkonur hennar höfðu
séð um. Á eftir voru kaffi, kökur og
konfekt. Hefð hefur myndast fyrir
því að fóðursystur hennar tvær
baki fyrir veislur af þessu tagi enda
listamenn á því sviði. Önnur sér um
kransakökuna en hin marsipantert-
una.
„Veislan var alveg rosalega flott.
Það er líka ágætt að hafa veisluna í
hádeginu því við eyddum kvöldinu
saman nánasta fjölskyldan," segir
Steinunn. í fermingargjöf fékk hún
peninga, myndavél, myndaalbúm,
sálmabók, orðabækur og róðukross
frá skólastjóranum sínum í Landa-
koti, séra George. Frá foreldrunum
fékk hún utanlandsferð.
„Ég fór ekki í fyrra en núna í
sumar ætla ég að vera hjá vinafólki
í Skotlandi og læra ensku,“ segir
Steinunn Anna.
-jáhj