Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Qupperneq 3
m g ö m æ 1 i
e f n i
Skrautlegir
skór. Skór eiga
vera eggjandi og
vekja athygli.
Að ekki sé
talað um nú
þegar við
blasir í tísku-
búðvmum að
sumarfot landsmanna verði öll grá
að lit. Nú er um að gera að krydda
grámygluna aðeins og skarta litrík-
um skóm, jafnvel útsaumuðum eða
loðnum. Þá verða menn eins grúví
og bóhem og þeir geta orðið.
Ofbeldisannáll
herstöðvaandstæð-
inga verður á dag-
skrá menningar-
viku þeirra i MÍR á
morgun. Gisli Rún-
ar Jónsson og félag-
ar munu taka til
umijöllunar bar-
smíðar, meiðingar
og hvers kyns
fautaskap úr bar-
áttusögu samtakanna. Spennandi
efni í skemmtilegum húsakynnum.
Kventannlæknirinn á horni
Snorrabrautar og Laugavegar sem
spilar sáliunessu Mozarts á meðan
hún borar í tennurnar. Sjúkling-
arnir hverfa inn í draumaheim og
gleyma stað og stund. Að Sálumess-
unni lokinni býður hún rafmagnst-
annbursta með raðgreiðslum.
Þorsteinn Kragh
við Fazioli-flygilinn í
Garöabæ
kom Tónlistarskólinn í Garðabæ og sagði: Eg skal gera það
Snjóbretti - leiktæki þeirra sem
halda að þeir séu eilifir. Hvað er
eitt fótbrot þegar þú ert ungur. Þú
lætur félagana bara skrifa nafnið
sitt á gifsið og svo grær allt fljótt
og vel. Aftur í brekkuna - upp og
niður og út á hlið
Flugdrekakynning á sunnudag-
inn. Á túninu vestur af Glæsibæ fá
allir að prófa að stýra risastórum
tvlspotta flugdrekum. Þessir drekar
eru þess eðUs að þegar tökum hefur
verið náð má gera aUar kúnstir;
lykkjur, hringi og gott ef ekki
Immelman. Gæta ber þess að
stjómandinn sé sjálfur nægilega
þungur miðað við vindstyrk svo
hann takist ekki á loft og hverfi út
í buskann með drekanum.
Richard Clayderman fær að leika
á Fazioli flygil þegar hann heldur
tónleika í Laugardalshöllinni um
páskahelgina. Þorsteinn Kragh, um-
boðsmaður hans hér á landi, gekk
bónleiður til búðar víðast hvar þeg-
ar hann reyndi að útvega Clayderm-
an flygil við hæfi. Clayderman leik-
ur ekki á minni flygla en níu feta
þegar hann kemur fram opinber-
lega.
„Ég reyndi að fá flygil hjá þeim
hjá Sinfóníunni en þeir harðneituðu
eftir að hafa haldið stjómarfund um
málið. íslenska óperan neitaði líka
og flygillinn í Seðlabankanum náði
ekki níu fetum,“ sagði Þorsteinn
Krag. „Þá neitaði Ólafur Laufdal á
Brodway að lána sinn flygil, sagðist
hafa slæma reynslu af því að láta
hann úr húsi.“
Umræddir flyglar eru allir af
Steinway-gerð og Þorsteinn Kragh
var farinn að örvænta þegar bjarg-
vætturinn birtist og hjálpin kom úr
Garðabæ.
„Tónlistarskólinn í Garðabæ
bauðst til að lána mér splunkunýjan
Fazioli-flygil sem er sá eini sinnar
tegundar hér á landi. Hann er hand-
smíðaður, stærri en Steinway og
það eru aðeins til átta eintök af hon-
um í veröldinni. Umboðsmenn
Claydermans ytra sögðu mér að
Clayderman hefði rekið upp stór
augu þegar hann frétti að hann
fengi að leika á Fazioli á íslandi og
lét þau orð falla að það væri heiður
fyrir sig að fá að spila á slíkan grip,“
sagði Þorsteinn Kragh.
Þorsteinn segir að það sé hneyksli
hversu fáir flyglar séu til á landinu
af þessari stærð. Og það sé ljóst að
þeir liggi ekki á lausu þegar þarf að
nota þá. Því hefur hann i félagi við
aðra ákveðið að stofna hlutafélag
um kaup á níu feta flygli sem verð-
ur leigður út þegar þörf krefst.
„Árið 2000 er að ganga í garð og
þá verðir Reykjavík ein af menning-
arborgum Evrópu. Þá rekur hver
tónlistarviðburðurinn annan og ég
efast ekki um að næg eftirspurn
verður eftir nýja flyglinum okkar.
Það skyldi enginn treysta á velvilja
Sínfóníunnar í þessum efnum,"
sagði Þorsteinn Kragh.
30 þúsund mann
r
Ef garnírnar gaula hendir Magnús einhverju
á gríllið. Hann vill að fólk fari í sund, fái
sér eina kollu og fari síðan í göngutúr
Ef allir íbúar í Breiðholti tækju
upp á því að bregða sér á
j hverfispöbbinn væri tæpast pláss
fyrir þá alla. Nikka-Bar er eina krá-
in í Breiðholti og tekur aðeins 50
manns í sæti. íbúarnir í Breiðholti
eru hins vegar 30 þúsund.
j „Ég vil hafa opið lengur. Ég opna
klukkan fimm en verð að loka klukk-
i an hálftólf. Um ellefuleytið fara gest-
. irnir að ókyrrast og drífa sig niður í
' bæ. Hvað haldið þið að það kosti?“
spyr Magnús Ingólfsson, vert á
Nikka-Bar, sem er í stöðugri baráttu
fyrir lengri afgreiðslutíma. „Skilyrði
fyrir að hafa lengur opið er að ibúð-
, arhús sé ekki nær en 50 metrar. Hjá
| mér er næsta hús bílskúr í 53 metra
p fiarlægð en samt stendur leyfið í yf-
lí irvöldum,“ segir Magnús sem ræðir
málið reglulega við Helga Hjörvar í
borgarstjóm. „Hjá mér eru fjölmarg-
ir gestir sem vinna á óreglulegum
tíma, eins og hjúkrunarfræðingar og
leigubílstjórar, og þeir þurfa ekki að
flýta sér heim klukkan hálftólf."
Á Nikka-Bar spila menn bridge,
tefla og kasta pílum. Stundum er
spilaður blús. Breiðhyltingar drekka
Egils gull og hot & sweet með. Magn-
ús segir að það sé sagt „hæ!“ við alla
sem koma inn. Þetta sé hverfispöbb.
Ef garnirnar gauli í einhverjufn
hendi hann á grillið.
„Mér finnst að fólk eigi að fara í
sund, drekka síðan eina kollu og
fara í göngutúr. Þetta gera margir
héma í Breiðholti þó þeir séu ekki
endilega alkóhólistar. Fleiri eru þó
hræddir við að gera þetta af ótta við
að verða stimplaðir drykkjumenn.
Þessu þarf að breyta. Nikka-Bar er
fyrir fólkið," segir Magnús sem áður
átti hlut í byggingafyrirtæki. „Ég
seldi minn hlut og sat svo á Nikka-B-
ar og hugsaði mitt ráð; hvað ég ætti
að taka mér fyrir hendur. Þá frétti
ég að Nikki væri að hugsa um að
selja og ég gerði honum tilboð sem
hann tók. Ég stóð með honum í þijár
vikur á barnum til að læra fagið og
síðan hef ég verið hér. Þetta gengur
fmt.“
Magnús býður öllum Breiðholts-
búum að heimsækja sig um helgina.
Þó aðeins 50 í einu.
Poulenc í 4
kaffileikhúsinu
Ómar er
kallakall
— vinsælustu
sjónvarps-
menn landsins
Heimspeki og
anarkismi
- teiknimyndasögur í
Norræna húsinu
Hinn
eini
sanni
þungarokkari j_Q
Ford undan-
úrslit:
Skoða
|á
Keikó
morgun
12-13
Sögutími,
hetjan og
glæpa-
maðurinn
— frumsýn-
ingar kvik-
myndahús-
anna a aa c
Óskarinn í
nýju Ijósi:
- klúður, vand-
ræbagangur og
Ijóðrænt réttlæti
16
Líficf eftir vinnu
Iríálað ni
sús Kristur súperstjar
r að gera við borl
hnngleikahus
Listin heim
Gamall
Forsíðumyndina tók Hilmar Þór
af keppendum í Ford-keppninni.
26. mars 1999 f Ókus
3