Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Blaðsíða 17
^ 26. mars - 2 V L. apríl -yndiist popp Lífid eftir vir 1eikhús fyrir börn | | klassík ; li IU bió ■ ■ 1 veitingahús Föstudaguh 26. mars popp Hljómsveitin Kókos spilará síðdegistónleikum Hins hússins kl. 17. Kókos er fjögurra manna sveit og eru meðlimir 23 ára og eldri. Kókos hefur spilað að undanförnu á böllum, árshátíð- um, í útvarpi og víðar. Á tónleikunum leikur Kókos frumsamda blues-rokk-fönk-tónlist í bland við annað efni. Tónleikarnir fara fram, að venju, á Geysi-Kakóbar, Aðalstræti 2. Að- gangur er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. t/ Rnnska örlistahátíðin, Listin heimsækir knæpurnar, verður á Sóloni í kvöld. Þar kemur fyrst fram Anna-Mari Kahara-band kl. 22. Anna-Mari er mögnuð söngkona, lagahöfundur og píanóleikari sem kemur vlða við. Hún hefur verið um nokkurra ára skeið aðalsprauta í söngsveitinni How Many Sisters. Tóniist henn- ar er blanda af djassi, poppi, etnískri tónlist og nánast hverju því sem nöfnum tjáir að nefna. Á eftir Önnu-Mari koma fiðiuleikarinn Raakel Lignell og pianistinn Kirmo Lintinen með undarlega dagskrá, meðal annars verk eftir sjálfan Jean Sibelius. t/ Rnnska ör- listahátlðin, Listln heim- sækir knæp- urnar, verður llka á Gaukn- um I kvöld. Þangað mætir kl. 23 Rinneradio, ein þekktasta hljómsveit Rnnlands. Hún spilar sterka blöndu af nútímalegum djassi, með sterkum techno-keim og áhrifum úr hip-hoppi, rokki, etniskri tónlist og svo framvegis. Hijómsveitin Supahsyndikal heldur tónleika I kaffihúsi herstöðvaandstæðinga að Vatnstig 10 (MÍR-salurinn). Stemningin verður eins konar rokk gegn her. Popparar með pólitíska afstöðu - ekkert Æ lov jú-kjaftæði. Urslitakvöld Músíktilrauna verður I kvöld og hefst keppnin I Tónabæ kl. 20. Fram koma þær átta sveitir sem stóðu uppi eftir keppni i milliriðlum en aðeins ein þeirra mun hljóta sig- urlaunin. Hinar sætta sig við að mestu skiptir að taka þátt. Gestasveit kvöldsins verður hljómsveit ársins samkvæmt íslensku tónlist- arverðlaununum - engir aðrir en drengirnir I Botnleðju. Þeir eru talandi dæmi um hversu ___ vel Músíktilraunum hefur tekist að innleiða ferska vinda I islenskan popp- heim þvl Botnleðja sigr- aði einmitt I Músíktil- raunum 1995. Og nú er sveitin ekki lengur sú e*nile6asta heldur sú besta. Sinfóniuhljómsveitin er farin að kunna svo vel sig í Laugardalshöll að hún vill helst hvergi annars staðar spila. í kvöld, kl. 20, mætir hún poppuð og létt I skapi með sjálfan Jesú Krist súperstjörnu á nótnastatifunum. Það eru Þau eru nýkomin á klakann, ung, fersk og liðug. Þau heita Cirkus Cir- kör og eru einn fremsti fjöllistahóp- ur Norðurlanda. Nýsirkus er fyrirbrigði sem enn hefur ekki skotið rótum hér á landi en er orðið al- þekkt um alla heimsbyggðina. Hann byggir á gömlum merg j hefðbundins hringleikahúss en fer um leið inn á nýjar brautir þar sem hugarflug og húmor eru alls-; ráðandi. Jafn- framt eru tekin inn öll bestu i trikkin úr leik- húsinu, sérstak- lega hvað varð- ar sviðsetningu ;j og tæknibrell-1 ur. Það er því óhætt að segja að sýningamar séu öllu villtari en í hefðbundnum sirkus. Gagnrýnendur hafa mikið lofað þetta nýja form og áhorfendur standa í löngum biðröðum. Cirkus Cirkör var stofnaður af at- ka vinnulausum leikurum fyrir fjórum árum. Hann hefur fengið einróma lof bæði áhorfenda og gagnrýnenda. ís- landsferð hópsins er hluti af yfirreið hans um Norðurlönd. Hópurinn sem sýnir hér er 6 manna og hafa þessir fjöllistamenn verið með frá upphafi. Sirkusinn hefur alla tíð lagt áherslu á að starfa með ungu fólki og held- ur gjarnan náms- stefnur í tengslum við sýningar sínar. Svo verður einnig hér því í dag klukk- an tvö sýnir hópur- inn í húsakynnum Menntaskólans á Akureyri og heldur námsstefnu strax á eftir. Einnig verður námsstefna í Nor- ræna húsinu í Reykjavík á morgun klukkan 16.00. Á sunnudag og mánudag verðm- svo stigið á svið Loftkastalans og gengið fram af áhorfendum með snilli, glensi og þokka. Báðar sýningarnar hefjast klukkan 20.00 og miðinn kost- ar 900 krónur. söngvarar frá fyrirtæki sem heitir West End International sem sjá um að syngja textana hans Tims Rice við lögin sem sir Andrew Ll- oyd Webber samdi meðan hann var enn al- múgamaður. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Martin Yates en Jón Kristinn Cortes stjórnar litlum kór sem kallast Jónsbörn. Það er óþarfi að kynna þetta verk frekar. Allir þekkja lögin og geta jafnvel sungið þau án aðstoðar karoke. Og vei þeim er ekki kann skil á sögu- þræðinum. «*■ um helgina „Eg ætlaði að bjóða kærust- unni minni á Ítalíu eða KafH- brennsluna í kvöld og hafa það svolítið rómó. Ég verð nefnilega að spila annað kvöld á fegurðar- samkeppni á Hótel Valaskjálf og fannst að ég ætti að vera ofurgóður við mína heittelskuðu í kvöld. En svo kom það allt í einu á daginn að ég verð víst líka að spila í kvöld, í einkasamkvæmi. Þar fór rómantík- in fyrir lítið. í fyrramálið er ég bú- inn að lofa að passa litlu frænku mína. Ef veðrið verður gott ætla ég með henni niður að Tjörn að gefa öndunum brauð, annars horfum við líklega á Lion King. Svo verður flogið snemma aust- ur og dagurinn fer allur í það. Við förum heim á sunnudaginn og um kvöldið getur vel verið að ég kíki á Glaumbar til að sjá Bítl- ana. Annars eru mánudagar og þriðjudagar mínar helgar. Ég er eiginlega alltaf að spila um helgar og maður hvílist ekki mikið á meðan.“ klúbbar t/ Listin heimsækir knæpuna Kaffi Thom- sen. Þangað kemur dj. Bunuel og sýnir Is- lenska hip-hopp-liðinu hvers vegna menn fara I gufubað að kæla sig eftir heimsókn I finnska klúbba. Á meöan sjá hinir þjóðlegu Grétar og Tomml um neöri hæðina og kalla fram bæði hita og svita. Skuggabar býður gestum slnum pæju- og gæjadrykki (getur maður verið þekktur fýrir að þiggja svoleiðis?). Annars eru Áki og Nökkvi á spilaranum. Dj. ívar sér um tónlistina á Spotlight. Kl. 1 verður diskódansatriði. fkrár Söngsveitin Hálft I hvoru er orðin nokkuð þaul- setin á Kaffi Reykjavík. Hún verður þar I kvöld sem oft áður - sjálfsagt mörgum til gleði. Álafoss föt bezt. André Bachmann og Gleði- gjafarnir, auk ölþambs og brandarkeppni. Borgfirska trióið Úlrik er í bænum, nánar til- tekiö á Café Amsterdam. Orri, Halli og Bjarni leika þar og syngja fyrir brottflutta Borgfirð- inga, sem og aðra gesti. Geirfuglarnir verða fjarri góöu gamni á Grand rokk. í ból þeirra eru sestir gleðikettirnir Tripólí. Kringlukráin. Sín gerir alltaf jafnmikla lukka á þessari krá og kann þvl orðið nokkuð vel við sig þar. Guömundur Rúnar Lúövíksson er sömuleiðis orðinn vanur leikstofunni og gestir hennar honum. Enn situr Glen Valentine við pianóið á Café Romance. Hilmar Sverrisson og dame Anna Vilhjálms heiðra Næturgalann með nærveru sinni og lyfta hlutunum á svolltið æðra plan. Þotuliöiö er lent á Fógetanum I Aðalstræti og leggur staöinn undir sig. Gullöldln. Sælusveitin sendir frá sér bliða en jafnframt glettilega tóna. Viðar Jónsson syngur og leikur á gítarinn sinn á Alabama, Hafnarfirði. Gunnar Páll klikkar aldrei. Hann er á Grand Hóteli og hann kann hvaða lag sem gestir kunna að biðja um. Þeir biðja reyndar alltaf um sömu lögin en Gunnar er góður engu að síður. Án Stefáns og Örnu væri Mímisbarinn ekki Mímisbar og fótunum yrði kippt undan fasta- gestunum. Dúettinn Biátt áfram leikur á Péturs-pöb (áður Feitur dvergur). Hljómsveitin Sælusveitin skemmtir gestum Gullaldarlnnar. bö 11 Sóldögg heldur áfram að túra Reykjavík og nú er röðin komin að Þjóöleikhúskjallaranum. Þar verður boðið upp á hefðbundið sveitaball- sprógramm. Símon Pétur og Postularnir hita upp fýrir hasarinn I dymbilvikunni og ieika fýrir dansi I Catalinu I Kópavogi. Saga Class heldur ball I Súlnasalnum. Eftir að matargestum Broadways hefur verið rennt I gegnum söngbók Abba tekur við sveita- ball I miðri borg. Stjórnin stýrir dansinum með slnum landskunna léttleika. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir gömlum dansi I Ásgaröi. klassík Karlakórinn Lóuþrælar og Sönghópurinn Sand- lóurnar úr Húnaþingi hafa brugðiö sér suður yfir heiðar og alla leið í Ytri-Njarövíkurkirkju. Þar munu þau halda tónleika kl. 20.30 og flytja dagskrá sem samanstendur af hefð- bundnum kórlögum, jafnt sem dægurlögum. Einsöngvarar eru Guðmundur Þorbergsson, Bjarni Einarsson og hin kornunga Harpa Þor- valdsdóttlr. Undir leika Elínborg Sigurgeirs- dóttir á píanó, Þorvaldur Pálsson á harmoníku og Páll S. Björnsson á bassa. Stjórnandi er Ólöf Pálsdóttir. •sveitin Hafurbjörnlnn, G rin d aví k. Hljómsveitin Buttercup syngur og leik- ur Meira dót, Mér er sama og fleiri heimatilbúna standarda I bland við vinsældarokk. Vitinn, Sandgerði. Það er boðið upp á Torfa Ólafsson og hans tónlist. Kannski býður ein- hver einhverjum upp og það er aldrei að vita hvað verður úr þvi. Kannski raðhús. Siggi Björns er kominn heim eftir víking I veldi Dana. Og hann hefur hringferð sina um landið t/: Fókus mæiir með á Bárunnl á Akranesi. Þar mun Skagamönnum gefast kostur á að hlusta á sigldan íslenskan trúbador og feng hans, Keith Hopcroft frá Englandi og Roy Pascal frá Trinidad & Tobago. Sixties er á hraðferð I kringum landið. í kvöld drepa þeir niður fæti á Dalvík og rífa heima- menn undan snjónum. Rúnar Júliusson og Sig- uröur Dagbjartsson sjá staðnum Við Pollinn á Akureyri fyrir söng og spiliríi og ákveðnum klassa. Heimasveitin Jósl bróöir og synir Dóra gefa gest- um tóninn á Odd-Vitan- um á Akureyri. 557 7777 Austurverl Hóaleltlsbraut 68 Arnarbakki Breiðhaití Nýr staður!!! Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsingar í e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 26. mars 1999 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.