Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1999, Blaðsíða 21
k 1 ass í k í/Eitt frægasta kammerverk þessarar aldar, Kvartett um endalok tímans, eftir Olivier Messiaen, verður flutt á tónleikum Tríós Reykjavíkur í Hafnarborg kl. 20. Messiaen samdi kvartettinn í fangabúðum Þjóðverja í Görlitz og var hann frumfluttur þar þann 15. janúar 1941. Hljóðfæraskipan kvartettsins, sem er fiðla, selló, klarinett og píanó, réðst af því hvaða hljóðfæraleikarar voru meðal sam- fanga hans. Sigurður I. Snorrason klarinettu- leikari verður gestur tríósins á tónleikunum. Þetta verða síðustu tónleikar vetrarins í tón- leikaröð Tríós Reykjavlkur og Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Áskriftarkort gilda á tónleikana en lausir mið- ar fást við innganginn. Margverðlaunaður skóla- kór Menlo School ! Atherton í Kalifornlu er staddur hér á landi og heldur tónleika I Hall- grímsklrkju kl. 17. Þar mun hann syngja fjöl- breytta efnisskrá þekktra kórlaga einkum sálma- laga á borð við Amazing Grace, Go Down Moses, River in Judea og þar fram eftir götunum. Stjórnandi er Linda Jordan. Listvinafélags Hallgrímsklrkju boðartil tónleika sópransöngkonunnar Margrétar Bóasdóttur og Blásarakvlntetts Reykjavíkur kl. 20.30. Þau flytja fjögur verk eftir þá Schubert, Sweelinck, MozartogJón Hlóðver Áskelsson. Blásarakvin- tett Reykjavlkur skipa þeir Bernharður Wilkin- son, fiauta, Daði Kolbeinsson, óbó, Einar Jó- hannesson, klarínett, Jósef Ognibene, horn, og Hafstelnn Guðmundsson, fagott. Efnt verður til tónleika I Seltjarnarneskirkju kl. 201 tilefni af þvl að á sunnudaginn var þar vígt nýtt, íslenskt orgel. Á efnisskránni verður Messe Solennelle eftir Louis Vlerne, verk fyrir kór og tvö orgel. (Bæði orgelin verða notuð, það gamla og litla og það stóra og nýja.) Á gamla orgelið leikur Lenka Matéová en Viera Gulasziova Manásková spilar á það nýja. Eftir hlé verður flutt Missa Dolorosa eftir Antonio Caldara, verk fýrir kór, einsöngvara og kamm- ersveit. Stjórnandi tónleikanna er Viera Gula- sziova Manásková. Vortónleikar Skélahljóm- sveltar Kópa- vogs verða I Salnum I Tón- I i s t a r h ú s i Kópavogs kl. 15. Á dagskránni verða lög úr söngleikjum og óperum, Islensk og erlend dægurlög. Stjórn- andi er Össur Geirsson. Þrír kórar halda söngskemmtun I félagsheimil- inu Þingborg I Hraungerðishreppi kl. 21. Þetta eru Árnesingakórinn I Reykjavlk, undir stjórn Sigurðar Bragasonar (einsöngvari Ingibjörg Marteinsdóttir), Vörðukórinn undir stjórn Margrétar Bóasdóttur og Samkór Selfoss undir stjórn Editar Molnar. Samstarf þessara kóra hefur staðið I mörg ár og er þetta liöur I vetrarstarfi þeirra. Kórarnir syngja hver.um sig og allir saman. Að tónleikunum loknum verður stiginn dans. $leikhús Cirkus Cirkör er fjöllistahópur sem tilheyrir svokölluöum nýsirkus sem hefur á undanförn- um árum átt miklum vinsældum að fagna víða um heim - eins og sagt er. Hópurinn hefur starfað I fjögur ár og hefur gengiö vel. Svo vel að þeir félagar eru komnir til Reykjavlkur og ætla þar að efna til sýningar I Loftkastalanum kl. 20. I sýningunni eru gamlar sirkushefðir með tilheyrandi brellum og brögðum færðar I nýjan búning. Helstu trompin eru hugarflug, leikni, klmni og fimi. Engin dýr eru I sýning- unni. Þjóðleikhúslð. Sjálf- stætt fólk, fyrri hluti: Bjartur - Landnámsmað- ur íslands verður sýndur kl. 15. Þetta er sem sagt sýning fyrir þá sem vilja renna sér I seinni hlut- ann strax um kvöldið. Efnið þarf ekki eða kynna - eða hvað? Ingv- ar E. Sigurðsson er Bjartur og Margrét Vil- hjálmsdóttir er Rósa. Meðal annarra leikara eru: Ólafía Hrönn Jónsdéttir, Valdimar Örn Flygenring, Herdís Þorvaldsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg Kjeld og Þór H. Tulinl- us. Leikstjóri er Kjartan sjálfur Ragnarsson og samdi hann leikgeröina ásamt eiginkonu sinni. Þjéðleikhúslð. Sjálfstætt fólk, seinni hluti: Ásta Sóllllja - Lifsblómlð, verður sýnt kl. 20. Efnið þarf ekki eða kynna - eða hvað? Stein- unn Ólína Þorstelnsdóttir er Ásta Sóllilja og Arnar Jónsson er Bjartur. Aðrir leikarar eru þeir sömu og I Bjarti, þeir eru hins vegar I öðr- um hlutverkum. Leikstjóri er Kjartan sjálfur Ragnarsson og samdi hann leikgerðina ásamt eiginkonu sinni. íslenski dansflokkurinn dansar þrjá dansa á stóra sviði Borgarleikhússins I kvöld, kl. 20. Fyrst Diving eftir Rui Horta, þá Rat Space Moving eftir sama og loks Kæra Lóló eftir Hlíf Svavarsdóttur. Slmi 568 8000. Maður I mislitum sokk- um eftir Arnmund Backman er á Smiðaverkstæði Þjóðlelkhússlns kl. 20.30. Síminn er 5511200. Spunaverkið Hnetan verður sýnt í Iðnó kl. 20.30. Leikstjóri er hinn sænski Martin Geijer. Leik- arar eru Gunnar Helgason og Hansson, Ingrid Jónsdóttir, Friðrik Friðriksson og Llnda Ás- gelrsdóttlr. Leikfélag Reykjavíkur sýnir leikritið Fegurðar- drottnlngin frá Línakri. eftir Martin McDonagh, á litla sviði Borgarleikhússins kl. 20.30 Það er Maria Sigurðardóttir sem leik- stýrir en Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sig- rún Edda Björnsdóttir leika mæðgurnar. Slm- inn er 568 8000. Lelkfélag Akureyrar sýnir kl. 20 Systur í syndinnl eftir þær Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leik- stjóri er Kolbrún Halldórsdéttir frambjóðandi. Lelkfélag Húsavíkur sýnir Óskastjörnu Birgis veitingahús Frambærileg og tilþrifalítil Gamlir og sögufrægir hótelveit- ingasalir eru víöa við aðaltorg gam- alla borga í Evrópu, gamlir og sögu- frægir, rykfallnir og þreytulegir. Borgin við Austurvöll var fyrir nokkrum árum gerð upp í gamla stílnum, með bleikum veggjum og grænum tjöldum, gömlum og þægi- legum húsbúnaði. Yfirþyrmandi af- greiðslubar var bætt við á miðju gólfi og varðveitt korkgólf, sem hef- ur séð fifil sinn fegri. Borgin dregur ekki að sér gesti á kvöldin, þegar þar sitja nánast ein- göngu hótelgestir við glerplötuborð. í hádeginu er hins vegar líflegt vegna staðsetningarinnar og sögu- frægðarinnar. Þá má líta hér sams konar fólk og á systurstöðum megin- landsins, ráðsettar frúr að skiptast á kjaftasögum um leið og þær njóta góðrar fagþjónustu og tilþrifalítillar matargerðar nútímans að hætti ís- lenzkra miðlungsstaða. Maturinn á Borginni var löngum fremur vondur, en hefur batnað með árunum og verið frambærilegur í seinni tíð. Fiskur hefur loksins haldið innreið sína löngu á eftir öðr- um matstöðum. Mikið er um endur- tekningar þess, sem er til í miklu magni í eldhúsinu. Polenta maískökur birtust með ólíklegustu réttum, tvenns konar hrísgrjón, svo og dísætar biscotta gijótkökur. Forréttir voru ágætir. Hin gamal- kunna gulrótarsúpa dagsins var snarpheit, fremur bragðgóð og ekki of þykk, með fljótandi brauðtening- um. Heit Maryland-krabbakaka var fínleg og bragðgóð, með smásöxuðu og stökku grænmeti og ítölsku rauð- salati. Kryddlegið og pönnusteikt grænmeti var líka gott, borið fram með grjótkökum, ítölsku salati, ólíf- um og kotasælu. Kryddjurtagrafmn nautahryggvöðvi með engiferlegn- imi sveppum og sinnepskremi hafði skemmtilegan anískeim. Gufusoðinn lax var skemmtilega upp settur í kúf utan um fiskifroðu ofan á grænmetisteningum og tvenns konar stinnum hrísgrjónum. Þrátt fyrir tilþrifm var laxinn ekki ofsoðinn og naut sín vel með ítölsku blaðsalati. Wok-pönnusteiktir sjáv- arréttir reyndust vera rækja, hörpu- diskur og smátt skorinn fiskur og Siguróssonar I Kvöld, kl. 20.30. Leikstjóri er Ásdís Þórhallsdóttir. fyrir börnin Borgarlelkhúslö: Pétur Pan er á stóra sviðinu ki. 14 og skemmtir þar ungum sem öldnum. Krókur kapteinn er þó miklu skemmtilegri, eins og vondra manna er siður. Indíánar, haf- meyjar, krókódill, draumar og ævintýri. Slmi 568 8000. Möguleikhúsið sýnir Hafrúnu, leikverk, unnið upp úr íslenskum þjóðsögum, kl. 14. Vala Þórsdóttir leikur en Krlstján Eldjárn leikur á gítar. Slmi 562 5060. Herstöðvaandstæðingar bjóða börnum upp á leiksmiðju I kaffihúsi slnu að Vatnsstíg 10, milli kl. 11 og 14. Ólöf Sverrisdóttir verður stjórnandi. Pitsurl hádeginu. Kostar 200 kr. á haus. •opnanir Karl Jóhann Jónsson opnar myndlistarsýningu I Sparisjóðnum að Garðatorgi 1, Garðabæ, kl. 14 I dag. Sýninguna kallar hann Banka- stemmu og vísar þar til portretta af fólki sem allt eins gæti verið viðskipa- vinir sparisjóðsins að borga reikninga. Kari Jóhann útskrifaðist úr málaradeild MHÍ fyrir tæpum sex árum. Fyrsta árs nemar I fjöltækni hafa lært svo mikið aö maður þarf ekki að sitja lengi á skólabekk til þess að vera hæfur til sýningar. Þeir hafa safnað Ijósmyndum og ætla að opna sýningu á þeim I gamla hraðfrystlhúsinu að Grandagarðl 7 kl. 14. Handknattlelkur. KA og Fram leika á Akureyri kl. 16.00 og FH tekur á móti Stjörnunnl I Hafn- arfirði kl. 20.30. Körfuknattlelkur. Njarð- vík leikur gegn KFÍ I Njarðvik kl. 20.00. Njarð- vlkingar eru sigurstrang- legri en lið Isfirðinga er óútreiknanlegt og gæti komið á óvart enda liðin állka að getu. út aö boröa AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333. „Erfitt er að spá fyrirfram I matreiðsluna, sem er upp og ofan." Op/ð /' hádeginu virka daga 11.30- 14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30, fös.-sun. 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á virkum dögum en til 3 um helgar. Askur ★*★ Suðurlandsbraut 4, s. 553 9700. „Allt er eins og ævinlega á Aski, þar á meðal matseöillinn." Op/'ð sunnu- til fimmtudaga, kl. 11- 22, og föstu- og laugardaga, kl. 11-23.30. AUSTUR INDÍAFÉLAGIÐ ★★★★ Hverfis- götu 56, s. 552 1630. „Bezti matstaöur austrænnar matargerðar hér á landi." Op/'ð kl. 18-22 virka daga og til kl. 23 um helgar. ARGENTÍNA ★★ Baróns- stíg Ua, s. 551 9555. „Bæjarins besta steíkhús hefur dalað." Op/ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. ASlA ★ Laugavegi 10, s. 562 6210. Op/'ð virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar. CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499. CARPE DIEM Rauðarárstíg 18, s. 552 4555. CARUSO*** Þingholtsstr. 1, s. 562 7335. „Þvert á islenska veitingahefð hefur hin rustalega notalegi Caruso batnað með aldrinum." Op/'ð 11.30- 14.00 og 18.00-23.00 virka daga. Föstudaga 11.30-14.00 og 18.00-24.00, laugard. 11.30-24.00 ogsunnud. 18.00-24.00. CREOLE MEX ★ ★★★ Laugavegi 178, s. 553 4020. „Formúlan er likleg til árangurs, tveir eigendur, annar I eldhúsi og hinn I sal.“ Op/'ð 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23 um helgar. EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. Op/'ð 18-22. GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s. 5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milliklassa- hótels með virðulegri og alúðlegri þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli landsins." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12- 14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga. HARD ROCK CAFÉ ★★ Kringlunni, s. 568 9888. Hornlð ★★★, Hafnarstrætl 15, s. 551 3340. „Þetta rólega og litla Ítalíuhorn er hvorki betra né verra en áður. Eldhúsiö eropiö kl. 11-22 en til kl. 23 um helgar. HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37, s. 552 5700. „Listasafniö á Hótel Holti ber i mat- argerðarlist af öðrum veitingastofum landsins." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga. Þá má líta hér sams konar fólk og á systurstöðum megin- landsins, ráðsettar frúr að skiptast á kjaftasögum um leið og þær njóta góðrar fagþjónustu og tilþrifalítillar matargerðar nútímans að hætti íslenzkra miðlungsstaða. smásaxað grænmeti, svo og tvenns konar hrísgrjón, allt með sojabragði úr hófi fram. Hörpuskel og lax voru hæfilega pönnusteikt, með maísköku, æti- þistli og vatnagrasasósu. Skemmti- lega sinnepsristaður þorskhnakki var lítillega of þurr, sat ofan á grænmetisblönduðum hrísgrjónum og borinn fram með of þykkri humarsósu. Appelsínubökuð anda- bringa var fremur meyr, borin fram með áðurnefndri maísköku og ágætri sósu úr appelsínum og engifer. Svokölluð eplaterta var ekki terta, heldur nokkrir soðnir epla- bátar á fyrrnefndri grjótköku, bornir fram með hlutlausum vanilluís og kanilblandaðri kara- mellusósu, alls ómerkur eftirrétt- ur. Líkjörvættur créme bruléé búðingur var bragðbetri, en ein- kenndist einnig af grjótköku. Frambærilegust var sívöl tiramisu ostaterta í kunnuglegum stíl með kaffisósu og jarðar- berjasósu. Kaffi var í lagi, borið fram með konfekti. Þriréttað með kafli kostaði 4100 krónur á mann, en súpa dagsins og fjölbreytt úrval aðalrétta kostuðu að Lifid eftir vmnu HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðinstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel I einni og sömu máltíð." Op/'ð 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og laugardaga. HUMARHÚSIÐ ★★★★ Amtmannsstíg 1, s. 5613303. „Löngum og hugmyndaríkum matseöli fylgir matreiösla I hæsta gæðaflokki hér á landi" Op/'ð fré 12-14.30 og 18-23. IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700. „Matreiðsla, sem stundum fer slnar eigin slóðir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnisstæð- ir." Op/'ð frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630. JÓMFRÚIN ★★★★★ Lækjargötu 4, s. 551 0100. „Eftir margra áratuga eyðimerkurgöngu íslendinga getum við nú aftur fengið danskan frokost I Reykjavik og andað að okkur ilminum úr Store-Kongensgade." Op/'ð kl. 11-18 alla daga. KlNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum miðbæjarins." Op/'ð 11.30-14.00 og 17.30- 22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562 2258 LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að islenskum hætti sem dreg- ur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda I kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferðamenn utan af landi og frá útlöndum.* Op/'ð 11-22 og 11-21 um helgar. LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551 4430. MADONNA ★★★ Rauðarárstig 27-29, s. 893 4523 „Notaleg og næstum rómantisk veitinga- stofa með góðri þjónustu og frambærilegum ítal- iumat fyrir lægsta verð, sem þekkist hér á landi." Op/'ð virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar. MIRABELLE ★★★ Smiðjustíg 6, s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leiö yfir I profiteroles og créme brulée." Op/'ð ' 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af góð- um pöstum en lítt skólað og of uppáþrengjandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. PERLAN ★★★★ Öskjuhlið, s. 562 0200. „Dýrasti og glæsilegasti veitingasalur landsins býður vandaða, en gerilsneydda matreiðslu" Op/'ð 18.00-22.30 virka daga og til 23 um helgar. POTTURINN OG PANNAN, ★★★★ Brautar- holti 22, s. 551 1690. „Einn af ódýrustu al- vörustöðum borgarinnar býður eitt bezta og ferskasta salatborðið." Op/'ð 11.30-22. RAUDARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. REX ★★★★ Austurstræti 9, s. 511 9111. „Rex kom mér á óvart með góðri, fjölbreyttri og oft- ast vandaðri ____________ matreiðslu, með áherzlu á einföld og falleg salöt, misjafnt eldaðar pöstur og hæfilega eldaða fisk- rétti." Op/'ð 11.30-22.30. SHANGHÆ ★ Laugavegl 28b, s. 551 6513. Op/'ð virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar. SKÓLABRÚ ★★ Skélabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dálítið frosin." Op/'ð frá kl. 18 alla daga. TILVERAN ★★★★★ Linnetsstíg 1, s. 565 5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem við þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep almennilegs mataræðis." Op/'ð 12-22 sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag. VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s. 551 8666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki alltaf og mis- tekst raunar stundum." Op/'ð 12-23. ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum is- lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt." Op/'ð 11.30-14.30 og 18-23.30 virka daga og 18-23.30 um helgar en til 23 föstu- og laugardag. Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsíngar I e-mail fokus@fokus.is / fax 550 5020 26. mars 1999 f ÓkuS 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.