Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
Spurningin
Lesendur
Hver er uppáhaldspersón-
an þín í fornsögunum?
(Spurt á Hvolsvelli)
Gunnar Eyjólfsson vélvirki:
Gunnar á Hlíðarenda.
Guðmundur Kjartansson raf-
virki: Gísli Súrsson.
Marí Linda Jóhannsdóttir hús-
móðir: Egill Skallagrímsson.
Reynir Friðriksson, trygginga- og
íjármálaráðgjafi: Grettir Ás-
mundsson.
Arnþór Árnason, starfsmaður
kirkjugarða Reykjavíkur: Gunn-
ar á Hlíðarenda.
Hólmfríður Meldal öryrki: Skarp-
héðinn Njálsson.
• •
Ossur situr a
tímasprengjunni
„Kosningaupphlaup Össurar er sérlega ótrúverðugt, ekki síst í Ijósi tillagna
hans eigin félagsskapar í efnahags- og ríkisfjármálum," segir Orri m.a. í
svari sínu til Össurar.
Orri Hauksson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra, skrifar:
Össur Skarphéðinsson, frambjóð-
andi Samfylkingarinnar, er óþreyt-
andi við að halda að fólki að drungi
sé yfir efnahagsmálum íslendinga.
Hann tekur ekkert mark á erlendum
matsfyrirtækjum og lánastofnunum
sem gefa landinu hverja ágætisein-
kunnina á fætur annarri fyrir fj;ú'-
málastjóm sína. Þessir erlendu aðil-
ar era ekki í kosningabaráttu.
Össur gerir lítið úr þrennu sem rík-
isstjómin hefur gert til aö örva sparn-
að. Af einhverjum ástæðum sleppir
hann íjórða og langmikilvægasta at-
riðinu, því að ríkisstjórnin er nú að
greiða niður skuldir um 35 þúsund
milijónir á tveimur árum! Það er
stærsta spamaðaraðgerð í íslenskum
efnahagsmálum um áratugaskeið. Þá
á Össur fáa skoðanabræður þegar
hann fullyrðir að þegar þriðjungur
þjóðarinnar fjárfestir í ríkisþönkun-
um, eins og gerðist i fyrra, aukist
sparnaður ekki, heldur minnki!
Það á ekki að gera litið úr viðskipta-
halla. Slíkur halli verður jafnan í efna-
hagsuppsveiflu eftir langa kyrrstöðu
og sé hann tímabundinn er allt með
felldu, þótt vissulega sé rétt að hafa
vakandi auga. Hins vegar er fráleitt að
mála skrattann á vegginn. Frambjóð-
endur verða að sýna vissa ábyrgð,
jafnvel þótt kosningar séu í nánd.
Seðlabankastjóri hefur getið þess
að hallinn var óvenjulega mikill í
fyrra vegna tímabundinna ástæðna,
s.s. flugvélakaupa, birgðasöfnunar
álvera og innflutnings fjárfestingar-
vara. HaUinn á vöruskiptum við út-
lönd fer enda ört minnkandi, nam 3,4
milljöröum fyrstu tvo mánuðina í ár,
en 7,2 milljörðum á sama tíma í
fyrra. Verðmæti innflutnings þessa
mánuði voru 15% minni í ár en í
fyrra. Enda hefúr Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins, sem Össur segir að
styðji dómsdagsspár hans, frábeðið
sér túlkun hans. Þetta kosningaupp-
hlaup Össurar er sérlega ótrúverð-
ugt, ekki síst i ljósi tillagna hans eig-
in félagsskapar í efnahags- og ríkis-
fjármálum. Guðmundur Ólafsson,
lektor í hagfræði við Háskóla ís-
lands, sagði í sjónvarpsfréttum fyrir
fáum dögum að eina tímasprengjan
sem tifaði í efnahagsmálum hér á
landi væri að búið væri að sameina
í einn stjórnmálaflokk „allt vitlaus-
asta fólkið í efnahagsmálum í land-
inu“. - Síst hefur dregið úr gildi
þeirra hressilegu ummæla með mál-
flutningi Össurar Skarphéðinssonar
um ríkisflármál.
Menningarhús
Sigurður skrifar:
Björn menntamálaráðherra er
hugmyndaríkur. Hann vill sjá
menningarhús í hverjum landsfjórð-
ungi. Ekkert fé til þess á fjárlögum,
segja úrtölumenn. Menn tryggja
ekki eftir á en þeir mega borga eftir
á. Menningarviti á Selfossi vill að
menningarhús verði fremur á Sel-
fossi en í Eyjum. Þó segh hann að
þeh hafi næstum tilbúið 450 manna
fínan sal en vanti smápening.
í Eyjum vantar menningarhús.
Fyrir aldamót og fram á 4. tug útlíð-
andi aldar sáu góðtemplarar eyja-
skeggjum fyrh samkomuhúsi,
nefnilega Templaranum gamla sem
dugöi vel á sinni tíð. í kreppunni
réðust sjálfstæðismenn í það stór-
virki að reisa stórhýsi sem var að
hluta til menningarhús enda oft
nefnt Höllin. En fyrir nokkrum
árum gafst okkar langstærsti flokk-
ur upp á rekstrinum og nánast gaf
trúarsöfnuði höllina sína. Ef halda
ætti nú fund fyrh bæjarbúa alla
yrði það að vera útifundur. Nokkrir
salir stofnana og félaga duga ekki til
stórfunda og hafa ýmsa vankanta,
svo sem þegar boðið er til funda í
sal á þriðju hæð án lyftu.
Hér í Eyjum þarf því menningar-
hús; það er rétt hjá Bhni ráðherra.
Mætti kannski leysa málið með því
að bjóða trúarsöfnuðinum hæfilegt,
gott hús og Samkomuhús Vest-
mannaeyja, sem flokksbræður
Björns reistu, verði gert að glæsi-
legu menningarhúsi.
Sóluð dekk og gömul blýlóð
Skarphéðinn Einarsson
skrifar:
Nú fer í hönd hin árlegu
dekkjaskipti vetrardekk af -
sumardekk á. Margh þurfa
að kaupa ný sumardekk.
Sumh kaupa sóluð dekk
sem er slæmur kostur. Sól-
uð dekk eru gömul dekk,
flutt inn t.d. frá Þýskalandi
þar sem hraðinn er oft 200
km á hraðbrautunum. Er til
íslands kemur era þau
klædd í nýjan ham. Þeh
sem kaupa svona vöru geta
átt á hættu að öll dekk bíls-
ins séu sitt af hverri gerð -
hvert með sinn aksturseig-
inleika.
Bílar með svona dekk
missa aksturseiginleika
sína og geta beinlínis verið
hættulegir á miklum hraða. Ég veit
um dæmi þar sem hvellsprungið
hefur á bíl sem dekk höfðu nýlega
verið keypt undir. Þar ók kona með
[Li©I»Æi ÞJónusta
allan
í síma
O
kl. 14 og 16
endurvinnslu. Allir fengju
ný blý enda greiddi kúnn-
inn fyrir ný lóð. Gömul lóð
eru hættuleg. Sveigjan í
spennunni heldur þeim við
felguna, fer úr er þau eru
tekin af, sagði hann. Hér á
landi era fólki seld gömul
lóð sem öðram vora seld sl.
haust. Ég veit dæmi að
menn á verkstæðum pússa
gömul lóð með stálull þegar
rólegt er og selja síðan sem
ný.
Einnig veit ég um stórt
verkstæði í Reykjavík sem
sólar dekk, þar era gömul
lóð sett í steypuhrærivél,
þar pússast þau af núningn-
um. Síðan er sinkblöndu
hellt í og fólk heldur að um
ný lóð sé að ræða en svo er
ekki. Ég veit líka um verkstæði sem
bjóða viðskiptavinum sínum aðeins
ný lóð. Við þá á fólk að versla. Ég sá
auglýsingu frá Bónusi þar sem boð-
in era ódýr dekk, miklu ódýrari en
sóluð. í stórmörkuðum erlendis, t.d.
í Bretlandi og Bandaríkjunum, era
dekk til sölu alit árið. í Bandaríkj-
unum eru þau framleidd með nafni
viðkomandi markaðar, t.d. Shears
sem eru mjög góð dekk. Þau hafa
borist hingað með notuðum bílum
frá Bandaríkjunum. Bileigendur,
kaupið nýtt, látið ekki selja ykkur
lélega vöra.
Skipt um dekk á bíl. Það er eins gott að fá ný blýlóð,
segir bréfritari.
ung böm sín. Mesta mildi var að
þar fór ekki verr. Hér eru dekk til
sölu frá Kóreu á svipuðu verði og
sóluð. Þau era ný og hafa reynst
mjög vel hér á landi og t.d. í Bret-
landi. Talandi um Bretland þá era
þar til sóluð dekk sem era 50 pró-
sent ódýrari en dekk frá Kóreu og
Malasíu o.fl. Asíulöndum. í Bret-
landi fá menn ný blýlóð er dekk eru
jafnvægisstillt. Sl. vetur þurfti ég að
láta gera við varadekk á bílaleigubíl
sem ég var með þar. Ég spurði við-
gerðarmann hvort þeir notuðu not-
að blý. Hann sagði aö þau færu í
Slakt lag í
Evróvisíon
Guðmundur skrifar:
Mér fínnst framlag Islands í
söngvakeppni Evrópskra sjón-
varpsstöðva heldur í slakara lagi.
Páll Óskar Hjálmtýsson átti ágæt-
isspretti þegar hann fór fyrir okk-
ar hönd síðast þegar viö tókum
þátt í keppninni en þá sagðist
hann ætla að fara til að breyta
keppninni. Ég las það út úr því að
hann ætlaði ekki að fara til að ná
árangri fyrir hönd þjóðarinnar.
Það er svo spuming hvort verið sé
að fara í keppnina nú með því
hugarfari að ná árangri fyrir söng-
konuna Selmu en ekki til að sýna
landsmönnum það sem þeir eiga
skilið. Ekki bætir úr skák að lagið
er sungið á ensku.
Vextir háir
Gylfi hringdi:
Útlánsvextir eru allt of háir hér
landi. Maður skilur eiginlega
ekki hvað býr að baki hjá fjár-
málastofnunum þegar þær hækk-
uðu vexti nú nýverið. Þær hafa
flestar skilað góðum hagnaði á
síðasta ári og eftir því sem maður
heyrir verður milliuppgjör fyrir
árið í ár ekki slakara. Én það rík-
ir reyndar gífurleg framkvæmda-
gleði i íslendingum. Menn eru að
kaupa hús, sumarbústaði og
leggjast í hinar og þessar fram-
kvæmdir að ógleymdum sólar-
landaferðum. Þess vegna ætla ef
til vill einhverjir að taka lán fyr-
ir hlutunum þar sem staöan á
vinnumarkaðnum er góð. Þetta
notfæra lánastofnanirnar sér og
hækka vexti, allar um sömu pró-
sentu. Bankakerfið býður upp á
of háa vexti í dag en veit að marg-
ir munu ekki veigra sér við að
taka lán, þrátt fyrir þaö.
Ráðist á konu
Pípulagningamaður hringdi:
Það var sagt frá því að ráðist
hefði verið á aldraða konu og af
henni var rænt peningaveski.
Hvað er eiginlega að gerast á
þessu landi? Þetta er ekki nýtt en
þetta er gjörsamlega ólíðandi.
Hvað gengur þessi fólki til sem
stundar þessa iðju? Líklega er
þetta fylgifiskur þess eiturlyfja-
djöfuls sem hér tröllríður öllu.
Fíklar sem líða skort á eitri. Við
verðum að rétta því fólki, sem á
um sárt að binda einhverra hluta
vegna, hjálparhönd. Hér eru til
meðferðarstofnanir og ég vil sér-
staklega nota tækifærið og þakka
þeim sem er að reisa meðferðar-
heimili í gömlu Rockvilie-stöðinni
á Miðnesheiði. Sá maður hefur
unnið þrekvirki í því að koma
fólki til heilsu á ný.
Staðan fýrir
kosningar
Gylfi skrifar:
Þegar þetta er skrifað eru rétt
um fimm vikur þar til kosið verð-
ur. Þá er ljóst að Sjálfstæðisflokk-
urinn þarf ekki að beijast fyrir lífi
sínu þrátt fyrir að hafa verið nú í
ríkisstjórn, sem leiðandi forystu-
afl i landinu, í tvö kjörtímabil.
Flokkur sem heldur slíkt út og
þarf ekki að sannfæra kjósendur
um það hlýtur að teljast sterkur.
Þá hefur Samfylking fengið það
fylgi sem flestir bjuggust við af
henni. Það kostar sitthvað að reisa
nýjan flokk. Fylgistapið er veru-
legt en eðlilegt. Þá má gera ráð
fyrir því að flokkurinn muni á
næsta kjörtímabili, ef hann starfar
þar í stjórnarandstöðu, ná því aö
vera stærsti eða næststærsti
stjómmálaflokkurinn á íslandi.
Þ.e. ef stofnaður verður einn
flokkur úr A-flokkunum og
Kvennalista. Þá held ég að ljóst sé
að Framsóknarflokkurinn muni
tapa nokkru fylgi. Hann fer sömu
leið og Alþýðuflokkurinn gerði.
Núverandi ríkisstjórn mun starfa
áfram að loknum kosningum. Það
þarf miklar breytingar til að koma
í veg fyrir það.