Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Síða 20
20
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
Kynntar verða nýjustu rannsoknir i landbúnaði,
nýjungar í vélum og tækjum, lífið í sveitinni o.fl.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að hafa samband
við Hallgrím Indriðason í síma 697 4378, netfang: hallgri@vortex.is
Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa í blaðinu vinsamlega hafi samband
við Sigurð Hannesson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta, í síma 550 5728.
Athugið að síðasti
pöntunar- og skiladagur
vinnsluauglýsinga er
föstudagurinn 23. apríl.
f|g|gg
(f www.umferd.is
Fréttir
i>v
Hólmavík:
Ágætur línuafli
DV, Hólmavik:
Ógæftir hömluðu oft minni bát-
um að sækja sjó í marsmánuði en
afli á línuna var ágætur þá sjaldan
farið var, þetta 200-300 kg á balann
og stöku sinnum þar yfir. Hjá
nokkrum tekur nú við daufur tími
þangað til hentugt telst að hefja
handfæraveiðar. Nokkrir hyggjast,
þó mun færri en undanfarin vor,
leggja fyrir grásleppu þótt söluhorf-
ur séu óvissar og verðið lágt.
„Það lækkaði nánast um leið og
veiðarnar hófust um 6 þúsund krón-
ur og fór í 35 þúsund fyrir tunnuna.
Það er meira en helmingslækkun
frá því sem var fyrir tveimur árum
þegar verðið náði 74.600 krónur fyr-
ir tunnuna," segir Ingólfur Andrés-
son, útgerðarmaður í Bæ á Sel-
strönd. Hann ásamt örfáum öðrum
hefur lagt nokkur grásleppunet og
fengið sæmilegan afla. Þá var hann
ágætlega var við rauðmaga í nokk-
ur net en sala á honum reyktum er
nánast trygg. -GF
Már Ólafsson skipstjóri ieggur upp
góðan línuafla á Hólmavík.
DV-mynd Guðfinnur
Bæjarráð Hornafjarðar, Fjarðarbyggðar og Austur-Héraðs, ásamt Páli Skúla-
syni rektor og Rögnvaldi Óiafssyni dósent. DV-mynd Júlía
Austfirðingar samein-
ast um stór verkefni
DV, Höfn:
Bæjarráð þriggja stærstu sveitar-
félaganna á Austurlandi, það er
Hornafjaröar, Fjarðabyggðar og
Austur-Héraðs, hafa komist að sam-
komulagi um ákveðna þrískiptingu
og samvinnu í mikilvægum mála-
flokkum sem tengjast menntun og
atvinnuuppbyggingu á Austurlandi.
Gengið var formlega frá þessu sam-
komulagi þegar bæjarráð sveitarfé-
laganna komu saman til fundar á
Höfn 9. apríl.
Samstarf sveitarfélaganna felur í
sér verkaskiptingu þannig að Þró-
unarstofa Austurlands verði stað-
sett á Austur-Héraði, Fjárfestinga-
sjóður Austurlands í Fjarðabyggð
og Háskólastofa Austurlands á
Homafirði.
„Þetta er á margan hátt tíma-
móta-samkomulag, sem ég veit að
tekið verður eftir,“ sagði Gísli
Sverrir Árnason, forseti bæjar-
stjórnar Hornafjarðar, „og það er
táknrænt fyrir það að Austfirðingar
eru að snúa vörn í sókn með því aö
taka höndum saman um svona stór
verkefni. Hjá ráðuneytum mælist
þetta vel fyrir og talið að þetta fyr-
irkomulag sé til fyrirmyndar, í stað
þess að byggðakjamar eða sveitarfé-
lög séu að kljást um slík mál,“ segir
Gísli Sverrir.
Bæjarráðsmenn leggja áherslu á
að samkomulag þessara þriggja
sveitarfélaga muni alltaf hafa hags-
muni alls íjóðimgsins að leiðarljósi.
Gestir á fundinum voru Páll Skúla-
son háskólarektor og Rögnvaldur
Ólafsson dósent. -JI
N U SELJUM VIÐ LÍTIÐ
i wm
RAF- OG HEIMILISTÆKI Á HLÆGILEGU VERÐI
HLAUPTU - STÖKKTU - HJÓLAÐU
ÞVOTTAVÉLAR
ÞURRKARAR
OFNAR
HELLUBORÐ
ÍSSKÁPAR
- FVRSTIR KOMA FVRSTIR FÁ.
ATH. TAKMARKAÐ MAGN
U P P ÞVOTTAV ELAR
SJÓNVÖRP
HLJÓMTÆKI
á íslandi
Stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í Evrópu
RflFTfEKJflUERZLUN ÍSLflNDSfF
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776