Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
Fréttir
Allri áhöfn Djúpbátsins Fagraness sagt upp:
Framtíð okkar óráðin
- segir Hjalti Hjaltason skipstjóri
DV, Vestfjörðum:
„Þaö hefur allri áhöfninni verið
sagt upp frá og með 1. júní og við vit-
um ekkert hvað verður eftir það -
hvort skipið verði rekið áfram eða
hvað verður. Framtíð okkar er því al-
veg óráðin," segir Hjalti Hjaltason,
skipstjóri á bílferjunni Fagranesi frá
ísafirði.
Nokkrar umræður hafa verið und-
anfarin misseri um rekstrargrundvöll
skipsins. Fagranesið fór yfir veturinn
reglubundnar ferðir milli ísafjarðar
og Amgerðareyrar í ísafjarðardjúpi,
með bíla og farþega. Yfir sumartím-
ann hefur skipið auk þessa stundað
reglubundnar siglingar á Homstrand-
ir, sem erlendir sem innlendir ferða-
langar hafa nýtt sér.
“Fólk vill þessa þjónustu, enda hef-
ur verið mjög vaxandi aukning hjá
okkur. Frá því í fyrra hefur orðið vel
yfir 100% aukning á flutningi fólks-
bifreiða um Djúpið og það er hreint
ekki lítil aukning, þannig að fólk vill
þessa þjónustu. Sumarferðirnar á
Strandir höfum við boðið upp á í
mörg ár og hafa þær verið vinsælar.
Þá sinnum við öllum stærri flutning-
um í eyjarnar í Djúpinu, auk þess að
sinna þeim verkefnum sem uppá
koma. Það er því afleitt ef þessi þjón-
usta leggst af. Það halda áfram að
koma vetrarófærðir með tilheyrandi
hættuástandi þó Djúpvegurinn verði
malbikaður eitthvað meira og því
mikið öryggi í að hafa skipið" segir
Hjalti skipstjóri. -GS
Bílar aka frá Fagranesinu við bryggju á Arngerðareyri. DV-mynd Guðm. Sig.
Strandasýsla:
Stórbygging á Smáhömrum
DV, Hólmavík:
„Það var alltaf ætlun okkar, ef við
færum út í þessar framkvæmdir, að
reyna að gera þetta eins þokkalega
og hægt væri,“ segir Björn H. Karls-
son bóndi, sem býr ásamt Guð-
brandi syni sínum á Smáhömrum 1
og 2 í Kirkjubólshreppi. Þeir hafa
nýverið fullgengið frá líklega
stærstu byggingu sem reist hefur
verið á sveitaheimili í Strandasýslu,
þegar fjárhúsabyggingar eru frá-
taldar og heygeymslur þeim tilheyr-
andi.
Byggingin er stálgrindahús frá
Finnlandi, tæplega 490 fermetrar, og
skiptist í þrjá hluta nokkuð áþekka
- fyrir hesta og fé
að stærð og loka tvö skilrúm hverj-
um hluta frá þeim næsta. í öðrum
endanum er hesthús og þar liðlega 8
fermetra stíur, ætlaðar 2 hestum
hver, og ein stía ætluð einu hrossi.
Timburslár eru undir, um 5 tomm-
ur á þykkt, sem flestar eru fengnar
af rekanum á jörðinni. Þær eru
klæddar tilskornum ræmum úr
reimum, sem ekki voru lengur not-
hæfar í verksmiðju við Hvalfjörð-
inn, og gera ástöðuna þægilega. Þær
varna sliti á timbrinu, ekki síst þeg-
ar skaflajárn eru undir hófum. Skil-
rúm eru úr vönduðu efni, bæði inn-
lendu og erlendu. Þessar stíur má
nokkuð auðveldlega nota fyrir
lambfé á vorin, gerist þess þörf.
Undir er áburðarkjallari, nær tveir
metrar á dýpt. Sjálfbrynning er við
hvert skilrúm.
í hinum enda hússins er véla-
geymsla. Björn segir að mikill feng-
ur hafi verið að fá hana. Seltan frá
sjónum sé mikill skaðvaldur og hafi
lengi farið illa með allar vélar og
tæki. Því sé mikilvægt að þær séu í
góðum húsakynnum þegar þær eru
ekki í notkun og ekki síst að hafa
aðstöðu til að geta sinnt viðhaldi og
lagfæringum á tækjum, t.d. yfir
vetrartímann. Rýmið á milli véla-
geymslu og hesthúss er hugsað sem
aðstaða til að bandvenja og temja
hesta. Þar er sjávarmöl í gólflagi og
hentar einnig vel sem heygeymsla.
Hestar í nýja húsinu.
Oft getur verið næðingssamt á
Smáhömrum og skjól fyrir sauðfé af
skomum skammti næst sjónum. Nú
þarf ekki annað en að lyfta stórri
hurð og þá er hægt að reka inn hóp
af lambfé og þar er gott skjól meðan
vorhret eru. Björn, sem hefur átt
heima á Smáhömrum alla tíð, segist
mjög ánægður með húsið, vinnu og
frágang þeirra sem helst lögðu þar
DV-mynd Guðfinnur
hönd að verki. Einkum voru það
starfsmenn Grundaráss ehf. Hann
segist nú hafa látið reisa sina síð-
ustu byggingu. Aðrir og yngri
bændur taki nú við. Kunnugum
kemur ekki á óvart að hvarvetna í
þessari stóru byggingu getur gest-
komandi fleygt sparijakkanum í
gólfíð, óttalaus um að á honum sjá-
ist óhreinindi. -GF
Veist þú um
einhverjar
tvær eins?
Ef svo er þá hvetjum við þig til að senda
okkur mynd því í tilefni mæðradagssins
er leitin hafin að líkustu mæðgum íslands.
Skilafrestur á myndum er til 30. apríl.
Dómnefnd mun velja 10 líkustu mæögurnar og
frá 3.-6. maí fer fram atkvæðagreiðsla á vísi.is.
Úrslitin verða kynnt 8. mai og eru
glæsilegir vinningar í boði.
Utanáskriftin er:
Tvær eins
Matthildur
FM 885
Hverfisgötu 46
101 Reykjavík
visir.is