Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1999, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1999
Viðskipti
Þetta helst: .. .Unnið að sameiningu Gunnvarar og íshússfélags ísfirðinga ... Hlutafjárútboði
Baugs hf. lýkur í dag ...Básafell sendir út afkomuviðvörun ... AT&T með yfirtökutilboð í MediaOne
... Dow Jones hækkar í 10.727,18 stig ,.. Hlutabréf IBM snarhækka vegna góðrar afkomu ...
Alþjóðleg efnahagsmál
- staða og horfur
Alþjóðleg efnahagsmál hafa veriö
sífellt meir í umræðunni að undan-
förnu. Áhugi manna hefur aukist og
meðvitund um að aðstæður víða um
heim hafa mikil áhrif hér á landi.
Eftirspum eftir útflutningi okkar
ræðst að miklu leyti að efnahagsað-
stæðum víða um heim og því ræðst
afkoma íslenska þjóðarbúsins að
stórum hluta af aðstæðum sem við
ráðum lítið við. Stærstur hluti út-
flutnings okkar fer til Evrópu og því
eru við mest háð aðstæðum þar.
Evrópa
Talsverð efnahagslægð hefur verið
í Evrópu að undanfömu. Hin nýja
mynt Evrópusambandsins hefur
lækkað mikið frá þvi henni var
hleypt af stokkunum og endurspeglar
það veika stöðu Evrópu gagnvart
Bandaríkjunum. Vaxtalækkanir sem
verið hafa í Evrópu að undanförnu
em meðal þeirra tilrauna sem beitt
hefur verið og era skref í rétta átt en
óvist er hver árangur verður. Hækk-
andi olíuverð kemur sér iila í Evrópu
og getur, ásamt vaxtalækkunum,
valdið því að verðbólga aukist. Hins
vegar spá alþjóðlegar stofnanir því
Hagvöxtur og verðbólga í ýmsum löndum
— breyting milii ára í %
Hagvöxbir Verðbólga
flrgentina -0,5 Oí
Brasilía -1,9 34
Chðe -2,8 3,8
Egyptaland 5,7 3,8
RSppsejjar -1,9 9,9
Gríkkland 3,7
HongKong -5,7 -1,7
Indiand 5 9,4
Indónesia -13,9 53,4
Israel V 7
Kina 9,6 -u
Kólumbía -5 15,4
Malasía -9,6 3A
Mexíkó 2,6 18,5
PóKand 2,9 5,6
Rússland -4,6 125,6
Singapúr -OA -«,6
Suður-Afríka ■Ofi 8,6
Suður-Kórea ■w 04
Tailand -6,5 2,9
Taivan 3,7 24
Tékkland -44 n
Tyrkland -1,6 63
Ungverjaland 5,6 9,4
Venesúela -8,2 29Í
fSLAND 5 19
Meðaltal -U52 15436
að hagvöxtur í Evrópu verði 1,8% á
þessu ári en 2,7% á því næsta.
Bandaríkin
Bandaríkin era næststærsti mark-
aður fyrir íslenskar vörur. Hagvöxt-
ur þar hefur verið mjög mikill und-
anfarin ár og líkur era á að hann
haldist áfram enn um sinn þó hann
minnki sennilega eitthvað á þessu
ári. Atvinnuleysi er þar í sögulegu
lágmarki og hlutabréfavisitölur hafa
vaxið mikið. Hlutabréfaverð er
einmitt góður mælikvarði á vænting-
ar manna um framtíðina. Sérfræð-
ingar á Wall Street spá áframhald-
andi hækkunum en í ljósi reynslunn-
ar er mjög erfitt að spá um slíkt og
vissulega fyrirflnnast spámenn sem
spá hruni á fjármálamörkuðum þar.
Asía
Viðskipti okkar íslendinga við
Asíulönd hafa aukist jafnt og þétt
undanfarin ár. Þó höfum við keypt
mun meir af þeim en þeir af okkur.
Því hefur efnahagslæðin þar komið
okkur til góða að því leytinu að gengi
Asíugjaldmiðla hefur verið okkur ís-
lendingum hagstætt undanfarið. Það
hefur ekki farið fram hjá neinum að
mikil efnahagslægö hefur verið í
Asíu imdanfarin ár og almennt er því
spáð að botni þessarar lægðar sé náð
og að nú liggi leiðin upp á við. Enn
er þó víða neikvæður hagvöxtur og
til dæmis er því spáð að hagvöstur í
Japan verði ekki jákvæður fyrr en á
næsta ári. Önnur lönd í Asíu virðast
ágætlega stödd og mörg þeirra komin
lengra en Japan í efnahagsbatanum.
Horfur era því að leiðin liggi upp á
við í flestum löndum Asíu.
Ameríka og Afríka
í báðum þessum heimshlutum era
viða gífurlegar efnahagsþrengingar
og víða eru litlar líkur á að bata
næstu árin. Efnahagur margra Suð-
ur-Ameríkuríkja var illa leikin í vet-
ur af náttúruhamförum og kreppa
skall á í stærsta landi álfunnar,
Braselíu. í Afríku ríkir víða stríðsá-
stand þó svo að mörg lönd séu að á
sæmilegum árangri í efnahagsmálum
og í lýðræðisþróun.
í ljósi aðstæðna víða um heim má
ljóst vera að efnahagsástand hér er
með því besta sem gerist í heiminum
og mikilvægt er að við höldum áfram
á þeirri braut sem við eram á.
-BMG
Hlutafjáraukning hjá Samskipum
- 7% arður greiddur til hluthafa
Mikið tap hjá
Skinnaiðnaði
Skinnaiðnaður hf. á Akureyri var
rekinn með 86 milljóna króna tapi á
fyrri hluta yfirstandandi rekstrarárs.
Niðurstaðan er töluvert lakari en gert
var ráð fyrir og er búist við áframhald-
andi taprekstri. Miklir erfiðleikar hafa
einkennt atvinnugreinina síðastliðin
ár en margt bendir til að horfur séu
bjartari nú en oft áður. Vanda fyrir-
tækisins má rekja til margra samhang-
andi þátta. Efnahagsörðugleikar í
Asíu, gott veður og minni sala til Rúss-
lands hefur valdið því að eftirspum
hefur minnkað og verð lækkað á er-
lendum mörkuðum.
Tekjur fyrirtækisins minnkuðu um
68% í samanburði við sama tíma í
fyrra en rekstrargjöld lækkuðu aðeins
um 54%. Rekstrartap fyrir fjármagns-
gjöld og skatta nam 71 milljón króna,
samanborið við 8,9 milljóna króna
hagnað fyrstu 6 mánuði rekstrarársins
1997-¥98, og tap tímabilsins fór úr 3,4
milljónum króna í 86 mUljónir. Eigið
fé Skinnaiðnaðar var 115 milljónir
króna í lok febrúar og eiginfjárhlutfall-
ið var 16,2%. Bókfærðar eignir námu
707,8 milljónum króna í lok febrúar sl.
og skuldir 593,2 milljónum króna, á
móti 901,1 milljón króna eignum og
557,1 milljón króna skuldum á sama
tíma 1998. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu félagsins.
Samþykkt var á aðalfundi Sam-
skipa í vikunni að heimila stjórn
félagsins að auka hlutafé um 300
milljónir króna. Þessi heimild
gildir til ársins 2001 og er tilgang-
ur með þessu að styrkja eiginfjár-
stöðu fyrirtækisins. Hins vegar
liggur ekkert fyrir um hvemig
eða hyenær þetta hlutafé verður
selt. Á fundinum var jafnframt
samþykkt að greiða hluthöfum
7% arð.
Það kom fram í máli Ólafs
Ólafssonar forstjóra að síðastliðið
ár hefði verið ágætt. Rekstrar-
tekjur jukust um 841 milljón milli
ára eða um 17% en rekstrargjöld
jukust aðeins um 12% á sama
tíma. Geir Magnússon stjómar-
formaður ræddi horfur og árang-
ur undanfarinna ára. Síðastliðið
ár einkenndist af auknum flutn-
ingi til og frá landinu. Annars
vegar var um að ræða aukningu í
venjulegum neysluvörum og hins
vegar fjárfestingarvörur til stór-
iðju. Útflutning jókst einnig og
munaði þar mest um útflutning á
áli. Annars er innflutningur mjög
sveiflukenndur og miklar árstíða-
sveiflur og því mikilvægt að skip-
anýting sé sem best. Á síðasta ári
heppnaðist þetta mjög vel og var
nýting skipa félagsins góð.
Ein breyting varð á stjóm fé-
lagsins. Kristján Vilhelmsson tók
sæti Þorsteins Más Baldvinsson-
ar en aðrir í stjóm era Geir
Magnússon, Axel Gíslason, Krist-
ján Sigmundsson, Guðjón Ár-
mann Jónsson, Jón Kristjánsson
og Ólafur Ólafsson.
-BMG
viðskipta-
molar
Rússar fá stórt lán
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn,
IMF, tilkynnti í gær að hann
myndi lána Rússum sem nemur
4,5 milljörðum dollara. Skilyrði
fyrir lánveitingunni era sígild
en Rússar eiga að ganga að kröf-
um IMF um umbætur í efnahags-
málum.
Volvo spáir í Scania
Volvo í Svíþjóð var að kaupa
stóran hlut í aðalkeppinaut sín-
um, Scania. Volvo á nú 14% hlut
1 Scania. Lief Ostling, yfirmaður
Scania, sagði að þessi kaup væra
■ óásættanleg og að Volvo væri
óheppilegur samstarfsaðili.
Söluaukning hjá Daimler-
Chrysler
Töluverð söluaukning varð
hjá nýjasta bílafyrirtækinu á
markaðnum, Daimler-Chrysler,
það sem af er árinu. Aukningin
var 10% og nam salan 35 millj-
örðum evra. Hagnaðurinn var
2,6 milljarðar og jókst um 16%.
Olíuverð á heimsmörkuðum
heldur áfram að hækka og nem-
ur aukningin frá áramótum
hvorki meira né minna en 45%.
Svo virðist sem það markmið
OPEC að minnka framleiðslu og
hækka verð sé að takast. í kjöl-
farið hefur verðmæti innflutn-
ings aukist í flestum löndum
sem ekki framleiða olíu og til
dæmis hækkaði innflutningur
um 0,8% í Þýskalandi vegna olíu-
verðshækkana.
FMN í nýtt húsnæði
Flutningamiðstöð Norður-
lands ehf. hefur flutt starfsemi
sína að Ránarbraut 2b, Dalvík.
Þetta kemur fram á viðskiptavef
Vísis. Fyrirtækið festi kaup á
því húsnæði í desember 1998. í
nýja húsnæðinu, sem er um 4600
rúmmetrar, er skipaafgreiðsla
Samskipa v/strandflutnings,
vöruafgreiðsla Sæfara, vöruaf-
greiðsla bíla og fóðurvöruaf-
greiðsla. Þar er jafnframt full-
komin kæli- og frystiaðstaða
ásamt rúmgóðu vörahúsi.
74F 10°
28" Black sWár *r aðgefðir| skiá
. jír ( fjjcam
ckiár • Nicam
Sasp?-*-'
leiðarvfsic^^^/^^ppj
Lágmóla 8 • Sími 533 28Ó0
UMBOÐSMENN
Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, Isafirði. Kf. Norðurland: V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA Lónsbakka Akureyri.
| Kf. Þlngeyinga, Húsavík. Austurland: Vélsmlðjan Höfn. Suðurland: Árvirkinn, Selfossl. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Reykjanes: LJósboglnn, Keflavík. Rafborg, Grindavík.