Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1999, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
Fréttir
Umferðarslysum af völdum búfjár fiölgar:
Stórátak í að
girða og merkja
- segir Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna
1996 1997 1998 1996 1997 1998
Kindur Hross li
„Það er verið að vinna í þessum
málum og lögum verður væntanlega
breytt á næsta Alþingi," segir Ari
Teitsson, formaður Bændasamtak-
anna, um þau vandamál sem bUfé
skapar á vegum landsins. Slys af
völdum búfjár voru 205 í fyrra sem
er tæplega 30% fjölgun frá í hitti-
fyrra en þá var slysafjöldi 154.
„Nefndin sem vinnur í málinu
hefur skilað áfangaskýrslu sem
gengur Ut frá því að það verði gert
stórátak í að gjrða vegi landsins til
þess að draga Ur líkum á því að bUfé
verði á vegunum.
Nefndin gerir líka ráð fyrir því að
þar sem ekki eru tök á að girða verði
merkt þannig að vegfarendur séu að-
varaðir um hættu af bUfé. Maður sér
víða svoleiðis í Utlöndum. Gott sam-
starf er á milli bænda, sveitarstjóma
og Vegagerðarinnar um að reyna að
leita lausna á þessu máli.“
Nokkur aðvörunarskilti voru sett
upp i fyrrasumar, sérstaklega þar
sem óhjákvæmilegt er að reka kýr
yfir vegi. „Ég geri ráð fyrir að þess-
um skiltum fjölgi en jafnframt mun
þörfin minnka því það verður von-
andi girt meira. Þetta er ófremdar-
ástand og það er allra hagur að
þetta verði bætt. Ég vona bara að
við náum að flnna sameiginlega
lausn á þessu vandamáli. Þá er ég
að tala um Alþingi sem umboðs-
mann og ábyrgðarmann Vegagerð-
arinnar og bændur. Sveitarstjómir
koma líka að þessu,“ segir Ari Teits-
son, formaður Bændasamtakanna.
Eignatjón vegna bUfjárslysa
skiptir tugum milljóna á ári.
Stærstu og alvarlegustu tjónin era
þar sem hross koma við sögu. Þá er
Ari Teitsson.
ekki tekið tillit til líkamstjóns öku-
maxma og farþega. Tjónagreiðslur
Sjóvár-Almennra einna vegna bó-
fjárslysa á áranum 1997 og 1998
námu um 24 millj. kr. Þar af voru
greiddar um 14 millj. kr. til búfjár-
eigenda. -SJ/-hvs
Nefndi aldrei flokk
Eins og frægt ér orðið brutust Ut
óeirðir meðal liðsmanna Samfylk
ingarinnar þegar lektorinn Guð-
mundur Ólafsson sagði í viðtali í
sjónvarpi fyrir nokkru að allir vit-
lausustu menn lands-
ins í hagfræði væm
saman komnir í einn
stjómmálaflokk.
Kallaði forseti deild-
arinnar lektorinn á
sinn fund enda ekki
talið mönnum bjóð-
andi að háskóla-
kennarar létu í ljós skoðun sína
á þjóðmálunum. Virðist ekki sama
hvort sé Jón eða séra Jón því fyrir
nokkrum misserum ritaði Þorvald-
ur Gylfason hagfræðiprófessor
grein í Morgunblaðið og varaði við
að hér myndi verða fátækt innan
nokkurra ára. Það sérstaka við yfir-
lýsingu Guðmundar þótti þó að lekt-
orinn nefndi aldrei neinn stjórn-
málaflokk. Engu að síður ruku liðs-
menn fylkingarinnar upp til handa
og fóta...
Árni ráðherra
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnun DV fær Sjálfstæðisflokkur-
inn hreinan meirihluta í Reykjanes-
kjördæmi, hlýtur þar með sjö þing-
menn í stað fimm nU. Þykir þetta
tíðindum sæta þegar
svo stutt er til kosn-
inga. Nefna menn að
hinum nýja leiðtoga
sjálfstæðismanna í
kjördæminu, dýra-
lækninum Áma M.
Mathiesen, hafi
tekist vel að stilla
saman strengina fyrir kosningarn-
ar. Telja menn að erfitt verði að
ganga fram hjá Áma þegar velja á
ráðherra í nýja ríkisstjóm Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks...
Vatneyrin frá Patreksfirði laus úr farbanni:
Heldur út úr ís-
lenskri lögsögu
- reynum fyrir okkur viö Rockall, segir útgerðarmaöurinn
Hið fræga togskip Vatneyrin BA
frá Patreksfirði er nú um það bil að
halda til veiða eftir nokkurra mán-
aða hlé eftir að Fiskistofa svipti það
veiðileyfi fyrir að veiða án kvóta í
tveimur veiðiferðum.
Svavar R. Guðnason hefur nú lag-
fært kvótastöðuna og þar með losað
skipið úr veiðibanninnu. Svavar
sagði að málinu væri alls ekki lokið
en hann myndi nú senda skipið á
Rockall-svæðið.
„Ætli maöur reyni ekki að stríða
Bretanum aðeins að þessu sinni,“
segir Svavar.
Skipið heldur til veiða með sama
skipstjórann og var með það á ís-
landsmiðum en að öðra leyti er ný
áhöfn.
-rt
Verið var að sjóbúa Vatneyrina um helgina. DV-mynd S
Evrópa er ekki á dagskrá
DV efndi um helgina
til skoðanakönnunar
meðal þjóðarinnar um
afstöðu hennar til
hugsanlegrar aðildar
að Evrópusambandinu.
Spurt var hvort fólk
vildi hefja viðræður
um hugsanlega aðild.
RUmlega sex af hverj-
um tíu aðspurðra svör-
uðu spumingunni ját-
andi.
Þetta er svo sem allt
saman gott og blessað
en ritstjóm DV verður
að átta sig á því að
þessi spuming er al-
gjörlega Ut í bláinn.
Hún er íslenskum
stjómmálum og stjóm-
málamönnum gjörsam-
lega óviðkomandi. Þess
vegna vekur það furðu
að blaðið sé að eyða
tíma, plássi og pappír i svona vitlausa spumingu.
Allir sem með kosningabaráttunni fylgjast
gera sér grein fyrir því, aö aðild að Evrópusam-
bandinu er ekki á dagskrá. Það er meira að segja
bannað að tala um hana. Það dettur engum lif-
andi manni í hug að ræða það mál. Það er hvergi
minnst á Evrópu eða Evrópusambandið og gjör-
samlega „beside the point“ hvað fólki finnist um
þetta Evrópusamband.
Það má vel vera að fólkinu í landinu finnist að
íslendingar eigi að athuga hvort taka eigi upp
viðræður um hugsanlega aðild. Það getur líka vel
veriö að sumum finnist að við ættum heima í
þessu sambandi af því að við erum Evrópuþjóð.
Einhverjum dytti jafnvel í hug að þegar kosið er
til Alþingis væri það mál ofarlega á baugi hver
framtíð okkar er, í tengslum við Evrópu og Evr-
ópumál.
En þá gleyma menn því að bæði flokkamir og
þó sérstaklega Davíð Oddsson hafa ákveðið að
tala ekki um Evrópumál í íslenskri pólitík. Ekki
frekar en um kvótamálin, sem nokkrir sérvitr-
ingar hafa verið að nefna í þessari kosningabar-
áttu. Kvótinn er ekki á dagskrá, nema þá til að
minna fólk á að stjómmálaforingjamir era til-
búnir til að kanna hvort sátt náist um kvótann,
eftir kosningar, ef sátt næst um að tala ekki um
hann fyrir kosningar.
Kosningamar um næstu helgi snúast ekki um
það hvað taki við, heldur um það sem búið er að
gera og þá aðallega um þau mál, sem stjómmála-
flokkamir geta sætt sig við að talað sé um. Þess
vegna er það alveg út úr kú að nefna Evrópumál-
in frekar en kvótamálin, jafnvel þótt sex af hverj-
um tíu kjósendum finnist eitthvað um þau mál.
DV gæti alveg eins spurt rnn stríðið í Kosovo eða
Nató eða hver eigi að vera forsætisráðherra í
næstu ríkisstjóm. Allt er þetta jafnbjánalegt og
fjarri íslenskri pólitík. Flokkamir hafa ákveðið
að tala ekki rnn svoleiðis útópíur eins og það
hvort einhver annar eigi að vera forsætisráð-
herra en Davíð. Og meðan Davíð ræður, talar
enginn um Evrópu. Frekar en kvótann.
Fjölmiðlar eiga ekki að spyrja um það sem
ekki er á dagskrá.
Dagfari
Einvígi aldarinnar
Stöð 2 sendi á sunnudagskvöld
út margauglýst einvigi þeirra
Kára Stefánssonar og Sigmund-
ar Guðbjamasonar um miðlæga
gagnagrunninn. í aðdragandanum
var auglýsingaæðið
slíkt að líkast var að
þar mundu takast á
boxarar í þungavigt-
arflokki, rammir að
afli. En spaugilegri
þótti þó þáttur Páls
Magnússonar
fréttastjóra í öllu
saman. Bylgjan tók við hann viðtal
um einvígið í hádegisfréttum og
síðan var að heyrast í honum á
Bylgjunni fram eftir degi. í 19 20
var enn viðtal við Pál um þetta ein-
vígi. Það er gott og blessað aö
starfsmenn fréttastofanna tah sam-
an en gúrkan má vera ansi græn til
að menn fari að senda samtölin í
loftið æ ofan í æ ...
Pólitísk spenna
Skoðanakannanir sýna að sá
mögúleiki er nærtækari en áður að
Steingrímur J. Sigfússon myndi
ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokkn-
um. Viðhorf beggja til kvótamálsins
eru þess eðlis að ólík-
legt er að brjóti á því,
auk þess sem Stein
grímur J. Sigfús-
son hefur ítrekað
lagt áherslu á að
brottfór hersins
verði ekki gert _________
hærra undir höfði í samnhig
um um stjómarmyndun en öðrum
málefnum VG. í röðum Framsóknar
og Samfylkingar eru menn uggandi
yfir hversu Davíð Oddsson virðist
leggja sig fram um að hampa Stein-
grími, telja það til marks um vax-
andi líkur á slíku samstarfi. Sjálf-
stæðisflokkurinn myndi þá fá 8-7
ráðherra og auðvelt yrði því að
koma sjálfstæðiskonu í ráðherra-
stól. Jafnframt fengi flokkurinn
bæði forsætis- og utanríkisráðuneyt-
ið, þannig að Bjöm Bjarnason gæti
loks orðið utanríkisráðherra...
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is