Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1999, Side 32
eHFRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað T DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
m 55ft 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ1999
Menntaskólinn á Egilsstöðum.
Egilsstaðir:
Yfirtaka út-
varp Andvarp
Sjálfstæðismenn á Egilsstöðum
hafa leigt útvarpsstöðina Andvarp
sem rekin er af nemendafélagi
Menntaskólans á Egilsstöðum. Heit-
ir stöðin nú Útvarp Andvarp - x -D
, jfcOg fá aðrir stjómmálaflokkar ekki
aðgang að henni.
„Þetta er óheppilegt en nemenda-
félagið rekur stöðina og ég hef ekki
komið nálægt þessum samningi. Ég
ætla að reyna að ræða við menn í
dag og kippa þessu í liðinn. Rekstur
útvarpsstöðvarinnar hefur verið
þungur og nemendurnir eru með
þessu að reyna að ná inn tekjum. Ég
tel eðlilegra að þetta hefði verið boð-
ið út,“ sagði Helgi Ómar Bragason,
skólameistari menntaskólans, i
morgun.
Framsóknarmenn meðal mennta-
skólanema eru mjög óhressir með
yfirtöku sjálfstæðismanna á út-
varpsstöðinni og undir það tekur
Sólveig Dagmar Bergsveinsdóttir,
kosningastjóri Framsóknarflokks-
ins á Egilsstöðum:
„Ég tek undir með skólameistara.
Það hefði átt að bjóða þetta út,“
sagði kosningastjórinn í morgun.
-EIR
Iðnskólinn:
Uppsagnir
kennara
Kennarar eru famir að segja upp
' *Störfum í Iðnskólanum í kjölfar þess
ófriðar sem þar hefur ríkt að undan-
förnu. Sævar Tjörvason kennari,
sem gegnt hefur ýmsum trúnaðar-
störfum fyrir skólann, m.a. verið
kynningarfulltrúi hans, hefur sagt
upp störfum. Þá herma heimildir
DV að Guðni Kolbeinsson, formaður
kennarafélags Iðnskólans, hafi skil-
að inn uppsögn nú rétt eftir mán-
aðamótin.
Mikil umræða hefur verið meðal
kennara undanfarna daga vegna
þess ástands sem ríkir í skólanum
eftir átakafund skólameistara og
kennara. Em þær raddir sterkar
sem segja að úlfakreppan sé orðin
slík að kennarar eigi tveggja kosta
i *völ, að segja upp eða taka stjómina
i sínar hendur með einhverjum
hætti. -JSS
Tónleikar sænskra barna sem stunda Suzuki-nám vöktu lukku í Norræna húsinu í gærkvöldi en þar komu þau fram ásamt íslenskum fiðlunemendum.
Kannski á eitthvert þessara barna eftir að slá í gegn í framtíðinni og stíga á svið í glæstum tónleikasölum.
DV-mynd E.ÓI.
Aöför aö arnarhjónum á Breiðafirði:
Bóndinn brenndi
hreiður arnarhjóna
- Fuglaverndarfélagið kærir atvikið í dag
Bóndi í Barðastrandarsýslu hef-
ur tekið sig til og brennt hreiður-
stæði arnarhjóna sem verpt hafa í
hólma á Breiðafirði undanfarin
fjölmörg ár. Fuglaverndarfélagið
lítur atvikið mjög alvarlegum aug-
um að sögn Ólafs Einarsson, líf-
fræðings og stjórnarmanns í
Fuglaverndarfélaginu, og verður
kæra að öllum líkindum lögð fram
hjá sýslumanninnum á Patreks-
firði i dag. „Það eru margir yfir
sig hneykslaðir á þessu atferli, en
það virðist ótvírætt að verknaðin-
um að brenna þennan hólma er
beint gegn erninum," sagði Krist-
inn Haukur Skarphéðinsson, líf-
fræðingur á Náttúrufræðistofnun,
í samtali við DV í morgun.
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son hefur eftirlit með amarstofn-
inum og fylgist með framgangi
hans. Hann sagðist hafa orðið
þess var í fyrradag að hólminn
þar sem hreiðrið var hefur verið
brenndur. Að brenna varpstöðvar
arnarins sé gamalkunnugt ráð
bænda frá þeim tíma þegar örn-
inn var ófriðaður til þess að fæla
hann burt. Kristinn sagðist ekki
geta um það sagt hvort arnarhjón-
in sem þama hafa verpt um langt
árabil hefðu verið búin að hreiðra
um sig eða ekki. Hólminn hefði
verið brenndur einhvern timann í
apríl samkvæmt ummerkjum og
ernir verpa yfirleitt um eða upp
úr miðjum aprílmánuði. Verknað-
urinn hefur haft tilætluð áhrif þvi
að arnarhjónin eru ekki lengur í
þessum umrædda hólma. Aðilar í
Reykhólasveit sem DV ræddi við í
morgun staðfestu að hafa séð eld
og reyk í hólmanum i nýliðnum
mánuði.
Kristinn Haukur vildi ekki i
morgun greina frá því um hvaða
hólma væri að ræða né hvaða
jörð á Barðaströndinni hann til-
heyrði áður en formleg kæra væri
komin fram. Hann óskaði heldur
ekki eftir að greina nánar frá
þessu máli áður en kæra hefur
verið lögð fram. Blaðið hefur hins
vegar heimildir fyrir þvi að eftir-
litsmenn með arnarstofninum
hafi rætt við bónda þann sem
grunaður er um verknaðinn og
hann hefur viðurkennt hann fyrir
þeim.
íslenski öminn er sem kunnugt
er alfriðaður, en hann var við það
að deyja út fyrir og um miðja öld-
ina, bæði vegna þess að sótt var
mjög að honum vegna meintra
búsifja sem hann ollii bændum og
einnig vegna þess að meðan það
tíðkaðist að eyða ref með því að
eitra fyrir hann drápust ernir í
stórum stíl sem lögðust á eitruð
hræ refa og það eitraða fóður sem
menn notuðu til að egna fyrir ref-
inn. Eftir mjög harðar friðunarað-
gerðir hefur amarstofninn nokk-
uð hjarnað við.
-SÁ
Veðrið á morgun:
Hlýjast fyr-
ir norðan
Á morgun verður suðaustan-
kaldi eða stinningskaldi. Skýjað
verður með köflum norðanlands
en súld eða rigning i öðrum lands-
hlutum. Hiti verður á bilinu 5 til
13 stig, hlýjast norðanlands.
Veðrið í dag er á bls. 37.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
Q
-J
O
I
D
_i
—
LU
>
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINN!
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA