Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1999, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Deilur milli skólastjóra og kennara Iönskólans í hámarki:
Með krepptan hnefa í
öxl „niðurrifsmanns“
- skólameistari sagður hafa neitað kennara að taka til máls á fundi
„Galdrabrennur" og
átök í Iðnskólanum
- hait sótt að Ingvari Ásmundssyni skólameistara
■■m íkkl e*ma laie Ur ítarti
idrabrvamtm HVr «arta 1%)
■r*r «8 um Oðrðunsur I*fám
hdófsept »ír. þvi Edður.'
tóUauni. áh loknum
i isw þar
••í'.í «Sá> O-'iimanpir
•cc
k*tni ð maif tkoU' humttn, Var ftkóbmetaun ieaWur
meiitara K«iK hrott við »vo fcúió.
Guðmund»**t-ir. .Kg } tt: ateim við upptotwCcssf
tk'UdarwíOra bönn msuussins K-gar hann vildi ekki
unanJciWar. Nv»r «>fta íig v ið af tauimum va-rt iok-
Incrar vildl sUia ifl. 0» að tt: hafi wriS lekMtm 3
fumlí en Kgiil haM.1 bn*s n ckki wanfcíkanutn u»
ðfram. Cckk tkóU- kvtnat Krr.»an ■»n> s.='-«: • v
vasði Ingv.tr Auaunduon
Ktmnanfundf var Crxtu h
ga-r i-n var frcstað á ny {»
ckki náðist rinmg utn íy\
3,'yktamr grgn skolarrx -
miður i-r t**s$í
„Starfsandi i skólum skiptir að
sjálfsögðu miklu máli. Þegar hann er
ekki í lagi þá bitnar það á skólastarf-
inu öllu. Það leysir engan vanda að
skólameistari segi að allt sé í góðu
lagi og rugli saman mönnum og verk-
um þeirra," sagði Guðni Kolbeins-
son, formaður Kennarafélags Iðn-
skólans, um ástandið innan skólans
þar sem skólameistari stendur í
stríði við hluta kennarahópsins.
Guöni hefur nú sagt upp störfum í
skólanum. Sjálfur hefur Ingvar Ás-
mundsson skólameistari látið hafa
eftir sér að um fjórðungur kennara-
liðsins vinni gegn sér. „Óánægjan í
kennarahópum er almennari en
skólameistari vill vera láta,“ sagði
Guðni Kolbeinsson.
Kennarar gagnrýna skólameistara
fyrir að fara ekki að settum reglum í
faglegum efnum, svo og í kjaramál-
um. Hann greiði ekki deildarstjórum
í skólanum laun samkvæmt samn-
ingum og framkvæmd prófa sé ekki í
takt við viðteknar reglur.
í rúst
„Við skulum ekki gleyma því að
óháðir aðilar fóru yfir þessi mál öll
á vegum menntamálaráðuneytisins
fyrir skemmstu og niðurstaðan var
sú aö hér væri stjórnkerfið í rúst.
Menn skulu ekki ætla að þetta sé
Guöni Koibeinsson, formaöur
Kennarafélags lönskólans.
DV-mynd Teitur
uppfinning kennara," sagði Guðni
Kolbeinsson. „Þá er af og frá að
skólameistari gæti hagsmuna kenn-
ara eins og hlutverk hans er sam-
kvæmt skipunarbréfi.“
Ingvar Ásmundsson skólameist-
ari segir tilfinningu sína vera þá að
kennarar saki hann um ofstjóm
frekar en óstjóm. í fréttum DV á
föstudaginn var greint frá átaká-
fundi þar sem þeim lenti saman,
skólameistara og Agli Guðmunds-
syni, deildarstjóra hönnunardeildar
skólans. Ber þeim ekki saman um
hvað gerðist nákvæmlega en Egill
hefur nú sent frá sér lýsingu á at-
burðum sem vottuð er af sex sam-
kennurum hans:
Læra aö hlýöa
„Ég stóð upp til að segja nokkur
orð við samkennara mína, skóla-
meistari varnaði mér að tala og
sagði ítrekað að fundi væri frestað.
Ég sagði málið ekki varða fundinn
og ætlaði að halda áfram, skóla-
meistari hafði uppi háreysti til að
vama mér málsins, gekk að mér
með krepptan hnefa og kallaði mig
niðurrifsmann, ég þyrfti að læra að
hlýða og því til áréttingar setti hann
hnefann í vinstri öxl mína. Ég ítrek-
aði að ég vildi tala við samkennar-
ana en komst ekki að, kennararnir
yrðu að fara úr stofunni sagði skóla-
meistari og þeir sem vildu hlusta á
undirróður minn gætu komið inn
aftur. Hins vegar þyrfti hann að
eiga við mig orð. Stefán Stefánsson
reyndi að fá skólameistara til að yf-
irgefa stofuna og greip í handlegg
hans í því skyni. Ég beið rólegur á
meðan á þessu stóð, en ítrekaði að
ég vildi koma skilaboðum til kenn-
ara. Eftir að skólameistari yfirgaf
skólastofuna las ég tilkynningu um
fund deildarstjóra með trúnaðar-
mönnum. Algengt er og nánast
venja aö nota tækifærið meðan svo
margir kennarar era saman komnir
að koma ýmsum fundarboðum varð-
andi starfið til kennara,“ segir í yf-
irlýsingu Egils Guðmundssonar.
-EIR
Kennarar í Iðnskólanum:
Safna undirskriftum
- stýrihópur heldur ótrauður áfram. Aðgerða ráðherra krafist
í Iðnskólanum ganga nú undir-
skriftalistar meðal kennara. I
ályktun sem þeir undirrita segir
að á kennarafundi 29. apríl 1999
hafi skólameistari haldið því fram
að aðeins „fámenn klíka" haldi
uppi stöðugum árásum á skóla-
meistara og stjóm skólans. Þessu
og öðrum álíka ummælum á öðr-
um vettvangi segjast kennarar
vilja mótmæla og lýsa yfir fullum
stuðningi við stjóm KFIR í þeim
deilum sem hún hefur átt við
skólameistara. Loks segir að kenn-
arar standi einhuga að baki stjóm
kennarafélagsins í baráttu hennar
fyrir þeim umbótum sem hún vill
gera á skólastarfi.
Þessa yfirlýsingu var fyrirhugað
að senda til menntamálaráðherra,
að því er DV komst næst í gær. Þá
hafa einstakir kennarar sent Birni
Bjarnasyni erindi þar sem þeir
telja að ráðuneytið hafi ekki hafst
nóg að í málefnum skólans né nógu
fljótt.
Stýrihópur sá sem menntamála-
ráðherra skipaði í vetur til að
koma lagi á starfsemi Iðnskólans
mun halda ótrauður áfram störfum
þrátt fyrir áframhaldandi árekstra
milli skólameistara og kennara.
„Ég vona að menn taki þannig á
deilumálum sínum að þau séu af-
greidd og tilefni þeirra upp gerð
þannig að þau snerti ekki störf
stýrihópsins og vinnuhópanna,"
sagði Jón Gauti Jónsson, formaður
stýrihópsins, við DV , „Auðvitað er
alltaf vont þegar menn deila en við
erum fyrst og fremst að reyna að
kortleggja skólastarfið með það fyr-
ir augum að skólinn njóti virðingar
í samfélaginu fyrir það sem hann
er að skila af sér, að þar geti verið
að störfum fólk sem er ánægt og
hefur metnað í starfí og að nemend-
ur fái uppfylltar væntingar sínar
um menntun sem á að skila þeim
ákveðnu atvinnuöryggi í lífinu aö
skólagöngu lokinni."
-JSS
Meöan kennarar deila hart viö skólameistara lönskólans læra nemendur
samviskusamlega undir próf.
DV-mynd Hilmar Þór
Kosningabaráttan á Austurlandi:
Slökkt á Útvarp Andvarpi
„Þetta andóf gegn útvarps-
rekstri okkar sjálfstæðismanna
virkar á mig sem síðasta andvarp
þess sem er farinn að örvænta í
kosningabaráttunni,“ sagði Hrafn-
kell Jónsson, kosningastjóri sjálf-
stæðismanna á Austurlandi, eftir
að hann hafði slökkt á útsending-
um hjá Útvarp Andvarpi í Mennta-
skólanum á Egilsstöðum. Sjálf-
stæðismenn höfðu leigt allan
tækjabúnað útvarpsstöðvarinnar
af menntskælingum fram til 8.
maí, en hávær
mótmæli fram-
sóknarmanna
urðu til þess að
Hrafnkell ákvað
að slökkva á
stöðinni. „Þetta
átti að vera
skemmtileg ný-
breytni í kosn-
ingabaráttunni,
Hrafnkell A. en hefur snúist
Jónsson. upp i verðugan
minnisvarða um þau stjórnmálaöfl
sem þola ekki frjálsa fjölmiðlun,"
sagði Hrafnkell.
Sólveig Dagmar Bergsveinsdótt-
ir, kosningastjóri Framsóknar-
flokksins, hafði gert kröfu um að
útvarpsreksturinn yrði boðinn út,
ef ætti að leigja hann á annað
borð, og undir það sjónarmið tók
Helgi ÓmEir Bragason, skólameist-
ari menntaskólans, í DV í gær.
„Það er vissulega óheppilegt að
menntskælingum sé blandað i
kosningabaráttuna, en ég vissi nú
ekki að þeir væru friðaðir fyrir
stjórnmálaflokkum; ekki einu
sinni Framsóknarflokknum. Ef
komið hefði til útboðs þá hefði ein-
hver orðið hlutskarpastur og hvað
hefði þá verið gert?“ spurði Hrafh-
kell Jónsson og bætti þvi við að
menntskælingar myndu ekki skað-
ast fjárhagslega þó slökkt hefði
verið á Andvarpinu fram aö kosn-
ingum.
-EIR
Farsími á krónu
í tilefni af eins árs afmæli Tals
í dag, 5. maí, býður fyrirtækið
upp á GSM-síma á eina krónu í
verslunum sínum.
Segja nei
Eftir að Rafiðnaðarsambandinu
barst fundarboð í miðstjóm ASÍ í
fyrradag ítrek-
aði Guðmundur
Gunnarsson for-
maður að sam-
bandið tæki
ekki þátt í störf-
um innan ASÍ
meöan ákvörð-
un laga- og
skipulagsnefndar ASÍ um aðild að
sérsamböndum er óbreytt.
D- og U-listar bæta sig
Sjálfstæðisflokkurinn fengi
42,3% fylgi og Vinstrihreyfmgin -
grænt framboð 8,3% samkvæmt
nýrri könnun Gallups fyrir Sjón-
varpið. Samfylkingin tapar og
fengi 27,1% og Framsókn 18,3%
Veðmál bannað
Islenskum getraunum hefur ver-
ið bannað að starfrækja veðbanka
um úrslit alþingiskosninganna. ís-
lenskar getraunir höfðu auglýst að
hægt. yrði að veðja um úrslit á
Lengjunni en nú hefur dómsmála-
ráðuneytið tilkynnt islenskum get-
raunum að starfsleyfi þeirra sé ein-
göngu bundið við íþróttakappleiki.
Ekki óvænt
Ingibjörg
Pálmadóttir
undrast ekki að
Mannvernd hafi
kært gagna-
grannslögin til
Eftirlitsstofnun-
ar EFTA fyrir
aö brjóta i bága
við samkeppnisreglur EES.
Hótel flokkuð
Samgönguráðuneytið hefur í
samvinnu við Samtök ferðaþjónust-
unnar ráðist í að gera flokkunar-
kerfi fyrir gististaði á íslandi. Að-
laga á stjörnukerfi danska hótel- og
gistisambandsins að íslenskum að-
stæðum. Dagur sagði frá.
Menning kynnt
Umfangsmikil kynning á ís-
lenskri menningu hefst í menning-
arhúsinu Katuaq í Nuuk á Græn-
landi í dag og stendur fram á fóstu-
dag. Kynningin er gjöf Norræna
hússins í Reykjavík og hefur staðið
til frá opnun hússins í mars 1997.
Flugleiðum skipt
Rekstri Flugleiða hefur frá gær-
deginum verið skipt upp í sex af-
komueiningar og verður hver
þeirra með sjálfstætt uppgjör og
rekstur innan móðurfélagsins.
Formennska
ísland tekur við formennsku í
ráöherranefnd Evrópuráðsins á
fóstudaginn á sérstökum hátíðar-
fundi í Búdapest vegna 50 ára af-
mælis ráðsins.
Svanavatnið
San Francisco-hallettinn undir
stjórn Helga Tómassonar sýnir
heimsfræga uppfærslu Helga á
Svanavatninu á Listahátíð í
Reykjavík í maí árið 2000. Morg-
unblaðið greindi frá.
Ósanngirni
Steingrímur J.
Sigfússon telur
umræðu um
kvótaeign Hail-
dórs Ásgrímsson-
ar ósanngjarna
og á afar lágu
plani. Halldór á
hlut í útgerðarfé-
laginu Skinney á Hornafirði.
Steiner fékk ekkert
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði í gær íslenska ríkið af kröfu
Franklíns Steiners um skaðabætur
vegna ólögmætrar handtöku þar
sem sjálfur hefði hann skaðað sam-
félagið og eigin æra með hátterni
sínu. -SÁ