Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Síða 16
V
i
I
I
I
I
I
í
►
kynl í f
SJávarþorpsdrusla
Páll Óskar á sér atter ego sem hettir Dr. Love.
Og þú getur sent Dr. Love bréf á fókusvefnum á www.visir.is
Láttu Dr. Love greiða úr titfinningaflækjunni þegar altt er komið í spagettí
- því svörin sem hann veitir þér og umræður hans um kynlrf, ástina, titfinningar
og persónuleg vandamál eru vftamínsprauta sálarinnar!
Væsgæinn og stuðpotturj
hátíð Hljómalindar. Hann
nn íouche er að koma til Isíands í fjorða skipti se
er sólginn í að spila fyrir ísiendinga enda finnst h
í hljómsveitinni The Wiseguys er
maður sem kallar sig Touché en
heitir Theo Keating í vegabréfinu.
Þessi klofni einstaklingur er á leið-
inni til íslands í fjórða sinn, mun
skipta um plötur og halda utan um
stuðið á þrennum tónleikum í
næstu viku. Það fyrsta er á Hótel
íslandi fimmtud. 20., daginn eftir
verður hann í Sjallanum og laugar-
dagskvöldið 22. verður hann kom-
inn á Kaffi Thomsen. Touché spilar
á undan Les Rhythmes Digitales
sem koma fram læf. Pakkinn er
annar hluti i lágmenningarveislu
Hljómalindar.
Wiseguys er ansi skemmtileg til-
raunabiggbít hljómsveit sem var
með frábæra plötu í fyrra, „The
Antidote". Hún er gefin út af merk-
inu Wall of Sound, en þaðan koma
snillingar á borð við Propeller-
heads sem hafa komið hingað líka
og þá var Touché auðvitað með í
for.
„ísland er alveg örugglega einn
af uppáhaldsstöðunum mínum,“
segir Theo. „Þegar ég kom fyrst
vissi ég ekkert við hverju ég átti að
búast því enginn sem ég þekki
hafði dj-að þar. En það var alveg
og
jn hluti af lágmenningar-
bnum næturlífið hér vera
geðveikt gaman. Ég hef notað
hvaða tækifæri sem gefst til að
koma aftur.“
Touché hefur verið að kynna
plötuna sína síðustu mánuði, kom
fram með tveim röppurum sem eru
á plötunni og trommara. í sumar er
bandið bókað á fjölmörg festivöl.
Hann kemur þó eiim hingað en
langar til að mæta einhvem tím-
ann með læf-pakkann. Hvað ætli
hann setji undir nálina?
„Hvað sem er til að koma krá-
dinu á hreyfingu. Eitthvað af eigin
efni. Ég er með nokkur ný lög sem
mig langar að sjá hvernig gengur i
liðið. Svo eitthvað af efni vina
minna því við höfum sama smekk
og mér finnst þeir gera gott efni.
Svo klassískt efni. Þetta verður góð
’blanda en aðalþemað er að fólk
vilji dansa."
Þar sem Touché er nokkurs kon-
ar sérfræðingur í næturlífinu hér
fær hann að lokum að lýsa stemn-
ingunni með fimm orðum.
„Vitskert, glaðvært, freistandi,
ósiðlegt og einstakt," segir Touché
veit hvað hann syngur.
karpSo
Umræðuvettvangur þar
sem fólk getur t:jáð sig um
það sam það vill, með þeim
heetti sem það vill.
Ifókus
vefur á wísir.is
allt sem þú þart að vita
- og miklu meira til
j-JjsíJp í ifjBJfigum
dr. Love svarar bréfum um
kynlíf • hr. Skjöldur svanar
bréfum um tísku • dr. Gunni
svarar bnéfum um popp
• fröken Hólmfríður svanar
bréfum um kurteisi
Bréf firá Gjónu:
Halló Páll!
Ok, ég bý í svona sjávarþorpi og
fékk á mig þaö orð að ég vœri svona
drusla sem ríöur öllum. Reyndar
hef ég bara sofiö hjá 5 strákum. En
þaö koma oft strákar til mín og
segja: Ég er alveg geöveikt mikiö á
þörfmni, ertu ekki til í aö ríöa mér?
Og svo þegar ég segi nei, þá kemur
eitthvaö svona álíka: Heyröu vá, þú
hefur nú nœstum því riöið öllum
strákunum í bœnum. Af hverju
viltu ekki ríöa mér? Þetta er alveg
geöveikt pirrandi. Hvaö œtti ég svo
aö gera Dr. Love?
Gjóna
Svar dr. Love:
Elsku besta Gjóna.
Það sem þú átt fyrst og fremst að
gera er að svara þessum sveitalúð-
um sem þú býrð með fullum hálsi!
Segðu þeim að ef þeir séu svona
rosalega mikið á þörfinni, þá geti
þeir borað gat á melónu eða riðið
túnfiski! Býrðu annars ekki í sjáv-
arþorpi? - Ef þú gerir þetta ekki þá
auðvitað HELDUR ÞETTA
ÁFRAM að vera geðveikt pirr-
andi, auk þess sem það er ekkert
gaman að þurfa að kyngja stolt-
inu alltaf þegar maður hittir
þessa samsveitunga sína (hálf-
vita).
Þú átt sjálf dreifingarréttinn á
þinni eigin kynhvöt, góða mín.
Ég óska þér bara hjartanlega til
hamingju með að vera byrjuð að
virkja sjálfa þig sem kynveru og
ég vil ekki að þú látir staðar
numið hér. En Guð minn góður -
það þarf TVO til að búa til kynlíf
- og þú hefur 50% ákvörðunar-
vald um það hverjir verða rekkju-
nautar þínir.
í öðru lagi býrðu í skókassa,
þannig að það er ekki nema von
að þú sért á Topp 5 listanum yfir
heppilegasta hömpið í bænum. Ef
þú ert „næstum búin að ríða öll-
um strákunum" á krummaskuð-
inu - og þú ert búin að tékka á 5
- hvað eru þá strákamir margir
allt í allt? Hvað með hinar 3 stelp-
umar sem búa þarna með þér -
Ásu, Signýju og Helgu? Eru þær
LÖNGU búnar að ríða öllum
bænum að vitaverðinum meðtöld-
um, eða em þær svona bissí að
skoða Skítamóralsbókina?
Eða em þær kannski búnar að
borða svo mikið bland í poka að
þær em allar orðnar miklu feit-
ari og ljótari heldur en þú?
Hmm... ef svo er þá myndi ég sko
taka þessu böggi í strákunum
sem hrósi og fara og vinna feg-
urðarsamkeppni. Eða hefja inn-
anbæjar „carreer" og verða hátt-
virt búðardcima í tískuvöruversl-
uninni „Smart"!
Að lokum eru hér tvö pottþétt
ráð til að hreinsa af sér orðsporið
um það að maður sé „dmsla“!
1) Fáðu þér kærasta sem spilar
fótbolta og þá þorir enginn að
segja neitt um þig og brókarsótt
fortíðarinnar. Þegar kærastinn
kemst svo loks á samning hjá
þýsku fótboltafélagi þá náttúrlega
flytur þú með honum út til
Hannover - og pakkið heima í
Séstvallasýslu verður grænt af öf-
und þegar Séð og Heyrt birtir
myndaseríu af ykkur sem heitir
„Sjáið sæta húsið hans!“. Myndin
þar sem hann situr í hægindastól
og þú stendur fyrir aftan hann heit-
ir: „Sæt saman!“... og það er búið
að setja gula stjörnu fyrir ofan þig
sem inni í stendur: „Ekki lengur
drusla!"
2) If you can't fight them - join
them!
Lifðu upp í ímynd þína og opn-
aðu hómhús bæjarins, þar sem þú
ert eina hóran fyrst um sinn. - Úr
því að sveitungar þínir efast ekki
um bólfimi þína, þá er sko eins gott
að gera sér grein fyrir lögmálinu
um framboð og eftirspum og fara
að græða peninga á þessu! Fyrsti
drátturinn er náttúrlega á kynning-
arafslætti og allir 6 kúnnarnir þín-
ir fá stimpilkort með bónusdrætti!
Lifðu í lukku en ekki í krukku,
þín yfirdmzla
DR. LOVE
meira a
visir.is
visir.is
allt sem þú þarft að vita
ini^-. - og miklu meira til
HJALTISNÆR
MENNTASK
í REYKJl
f ó k u s
14. maí 1999
(
16