Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Síða 13
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999 13 I>V Fréttir Asgeir Logi Asgeirsson bæjarstjóri. Stærsta áskorunin að efla atvinnulífið - segir Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjarstjóri á Ólafsfiröi DV, Akureyri: „Stærsta áskorun okkar sem fór- um með málefni Ólafsfjaröarbæjar er sú að skjóta fleiri rótum undir at- vinnulíflð í bænum og efla það,“ segir Ásgeir Logi Ásgeirsson sem tók við starfi bæjarstjóra á Ólafs- firði fyrir um mánuði af Hálfdáni Kristjánssyni. „Það sem við þurfum ekki síst að horfa til er að skapa hér í bænum fleiri störf fyrir konur. Málið er svo einfalt að ef okkur tekst ekki að gera bæinn aðlaðandi fyrir ungar konur að búa í þá einfaldlega flytja þær bara í burtu og strákarnir fara svo á eftir þeim. Við þurfum að horfa mjög til þess að auka fjölbreytni atvinnulífsins hér sem er allt of mikið háð fiskin- um í sjónum og vinnslu á honum. Við þurfum sem sagt fleiri fætur undir atvinnulífið. Fiskveiðar og vinnsla eru vissulega mjög mikil- vægar atvinnugreinar en það er ekki það sem unga fólkið okkar,. sem hefur farið og lokið ýmsu námi, getur horflð að ef það kýs að flytja aftur til bæjarins síns að námi loknu“ segir Ásgeir Logi. -gk Blönduós: Tugir milljóna króna í fráveitukerfin norðan Blöndu Frá árinu 1995 höfum við lagt mikla áherslu á endurbætur frá- veitukerfisins. Á þessu ári verður unnið að stærsta verkáfanganum hingað til en þar er um að ræða kostnað sem hleypur á einhverjum milljónum króna," segir Skúli Þórð- arson bæjarstjóri á Blönduósi. Þess- ar framkvæmdir, sem unnið verður að á Blönduósi í sumar, verða norð- an Blöndu, neðan Árbrautar við bakka Blöndu. Á undanfornum árum hefur verið unnið að endur- bótum fráveitukerfisins með það að markmiði að koma þessum málum í gott horf. Að mati Skúla bæjarstjóra verða fráveituframkvæmdimar lík- lega hálfnaðar þegar verkefni sum- arins eru að baki og þá verður búið að verja til þeirra um 50 milljónum króna. „Þær kröfur hafa verið settar á sveitarfélögin að þau komi fráveitu- málunum í viðunandi horf fyrir árið 2005 og við því erum við að bregðast. Við viljum gera þetta af nokkrum krafti og sem fyrst því að mínu mati erum við að koma til móts við þarfir einstaklinga, at- vinnulífs og umhverfis. Fráveitu- framkvæmdimar snerta atvinnulíf- ið með beinum hætti því ef fráveit- umar em ekki i góðu lagi er erfið- ara um vik að fá úthlutuðum starfs- leyfum. Með þessu átaki erum við ekki einungis að leysa vandamál nú, heldur ekki síður að horfa til framtíðar því þau sveitarfélög sem hafa þessa hluti í lagi munu standa betur að vígi en hin sem eiga þessu ólokið," segir Skúli bæjarstjóri. -ÞÁ Verkstæði Bílfoss á Hellu. DV-mynd Njörður Hella: Bílaþjónusta aukin DV, Suöurlandi: Bílfoss hefur nýlega hafið rekstur verkstæðis, smurstöðvar og hjól- barðaverkstæðis á Hellu í húsnæði sem Hjólbarðaverkstæði Björns Jó- hannssonar var áður í. Stefnt verð- ur að því að vera einnig með vara- hlutaþjónustu á Hellu. Fyrir rekur Bílfoss varahlutaverslun, smurstöð, hílaverkstæði og smurstöð á Sel- fossi og er jafnframt með þjónustu fyrir mörg bílaumboð. -NH Eiginkonan og börnin eru mínir helstu ráðgjafar Helgarblaðið kannar hvaða mann nv' raðherrarmr hafa að geyma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.