Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999 Langur laugardagur í miðborginni Langur laugardagur 5. júní nk. Nú eru kaupmenn á Laugaveginum á fullri ferð við að undirbúa laugardaginn, en þá er langur laugardagur og búðir opnar til kl. 17. íþrótta- og tómstundaráð kemur í bœinn. Þau œtla að vera með kynningar á sumarstarfi sínu víðs vegar um Laugaveginn, en þar er að venju af mörgu að taka, svo sem; hin sívinsœlu leikjanám- skeið, siglinganámskeið, fjallahjólanámskeið, œvin- týranámskeið og sundnámskeið. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6 -14 ára. Starfsfólk ÍTR veitir upplýsingar um námskeiðin en þau eru haldin í öllum hverfum borgarinnar sumarlangt. Laugaveginum verður lokað frá Barónstíg að Skólavörðustíg því sumargrín ÍTR verður vítt og breitt á Laugaveginum, en sumargrínið er skemmtivagn fullur af leiktœkjum sem verður á ferðinni um alla borg í sumar. Meðal leiktœkja sem verða eru; dósakast, hringjakast, flugvélar, jafnvœgisbalar, stangar- tennis, stultur, fjölfœtlur, hoppdýna, fellispjöld, mini-golf, trampólín, stultur o.fl. Að auki má gera ráð fyrir að heyrist í hljóðfœra- leikurum hér og þar á Laugaveginum. Kaupmenn verða með ýmis kostaboð í gangi og margir œtla út með vörur sínar til að skapa enn skemmtilegra andrúmsloft. Þó Laugaveginum verði lokað frá Barónstíg að Skólavörðustíg vilja kaupmenn minna á að allar hliðargötur eru opnar og frítt er í öll bílastœðahús á laugardögum, en frítt í stöðu- og miðamœla eftir kl. 14. í miðborginni eru um 300 verslanir og ótrúlegur fjöldi veitinga- og kaffihúsa. Frönskgegnheil eikarhúsgögn Hágæðasófar. Gamlar glæður Skólavörðustíg 12 - Sími 561 9988 Sjónvarpsskápur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.