Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 40
i. vimiWur FKÉTTASKOTIÐ SIMINN sem aldrei sefur Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnieyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ1999 Reykj avíkurbor g: Skuldirnar jukust Ársreikningar Reykjavíkurborgar voru lagðir fram og ræddir í borgar- stjóm í gærkvöld. Samkvæmt þeim hækkuðu skuldir borgarsjóðs um 826 milljónir króna á árinu 1998. Peningaleg staða borgarsjóðs versn- aði um 1443 milljónir króna milli 1997 og 1998. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði i morgun við DV að fjárhagsstaða borgarinnar væri hrikaleg og algjörlega á skjön við það sem meirihluti R-listans hefði haldið fram. Raunin sé þó allt önnur samkvæmt ársreikningnum. Skuldasöfnun sé mikil, mun meiri en reikningarnir sýndu, vegna þess að borgin hefði selt sjálfri sér eigin eign- , _^ir, þ.e.a.s. félagslegar íbúðir, og flutt skuldir yfir á samstæðureikning til að bæta stöðu borgarsjóðs á pappírn- um. Skuldir samkvæmt samstæðu- reikningnum voru um síðustu ára- mót um 25,8 milljarðar króna og höfðu aukist milli ára um 6 millj- arða. -SÁ Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra mundar startbyssuna nokkrum sekúndum áður en hún ræsti á fjórða hund- rað hlaupara sem tóku þátt í Heilsuhlaupi Krabbameinsfélagsins í gærkvöld. Heilsuhlaupið er nú haldið í tólfta sinn og verður að þessu sinni hlaupið á þrettán stöðum víða um land. DV-mynd Teitur Helgarblað DV: " Austurlenskar lækningar í Helgarblaði DV verður viðtal við Ríkharð Jósafatsson, doktor i austrænum lækningaaðferðum sem í eitt og hálft ár hefur leitað eftir leyfi landlæknisembættisins til að starfa hér við sitt sérfag, en án ár- angurs. Skyggnst er inn í líf nýju ráðherranna fimm, forvitnast um áhugamál og tengsl menntunar þeirra við þingmennsku. Veiði- kempur spá í laxveiðispilin og velta fyrir sér ástandi ánna á komandi sumri. Nýir þættir hefja göngu sína: Hvaðan ertu? og Ég á mér draum, •auk matreiðslugreinanna „Ekkert vesen.“ Mokveiði hjá frystitogurum en ágreiningur um tegund: „Falskur“ karfi á Reykjaneshrygg - djúpkarfi verður úthafskarfi og Hafró aðhefst ekkert Úthafskarfinn er ófrýnilegur eins og sjá má. Sá karfi sem nú veiðist er þvert á móti fallegur en kallast eigi að síður úthafskarfi. DV, Akureyri: íslenskir frystitogarar hafa mokað upp karfa síðastliðnar vikur á og nærri Reykjaneshrygg og hefðu getað veitt mun meira þar sem frystigeta þeirra hefur verið látin ráða því hversu mikið magn hefur verið tekið hverju sinni. Hér eru menn samkvæmt skilgreiningu Hafrannsóknar- stofnunar að veiða úthafskarfa en staðreyndin er hins vegar sú að þessi karfi er allur djúpkarfi sem er bæði stærri en úthafskarfinn og lít- ur að öðru leyti ekki alveg eins út. DV hefur itrekað bent á þessar djúpkarfaveiðar undir merkjum út- hafskarfaveiða en talað fyrir dauf- um eyrum eins og fleiri. „Ég held að þeir hjá Hafrannsóknarstofnun viti alveg eins og allir aðrir hvað þama er á ferðinni, þetta var alveg eins á síðasta ári og auðvitað vita menn um þetta,“ segir Björn Kjartansson, skipstjóri á Mánabergi frá Ólafs- firði. Hann segir sjómenn ekki ánægða með þessar veiðar, enda telji þeir að verið sé að ganga á djúpkarfastofninn sem margir telji að sé sami stofninn og veitt er úr hér á heimamiðum. Fleiri hafa bent á að hér séu menn að skjóta sig í fót- inn, búiö sé að ganga frá út- hafskarfastofninum og nú sé djúp- karfastofninn á sömu leið, stofn sem þó á að bera uppi karfaveiðina á heimamiðum. „Veiðin á þessum karfa hefur verið geysilega góð og menn hafa orðið að halda aftur af sér við veiðarnar til að taka ekki meira um borð en vinnslan í skipunum hefur undan að vinna. Það er því frystigetan sem hefur ráðið ferðinni," segir Bjöm Kjartansson. Hann segir Mánabergið hafa landað tvíveg- is fullfermi á um 30 dögum og sé frystigeta þess skips þó ekki mjög mikil. Einn viðmælenda DV um þetta mál orðaði afstöðu Hafrannsóknar- stofnunar til málsins þannig að þar á bæ gætu menn allt eins skipað sjó- mönnum að veiða ýsu en skrá hana sem þorsk eða að allt sem veiddist í silungsá væri skráð sem lax. „Þetta er ekki gott og hlýtur að koma okk- ur í koll síðar þegar við ætlum okk- ur að fara að veiða karfa á heima- miðurn," segir Björn Kjartansson. -gk Bílaíkveikja: Grunur um bensín- sprengju Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bil og tjóni valdið á öðrum með bensínsprengju fyrir utan hús í Næfurási. Slökkvilið var kallað út um miðja nótt, um klukkan fjögur, til að slökkva eld sem hafði kviknað í Ford Fairmont-bifreið, sem komin er talsvert til ára sinna, og mun yngri Renault-bíl sem stóð þar við hliðina. Eldurinn eyðilagði Fordinn en hinn bíllinn skemmdist á annarri hliðinni. Tæknideild lögreglunnar var send á staðinn í nótt til að kanna verksummerki þar sem eigandi Fordsins taldi að um íkveikju með bensínsprengju hefði verið að ræða. Niðurstöður rannsóknar lögregl- unnar liggja ekki fyrir. -Ótt Byggðastofnun: Ekkert að vanbúnaði 100 milljóna króna lánsloforð byggðastofnunar til fyrirtækjanna Rauðsíðu, Rauðfeldar og Bolfisks á Vestfiörðum hafði í morgun ekki verið efnt. Egill Jónsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar, sagði í samtali við DV í morgun að stjómin hefði sam- þykkt þessa fyrirgreiðslu í síðasta mánuði og eftir þvi sem hann vissi best hefðu fyrirtækin uppfyllt þau skilyrði sem stjórnin setti þeim fyrir fyrirgreiðslunni. Því ætti ekkert að vera að vanbúnaði að greiða út lánið. -SÁ Miðbærinn: Vor í rottum „Rotturnar koma upp þegar gróð- ur fer að vaxa en alltaf er það tengt biluðum eða brotnum skolpræsum," sagði Guðmundur Björnsson mein- dýraeyðir í morgun en hann hefur í nógu að snúast þvi það er vor í rott- um. Miklar framkvæmdir i miðbæ Reykjavíkur hcifa opnað rottunum greiða leið upp á yfirboröið og eru þær að verða algeng sjón í götu- myndinni víða í borginni . Á leik- skóla við Eggertsgötu léku rotturn- ar sér í mölinni bömunum til mik- illar skemmtunar. „Börnin vora sem betur fer inni við en héldu að þetta væru hamstr- ar og klöppuðu saman lófunum. Við hringdum í meindýaeyði og höfum ekki séð þær síðan,“ sagði ein fóstran. -EIR Veðrið á morgun: Víöa bjart veöur Á morgun verður fremur hæg breytileg átt og víða bjart veður en dálitlar skúrir sunnanlands síðdegis. Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, hlýjast í innsveitum. Veðrið í dag er á bls. 37. Tölur við vindörvar sýna vindhraða í metrum á sekúndu. STÓRSÝNING Bíla- og búvélasýningar Ingvars Helgasonar og Bílheima um landið Á morgun laugard. S. júní Ásbyrgi........................ 10-12 Þórshöfn....................... 15-17 Vopnafiöróur................... 19-21 Hejgason hf. Bilheimar ehf. Savarkáfita 2 ScevarhölOc 2a ■ Slmi 52S 9000 SwnS^aooö www.bilMmar.ls

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.