Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Side 10
vikuna 3,6-10.6, 1999 NR. 326 Selma er áfram á toppnum og þarf engan aö undra. Menningarlega séö unnum viö Eurovision og fussum bara yfir einhverri barbídúkku meö stoliö lag sem stal sigrinum. Áfram Selma! ALL OUT OF LUCK .SELMA (EUROVISION) l.|| RIGHT HERE RITHT NOW . . 1; 1- WHY DON’T YOU GET A JOB OFFSPRING ; mmn SECRETLY © iii THINKING OF YOU . . . .LENNY KRAVITZ t iiii LAOYSHAVE GUS GUS 1 mmmn CANNED HEAT ..... .JAMIROQUAI ( mn IT’S NOT RIGHT BUT IT’S OK . .WHITNEY HOUSTON I mn SCAR TISSUE RED HOT CHILLI PEPPERS | FIATBEAT 1 m 11 PROMISES . .THE CRANBERRIES | mmi 12 LIVIN’LA VIDA LOCA RICKY MARTIN j m 13 STARLOVER GUS GUS («W | 14 IN OUR LIFETIME TEXAS 4 mm 15 GENG f HRINGI iiii 16 STRONG : mmi 17 KISS ME SIXPENCE NONE THE RICHER 1 ii 18 NEW : mil 19 WILD WILD WEST . . .WILLSMITH (WILD WILD WEST) nýtt | 20 einn með þér : milll LOOK AT ME g m CLOUD NUMBER NINE .... t iiii 0 I WANT IT THAT WAY .BACKSTREET BOYS í m ONEANDONE t iii SOMETIMES t iii EVERY YOU, EVERY ME . . . . PLACEBO 4 mm ELECTRICITY * mn VIAGRA «TT I TREAT HER LIKE A LADY . . t II BOOM BOOM BOOM BOOM . VENGABOYS t III 4 PERFECT LIFE t II 4 REDALERT m iii 4 9PM (TILL 1 COME) 4 iiii 4 YOU NEEDED ME t mim /4 MY name is 1 mmi 4 ALLSTAR % i 4 TENDER ■l mmm 4 SÍGRÆN ÁST i 4 TABOO GLAMMA KIDD & SHOL4 AMA 1 iiii GET READY IKhT | íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og tekið þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á iimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard. \ Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur listanum síöustu viku síðustu viku í staö Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 inra Yfirumsjón með skoöanakönnun: Halidóra Hauksdóttir • Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiðslu: Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjórn: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir í útvarpi: ívar Guðmundsson f Ó k U S 4. júní 1999 „Blood Sugar Sex Magik“ var snilld sem seldist eins og lummuleg- asta lumma og gerði Red Hot Chili Peppers að stjörnum. Platan kom út 1991 en fyrir þann tíma hafði bandið gert hverja rokkfönksnilldina af annarri, gengið með sokka á tillun- um og misst gítarleikarinn sinn, Hillel Slovak, í hendur heróíndjöf- ulsins. Gitarleikarinn John Frusci- ante fyllti skarðið og spilaði á plöt- unni „Mother’s Milk“ og þar til RHCP hafði fylgt eftir „Blood Sugar“ með tónleikaferðum. Þá var gaurinn líka alveg búinn með yfirdráttar- heimildina í rokkbankanum, hætti og sukkaði frá sér vit og rænu. Rest- in; stofnmeðlimirnir Flea bassaleik- ari og Anthony Kiedis söngvari, og trommarinn Chad Smith reyndu að starfa áfram en það var eins og allt færi jafnharðan í steik. Þeir lentu í tómu rugli með gítarleikara, notuðu eina þrjá frá 1991-1998 og þeirra seigastur var Dave Navarro (úr Jane’s Addiction) sem spilaði á einu plötunni sem hræið af bandinu kom út, hinni slöppu „One Hot Minute" frá 1995. Sættir á sjúkrastofnun Platan hlaut eðlilega falleinkunn og RHCP drabbaðist enn meira nið- ur. Strákarnir fóru inn og út af með- ferðarstofnunum og reyndu að halda glórunni í Los Angeles, borg sem er ekki beint þekkt fyrir að fara vel Saga Red Hot Chili Peppers er eins og væmnasta kerlinga- bók. Strákagreyin eru alltaf að lenda í einhverju rugli en nú hafa þeir tekið sig saman í andlitinu og rokka sveittari á nýjustu plötunni sinni en þeir hafa gert í átta ár. að snúast aftur „ár einskis“ og ætl- aði að gera sólóplötu. En nú komum við að gleðifréttun- um: bandið er komið aftur á gott ról og eftir helgi kemur ný plata. Þegar John sagði óvænt upp í maí 1992, rétt áður en bandið átti að spila sem að- alband á Lollapalooza, urðu aðrir meðlimir eðlilega drullufúlir út í hann. Þeir töluðust ekki við árum saman og John var svo út úr því að hann viðurkennir að hafa aldrei hlustað á plötuna sem gerð var i fjar- veru hans. Það var svo í hittifyrra sem Ant- hony braut odd af oflæti sinu og og það'sem á undan var gengið var umsvifalaust grafið og gleymt." Rokkgredda Nýja platan, Californication, er gerð af mönnum sem er umhugað um að sanna sig. Þeir sátu í hásæt- inu og þeim langar þangað aftur. Það er þó ekkert örvæntingarfullt eða rembingslegt við þessa plötu, rokk- greddan skín í gegn. Þeir voru búnir að semja ein 30 lög í bílskúrnum hjá Flea þegar haldið var í upptökur en skáru niður. Platan er fimmtán laga. „Við vitum ekkert hvað þessi neisti varir lengi," viðurkennir bílskúrs- eigandinn, „en akkúrat núna er neistinn hreinasta bál!“ Hljómurinn á plötunni er kraft- mikill og skær og tónlistin ekta Red Hot; rokkað pönkfönk og gítarballöð- ur í bland. Það kæmi ekki á óvart þó bandinu tækist að komast hátt á kortið á ný því þessi plata verður mjög líklega spiluð grimmt í partíum heimsins í sumar. En hvað hafa stákarnir (eða karl- arnir, meðalaldurinn er 35 ár) lært af öllu saman? Söngvarinn er forlaga- trúar: „Það er ástæða fyrir þessu öllu; mistökunum, vJhbrigðunum og líka því sem við höfum áorkað. Maður verður aldrei veikur að ástæðulausu. Og allt endar eins og það á að enda. Ég held að við hefðum ekki það sem við höfum i dag ef allt þetta rugl og kjaftæði hefði ekki hent okkur.“ með tæpa rokkara. Flea var orðinn heimsótti John á meðferðarstofnun: svo leiður á aðgerðaleysinu að hann „Það var stórkostlegt þegar við kallar tímabilið áður en hjólin fóru horfðumst í augu á ný (fiðlumúsik) h-camp l«-ti plötudómur Dip - Hi Camp - Meets Lo Fi ★★★ m K l/i' - I . IL. ■ Nytisku jji Sigtryggur Baldursson, kenndur við Bogomil, og Jóhann Jóhannsson, kenndur við Lhooq, eru saman í Dip. t isaumur i sagnarbréf á iMAC. Emiliana Torr- 1 ini er fær karaoke-söngkona. Hún I virðist geta hermt eftir hverjum sem 41 Strákarnir hafa fóndrað saman í nokkur ár og nú er fyrsta platan komin. Fagleg vinnubrögð einkenna Dip en ekki flæðandi útrás „frá hjartanu" og það er ekkert að því. Tónlistin er svöl en tilgerðarlaus, rekin áhrif af taktpælingum Sig- tryggs og haldgóðri tónlistarþekk- ingu og tæknikunnáttu Jóhanns. Á plötunni er hrært saman í einn pott sixtís dívupoppi, sándtrakkpæling- um, exótískum fiftísfílingi, djössuð- um geimskutluanda, nútíma- tekknói, spunakenndum frí(k)djass og ég veit ekki hvað. Tæplega helmingurinn af þessari 14-laga plötu er sunginn af vel ydd- uðum barkakýlum. Sara Guðmunds- dóttir (úr Lhooq) fær það hlutverk að syngja tvö lög. Hún virðist á stöðugri uppleið og Jóhann fær henni vitaskuld góð hlutverk. Sér- staklega er „The Split" skemmtilegt lag; gella í mínipilsi, með heysátu á hausnum, að pikka dramatískt upp- er. I „Come out“ hvetur hún fólk til að koma út og baular alveg eins og Shirley Bassey. Þegar James Bond kemur úr skápnum verður þetta tit- illagið. í „Love in the Time of Sci- ence“ er langt í baulið og hægt að hrópa fimmfalt húrra fyrir frammi- stöðunni. Ásgerður Júníusdóttir syngur í „Glands" og gerir það vel. Nafn Ymu Sumac kemur upp í hug- ann enda tónlistin miðbaugsleg og dularfull. Magga Stína er slöpp kara- oke-söngkona því hún getur ekki hermt eftir öðrum en sjálfri sér. Lag- ið sem hún syngur, „Trampoline", minnir því ekki á annað en hana sjálfa. Sigurrósar-Jónsi kallar sig Frakk og syngur „Skyscraper Heart" sem er virkilega smart lag þó trega- fullt sé. Jónsi er kóngur í ríki trega- poppsins og ef þetta heldur svona áfram fer maður bráðum að grenja við það eitt að sjá hann úti á götu. Hinn helmingurinn er svo ósung- inn og hugsaður sem sándtrakk-tón- Tónlistin er svöl en tilgerðar- laus, rekin áhrif af taktpæl- ingum Sigtryggs og haldgóðri tónlistarþekkingu og tækni- kunnáttu Jóhanns. eru þrjú lög stubbar: inngangur, miðja og niðurlag. Upptaka með tautinu í einhverjum J.W. er látið malla undir „Mind in a Vice“ sem er leiðinlegasta lagið, þóttalegt hnoð, og litlu skemmtilegra er „Fear of Harmony". Mun skemmtilegri eru „Problematique" og „Munich Apocalypse", það siðarnefna gelt- andi spennustuð, tilvalið fyrir fram- haldsþættina „Sonarsonur Derricks", sem verða vinsælir á næstu öld. í það heila hefur Dip stimplað sig inn með skemmtilegri og fiölbreyttri plötu; mjög nýtískulegu búta- saumsteppi þöktu sniðugum þráðum úr poppsögunni. Gaman. -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.