Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1999, Blaðsíða 3
F
meðmæli
Backamon er yndislegt. Þaö er ótrúlega ein-
falt og hver leikur tekur ekki nema nokkrar
mínútur. Sá sem tapar veröur síðan alltaf svo
fúll að hann heimtar nýtt geim strax. Ef þú átt
ekki Backamonborð skaltu fara um helgina
niður á Grand Rokk, sem er eini staðurinn í
Reykjavík sem á borð, fá þér bjór og taka
nokkur geim.
Burt með gasið. Niður með
gasið. Þessi lausn
neyslusamféiagsins
að skella gasi undir
grillið og grilla mat-
inn þannig er einfald-
lega ekki nógu góð og
það kemur gasbragð.
Sálin er öll í kola-
grillinu. Svo er líka
sérstök list að
raða kolunum rétt í
byrjun þannig að þau séu öll
mátulega grá þegar dreift er úr
þeim. Svo geta dellukallarnir
líka keypt sér grillkit þar sem
þeir geyma öll tólin og tækin
sem þeir þurfa að nota við
þessa merku athöfn.
Frábær uppfinning. Þú lætur vatn t bakka og
færð ísmola t staðinn. Ekki smíða molabakk-
ann sjálfur, hann er hræódýr. Algjört þarfaþing
í partíum og ástarleikjum.
Ekki vera alltaf að elt-
ast við háttsk-
una. Notaðu
gömlu sokk- jgg
ana og fötin
bara aftur.
Dragðu fram
saumakittið og gerðu
við. Þú sparar pening og
hefur eitthvaö að gera I leiðinni.
Onnur frábær uppfinning. Hvar
værum við stödd ef eitthvert
gáfnaljósið hefði ekki fundið
upp flöskuupptakarann.
Jörðin væri einfaldlega
full af óopnuðum kók-
og bjórflöskum,
hvert sem maður
færi myndi mað-
ur detta um
ó o p n a ð a
flösku.
Bang Gang eru að meika það. Þriggja plötu samningur við
pötufyrirtækið East West (dótturfyrirtæki Warner) undirritaður
og allt gengið á leið til Frakklands. Eða ekki alveg allt gengið.
Þetta er allt að taka breytingum og Barði í Bang Gang virðist
vera að slá sér upp með öðrum stelpum. Eða hvað?
Esther í Bang Gang?
„Ég veit minnst um þennan
samning," segir Barði Jóhanns-
son, heilinn á bak við dúettinn
Bang Gang sem eyddi síðasta ári í
að fikra sig upp ýmsa óháða mús-
iklista í útlöndum og er nú kominn
með þriggja diska samning við
plötufyrirtækið East West (dóttur-
fyrirtæki Warner). „Það sem ég get
sagt um þennan samning er að við
Esther gerðum smáskífusamning
og þetta er eiginlega framhald
af honum.“
Hvaó felur hann nákvœmlega í
sér?
„Við gefum út plötu sem kemur
út i september eða október í Frakk-
landi og henni verður fylgt eftir
með tónleikahaldi," útskýrir Barði
en fyrstu tónleikarnir eru bókaðir
strax í ágúst.
Veröur þetta ný plata eöa sama
og þið gáfuó út fyrir jól?
„Þetta er sama platan. Einhver
lög verða endurunnin og endur-
sungin af Hafdísi Huld. Og einu
lagi jafnvel bætt við.“
Hafdís Huld úr GusGus
Eins og alþjóð veit var Hafdís
Huld rekin úr GusGus ekki alls fyr-
ir löngu en hún virðist vera komin
í nýja hljómsveit, eða?
„Nei, ég er ekki gengin í Bang
Gang,“ svarar Hafdís þrátt fyrir að
Barða sé meinilla við þessa spum-
ingu. Enda er hann annálaður sér-
vitringur sem safnar fyrirsögnum
sem innihalda orðið barði á milli
þess sem hann stundar hannyrðir
af kappi. „Ég er bara að syngja
nokkur lög á þessari plötu . ..“
„Og fylgja henni eftir,“ bætir
Barði viö, en hún Esther, sem verið
hefur með Barða frá upphafi, er að
fara í Leiklistarskóla íslands í haust
og verður því ekki á neinum af þess-
um fyrirhuguðu tónleikum. Enda er
Barði listamaðurinn sem skrifar
undir samninginn og er í rauninni
Bang Gang sjálfur en fær þessar
tvær söngkonur í lið með sér.
Alpahúfur og pípsjóv
Feróu nú og færö þér alpahúfu?
„Já. Að sjálfsögðu og einnig ætla
ég að fá mér hvítan, siðan trefil og
verða eins og Sigurður Pálsson,"
svarar Barði ánægður með að við-
talið sé loksins að færast yfir á eitt-
hvert vitrænt svið.
Þú hefur komiö til Frakklands
áóur, er þaö ekki?
„Já. í fyrrasumar fór ég í
skemmtiför og gerði mikla leit að
pípsjóvi, sem ég fann ekki. Þetta
voru bara strípklúbbar og þá mælti
maður: Ú e lu píp sjóv?“
Nú fer Hafdís að ókyrrast yfir
steypunni og er ekki alveg viss
hvort þetta fyrirkomulag, hún og
Barði, muni ganga upp.
Hvað erað þið búin að vera að
dúlla ykkur saman lengi?
„Mjög stutt, en passlega lengi,“
segir Barði sposkur og smellir í
góm að heldri manna sið.
En hvernig kom það til, Hafdis,
að þú fórst að vinna með þessum
brjálæðingi?
„Barði hringdi bara í mig og
spurði mig hvort ég vildi syngja
nokkur lög á plötunni sinni og
syngja á einhverjum tónleikum,“
útskýrir Hafdis alvarleg og bætir
því við að henni hafi bara litist vel
á það og þess vegna séu þau
einmitt að koma út úr skápnum
núna.
En Barði, Svala Björgvins er
milljarða virði, hversu margra
milljóna króna virði ert þú?
„Ég er einskis virði,“ segir Barði
hálfdapur.
„Getum við kannski haft þetta
aðskilin viðtöl," spyr Hafdís þá
frekar stelpulega og við það eru
umræðuefnin einhvern vegin kom-
in í þrot. -MT
Eðaltónlistarmaðurinn Mr. Bix er í augnablikinu
á landinu. Hann hefur verið úti í San
Francisco í vetur að bardúsa við hitt og þetta.
j'jJjö HiX t'állSJf J G:
_i
„Ég var að vinna „background"
tónlist fyrir 3-D netforrit og hanna
grafík fyrir heimasíðu fyrir íslenskt-
amerískt fyrirtæki sem það var að
gera. Svo klúðraðist það einhvem
veginn hjá því þannig að ég sat allt í
einu einn úti í kuldanum með enga
peninga. En það reddaðist allt þannig
að ég óska því bara góðs gengis. Það
er þannig séð ágætt að kynnast þess-
ari hlið málsins líka.“
Represent Chino XL
Hvernig náöiröu aö redda þér?
„Mér var boðið yfir til LA eina
helgi og þar kom Aria mér í sam-
bandi við konu sem heitir Marisol
og vann hjá Interscope. Hún er
hætt þar og orðin umboðsmaður og
okkur kom mjög vel saman. Hún
gerðist umboðsmaðurinn minn
þarna ytra og kom mér í góð sam-
bönd enda þekkir hún endalaust af
liði þama. Það voru allir ótrúlega
viðkunnanlegir og tilbúnir til að
hjálpa mér.“
Ertu meö einhver verkefni negld
niöur?
„Já og nei. Ég fer hugsanlega að
vinna með Chino XL, sem er
mexíkanskur represent rappari,
dissar meðal annars Dr. Dre og
svona. Hann er á samningi hjá
Warner og seldi heilan helling af
síðustu plötu þannig að það er hið
besta mál. Síðan geri ég eflaust ein-
hvem slatta af remixum fyrir ein-
hverjar minni hljómsveitir til að
vinna mér inn pening og halda mér
gangandi.
Rigning og læti
Hvað ertu svo að gera hérna á
Fróni?
„Ég verð héma heima fram í ágúst,
ætla að reyna að taka það semi-ró-
lega, vera með kærustunni minni
sem er líka á landinu í sumar. Ann-
ars verðum við Herb Legowitz að
semja tónlist saman og síðan vinn ég
forvinnu fyrir Chino XL ef hann fer í
gegn. Annars er ég að redda restinni
af græjunum mínum heim og koma
þeim upp af því að ég átti ekki næg-
an pening til að koma þeim öllum
með mér. Það er bara verst að það er
allt svo grátt héma heima, rigning og
læti. Það em þokkaleg viðbrigði við
endalausu sólina þama úti. En það
þýðir ekkert nema „go with the flow“.
-hvs
g f n i
Nepalmeistarinn
í River rafting:
Stelpurnar
og foreldrar
þeirra stíf í
Nepal
Hjólabretta-
drengirnir: D
Stofnun fríríkis
««. á Ingólfstorgi
Buttercup sýnir:
Baðföt sumarsins
Helga Hlín
Hákonardóttir:
Verðbréfa-
gutti hjá
FBA 8
Stærstu tónleikar aldarinnar:
Garbage, East 17,
Mercury Rev og
Repuplica
Óþolandi ----
nágrannar:
Það vill
enginn búa
við hliðina
á þeim
Bíó: 14
Morðingjasonur og
hasshaus
Heimilis-
ofbeldi:
Mun karl-
inn þinn
lemja
Þig? 16
Lífid eftir vinnu
FSugdrekar
plörkur heimildarbörku
wmm ágm& w I
A moti Soi
Gylfi Gíslason
“verjir voru^
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Teitur af Helgu
Hlín Hákonardóttur.
18. júní 1999 f Ó k U S
3