Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1999, Blaðsíða 15
vantar í bíó
í dag frumsýnir Háskólabíó Hi-Lo Country með þeim
Woody Harreison og Billy Crudup í aðalhlutverkum.
Þetta er eftirstríðsdrama með ástarþríhyrningi,
Patricia Arquette kemur upp á milli piltanna,
og gommu af afbrýðisemi.
Woody
Harrelson:
Sonur
rðingja
haus
Woodrow Tracy Harrelson
(Woody Harrelson) er hass-
hausinn sem sómir sér best í
hlutverki hvíts úrhraks frá
Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Enda er gæinn fæddur í Mid-
land, Texas, þó hann sé enginn
rasisti úr Suðurríkjunum sjálf-
ur. Hann er meira svona hvítt
marijuana-úrhrak. Alla vega
hefur Woody eytt ómældum
tíma í að berjast fyrir því að
fíkniefni verði lögleidd í
Bandaríkjunum. Hann hefur
líka verið handtekinn fyrir
neyslu og alls konar mótmæla-
aðgerðir. Nú horfir hann jafn-
vel fram á sex mánaða fangelsi
fyrir að mótmæla skógarhöggi
og á að mæta fyrir rétt í desem-
ber til að hlýða á úrskurð dóm-
ara.
Það furðulegasta við Woody
er uppeldið. Pabbi hans,
Charles Harrelson, er leigu-
morðingi sem situr í fangelsi
og er talinn, af samsærismönn-
um, vera viðriðinn morðið á
sjálfum John F. Kennedy. En
sá gamli hefur verið dæmdur
fyrir tvö morð. Það fyrra 1968
og svo drap hann dómara 1978.
Fjölskyldulíf leikarabræðranna
Woody og Brett (lék bróður
Larry Flynt í samnefndri
kvikmynd) hefur því verið i
einkennilegra lagi og ekkert
svo skrýtið að Woody hefur alla
tíð verið rótlaus. Svo hefur
hann líka viðurkennt að vera
óvirkur kynlífsfíkill (hvað svo
sem það þýðir) og heldur þvi
fram að áður en hann ákvað að
verða leikari hafí hann verið
svo rótlaus að eitt árið vann
hann sautján mismunandi
störf. Aðaláhugamál Woodys er
að syngja í hljómsveit sinni,
Manly Moondog and the Three
Kool Hats.
Fæðingardagur og ár: 23. júll 1961.
Fæðingarstaður: Midland, Texas.
Stjörnmnerki: Ljón.
Eiginkona: Laura Louie (giftust 11.
janúar ’98).
Fyrrum eiginkona: Nancy Simon
(’85-’86), dóttir Neil Simon.
Börn: Tvær dætur; Deni Montana
(f. 1994) og Zoe Giordano (f. 1997).
Kvikmyndir: Cheers (1985-1993),
Doc Hollywood (1991),
White Men Can’t Jump (1992),
Indecent Proposal (1993),
I’ll Do Anything (1994),
Natural Bom Killers (1994),
Money Train (1995),
The Sunchaser (1996),
Kingpin (1996),
The People vs. Larry Flynt (1996),
Welcome to Sarajevo (1997),
Wag the Dog (1997),
The Thin Red Line (1998),
The Hi-Lo Country (1998),
Palmetto (1998),
Edtv (1999).
drama
að hætti
Pecker
John Waters, leik-
stjóri Serial Mom,
Cry-Baby og Hair-
spray, er með nýja
mynd eftir fjögurra
ára fjarveru
Pecker var frumsýnd, öllum að
óvörum, um síðustu helgi í Laugar-
ásbíói. Þeir voru að drífa sig svo
mikið að þeir höfðu ekki einu sinni
fyrir því að texta filmuna. Já, það
er ótextuð mynd í bíói á íslandi.
Þrefalt húrra fyrir Laugarásbíói.
Bara skella þessum myndum á
tjaldið jafnóðum og þær koma í
stað þess að vera alltaf að bíða í
fleiri, fleiri mánuði.
Leikarar verða að smjöri
Myndin fjallar um afgreiðslu-
mann í samlokubúð í Baltimore (Ed-
ward Furlong) sem verður að
stjömu á einni nóttu þegar myndir
sem hann hefur tekið af stórskrít-
inni fjölskyldu sinni verða að nýj-
ustu tískunni í listaheiminum. Hann
er kallaður Pecker vegna þess að
hann kroppar (pecks) alltaf i matinn
sinn eins og fugl. Pecker er eftir
furðufuglinn John Waters, leik-
stjóra Serial Mom, Cry-Baby og
Hairspray. Waters hefur stundað
Hin furðulega fjölskylda Peckers.
það í gegnum tíðina að taka leikara
og svo virðist sem þeir verði að
smjöri í höndum hans. Snemma á
ferlinum var hann mikið með klæð-
skiptinginn Divine í myndunum
sínum og brölluðu þeir skrítna hluti
saman, eins og í Pink Flamingos
þegar Divine sést éta hundaskít með
bestu lyst.
Bjargaði Johnny Depp
Waters sleit sig þó úr pervertism-
anum og seint gleymist þegar hann
bjargaði Johnny Depp úr viðjum
táningahelvítisins sem hann var
kominn í með leik sínum í gelgju-
þáttunum 21 Jump Street. Depp seg-
ir sjálfur að ef Waters heföi ekki
komið til sögunnar hefði leikarafer-
ill hans endað kl. 23 á þriðjudags-
kvöldi. Síðan má ekki gleyma Cat-
hleen Turner í Serial Mom þar sem
hún komst í guðatölu hjá mörgum
fyrir leik sinn í hlutverki móðurinn-
ar hjartagóðu/morðóðu. Eins og
áður sagði er myndin sýnd i Laugar-
ásbíó og er öllum ráðlagt að drífa sig
fyrst ljóta, gráa textaboxið er ekki
fyrir og hægt er að njóta myndar-
innar út í ystu æsar.
Svifasein
hamingja
Kvikmyndin Happiness var
frumsýnd í Noregi og Dan-
mörku í janúar en í Svíþjóð
var hún sýnd í október í
fyrra. Og þar sem við erum
gjörn á að miða okkur við ná-
grannaþjóðirnar þá er óhætt
að segja að íslenski bíógestir
mega vera reiðir út í kvik-
myndahúsin. Þetta bara geng-
ur ekki. Happiness fær ein-
róma lof út um víða veröld og
er ein af snilldarverkum síð-
asta árs. Hún fékk gagn-
rýnendaverðlaunin í Banda-
ríkjunum í fyrra og vann
Toronto-kvikmyndahátíðina.
Það er því til skammar að
kvikmyndahúsin hér heima
nenni ekki að smella henni á
tjaldið.
The Hi-Lo Country er byggð á
samnefndri skáldsögu eftir Max
Evans. Hann er gamlur refúr í
kúrekaskáldsögum. Skrifaði bók-
ina Rounders en eftir henni var
gerð kvikmynd áriðl965 með þeim
Glenn Ford og Henry Fonda í að-
alhlutverkum. Það hefur annars
verið á planinu í tugi ára að gera
kúrekadramað Hi-Lo Country og
leikarar á borð við Charlton
Heson og Lee Marvin ætluðu um
tíma að leika aðalhlutverkin.
Verðlaunamynd
Nú er myndin hins vegar loksins
komin í bíó undir leikstjórn Steph-
en Frears sem gerði The Van
(1996), Mary Reilly (1996),
Accidental Hero (1992), The
Grifters (1990) og Dangerous Liai-
sons (1988). Framleiðendur mynd-
arinnar eru heldur engir nýliðar.
Þetta er einvalalið og fremstur
meðal jafninga er spaghettíprins-
inn Martin Scorsese. Hann er
sagður vera gæinn sem kom mynd-
inni í gegn eftir öll þessi ár. Sá tími
hefur skilað sér að einhverju leyti
því myndin vann Silfurbjörninn á
Berlínarhátíðinni og var tilnefnd
til Gullbjamarins. Við emm því að
tala um verðlaunamynd.
Húsið á sléttunni?
Myndin fjallar um það þegar her-
maðurinn Pete Calder (Billy Cru-
dup úr Sleepers) kemur heim í Hi-
Lo eftir seinni heimsstyrjöldina er
hann á svolitlum bömmer en fær
hjálp við að aðlagast frá Big Boy
Matson (Woody Harrelson) sem
einnig var að koma úr stríðinu.
Þeir ákveða að fara í bissness með
gamla kúrekanum Hoover Young
(James Gammon) og lenda í úti-
stöðum við Jim Ed Love (Sam
Elliott) sem var heima í stríðinu
og á hálfan bæinn. Þeir félagar,
Pete og Big Boy, verða nefnilega
báðir ástfangnir í Monu Birk (Pat-
ricia Arquette úr Lost Highway)
kúreka
Billy Crudup og Woody Harrelson leika ólukkulegu kúrekana
og fyrrum hermennina sem báðlr elska Patriciu Arquette.
sem er gift hægri hönd Jims Ed og
á einmitt í ástarsambandi við Big
Boy. Þetta er þvi ekta sápa og pott-
þétt mynd fyrir alla þá sem fíluðu
English Patient og sjónvarpsþætt-
ina Húsið á sléttunni, svo ekki sé
minnst á afbrýðisemisnilldina
Indecent Proposal.
*
<
18. júní 1999 f Ó k U S
15