Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1999, Blaðsíða 18
Líficí eftir vinnu
*
? haf
Berrassaður
Spaugstofumaður
Þeir voru í góðum málum, gaurarnir sem
fóru skinny dipping í Vesturbæjarlaug á aó-
faranótt sunnudags,
því meö þeim var
engin önnur en leik-
sþíran og Spaug-
stofumeölimurinn
Unda Ásgeirsdóttir.
Aö sögn þriggja sjón-
arvotta var mikið húll-
um hæ á þeim er þau
dýfðu sér kviknakin
ofan í kyrra laugina
og busluðu eins og vitleysingar. En aum-
ingja Linda og félagar voru ekki lengi í
paradís því að komu svífandi illir lögreglu-
menn og rifu þau upp úr lauginni á þerum
bossanum. Hvar voru myndavélarnar þá?
Hard Rock - Part 2
Plöggkóngur islands er kominn meö nýtt
starf. Jess, Einar Bárðarson er nýráöinn
framkvæmdastjóri
Hard Rock - sem bet-
ur fer. Staðurinn var á
hraðri siglingu á botn-
inn en nú ætti að vera
nokkuð Ijóst að viö
gætum verið að horfa
upp á Hard Rock -
Part 2. Hann Einar
Bárðarson er alla vega
einn af þeim sem á
alltaf salt i grautinn og er ótrúlegur bolti sem
gerir allt að hreinu plöggi sem hann snertir.
■v
Drag 1999
Nú fer hver að verða síðastur
að skrá sig til þátttöku í
keppninni Drag 1999 sem
fer fram á Nelly’s Café 25.
júní. Það verður mikið
húllum hæ og svaka
sjóv að hommalegum
sið. Einhverjar stjörnur
heiðra staðinn með nær-
veru sinni en óvíst er hvort
einhverjir aðrir en keppendur
troða upp. Vonum bara að
dragið á íslandi fá smá and-
litslyftingu og eitthvað af nýju
blðði.
Nýr klúbbur
Danstónlistarunnendur Reykjavíkurborgar
hafa nú eflaust flestir orðið varir við það af
hversu skornum skammti klúbbar borgar-
innar eru. Ekki þarf þó að örvænta mikið
. lengur - samkvæmt því sem pirraðir Thom-
sen-gestir fullyrða, því að nokkrir af frum-
kvöðlum skemmtanalífsins hafa í hyggju
að opna nýjan, ferskan dans- og fylleris-
stað. Það veitir ekki aldeilis af því en meira
um það síðar.
Leikhús
Abel Snorko býr einn, eftir Eric Emmanuel
Schmitt hinn franska, verður flutt á Litla sviði
Þjóðleikhússins kl. 20. Sími 551 1200.
í Iðnó er verið að sýna Hnetuna en það er ein-
hvers konar geimsápa sem þykir mjög fyndin.
Klukkan 20:30 hefst sápan og enn eru nokk-
ur sæti laus. Aðalhlutverk leika Frlðrlk Frið-
riksson, Llnda Ásgelrsdóttir, Gunnar Helga-
son og fleiri.
Á stóra sviði Borgarleikhússins er Litla hryll-
ingsbúðln sýnd klukkan 20:00. Höfundur
verksins er Howard Ashman en leikstjóri er
Kenn Oldfield sem er svo sannarlega orðinn
Jslandsvinur". Hann hefur leikstýrt nokkrum
stykkjum hér á landi, meðal annars Grease
sem hlaut fádæma góðar viðtökur. Aðalhlut-
verk í Hryllingsbúðinni leika Stefán Karl Stef-
ánsson, Þórunn Lárusdóttlr, Bubbi Morthens,
Eggert Þorleifsson og Selma Björnsdóttir svo
einhverjir séu nefndir. Um tónlist sér hinn
margrómaði Jón Ólafsson. Rétt er að benda á
að klukkustund fýrir sýningu eru miðar seldir á
hálfvirði.
Maður í mislitum sokk-
um eftir Arnmund Back-
man er klukkan 20.00.
Þessi farsi hefur verið að
ganga út um allt land en
er líka sýndur í Þjóðleik-
húsinu svona endrum og
sinnum. Þetta er enn eitt
gangstykkið með „gömlu
leikurunum" - að þessu
sinni Þóru Friðriksdótt-
ur, Bessa Bjarnasyni og Guðrúnu Þ. Stephen-
sen. Síðustu sýningar.
Þjóðleikhúsið sýnir Rent eftir Jonatan Larson
i Loftkastalanum kl. 20.30. Þetta er söngleik-
ur sem öfugt flestra slíka sem hafa ratað á
fjalirnar undanfarin misseri er nýr. Ekki þó al-
veg þvf þráðurinn er að hluta spunninn upp úr
óperunni La Boheme - ekki þó tónlistin. Sagan
segir frá ungum listnemum í New York og líf
þeirra innan um dóp, alnæmi, ást, spillingu,
greddu og rómantík. Baitasar Kormákur leik-
stýrir en meðal leikenda eru flestar af yngri
stjörnum leikhússins: Rúnar Freyr Gíslason,
Björn Jörundur Friöbjörnsson, Brynhlldur Guð-
jónsdóttlr, Atli Rafn Sigurðarson og Margrét
Elr Hjartardóttir auk nokkurra eldri brýna á
borö viö Stelnunni Ólínu Þorstelnsdóttur og
Helga Björns.
„Námskeiðin ganga út á aðalat-
riðið í kvikmyndagerð sem er
sköpunin," segir Böðvar Bjarki
Pétursson, kvikmyndagerðar-
maður og skólastjóri Kvikmynda-
skóla íslands. „Tækin skipta þá í
raun engu máli. Það er hægt að
læra á upptökuvél á fimm mínút-
um og hægt að skjóta mynd á fá-
einum klukkustundum.“
Kvikmyndaskóli íslands er á
sínu öðru ári og heldur námskeið
fyrir áhugasama kvikmyndagerð-
armenn. Námskeiðin taka níu
daga og á þeim tíma skjóta krakk-
arnir myndir og læra að klippa og
taka smá leikstjórnarkúrs sem
felur i sér að leikstýrt er frægu at-
riði úr Hitchcock-mynd. Hljóm-
ar kannski pínu eins og einhver
ungingafjárplógsstarfsemi en er
það ekki því Böðvar er þannig
gæi að hver sem er getur bankað
upp á hjá honum með góða hug-
mynd og fengið hann í lið með sér
við að framleiða hana.
„Það góða við þetta land er að
það er hægt að gera allt hérna. Ef
þú færð góða hugmynd þá ferðu
bara af stað og gerir hana,“ segir
Böðvar og hann ætti að vita það.
Framleiðslufyrirtæki hans, 20
geitur, er með 12 heimildamyndir
í vinnslu og heilan helling i undir-
búningi. „Eitt af því sem við erum
með í gangi er Fín bjalla. Það er
svona islensk útgáfa af Dogma. Ég
setti þetta af stað ‘95 þegar ég las
um þetta hjá honum Lars Von
Trier og fannst að þetta væri ná-
kvæmlega eitthvað fyrir ísland.
Nú eru átta heimildamyndir i
framleiðslu sem verða sýndar í
bíói í maí á næsta ári.“
Af hverju heimildamyndir?
„Þörfin er þar. Það hefur ekki
verið gerð almennileg heimilda-
mynd á íslandi síðan Björgunara-
frekið við Látrabjarg var gerð.
Allt annað er froða og rugl. Fín
bjalla verður bomba þegar hún
kemur. Viðhorf fólks til heimilda-
mynda mun breytast algerlega,"
fullyrðir Böðvar og það verður
vonandi raunin.
í byrjun ágúst veröur síöan
frumsýnd mynd eftir þig í bíó?
„Já. Lúðrasveit og brú kemur
þá. Hún fjallar um það að allir
menn eru í raun að gera það
sama. Ég elti hljómsveitarstjóra
og brúarsmið í 2 ár. Myndin var
tekin á Filmu og ég fór næstum
þvi á hausinn."
Hvaö meö styrki?
„Ég sæki alltaf um f öllum sjóð-
um en fæ aldrei úthlutað," segir
Böðvar Bjarki og útskýrir að
hann sé svolítill styrkjafíkill.
Kannski óvirkur styrkjafíkill sem
minnir einna helst á alkóhólista
sem á ekkert brennivín.
Sex í sveit er vinsælasta stykki Borgarleik-
hússlns þetta árið og fer nú á ferðalag
um landið. Nú er það á Akureyrl,
nánar tiltekið í Bæjarleikhúsinu
þar. Leikarar eru Edda Björgvins-
dóttlr, Björn Ingl Hilmarsson,
Ellert A. Inglmundarson, Gfsli
Rúnar Jénsson, Rósa Guðný
Þórsdóttir og Halldóra Geirharðs-
dóttlr.
(/' Hallgrímur Helgason hefur skrifað
nýtt verk fyrir Hádegisleikhúslð, Þús-
und eyja sósa. Þar segir af viöskipta-
frömuðinum Sigurði Karli sem stund-
ar flókin rekstur og kanna að kjafta
sig út úr öllum vanda. Með aðalhlut-
verk fer Stefán Karl Stefánsson, en
Magnús Geir Þórðarson leikstýrir. Sýnt
er í Iðnó sem fýrr.
•Kabarett
Stórsöngkvennadæmiö er á Broadway fyrir
lysthafendur. I kjölfarið skemmtir Skíta-
mórall.
Fyrir börnin
í dag hefjast dagar drekanna í Straumi. Jó-
hann Örn Héðinsson handavinnukennari að-
stoðar við gerð ýmiss konar flugdreka. Börn
þurfa að vera I fylgd með fullorðnum, en í
dag hefst þetta klukkan 16. Á morgun byrjar
þetta svo klukkan 10 og stendur til 17.
Sömu tímar á sunnudag. Þið getið þó komið
þegar ykkur hentar. Boðið verður upp á kakó
og kringlur. Námskeiðisgjald er 1000 krónur
og allt efni er innifalið.
Bíóborgin
Lolita Leikstjórinn Adrian
Lyne, sem gerði m.a.
myndirnar Fatal Attraction
og 9 1/2 Weeks, tók það
erfiða verkefni að sér að
gera endurgerð á mynd
Stanleys Kubricks, Lolitu,
eftir sögu Vladimirs
Nabokovs. Saga þessi er
svo umdeild að hún hefur
verið skotspónn rauð-
sokka í tæp fimmtíu ár. Óhætt er aö segja að
hún veki þær kenndir meðal karlmanna sem
0 þeir óttast mest.
Rushmore ★ ★★ Rushmore fellur I flokk
ágætra mynda, maður er ágætari á eftir því
þetta er mynd sem býr klisjunum ferskan bún-
ing og gætir þess jafnan að feta aðra stlgu en
á sem flestar aðrar troða. Þetta er saga um
hvolpaást skólanemans Max Fischer á kennara
sínum Rosemary. Max er umfram allt næmur
listamaður og afkastamikiö leikritaskáld, nokk-
urskonar nútíma Ólafur Ijósvíkingur sem hefur
tekið að sér að þjást fyrir fáskiptinn almúgann.
Yfir myndinni er frisklegur blær og velkominn
þegar svo margar myndir frá Ameriku sem fjalla
um unglingsárin gera litið annað en að nema
lyginnar land undir yfirskini skemmtunar. -ÁS
^ Message In a Bottle ★★ Óskammfeilin róm-
antlk, saga um missi og nær óbærilegan sökn-
uð eftir því sem hefði getað orðið á öðrum enda
vogarskálarinnar og örlagarika samfundi og
endurnýjun á hinum endanum. Ýmislegt þokka-
lega gert, leikur er hófstilltur og látlaus, fram-
vindan að mestu sömuleiðis og myndirfallegar.
En einhvern veginn nær þetta ekki að virka
nægilega sterkt á mann, til þess er flest of
slétt og fellt. -ÁS
Bíóhöl1in
10 Things I Hate about You 10 Thlngs I Hate
about You seg-
ir frá ólíkum
systrum. Bi-
anca, er vin-
sæl, falleg og
r ó m a n tí s k
stúlka sem
strákar hrifast af.
skapvopnd og gáfuð og þolir ekki stráka, sem
hún telur vera óæðri verur.
Þayback ★★★ Leikstjóranum Brlan Helgeland
tekst ágætlega að búa til dökkmyndastemningu,
vel fléttaða, og kemur stundum jafnvel skemmti-
lega á óvart. Hins vegar er svolítið erfitt að trúa
á Mel sem vonda gæjann, til þess er byrði hans
úr fyrri myndum of þung. ÁS
8MM ★★ Þegar upp er staðið eins og sauður
i úlfsgæru, jafn kjánalega og það hljómar; mynd
sem á endanum reynist ansi miklu meinleysis-
legri en hún vill í upphafi vera láta. Ekki skortir
svo sem óþverrann og mannvonskuna, en mik-
ið vantar upp á þá sannfæringu og dýpt sem
gerði Seven, fýrri mynd handritshöfundarins
Walker, að meistaraverki. -ÁS
Mlghty Joe Young ★★ Gamaldags ævintýra-
mynd sem heppnast ágætlega. Sjálfur er Joe
meistarasmíð tæknimanna og ekki hægt ann-
að en að láta sér þykja vænt um hann. Það er
samt ekkert sem stendur upp úr; myndin líður
í gegn á þægilegan máta, án þess að skapa
nokkra hræðslu hjá yngstu áhorfendunum sem
örugglega hafa mesta ánægju af henni. -HK
Pig in the City ★★ Mynd númer 2 er fýrst og
fremst ævintýramynd og meira fýrir börn en fýr-
irrennarinn. Má segja að teiknimyndaformið sé
orðið alls ráðandi og er myndin mun lausari í
rásinni. Dýrin, sem fá mikla aðstoð frá tölvum
nútímans, eru vel heppnuð og þótt oft sé gam-
an að apafjölskyldunni og hundinum með aftur-
hjólin þá eru dýrin úrfýrri myndinni, með Badda
sjálfan í broddi fylkingar, bitastæðustu persón-
urnar.-HK
Pöddulíf ★★★ Það sem skiptir máli í svona
mynd er skemmtanagildið og útfærslan og hún
er harla góð. Sama skemmtilega hugmynda-
flugið og gerði Mulan svo ánægjulega er hér
enn á ferð og mörg atriðanna eru hreint frábær,
bæði spennandi, fyndin og klikkuð. -úd
Permanent Midnlght ★★ Þrátt fyrir sterkan
leik Ben Stillers er Permnent Mldnlght aldrei
nema miðlungsmynd, formúlumynd af því tag-
inu að þetta hefur allt sést áður. Það hlýtur að
skrifast á reikning leikstjórans David Veloz að
framvindan er öll hin skrykkjóttasta og það
sem hefði getað orðið kvikmynd um hæfileika-
rikan handritshöfund sem tapar áttum verður
aðeins kvikmynd um heróínneytanda og margar
betri slíkar myndir hafa verið gerðar. -HK
Háskólabíó
Plunkett &
Macleane ★★
Þetta er tilraun
til að búa til
„buddy”-mynd í
anda Butch
Cassidy and
the Sundance
Kid, en fyrir fólk sem höfundar myndarinnar
álíta greinilega bjána; þ.e. MTV-kynslóðina sem
vill flottar umbúðir fyrst og fremst en er nokk
sama um innihaldið. Ég held reyndar að það sé
misskilningur. Þó að unga kynslóöin sé vön
hröðum kiippum vill hún engu að síður upplifa
góða sögu. Höfundunum mistekst hinsvegar al-
gerlega að glæða þessa bófa sem ræna þá riku
einhverju lífi, alla undirbyggingu persóna vantar
og þvi er holur hljómur í annars ágætum sam-
leik Carlyle og Miller. -ÁS
Celebrlty ★★★ Fáir standast Woody Allen á
sporði þegar kemur að því að lýsa ruglingslegri,
mótsagnakenndri og örvæntingarfullri leit nú-
tíma borgarbúans að sjálfum sér. Leikstill
mynda hans er unaðslegur, flæðandi og kaó-
tískur, samtölin eru flestum öðrum kaldhæön-
ari, beinskeyttari og hnyttnari, sviðsetning yfir-
leitt einföld og hugkvæm, kringumstæður garn-
an gegnumlýsandi og meinfýndnar. Af öllum
þessum mikilvægustu þáttum hverrar kvik-
myndar stafar því áreynsluleysi sem skilur á
milli fagmanns og meistara. -ÁS
200 Clgarettes ★★ Á gamlárskvöld árið 1981
fylgjumst viö með eitthvað á annan tug persóna
á leið I partí. Komið er við á krám og veitinga-
húsum um leið og vandamálin koma upp á yfir-
borðið. Ákaflega yfirborðskenndar persónur I
höndum ungra leikara sem eru allt of upptekn-
ir af sjálfum sér til að kanna hvort eitthvað hafi
verið öðruvlsi 1981. Timburmennirmr eftir par-
tíð sýna fram á að það hefði verið hægt að gera
betur. -HK
Waking Ned ★★★ Þetta er ómenguð velliðunar
(feelgood) kómedía og ánægjan er ekki hvað sist
fólgin í að horfa á hvern snilldarleikarann á fæt-
ur öðrum skapa skondnar persónur á áreynslu-
lausan hátt. Það er afskaplega hressandi að sjá
bíómynd þar sem gamalmenni fara með aðalhlut-
verkin - þessir tilteknu gamlingjar eru sko langt i
frá dauðir úr öllum æðum. -ÁS
Arlington Road ★★★ í það heila vel heppnuð
spennusaga með umhugsunarverðum og
ögrandi vangaveltum og sterku pólitísku yfir-
bragði. Minnir um margt á samsæris- og para-
nojumyndir áttunda áratugarins, t.d. The Paral-
lax View eftir Alan Pakula, þar sem „óvinurinn"
virðist ósýnilegur og leit aðalpersónunnar að
sannleikanum ber hann út að ystu nöf, bæði
andlega og siðferöislega. Handritið spilar ágæt-
lega á innbyggðar væntingar okkar til hetju og
illmennis alla leið að hrikalegum endinum sem
situr þungt í manni eins og illur fýrirboöi. -ÁS
Forces of Nature ★ Fellibylurinn sem kemur
lítillega við sögu í lok þessarar myndar virðist
áöur hafa átt leið um hugi allra aðstandenda
hennar því að satt að segja stendur ekki steinn
yfir steini. Þetta er ein af þessum innilegu
óþörfu myndum sem Hollywood sendir stund-
um frá sér, eins og til að fylla uppí einhvern
kvóta eða skaffa stjörnunum eitthvað að gera.
Hversvegna einhverju viti bornu fólki dettur í
hug að bjóða áhorfendum uppá þetta rusl er
ofar mínum skilningi. -ÁS
Kringlubíó
My Favorlte Martian ★★
Þegar horft er á My
Favorlte Martian, sem
gerð er eftir vinsælli sjón-
varpsseríu sem var upp á
sitt besta um miðbik sjö-
unda áratugarins er ekki
laust við að sú hugsun
sæki að manni hvort kvik-
18
f Ó k U S 18. júní 1999