Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1999, Síða 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
*Skila
líka arði
„Ég sit ekki og skipulegg
stofnfundinn en það getur vel
verið að það endi
með því að það
verði eini kostur-
inn í stööunni.
Svona til að sýna
fram á það að
reykingamenn
skila líka arði.
Það gæti líka
verið sniðugt að reykinga-
menn legðu niður vinnu í
einn dag. Kannski bara
reyklausa daginn næsta.“
Heimir Már Pétursson,
reykingamaður, um hugs-
anlega stofnun samtaka
reykingamanna í Fókusi.
Fúavamarkók
Garri hefur iðulega séð
menn ælandi unnvörpum eft-
ir kókdrykkju á íslandi. Eink-
um og aðallega þó á dansleikj-
um þegar búið er að blanda
kókið með viskí eða vodka.
Sem auðvitað dregur úr nátt-
úrulegum styrk fúavamarefn-
isáhrifa drykkjarins og leiöir
óhjákvæmilega til ógleði og
uppsölu.“
Garrí í Degi um hina ein-
stöku fúavörn i kóki.
Verið ósveigjanlegur
„Það hefur verið ansi fyrir-
ferðarmikill hluti af mínu
starfi til þessa
og mér oft verið
legið á hálsi fyr-
ir að vera
ósveigjanlegur,
þótt vissulega
sé ég því ger-
samlega
ósammála.
Það er því
fátt sem ég hlakka
meira til að vera laus við.“
Kristján Ragnarsson hjá LÍÚ
um samskipti sín við fjöl-
miðla og viðsemjendur.
Svartagallsrausið
„Svcutagallsrausið er ekki
búiö til á ritstjómarskrifstof-
um blaða eða
, fréttastofum út-
varpa. Oftast
em það heima-
menn á hverj-
um stað eða
kjömir full-
trúar þeirra
sem telja það
þjóna ein-
hverjum til-
gangi að tíunda vondar fréttir
um vonlaust mannlíf og alls
kyns erfiðleika sem íbúamir
eiga við að stríða."
Oddur Ólafsson, í Degi, um
orsakir byggðaröskunar.
Matthías Sigurðsson, nýr framkvæmdastjóri Nóatúns:
Bjartsýnn á framtíðina
Matthías Sigurðsson var nýlega
ráðinn framkvæmdastjóri verslun-
arkeðjunnar Nóatúns. „Ég byrjaði
snemma í verslunarrekstri, enda er
ég alinn upp í þessu umhverfi."
Matthías lauk verslunarskólaprófi í
Danmörku en hefur síðan rekið
verslanir, lengst af verslunina Víði
og vann síðan við verslunina Mikla-
garð. Síðastliðin sex ár hefúr hann
unnið fyrir Nóatún og verið versl-
unarstjóri Nóatúns á Hringbraut í
JL-húsinu. Hvemig hefur samstarf-
ið við eigendur Nóatúnskeðjunnar
gengið? „Það hefur gengið mjög vel.
Þetta er dugleg fjölskylda og það
hefur alltaf verið góður andi á milli
okkar þannig að ég er mjög ánægð-
ur í þessu samstarfi."
En hvemig ætli rekstur Nóatúns
gangi um þessar mundir? „Hann
gengur mjög vel. Við emm nýbúin
að festa kaup á tveimur nýjum
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Þær era í Hólagarði í Breiðholti og
í Grafarvogi. Svo eru tvær aðrar
komnar á kortið sem eru í Smára-
lindinni og Hafnarflrði. Við geram
ráð fyrir aö þessir staðir bæti sam-
keppnisstöðu okkar verulega á
markaðnum. Við getum hagrætt
verulega hjá okkur þannig að við
eram bjartsýn á framtíðina." Nú er
nýbúið að stofna Kaupás sem er
sameiginlegt hlutafélag um rekstur
þriggja verslanakeðja, það er 11-11,
Nóatúns og Kaupfélags Ámesinga.
Hvaða áhrif hefur það haft á stöðu
þeirra á matvörumarkaðnum?
„Það gerir það að verkum að
samkeppnisstaðan batnar, eins
og gefur að skilja. Við náum betri
innkaupum og meiri hagkvæmni í
rekstri. Þróunin á matvöramark-
aðnum hefur verið þessi að undan-
fornu og ekkert útlit fyrir að lát
Maður dagsins
verði þar á þó að sjálfsögðu sé viss
eftirsjá í kaupmanninum á
hominu."
En hvað tekur þá
við? „Ég sé fyrir
mér að það verði
aðallega fjórar
gerðir af versl-
unum sem
munu ríkja á
markaðnum. í
fyrsta lagi þær
sem hafa langan
afgreiðslutíma og
litla þjónustu,
eins og 11-11, í
öðra lagi búðir á
borð við Nóatún
þar sem lögð er
áhersla á
ferskvöru,
þjón-
ustu og vöruval á góðu verði, í þriðja
lagi lágvöraverslanir með þjónustu í
lágmarki og loks stórmarkaði þar
sem hægt er að fá nánast allt, frá
kafflpakkanum til húsgagna eða
dekkja undir bilinn. Ég ætla hins
vegar að beita mér fyrir því að Nóa-
tún verði samkeppnishæf verslun
sem leggur áherslu á gott verð, gæði
og úrval þar sem kúnnamir era
ánægðir að versla og starfsfólkinu
líður vel í vinnunni."
Matthías er giftur Selmu
Skúladóttur sölukonu og
eiga þau flögur böm,
Ragnhildi, 26 ára, Sigurð
Vigni 22 ára, Davíð, 18
ára, og Vigdísi, 9 ára.
Matthías hefur mikla
ánægju af hesta-
mennsku og útivist með
flölskyldunni en segist
þvi miður hafa átt færri
tómstundir undanfarið
en hann hefði viljað.
-HG
Kórtónleikar
á Seyðisfirði
Bláa kirkjan á Seyðisfirði
stendur fyrir tónleikaröö á
miðvikudagskvöldum í
sumar og heflast allir tón-
leikamir kl. 20.30. Næstu
flytjendur í röðinni verða
. félagar í kirkjukór Seyðis-
Tónleikar
flarðar, undir stjóm Maríu
Gaskell, en kórinn er ný-
kominn heim úr vel heppn-
aðri tónleikaferð til Bret-
lands. Organisti Seyðis-
flarðarkirkju og stjómandi
kórsins er Maria Gaskeil en
hún fæddist i Leicester á
Englandi árið 1966 og hóf
nám i píanó- og klarínett-
leik 7 ára að aldri. Nú hefur
hún lokið 8. stigi á bæði
hljóðfærin og BA-gráðu í
tónlist frá Kentháskóla, auk
kennararéttindaprófs frá
Bath College. María hefur
kennt við tónlistarskóla
Austur-Húnavatnssýslu og
stjómað tveimur karlakór-
um. Nú vinnur hún við tón-
listarskóla Seyðisflarðar,
stjómar kór Seyðisflarðar-
skóla og fleira.
Menningarviti
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Tónlist hefur áhrif á börn.
Áhrif tón-
listariðkunar
Félag músíkþerapista heldur
opinn fræðslufúnd í dag kl. 17 í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Á
fundinum verður kynnt rannsókn
á áhrifum tónlistariðkunar á fé-
lagslega hugsun bama. í rann-
sókninni er aðferðum músík-
þerapíu beitt til að hafa áhrif á
ákveðna þætti hugsunar sem era
mikilvægir í félagslegum sam-
skiptum. Fyrirlesari er Lilja Ósk
Úlfarsdóttir.
Tónleikar
Félag músíkþerapista var stofn-
að fyrir tveimur áram og mark-
mið þess er að gera músíkþerapíu
að fullgildu meðferðarformi á ís-
landi. Félagið á að stuðla að lög-
vemdun starfsheitisins og starfs-
réttinda músíkþerapista og gæta
hagsmuna þeirra en einnig að
gæta þess að þeir ræki starf sitt í
samræmi við starfsreglur og siða-
reglur félagsins. Félagið stendur
fyrir kynningu á fræðigreininni
og fræðslu um margþætt hlutverk
tónlistar i hvers konar meðferð og
greiningu.
Bridge
Það er með ólíkindum hvað hug-
myndarík vöm getur áorkað miklu.
í þessu spili er auðveldlega hægt að
standa 3 grönd á hendur a-v ef sagn-
hafl spilar upp á 3 slagi í spaðanum.
Hinn liturinn sem gefur sagnhafa
möguleika er tígullinn en það er
verkefni suðurs að reyna að fá sagn-
hafa til þess að gera sér frekar mat
úr tíglinum. Sagnir ganga þannig,
austm- gjafari og enginn á hættu:
* G74
* G983
* 54
* 9543
4 D965
V K10
♦ ÁK82
* Á76
N
* A82
* Á652
* G73
* K82
4 K103
* D74
4 D1096
* DG10
Austur Suður Vestur Norður
1 grand pass 2 * * pass
2 v pass 3 grönd p/h
Grandopnun austurs sýnir 12-14
punkta, vestur spyr um hálit með
það fyrir augum að spila annað-
hvort 3 grönd eða 4 spaða ef félagi á
spaðalitinn. Stökk vesturs í þrjú
grönd yfir 2 hjörtum lofar spaðalit
og austur hefði því breytt yfir í 4
spaða með þann lit. Suður hefúr
vömina á því að spila út laufdrottn-
ingu. Hönd vesturs er sterk og útlit-
ið ekki bjart. En það þýðir ekki að
gefast upp. Sagnhafi setti lítið spil
bæði í blindum
og heima og fé-
lagi kallar í litn-
um. Suður spilar
næst laufatiunni
og sagnhafi drep-
ur á kónginn
heima. Hann
hikar aðeins
áður en hann
ákveður að leggja niður spaðaás. Nú
er tækifæri suðurs að henda spaða-
kóngnum i þann slag. í mörgum til-
fellum myndi það duga til að afvega-
leiða sagnhafa. Hann verður sann-
færður um að norður sé með G10743
í spaða og gæti reynt að búa sér til
níunda slaginn í staðinn á tíguiinn.
Ef hann tæki ÁK í tígli og spilaði
meiri tígli myndi hann fara niður í
spilinu. Vanir spilamenn myndu
hins vegar sjá í gegnum blekkispila-
mennsku suðurs. Það er lítil hætta í
því fólgin að hleypa spaðaáttunni
yfir til norðurs.
ísak Öm Sigurðsson