Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
Fréttir
i>v
»MV
Afleiðingar flutnings grunnskóla til sveitarfélaga:
Geysilegir erfið-
leikar komið upp
segir bæjarstjóri Seltjarnarness sem telur þó kosti ótvíræða umfram galla
Birting einkunna í samræmdum prófum er sveitarfélögunum hvatning til að
gera sem best við grunnskólanemendur sína.
„Það hafa komið upp geysilegir
erfiðleikar. Sú nánd, sem komin er
á, hefur kallað á það að stjórnendur,
foreldrar og börn eru miklu nær
okkur heldur en þau voru gagnvart
stjórnvöldum áður,“ segir Sigurgeir
Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnar-
nesi, um afleiðingar flutnings
grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga.
Sigurgeir telur þó kosti flutningsins
ótvíræða umfram galla.
„Við höfum haft uppi stór orð um
að við munum gera vel við skólann
okkar. Við höfum verið teknir á
orðinu og höfum gert það. Rekstur
skólanna hefur
kostað okkur
miklu meira en
við reiknuðum
með. Ég tel að
metnaður sveitar-
stjómarmanna
gagnvart grunn-
skólanum hafi
aukist verulega.
Menn líta ekki
lengur á fjármuni
til hans sem eitt-
hvert skylduverk-
efni, heldur láta
þeir þá af hendi
með mikilli
ánægju. Grann-
skólinn er að sjáif-
sögðu grundvöllur
þess sem við erum
að gera í sveitarfé-
lögunum, að koma
fótunum undir
yngstu kynslóðina.'
Samkeppni sveitarfélaga
„Nú er komin nokkur keppni í
sveitarfélög að gera sína skóla sem
besta. Birting einkunna er þáttur í
því. Menn eru famir að horfa á
skólana sem þjónustustofnanir, en
ekki bara sem stofnanir. Til hinna
fyrrnefndu gerum við allt aðrar
kröfur heldur en til skyldustofnana.
Skólanefndir, sem sveitarstjómir
kjósa, em farnar að hafa veruleg
áhrif á námsframboðið og eins hve
mikið fjármagn er lagt til einstakra
þátta rekstrarins. Með öðrum orð-
um, ég tel að heimamenn hugsi
miklu betur um skólann sinn held-
ur en meðan hann var undir ríkinu.
íbúarnir geta nú snúið sér beint til
þeirra og hafa veruleg áhrif á það
hvemig skattfé þeirra er varið. Þá
eru komin foreldraráð í alla skóla
skv. lögum. Þau hafa orðið umsagn-
arrétt um býsna marga hluti."
Barátta bitnar á skólastafi
Hvað kennara almennt varðar,
segir Sigurgeir að þeir hafi ætlað
sér stóra hluti
þegar þeir fóru
frá ríkinu.
Þeim hafi
greinilega
gengið miklu
verr að semja
við það heldur
en sveitarfé-
lögin. í síðustu
samningum
hafi þeir feng-
ið verulegar
kjarabætur og
síðan viðbótar-
kjarabætur hjá
mörgum sveit-
arfélögum.
„Þeir teija
það samt sem
áður ekki nóg,
þannig að það
fer greinilega
töluvert miklu
meiri tími í kjaraumræðu hjá kenn-
urum en ég teldi æskilegt, einmitt á
þessum tíma. Ég held að það hljóti
að bitna á skólastarfmu. Menn fást
ekki lengur til að vera trúnaðar-
menn á vinnustöðum af því að þeir
lenda sem millimenn í kjarabarátt-
unni. Því er eins háttað með skóla-
stjómendur. Við lítum á þá sem
okkar trúnaðarmenn og þeir eru
næstu yfirmenn á vinnustað. Þeir
verða því að gæta hagsmuna beggja
aðila. Þeir eru ekki í góðri stöðu.
Við flutning grunnskólanna til
sveitarfélaga verða þessi áhrif
miklu persónulegri. Meðan hægt
var að beina máli sínu að ósýnilegri
stofnun í Amarhváli gátu allir ver-
ið nokkuð sammála. Þá var enginn
á staðnum sem gat svarað fyrir þá
stofnun. Nú eru skólastjórarnir
taldir okkar starfsmenn en geta með
hvorugum aðilanum tekið afstöðu."
Sigurgeir sagði flutninginn skapa
skólastjómendum miklu meiri
ábyrgð en áður. Um leið og væri far-
ið að auka framboð og gera eitthvað
sem væri umfram bókina, væri það
gert á þeirra eigin ábyrgð. Nú væri
farið aö gera samninga við skólana
um ákveðna rekstrarhluti sem þeir
réðu sjálfir. Þetta hefði í för með sér
stóraukið starf þeirra stjórnenda,
sem hefðu fengið íjárráðarétt yfir
öllu öðru en launum. -JSS
Akranes:
Aukin fíkniefnaneysla
Sjónvarpsstöðvar kærðar:
Kæran
byggð á
misskilningi
- segir Páll Magnússon
„Ég tel að kæran byggist á
misskilningi. Að minnsta kosti
hef ég annan
skilning á út-
varpslögunum
að þessu
leyti,“ segir
Páll Magnús-
son, frétta-
stjóri Stöðvar
2, um kæru
Kára Waage á
hendur sjón-
varpsstöðvun-
um.
DV, Akranesi:
Hvort sem það eru bættar sam-
göngur með tilkomu Hvaifjarðar-
ganga eða af öðmm orsökum þá hef-
ur orðið vart við aukna fikniefna-
notkun á Akranesi. Efnin koma frá
Reykjavík, með skipum á Gmndar-
tanga auk þess eru þau seld í heima-
húsum og á skemmtistöðum .
Skemmst er að minnast þess aö
fjórir grímuklæddir menn mddust
inn á heimili meints fikniefnasala í
miðbæ Akraness fyrir skömmu og
er sagt að um hafi verið aö ræða
hefndaraðgerð vegna fikniefna. Þeir
aðilar sem rætt hefur verið við
segja að fíkniefnin séu komin inn í
gmnnskóla bæjarins og að auðvelt
sé að nálgast efnin.
Gísli Gíslason bæjarstjóri var
spurður hvað bæjaryfirvöld á Akra-
nesi ætluðu að gera til að sporna við
þessari þróun.
„Akraneskaupstaður hefur reynt
að vinna markvisst að forvömum,
meðal annars með því að leggja fjár-
magn til þeirra hluta en starfshópur
á vegum bæjarins vinnur að mál-
inu. Afar erfitt er að meta hver
staða þessara mála er á hverjum
tíma og lögreglan hefur unnið vel að
því að uppræta það sem hún hefur
komist yfir," sagði Gísli bæjarstjóri
við DV. -DVÓ
Sveitarstjórnarmenn á Norðurland vestra:
Fá ekki þingmannahækkun
Páll Magnússon.
Kári segir í bréfi til útvarps-
réttarnefndar að hann álíti að
bæði Sjónvarpið og Stöð 2 brjóti
4. grein útvarpslaga meö því aö
hræra saman auglýsingum og
fréttum. Páll segist ekki vflja tjá
sig frekar um málið fyrr en út-
varpsréttarnefnd hafi tekið það
llÍíl4í;ilíílfííiíri!íiiíítll
Sveitarstjórn Skagafiarðar sam-
þykkti á fundi nýlega að laun
sveitarstjórnar og nefnda á vegum
sveitarfélagsins hækki ekki til
samræmis við þá hækkun á þing-
fararkaupi sem ákveðin var af
kjaradómi 9. maí sl. Það var
j njinnihl
I í lagði fra
stað og Snorri Styrkársson.
Örnefnanefnd sér ekki tilefni tfl
að skera úr um það hvort tiltekið
fiaO í Skagafirði heiti Viðvíkur-
fiall eða Ásgeirsbrekkufiall.
Byggðaráð gerir ekki athugasemd
við þá afgreiðslu örnefnanefndar
, enda hafa ekk,i sprottiö deilur í
f I hébkðináfvégnáíþessara nafna,: áö
því er kunnugt sé.
Menningarmálanefnd Blönduós-
bæjar hefur beint þeirri hugmynd
tO fuUtrúa bæjcirins í Héraðsnefnd
Austur-Húnvetninga að gerður
verði minnisvarði um Jón Leifs tón-
skáld og hann verði reistur á fæð-
ingarstað hans, að Sólheimum i
SvihavatnsIrrbtáH.' h í H H í 111 í í; í
Hulduher Jóns
Vaxandi krafa er uppi innan Sam-
fylkingar um að afstýra skipbroti
með því að kaOa tO hinn örgeðja
sendiherra, Jón Baldvin Hanni-
balsson, til að stýra
flokknum í gegnum
næstu kosningar og
tryggja að niðurlæg-
ingin frá síðustu
kosningum verði
ekki viðvarandi.
Víst er að sendi-
herranum leiðist
ekki hvatningin,
svo sem fram kom
í DV, og úr innstu herbúðum stuðn-
ingsmanna hans heyrist að hann sé
tfl í að enda ferUinn á toppnum, og
þá helst sem forsætisráðherra. Jóni
Baldvin ku leiðast hóglífið í Was-
hington og hann mun vera kominn
með glimuskjálfta. Þá er í fæðingu
hulduher hérna megin Atlantsála
sem heldur honum við efnið af
ákafa. Reyndar er Gunnar
Thoroddsen eini sendiherrann sem
átt hefur alvöm „comback" þegar
hann sneri frá Kaupmannahöfn og
komst til æðstu metorða meðal
sjaUa. Áköfustu stuðningsmenn
Jóns Baldvins segja að hann eigi
ekki minni möguleika...
Aðstoðarmaður Árna
í fyrradag bárust fréttir af því að
Ármann Kr. Ólafsson, eða Manni
hjá auglýsingastofunni Nonna og
Manna, hefði verið
ráðinn aðstoðarmað-
ur sjávarútvegsráð-
herra, Árna Mathies-
ens. Höfðu margir
búist við því að
starfið myndi falla í
skaut Jónasi Þór
Guðmundssyni,
embættismanni í
dómsmálaráðuneyt-
inu, en svo varð ekki.
Segja heimOdarmenn Sandkorns
að ástæðan fyrir því að Jónas Þór
fékk ekki hina eftirsóttu aðstoðar-
mannsstöðu sé sú að hann var á sín-
um tíma stuðningsmaður Jóhanns
Bergþórssonar í bæjarmálapóOtík-
inni í Hafhcirfirði, en eins og ffægt
er orðið þá klauf Jóhann Sjálfstæð-
isflokkinn þar í bæ í herðar niður
fyrir nokkrum misserum. Mun
stuðningur Jónasar Þórs við Jóa
Begg ekki hafa hugnast Árna og
fleiri sjálfstæðismönnum í Firðin-
um og víðar og þvi hafi Jónas ekki
hlotið brautargengi í stöðuna ...
Sjónvarpskona í frí
Hin hugljúfa sjónvarpskona Ema
Indriðadóttir mun vera að fara í
tveggja ára leyfi frá fréttastofú Sjón-
Hvarpsins tO að fara í
framhaldsnám í
Bandaríkjunum. Þar
ku hún ætla að
mennta sig í sfiórn-
l unarstörfum. Óvíst
I er að hún snúi aftur
I tU Sjónvarpsins og
I líklegt að hún næli
™ sér í feita stöðu við
neimkomuna. Ekki er
vitað hver fyUa mun skarð hennar ...
Fjölskyldan
Sá prúði biskup, Karl Sigur-
bjömsson, þarf ekki að seUast langt
eftir kröftum tU að koma fram við
hin ýmsu tækifæri.
Svo vel hagar tO þegar
þarf að fara yfir sögu
kristninnar á íslandi
í þúsund ár að eng-
inn gerir það betur
en mágur hans, séra
Bernharður Guð-
mundsson, hinn
nýi ritari Kristni-
hátíðamefndar sem fyrir tOvOjun
ýtti hinum skáldlega séra Erni
Bárði Jónssyni út. Og þegar þarf að
semja KristnUiátíðarkantötu fýrir af-
mælisárið 2000 á ÞingvöUum þarf
ekki annað en að leita tU bróður og
góðs tónskálds, Þorkels Sigur-
björnssonar...
Umsjón Reynir Traustason
Nctfnng; sandkorn (» ff. is