Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Qupperneq 9
MANUDAGUR 28. JUNI 1999 9 Barátta norskrar móöur í Tyrklandi: Fékk aftur dóttur sína DV, Ósló: Eftir þriggja ára aðskilnað hafa Mette og Seima náð saman á ný. Dótturinni Selmu var á sínum tima rænt af tyrkneskum fóður sinum og síðan hefur Mette Sollihagen Hauge staðið í málaferlum í Tyrklandi í von um að fá dóttur sína aftur. Mál þetta er í öilum aðalatriðum eins og mál Sophiu Hansen og dætra hennar. Krafa Mette hefur verið á þvælingi um tyrkneska réttarkerflð í þrjú ár eins og Mette hefur lýst í viðtölum við DV. Hún hefur þar meðal annars notið stuðnings Ólafs Egilssonar, sendiherra íslands í Tyrklandi. Nú hefur hins vegar brugðið svo við að faðirinn hefur skilað dótturinni þótt endanlegur dómur sé ekki fallinn. Hæstiréttur mun dæma um forræðið yfir dótturinni í byrjun næsta mánaðar. Selma er nú 10 ára en var 7 ára þegar hún „týndist" á ferðalagi i Tyrklandi. -GK Kasakstanbúar hafa í heiðri ýmsar gamlar þjóðaríþróttir eins og til dæmis hestaíþróttír. Knapinn á myndinni heidur á veiðierni. Símamynd Reuter. Höfundur Já, ráðherra varar við: ESB-báknið er martröð Antony Jay, annar höfunda bresku sjónvarpsþáttaraðarinnar Já, ráðherra, segir skrifíinna Evr- ópusambandsins verða óstöðvandi taki allir evruna í gagnið. „Ég hef alltaf upplifað breska skriffinnsku sem ógn en skrifbáknið í Brussel er martröð. Hefði hópur gáfaðra skriffinna reynt að búa til kerfí sem veitti þeim mestu mögulegu völd með sem minnsta ábyrgð held ég að þeir hefðu ekki getað náð neinu í líkingu við framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins, ESB. Hún nýtur ýmissa gæða sem fær hvaða skrifbákn sem er til að stynja af öfund,“ skrifar Jay í blaðagrein. í grein sinni varar Jay við því að skipta út pundinu gegn evrunni og bendir á það sem hann lærði við gerð sjónvarpsþáttanna. „Það eru ekki Sir Humphrey og Jim Hacker sem eru skúrkarnir heldur skrif- báknið sem skapar afstöðu þeirra og stýrir gerðum þeirra." _______________Útlönd Stjórnarandstæð- ingum fleygt úr þyrlu í hafið Olagier Benavente Bustos, fyrrver- andi ofursti í Chile, segir að uppá- halds þyrluflugmaður Augustos Pin- ochets einræðisherra hafi fleygt stjómarandstæðingum í hafið úr þyrlu sinni. Að sögð Bustos fékk þyrluflugmaðurinn, Antonio Palomo, skipun um að fjarlægja lík stjómar- andstæðinga sem komið var með til stöðva flughersins í Tobalaba nálægt Santiago. Fullyrðir Bustos í viðtali við tímarit í Chile að þyrluflugmaður- inn hafi fleygt líkunum í Kyrrahafið. Bustos greinir jafnframt frá því að það hafi ekki bara verið þeir sem þeg- ar höfðu verið drepnir sem hurfu á þennan hátt. „Það var flogið yfir hæstu Andesflöllin. Pólítísku fangarn- ir, sem fleygt var út þar, voru örugg- lega á lífi.“ Yfir 3 þúsund manns voru drepnir í Chile í stjórnartíð Pinochets. EVRÓPA ,TÁKN UM TRAUST' Faxafeni 8 - sími 581 1560 1 Volvo 570 2,5 20 v ‘97 J ABC, spólvörn, hleðslujafnari, leðurklæddur, álfelgur rafdr. í öllu, svartur. Stórglæsilegt eintak. i 25.-29. ágúst 1999 íþróttamiðstööinni Laugardal Verð kr. 16.600 Kennsluefnið byggist á eftirfarandi: Lífeðlisfræði Líffærafræði Kennslufræði Tónfræði Þjálffræði Uppbyggingu þolfimltíma íþróttameiðslum Allir þátttakendur á 20% afslátt í Frísporti. NIKE BÚÐIN Laugavegi 6 Síml 562 3811. Einu skilyrðin eru að hafa náð 18 ára aldri og til að fá A- stig þarf að hafa gilt skírteini í skyndihjálp. Við skráningu fæst námsefnið og nauðsynlegt er að vera búinn að lesa það yfir áður en að námskeiðið hefst. Námskeiðið er 40 kennslustundir sem skiptast í bóklega og verklega tíma og enda á bóklegu og verklegu prófi. Skráning og nánari uppiýsingar á skrifstofu FSÍ, sími 5813101, netfang: fsi@toto.is hjá Ágústu Hrönn, síma 557 1671, eða hjá Auöi Völu í síma 482 2570. /, A-stig í þolfimi er fyrir alla sem vilja öðlast kennsluréttindi í þolfimi. Námskeiöiö er bæði fyrir þá sem hafa kennt þolfimi en einnig fyrir þá sem stefna að kennslu í framtíðinni. Halldór B. Jóhannesson, Islandsmeistarl í þolflmi 1999, verður með kynningu á keppnis-þolfimi. Kennarar: Auður Vala Gunnarsdóttir íþróttakennari Ágústa Hrönn Gísladóttir íþróttakennari Guðrún ísberg sjúkraþjálfari Kennsluréttindi Fimleikasamband -. ._ . íslands ' Þo,fÍm' Litlir bílar - Stórir bílar - Ódýrir bílar - Dýrir bílar Verö frá 40.000.- til 4.000.000.- • Lánamöguleigar til allt aö 5 ára • Tökum notaóa bíla upp í notaöa Opið virka daga kl. 9 - 18 og laugardaga kl. 12 - 17 BÍLAHÚSIO (í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík Símar: 525 8096 - 525 8020 • Símbréf 587 7605

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.