Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Page 16
16 enmng MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 1999 JLlV Umsjón Aðalsteinn Ingólfsson ■ r A, . k.- Pt ’A *** ■ ■ ■ - Gylfi Gíslason - „Blf“, 1998. Á léttleikandi danska vísu Ástin og samskipti kynjanna á 18. öld Tllþrif hjá Gylfa Þar sem ég hef heyrt að Henning Rovsing Olsen sé á förum frá danska sendiráðinu á íslandi, þá er nú síðasta tækifæri mitt og ærin ástæða til að þakka honum fyrir hans þátt í að fá hingað djasstónlist- armenn frá Danmörku, en þeir eru ófáir sem hingað hafa komið fyrir hans tilstilli eða milligöngu. Nú siðast voru það Danimir Finn Ziegler og Olivier Antunes sem léku með vel völdum íslenskum djass- spilurum í Kaffileikhúsinu á fimmtudagskvöldið. Báðir hafa þeir hlotið Ben Webster- verðlaunin, Ziegler árið 1993 og hinn kornungi Olivier Antunes núna í ár. Finn Ziegler er afburða tón- listarmaöur. Það fer ekki hjá því, þar sem fiðla er ekki al- gengt hljóðfæri í djasstónlist, að hann sé borinn saman við Sven Asmussen, en báðir hafa nú heimsótt ísland í tvigang. Aðallega er munurinn á þeim sá að séntilmaðurinn Sven Asmussen er sveiflumaður af gamla skólanum, á meðan Finn Ziegler er grófari spilari og er nær bíboppinu en gamli maðurinn, þótt báðir hafi sveifluna í blóðinu og húmor beggja sé danskur. Píanistinn Olivier Antunes er frábær spilari sem hrein- Flnn Ziegler. lega hristir sveifluna úr flygl- inum á léttleikandi danska vísu. Þegar hlust- að er á hann þá sannfærist maður um að sveiflutónlist kemur aldrei til með að úreld- ast á meðan svona snillingar fást við hana og Danmörk verður áfram griðland þessarar tónlistar. Ámi Scheving, einhver besti músíkant sem við íslendingar höfum átt, hefur i gegn- um tíðina hlaupið á milli hljóðfæra þegar þörf hefur verið á. Hann hefur leikið á saxó- fón, óbó, bassa, harmóniku og víbrafón, svo það sé nefnt sem ég veit til aö hann hefur meðhöndlað skammlaust. Það er kannski fulldjúpt í árinni tekið að segja að Gylfi Gíslason sé nú með „kombakk" inn í myndlistarheiminn því það er varla lengra en eitt eða tvö ár síðan hann sýndi Þingvallateikningar sínar á Mokka. Hins vegar held ég að hann hafi ekki haldið sýningu af þessari stærðargráðu í langan tíma en þessa dagana sýnir hann sex mál- verk, og þau fremur í stærri kantinum, í Bankastrætinu hjá Sævari Karli. En hvort sem rétt er að tala um „kombakk" eða ekki er þetta nokkuð glæsilegt útspil, það verður að segjast. Myndlist Áslaug Thorlacius Það ber þó ekki að skilja þetta orð, glæsi- legt, svo að Gylfl sé með einhvem belgings- hátt, þvert á móti er yfirbragð sýningarinn- ar skemmtilega afslappað og frjálslegt og er slegið á létta strengi í bland við alvöru lifs- ins. Það fer ekki mikið fyrir „malerísku" töktunum heldur notar Gyffi hrárri vinnu- brögð. Stórir fletir, fáir, skarpir litir og línu- teikning em einkennandi þættir, lítið um skugga eða dýpt í lit. Hann málar Öxará, vatnið og fjallahringinn en einnig bregður fyrir þrengra sjónarhomi eins og t.d. í mynd- unum „Uppi og niðri“ sem sýnir lóðrétta sneið úr bergi og „Masonite" sem er blóma- mynd í anda meistara Kjarvals, máluð (teiknuð) með svörtum línum á masonít- brúnan striga. Ný Þingvallasýn Þingvallamynd - bara þetta orð er gífur- lega merkingarþrungið í islensku myndlist- arsamhengi. Sú fagra sveit hefur verið flest- um ef ekki öllum íslenskum landslagsmálur- um hugleikin og ég efast ekki um að ef mælt yrði út úr listasöfnunum hefði hún vinning- inn langt umfram alla aðra staði á landinu. Gyffi sjálfur er vel að sér um íslenska myndlistarsögu og tilvísanir hans í þá átt eru áreiðanlega fleiri en ég hef þekkingu til að átta mig á. Þó held ég að þær séu auka- atriði. Nýmjólk minnir auðvitað á Fjalla- mjóík Kjarvals en sú tilvísun lýsir kannski best viðhorfi listamannsins til sögunnar. Fortíðin er að baki, drykkur dagsins er ný- mjólk í neytendapakkningum. Hér er ekki horft með eftirsjá um öxl held- ur áfram veginn. Það má segja að sýningin sé tilraun til að uppfæra Þingvallasýn okkar Djass Ársæll Másson Gettu hver hún er Á seinni árum hefur góðum íslenskum djasstónlistarmönnum fjölgað svo mjög að Ámi hefur getað helgað sig víbrafóninum sem sínu aðalhljóðfæri. Hann og sonur hans, Jón Sigurðsson næstur hjá Guðjóni Guðjón Friðriksson, sem í síðustu viku sagði okkur frá öðru bindi ævisögu Einars Benediktssonar sem hann er að ljúka við um þessar mund- ir, ætlar ekki að sitja auðum höndum þegar öllu hefur verið haldið til haga um stórskáldið og athafnamanninn Einar. í framhaldi af viðtalinu hér í DV upplýsti Guðjón að hann hefði lengi langað til að semja ævisögu sjálfrar sjálf- stæðishetjunnar, Jóns Sigurðssonar, ekki sist í Ijósi stjómmálaástandsins í Danmörku á 19. öld. Þegar gengið var á Guðjón lýsti hann því yfir að Jón yrði „að öllum likindum“ næsta viðfangsefni sitt í kjölfar Einarsbóka. Van Gogh-safnið opnað á ný Þeir eru æði margir íslendingamir sem á ferð- um sínum um Niðurlönd hafa heimsótt Vincent Van Gogh-safnið í Amsterdam. Raunar hefur þetta safn verið með þeim allra vinsælustu í heiminum, þvi á síðasta áratug hafa u.þ.b. 1 milljón manns komið þar inn fyrir dyr á hverju ári. Safnbyggingin, sem hönnuö var á sjöunda áratugnum af hollenska arkitektinum Gerrit Rietveld, var hins vegar miðuð við 60.000 manna ágang á ári. Því bar nauðsyn til aö taka bygging- una alla til yfirhalningar og bæta við hana nýrri álmu. Af þeim orsökum hefur safnið veriö lokað undanfama tíu mánuði. Nú um helgina var það opn- að á nýjan leik, borgaryfirvöld- um í Ámsterdam og listunnend- um til léttis. Öll helstu verk Van Goghs verða þar áfram til sýnis, en auk þess verk eftir ýmsa samtímamenn hans og áhrifavalda, til dæmis Böcklin, Gauguin, Touloise-Lautrec og Millet. í nýju álmunni, nýstárlegri byggingu eftir frægan japansk- an arkitekt, Kisho Kurokawa að nafhi, er að finna sérstaka deild um Theo van Gogh, bróð- ur Vincents, en hann var mikil- vægur hstaverkasali, safnari og hjálparhella bróður síns. Bréfa- skipti þeirra era bæði fróöleg og hrifandi lesning. Það er því fuh ástæða til að hvetja íslendinga á faraldsfæti th að gera stans í Amsterdam og endumýja kynnin við Van Gogh. th dagsins í dag og það er verðugt verkefni. Engin beiskja Vegna þess hve stóru hlutverki Þingvallamyndin gegnir í listasögu okkar liggur beint við að snúa út úr henni. T.d væri mjög auðvelt að tjá andúð á nútímanum með því að mála Þingvehi og setja veg með bundnu slitlagi í brennipunkt. Einmitt þannig sjónarhom hefur Gyffi val- ið í tilkomumestu myndina á sýningunni, Bif. Samt er þar enga beiskju að finna. Veg- urinn sem hverfur táknar miklu fremur eft- irvæntingu þess sem hlakkar til þess að takast á við framtíðina. Ójarðtengdar örv- arnar á endurskinsmerkjunum við vegkant- inn gefa verkinu skáldlega vídd því þær end- uróma gæsimar sem fljúga oddaflug áleiðis út úr myndinni og sjást reyndar ekki nema komið sé alveg upp að málverkinu. Þessi flotta mynd er ekki bara margræð í merkingunni heldur býr hún yflr kraftmiklu og spennandi perspektffi sem dregur auga áhorfandans yfir hæð að einhverjum óviss- um en örugglega fahegum stað því varla dregur nokkur maður fegurð Þingvaha í efa. Einar Valur Scheving trommu- leikari, og Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari léku með fyrr- nefndum snihingum dönskum í Kaffileikhúsinu á fimmtudags- kvöldið. Það er skemmst frá því að segja að enginn íslenskur trommuleikari, nema náttúru- lega Pétur Östlund, jafhast á við Einar Val, þótt drengurinn sé ekki nema 27 ára gamall. Hann hefur undanfarið leikið með kvartetti Ira Sullivans á Miami, ásamt því að vera í námi þar ytra. Þriðji íslendingurinn, bass- istinn Gunnar Hrafnsson, hefur í tvo áratugi verið einn eftirsótt- asti bassaleikari íslenskur, kraft- mikill og er ahtaf pottþéttur í sínu hlutverki. Það var því viðbúið að út- koman yrði frambærileg, þrátt fyrir tak- markaðar æf- ingar, eins og oftast er fyrir tónleika sem þessa. Á dag- skrá vora vita- skuld aðahega hefðbundin sveiflulög en Ámi hafði valið lag Jóns Múla, „Gettu hver hún er“, sem ís- lenska lagið á efnisskránni. Þar sem undir- ritaður hefur lengi haft dálæti á því lagi, þá var dásamlegt að heyra hvað Danirnir sph- uðu það vel, þótt Ziegler með látbragði sínu gæfi til kynna að honum fyndist hann utan- garðs. Á laugardagskvöldið urðu gestir djasshá- tíðar Egilsstaða síðan þeirrar ánægju aðnjót- andi að heyra þessa snihinga leika listir sín- ar. Að lokum vh ég geta þess að th stendur að gefa út plötu með þessum kvintett og því voru fimmtudagstónleikamir teknir upp. íslensk sagnfræði stendur í miklum blóma um þessar mundir, ef marka má öfluga útgáfustarf- semi ungra sagnfræðinga og sagnfræðinema. Tímarit þeirra, Sagnir og Ný Saga, era ótvírætt meðal áhugaverðustu rita sem koma upp á borð umsjónarmanns um þessar mundir. Þorfinnur Skúlason og Öm Hi'afrikelsson (á mynd) heita tveir ungir sagnffæðingar úr Hafnarfirði, en þeh- hafa komið sér upp svonefhdu Söguspekinga- stifti, sem hefur m.a. að markmiði ýmiss konar útgáfu sagnfræðilegra gagna. Fyrir stuttu gaf „stiftið" út áður óbirt handrit Eggerts Ólafsson- ar, Uppkast til forsagna um brúókaupssiöu hér á landi ffá 1857. Eftir þeim siðum er talið að Egg- ert hafi farið er hann gekk að eiga Ingibjörgu Guðmundsdóttur ffænku sina árið 1867, en brúð- kaup þeirra þótti sérlega glæsilegt. Þetta rit Eggerts er fróðleg heimhd um tíðar- anda á íslandi á seinni hluta 18. aldar, viðhorf th ástarlífs- ins, samskipta kynj- anna og valdahlutfali- anna í þjóðfélaginu. Fróðlegt er th dæmis að lesa „alþýðu- minni" sem Eggert vhl láta flytja þegar langt er hðið á veisl- una, þegar sauðsvörtum almúganum er loks hleypt í veislufongin. Þar útskýrir ræðumaður fyrir alþyðunni stöðu hennar í samfélaginu. Eða eins og segir í aðfaraorðum ritsins: „(Hún á) að halda sér á mottunni og sætta sig við hlutskipti sitt; að vinna undir stjóm annarra. Ahtaf verður að vera th staðar yfirvald, nauðsynlegur neyðar- hemih sem gætir þess að aht fari nú ekki í óefhi í samfélaginu." Þessi útgáfa er Söguspekingastifti th sóma, út- lit ritsins er smekklegt og texti læshegur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.