Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 19
Bland í MIÐVIKUDAGUR 21. JULI1999 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 Sport Sport Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis sem er með yfirburðastöðu eftir fyrri umferð 1. deildar: „Of snemmt að fagna“ Þegar íslandsmótiö í 1. deild karla er hálfnaö er ekki annað að sjá en Fylkismenn ætli að sigla fyrirhafnar- lítið upp í úrvalsdeildina. Liðið hefur haft umtalsveröa yfirburði í deild- inni og hefur verið eina liðið sem sýnt hefur einhver stöðugleika. Eftir stórt tap á heimavelli gegn FHí fyrsta leik, 0-4, hefur gæfuhjólið snú- ist Árbæjarliöinu í hag og eftir tap- leikinn gegn FH hafa fylgt átta sigrar í röð. Fylkismenn eru með 7 stiga for- skot á ÍR-inga sem eru í öðru sæti deildarinnar og eru 10 stigum á und- an Víðismönnum sem eru í þriðja sætinu. DV sló á þráðinn til Ólafs Þórðar- sonar, þjálfara og leikmanns Fylkis, og spurði hann fyrst hvort ekki væri óhætt að óska honum og hans mönn- um til hamingju með úrvalsdeildar- sætið. Varar við of mikilli bjartsýni „Nei, það er af og frá. Mótið er bara hálfnað og þó að staða okkar sé óneitanlega sterk getum við ekki gengið að því vísu að fara upp. Menn hafa oft brennt sig á því að fagna of snemma og ég vara mina menn og stuðningsmenn Fylkis við of mikilli bjartsýni. Þaö eru níu leikir eftir og heil 27 stig í pottinum,“ sagði Ólafur sem hefur verið að gera mjög góða hluti með Árbæjarliðið. - Hver er skýringin á þessu góða gengi Fylkis í sumar? „Við komum mjög vel undirbúnir fyrir mótið og höfum náð umfram önnur lið að halda haus. Okkur gekk mjög vel í vorleikjunum og menn öðl- uðust sjálfstraust og stemningin var góð í liðinu. Svo kom að fyrsta leik í mótinu. Honum töpuðum við mjög illa gegn FH en ég held að þessi skell- ur hafi haft góð áhrif á liðið. Þrátt fyrir góða stöðu er ég ekki alveg ánægður. Ég veit að meira býr í lið- inu og ég vil sjá fleiri leiki eins og það sýndi til dæmis gegn KR í bik- amum.“ Stöðugleikann hefur skort - Hvernig hefur þér fundist knattspyman í 1. deildinni í sum- ar? „Mér hefur ekki fundist hún nógu góð. Það hefur skort stöðugleika hjá flestum liðum og toppana hefur vant- að. Ég er samt ekki þeirrar skoðunar að deildin sé veikari nú en í fyrra. Ég reiknaði með liðum eins og FH, Stjörnunni, KA og Þrótti sterkari en einhvern veginn hafa þau ekki fund- ið taktinn. Deildin er það jöfn að það er ómögulegt að spá fyrir hvemig þetta á eftir að enda. Við ætlum okk- ur að sjálfsögðu upp og höfum stefnt leynt og ljóst að því. Við eigum mik- ilvægan leik fyrir höndum gegn FH á fóstudaginn en ég lít samt alltaf á næsta leik sem þann mikilvægasta. Víðir komið mest á óvart - Hvað hefur komið þér mest á óvart í sumar? „Það lið sem hefur komið mér mest á óvart er lið Víðis. Það er erfitt að leika gegn Víðismönnum enda leikmenn liðsins miklir baráttu- menn. Víðir gæti blandað sér í bar- áttuna um úrvalsdeildarsæti eins og ÍR, FH og Stjaman og ég hef ekki úti- lokað Þrótt í þessari baráttu. Fyrir utan okkur eru liðin í einum hnapp svo 2-3 sigurleikir i röð hjá einhverju liðanna geta breytt stöðunni heilmik- ið. Það hefur komið mér á óvart hversu pakkinn er þéttur og að viö höfúm tekið fleiri stig en ég reiknaði með,“ sagði Ólafúr. Staðan í 1. deildinni þegar hún er hálfnuð lítur svona út: Fylkir 9 8 0 1 21-10 24 ÍR 9 5 2 2 26-16 17 Víðir 9 4 2 3 19-22 14 Stjarnan 9 4 1 4 20-17 13 FH 9 3 3 3 18-14 12 Þróttur R. 9 3 2 4 14-13 11 KVA 9 3 2 4 15-24 11 Dalvík 9 2 3 4 13-19 9 Skallagrímur 9 2 1 6 16-21 7 KA 9 1 4 4 7-13 7 Næstu leikir: Víðir-KA......................í kvöld Skallagrímur-Stjarnan.........föstud. Dalvík-KVA....................fostud. ÍR-Þróttur....................fóstud. FH-Fylkir ....................fóstud. -GH Aberdeen á eftir Lárusi - vil sem minnst segja, segir Lárus Lárus Orri Sigurðsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu hjá enska liðinu Stoke, er aftur kominn inn í myndina hjá skoska A- deildarliðinu Aberdeen. Ebbe Skövdahl, knatt- spyrnustjóri skoska liðs- ins, er að skoða málin en liðið vantar tilfinnanlega vamarmann og kemur Lárus Orri þar til greina. Á heimasíðu liðsins í gær er jafnvel talað um að fyrsta tilboð Aberdeen verði í kringum 60 milljón- ir króna. „Ég vil sem minnst segja á þessu stigi málsins. Þessi orðrómur hefur verið lengi í gangi. Ég skoða alla möguleika sem koma upp á borðiö," sagði Lárus Orri í samtali við DV í gærkvöld. Eins og áður hefur kom- ið fram setti Stoke hann á sölulista eftir að tímabil- inu lauk á sl. vori. -JKS Tottenham neitar fréttum um Eið: Smith staðfesti áhuga Derby David Pleat, tæknilegur ráðgjafi hjá enska A-deild- arliðinu Tottenham, neitar þeim fréttum sem birtust í enskum blöðum um helg- ina að félagið væri með Eið Smára Guðjohnsen í sigt- inu. Þar var sagt að George Graham, stjóri Tottenham, hefði mikinn áhuga á Eiði eftir að félaginu mistókst að fá Michael Bridges, sóknarmanninn skæða frá Sunderland, í sínar raðir. Jim Smith, knattspymu- stjóri Derby County, stað- festi hins vegar í samtali við fréttavefinn Teamtalk að hann hefði haft áhuga á Eiði Smára. Todd vildi 470 milljónir „Ég ræddi við Colin Todd, knattspymustjóra Bolton, um Eið og þar tjáöi hann mér að hann vildi fá 470 milljónir fyrir leik- manninn," sagði Smith í samtali við Teamtalk. Smith fannst upphæöin of há sem Bolton vildi fá fyrir Eið og hann keypti í staðinn Argentínumann- inn Esteban Fuertes fyrir mun lægri upphæð. -GH Kristbjörg Ingadóttir skoraði þrennu fyrir Val gegn ÍA og hér sækir hún að marki Skagaliðsins en til varnar er Laufey Jóhannsdóttir. DV-mynd Hilmar Þór Áttunda umferð úrvalsdeildar kvenna: Fullstór - en sanngjarn KR-sigur í Eyjum KR heldur þriggja stiga forystu á Val í úrvalsdeild kvenna í knatt- spyrnu eftir 1-5 sigur á ÍBV í Eyjum í áttundu umferð deildarinnar sem fór fram í gærkvöld. Leikur ÍBV og KR hafði ekki staðið nema tvær mínútur þegar Eyjastúlkur höfðu skorað fyrsta mark leiksins. Elena Einisdóttir átti góða fyrirgjöf frá hægri. Hrefna Jó- hannesdóttir var vel staðsett á markteignum og átti ekki í erfið- leikum með að skora. Eftir markið var leikurinn opinn og skemmtileg- ur og fjölmörg færi litu dagsins ljós. Þegar stundarfjórðungur var eftir af fyrri hálfleik, dró til tíðinda. Guð- laug Jónsdóttir komst upp að enda- mörkum, gaf góða sendingu fyrir og þar var Ásthildur Helgadóttir mætt á markteignum og skallaði laglega i mark ÍBV og jafnaöi, 1-1. Fimm mínútum seinna, á 32. mín- útu, kom Helena Ólafsdóttir, KR í 1-2. Ásthildur Helgadóttir tók þá aukaspymu, boltinn fór í varnar- vegg ÍBV og breytti um stefnu. Markmaður ÍBV fór úr jafnvægi við þetta og Helena fylgdi vel á eftir og skoraði með skoti frá markteig. Seinni hálfleikur var ekki eins íjörugur og sá fyrri og á 67. mínútu komust KR-stúlkur í 1-3, með marki Ásdísar Þorgilsdóttur, eftir að varn- armenn ÍBV náðu ekki að hreinsa frá marki sínu. Fram að því hafði varla komið færi í síðari hálfleikn- um. Guðlaug Jónsdóttir kom KR í 1^4 á 71.minútu með góðu skoti ut- arlega hægra megin í teignum, eftir stungusendingu frá Ásthildi Helga- dóttur. Eftir þetta kom smákraftur í sóknarleik ÍBV og vora það Karen Burke og Kelly Schimmen sem voru arkitektar að því. Á 85. mínútu var síðan dæmd mjög vafasöm víta- spyma á ÍBV, eftir að stjakað var við Guðlaugu Jónsdóttur. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir skoraði af ör- yggi úr vítaspymunni. Sanngjarn sigur KR, 1-5, en kannski fullstór. „Við ætluðum að pressa þær mun betur en við gerðum í kvöld og stað- reyndin er bara sú að ef KR-liðið fær frið til að spila boltanum, þá eru þær góðar,“ sagði Heimir Hall- grímsson, þjálfari ÍBV, i leikslok. „ Ég er mjög ánægð með sigurinn og mér fannst þetta vera sanngjam sigur. Ég bjóst ekki við svona stór- um sigri, enda er ÍBV-liðið mjög erfitt heim að sækja. Síðan er bik- arleikur gegn þeim á fóstudaginn og þá verður sama baráttan, það er al- veg ömggt,“ sagði Vanda Sigur- geirsdóttir, þjálfari KR. Þrenna hjá Kristbjörgu Að Hlíðarenda tók Valur Skaga- stelpur í kennslustund og lagði þær örugglega, 6-0, eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 2-0. Kristbjörg Inga- dóttir skoraði þrjú mörk fyrir Val og íris Andrésdóttir, Katrín Jóns- dóttir og Ásgerður H. Ingibergsdótt- ir skoraðu sitt markið hver. „Við ætluðum okkur að sigra, og sigruðum stórt. Við gemm okkur grein fyrir því að ef við ætlum að eiga möguleika í titilinn þá þurfum við að skora meira en eitt mark í leik. Við vitum að ef við erum vel stemmdar eigum við erindi í öll lið. Ég er mjög ánægð með leik liðsins og við hefðum getað skorað miklu fleiri mörk heldur en við gerðum. Við leggjum upp með að leika hratt og einfalt og í dag gekk það upp,“ sagði Kristbjörg Ingadóttir. Hvaó um deildina nú þegar mótiö er rétt ríflega hálfnaö, á eitthvert liö möguleika í KR? „Við eigum alveg möguleika, ef við vinnum þá leiki sem eftir era og skoram fleiri mörk en KR þá eigum við alveg bullandi séns. Við eram búnar að afsanna þá kenningu að það verði stórslys ef KR vinnur ekki alla leiki sína í sumar, þær unnu okkur ekki í fymi leiknum heldur náðu jafntefli þannig að nú þurfum við bara að gera betur og vinna þær,“ sagði Kristbjörg. Stjörnu- og Blikasigrar Stjaman sigraði Grindavík, 6-0, í Garðabæ, en staðan í hálfleik var 2-0. Elfa B. Erlingsdóttur skoraði þrjú mörk fyrir Stjömuna, Justine Lorton tvö og Heiða Sigurbergsdótt- ir eitt mark. í Grafarvogi sigraði Breiðablik Fjölni, 2-5, en staðan í hálfleik var 1-3. Silja Rán Ágústsdóttir og Guð- ný Jónsdóttir skoruðu fyrir Fjölni en Margrét R. Ólcifsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Breiðablik og þær Rakel Ögmundsdóttir, Eyrún Odds- dóttir og Ema Sigurðardóttir eitt mark hver. -RS/ih Af mörkum og markaleysi: Fæst í fimmtán ár - aðeins 2,37 mörk í leik til þessa Það hefur vantað talsvert upp á markaskorun í úrvals- deildinni í knattspymu í sum- ar og nú er svo komið að það þarf að leita heil fimtán ár aft- ur í tímann, eða til sumarsins 1984, til að finna jafntlágt með- almarkaskor í leik eftir fyrri umferð. Þá voru fyrstu níu um- ferðimar búnar þar sem þrjú stig voru í boði fyrir sigur en sú regla átti að lífga upp á sóknarleik eftir mjög marka- lítil ár 1981 til 1983. Fjórir af 43 markaleikir Aðeins 2,37 mörk hafa verið skoruð að meðaltali í þeim 43 leikjum sem búnir era í sumar, fimm leikir hafa verið marka- lausir með öllu og aðeins fjórir af þessum 43 geta talist marka- leikir, það er að í þeim hafa verið skoruð fimm mörk eða fleiri. Síðasta umferð dró þó upp meöaltalið en í henni voru skorað 15 mörk og var það að- eins í annað skipti sem umferð nær að innihalda 15 mörk eða fleiri en minnst vora skoruð sjö mörk í 2. umferö. Meðaltalið fyrir síðustu um- ferð var 2,29 mörk í leik þannig að hún hækkaði meðalskorið aðeins og nú er að vona að leikmenn deildarinnar fari að taka við sér á ný. Fyrri hálfleikur hefur verið sérstaklega daufur i sumar, að- eins 40,2% markanna hafa komið fyrstu 45 mínútur leikj- anna og alls 15 fyrri hálfleikir hafa verið markalausir. Óvenjumörg skallamörk Alls 29 skallamörk hafa litiö dagsins ljós í sumar sem era 28,4% markanna og óvenju- mörg miðað við undanfarin sumur enda er með næsta skallamarki þetta sumar þegar búið að jafna það slakasta en 1988 voru aðeins skoruð 30 skallamörk allt tímabilið. Met- ið í 10 liða efstu deild gæti jafn- -C vel lika verið í hættu en mest hefur 61 skallamark verið skor- að en það var sumarið 1978. Vítametjöfnun í síðustu umferð Dómarar úrvalsdeildarinnar dæmdu sjö víti í 9. umferð en aðeins einu sinni áður hafa verið dæmd jafnmörg víti í umferð í 10 liða efstu deild og aldrei fleiri. Fyrra skiptið var einmitt 9. umferðin fyrir 14 árum, 1985, og þá nýttust 5 af 7 líkt og nú. -• Úitvöllurinn er nú aðeins að koma til og 4 af 6 útisigram sumarsins hafa komið í síðustu þremur umferðum en útiliðin eru samt sem áður með aðeins 33,7% árangur í sumar, hafa unnið 6 leiki og gert 17 jafntefli á móti 20 sigr- um heimaliðanna. -ÓÓJ^ rnss Siguróur Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, verður með liði sínu á ný þegar þaö mætir Val í 10. umferð úrvalsdeildarinnar í knattspymu á Kópavogsvelli í kvöld. Hann hefur misst af sið- ustu fjórum deildaleikjum liðsins vegna meiðsla. Hins vegar er óvist hvort sóknarmennimir Marel Baldvinsson og Bjarki Pétursson verða með en þeir era meiddir. Raj Bonifacius sigraði í karlaflokki á opna Reykja- vikurmótinu í tennis sem fram fór á tennisvöllum Þróttar og Vikings. Frank Van Heigen varð annar og Ólafur Sveinsson og Jónas Páll Björnsson urðu í þriðja sæti. í öðlingaflokki sigraði Rúrik Vatnars- son, Stefán Björnsson varð annar og Guöbjörn Maronsson þriðji. i flokki stráka 16 ára og yngri sigraði Jón Axel Jónsson, Hafsteinn Dan Kristjánsson varð annar og Sasa Veceric þriðji. Hjá stúlkunum í sama flokki sigraði Sigurlaug Siguróardóttir, Rebekka Péturs- dóttir varð önnur og Ása Guölaugsdóttir þriðja. Gísli Kristjánsson, lyftingamaður úr Ármanni, hef- ur verið dæmdur í 2ja ára keppnisbann af dómstóli ÍSÍ. Gísli féfl á lyfjaprófi sem framkvæmt var á ís- landsmótinu í ólympiskum lyftingum þann 2. maí en í ljós kom að hann hafði neytt amfetamíns. Skoska liöiö Celtic er nú á keppnisferðalagi í Nor- egi. Liðið mætti Steinar Adolfssyni og félögum hans í Kongsvinger í gærkvöld og máttu þeir þola 0-3 ósig- ur. Celta frá Vigo seldi í gær í norska vamarmanninn Dan Eggen til Alaves sem hélt sæti sínu í efstu deild á Spáni. Eggen lék aðeins sjö leiki með Celta á sl. tímabili. -GH/VS/JKS Venables orðaöur við Wales Vandræðagangur varðandi þjálfaramálin hjá velska landsliðinu í knattspyrnu hefur lengi loðað við liðiö. Nú vilja forsvarsmenn velska knattspymusambands- ins ráða þjálfara til aö byggja upp sterkt lið. Terry Venables, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga og nú síðast með ástralska landsliðið, er þar efstur á óskalist- anum. I breska blaðinu The Sun í gær er haft eftir Venables sjálfum að þetta sé möguleiki og viðræður milli sín og velska sambandsins hefðu átt sér stað að undanfömu. -JKS ENGLAND John Gregory, stjóri Aston Villa, er með budduna á lofti þessa dagana en í gær keypti hann George Boateng, miðvallarspilara frá Coventry, fyrir 500 milljónir króna. Þá er mjög llk- legt að Gregory kaupi framherjann Robbie Keane frá Wolves. Arnar Gunnlaugsson skoraði eitt marka Leicester sem sigraði Bour- nemouth, 3-2, í æfingaleik í fyrra- kvöld. Boumemouth haföi 2-0 yfir í hálfleik en þá skiptu leikmenn Leicester um gír og þeir Arnar, Emile Heskey og Stuart Campbell skoraðu þijú mörk í seinni hálf- ____________________ leiknum. Leic- | ester er eina lið- ið i A-deildinni sem hefur ekki gert breytingar á liði sínu fyrir komandi leiktið. Roy Evans, fyrrum knatt- spyrnustjóri hjá Liverpool, er áhyggjufullur yfir þeim straumi er- lendra leikmanna sem kominn er til Liverpool. Hann er ekki sammála Gerard Houllier, eftirmanni sínum, aö þetta sér vænlegasta leiðin til ár- angurs. „Liverpool var mjög sigur- sælt lið þegar uppistaðan í þvi var Englendingar og nokkrir Skotar og ég hefði gjaman viljað sjá þá þróun halda áfram,“ segir Evans. Dave Jones, stjóri Southamtpon, teflir fram tveimur portúgölskum leikmönnum í liði sínu á komandi tímabili. í gær gekk hann frá samn- ingi við 18 ára gamlan miðvörð, Marco Almeida að nafni, og fyrir mánuði síðan keypti hann bakvörð- inn Bruno Leal, bróður Luis Boa Morte hjá Arsenal. Báðir koma leik- mennirnir frá Sporting Lisabon. Gustavo Poyet úrúgvæski framherj- inn í liði Chelsea er orðaður við ítalska liðið Roma sem er tilbúið að greiða um 1 milljarð króna fyrir leikmanninn. Poyet, sem var mikilð frá á síðasta timabili, á í launadeilu við Chelsea og það gæti ýtt undir fé- lagaskiptin. -GH Carew neitaði að fara Norski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, John Carew, neitaði í gær að fara til franska A- deildarliðsins Strasbourg. Félag hans Valer- enga og franska liðið höfðu komist að sam- konulagi og átti kaupverðið að verða rúmar 300 milljónir króna. Hinn 19 ára gamli Carew, sem þykir eitt mesta efni í norsku deildinni, sagðist miklu fremur vilja ganga í raðir toppliðsins og meistaranna í Rosenborg frá Þrándheimi. -JKS Yfirburðir hjá Escartin Spænski hjólreiðakappinn Femando Escartin kom fyrstur í mark á 15. sérleið- inni sem lögð var að baki í Tour de France í gær. Hjólaðir vora 173 km í Pýreneafjöll- unum og sýndi Escartin þónokkra yfir- burði því hann kom rúmum tveimur mín- útum á undan Svisslendingum Alex Zuelle í markið. í þriðja sæti varð Frakkinn Ric- hard Virenque. Bandaríkjamaðurinn Lance Armstrong, sem er í efsta sætinu, varð í fjórða sæti. -JKS Methafinn ur leik i bili Heimsmethafinn í þrístökki, Jonathan Ed- wards, er úr leik í bili vegna meiðsla og verður ekki með á breska meistaramótinu í frjálsum íþróttum sem verður í Birmingham um næstu helgi. Edwards meiddist á Evrópubikarnum í síö- asta mánuði en var á góðum batavegi og stökk m.a. á dögunum 17,71 metra í meðvindi á móti í Salamanca á Spáni á dögunum. í vikunni tóku meiðslin sig aftur upp en þess má geta að eftir röskan mánuð hefst HM í frjálsum í Sevilla. -JKS # X 5 i LÁNDSSÍMiA DOILD>KN y c\r Úrvalsdeild kvenna: KR 8 7 1 0 33-3 22 Valur 8 6 1 1 27-5 19 Breiðablik 8 5 2 1 21-10 17 Stjaman 8 4 2 2 21-10 14 ÍBV 8 3 1 4 22-18 10 ÍA 8 2 1 5 8-23 7 Grindavík 8 1 0 7 7-35 3 Rjölnir 8 0 0 8 4-39 0 Blcmd i poka Kvennaliö Stjörnunnar í knatt- spymu hefur misst fjóra leikménn síðustu daga. Valdis Rögnvaldsdótt- ir og Ása D. Gunnarsdóttir em komnar í Fjölni og Sigriöur Ásdis Jónsdóttir í FH. Þá er Tinna Óttars- dóttir hætt hjá Garðabæjarliðinu og hefur sést á æfingum hjá Breiðabliki. Bára Gunnarsdóttir, sem leikur allajafna á miðjunni hjá Breiðabliki, spilar væntanlega tvo næstu leiki liðsins sem markvörður þar sem Þóra B. Helgadóttir er á fórum til Kina með 20-ára landsliðinu i hand- bolta. Bára hitaði upp með því að leika í marki seinni hálfleikinn gegn Fjölni í gærkvöld. Hanna Kjartansdóttir, sem viða hefur spilað í kvennaknattspymunni, er komin í mark Fjöinis í stað Guð- bjargar Ragnarsdóttur sem er meidd. Hvöt og Magni eru komin meö ör- ugga stöðu í C-riðli 3. deildarinnar í knattspymu eftir sigra i 10. umferð- inni í gærkvöld. Hvöt vann HSÞ B, 7-1, og Magni lagði Kormák, 2-0. Neisti frá Hofsósi tapaði dýrmætum stigum til Nökkva á Akureyri, 3-1. Eftir 10 umferðir af 15 er Hvöt með 27 stig, Magni 22, Neisti H. 14, Nökkvi 9 og HSÞ B 6 stig. Viðar Olsen og áhöfn hans á Sæ- stjömunni úr Kópavogi sigruðu í 5. skiptið i röð i þriðjudagskeppni sigl- ingafélagsins Brokeyjar. -ih/VS Knattspyrna: Eyjamenn ' leika í hitasvækju íslands- og bikarmoistarar ÍBV leika síðari leikinn í 1. umferð for- keppni meistaradeildar Evrópu gegn albanska liðinu SK Tirana ytra í dag og hefst viðureignin klukkan 15.30 að íslenskum tíma. ÍBV vann fyrri leikinn í Eyjum, 1-0. Eyjamenn komu seinni parts dags í gær til Tirana eftir flug frá Búda- pest. Liðið ætlaði sér að koma fyrr ^ en tafir urðu á ferðinni til Tirana. „Við tókum æfingu á leikvellin- um fljótlega eftir komuna. Völlur- inn er góður en það var í kringum 30 stiga hiti á æfingunni og þá kom- ið kvöld. Okkur var sagt að völlur- inn yrði fullur en hann tekur um 20 þúsund manns. Maður veit ekkert hvað er til í því. Við eigum von á erfiðum leik en ef allir leggja sig fram og sýna sitt rétta andlit tel ég okkur eiga góða möguleika. Það er alveg ljóst að við þurfum að hafa fyrir hlutunum," sagði Birkir Krist- ^ insson í Scuntali viö DV seint í gær- kvöld. Spáð er hátt í 40 stiga meðan á leiknum stendur í dag. -JKS Stefán Þ. Þórðarson: Á skilið ann- að tækifæri Malcolm Shotton, framkvæmda- stjóri enska knattspyrnufélagsins Oxford, sagði á heimasíðu félagsins í gær að hann væri ánægður með Stefán Þ. Þórðarson sem hefur verið hjá félaginu í viku. „Hann hefur staðið sig vel og á skilið annaö tæki- færi hjá okkur,“ sagði Shotton. Stef- * ' án er hins vegar á heimleið og leikur væntanlega með ÍA gegn KR annað kvöld. -VS [Xf ÚRVALSPEILP Sigþór. Þrír KR-ingar á toppnum Þrír KR-ingar eru á toppnum i boltagjöf DV eft- ir fyrri umferð en það eru þeir Þormóður Eg- ilsson, Sigþór Júlíusson og Bjarki Gunn- laugsson. Flestir DV-boltar 1999: Bjarki Gunnlaugsson, KR.........9 Sigþór Júlíusson, KR ...........9 Þormóður Egilsson, KR...........9 ívar Ingimarsson, ÍBV ..........8 Jens Martin Knudsen, Leiftri .... 8 Kristján Brooks, Keflavík........8 Ágúst Gylfason, Fram.............7 Birkir Kristinsson; ÍBV.........7 Grétar Hjartarson, Grindavík .... 7 Guðmundur Benediktsson, KR ... 7 Hákon Sverrisson, Breiðabliki ... 7 Hlynur Birgisson, Leiftri........7 Kristinn Lámsson, Val...........7 Sigusteinn Gíslason, KR.........7 Stevo Vorkapic, Grindavík.......7 Steingrímur markahæstur Steingrímur Jóhannesson hefur gert flest mörk í úrvals- deildinni eða sjö í 9 leikjum. Hann skoraði þó ekki í fimm leikjum í röð í deildinni. Markahæstir 1999: Steimgrímur Jóhannesson, ÍBV ... 7 Bjarki Gunnlaugsson, KR..........5 Kristján Brooks, Keflavik........5 Ágúst Gylfason, Fram.............4 Sumarliði Ámason, Víkingi ......4 Une Arge, Leiftri................4 Alexandre Santos, Leiftri .......3 Andri Sigþórsson, KR.............3 Amór Guðjohnsen, Val.............3 Grétar Hjartarson, Grindavík .... 3 Guðmundur Benediktsson, KR ... 3 Sigurbjöm Hreiðarsson, Val......3 Sigþór Júliusson, KR ...........3 Skytturnar þrjár Hinir smáu en knáu KR-ingar, Guðmundur Benediktsson, Bjarki Gunnlaugsson og Sigþór Júlíusson, eru efstu þrír menn á lista yfir flestar stoðsendingar í deildinni það sem af er úrvals- deildinni. Flestar stoðsendingar 1999: Guðmundur Benediktsson, KR ... 5 Bjarki Gunnlaugsson, KR.........4 Sigþór Júlíusson, KR ...........4 Kristinn Lámsson, Val...........3 Páll Guðmundsson, Leiftri ......3 Scott Ramsey, Grindavík.........3 Une Arge á þátt í 75% marka Leiftursmanna Færeyingur- inn Une Arge hefur átt þátt í 6 af 8 mörkum Leiftursmanna í sumar en hann hefur skorað 4 og lagt upp tvö. Hann er þó aö- eins í sjötta sæti á listanum yfir þá bestu í deildinni. Þáttur í flestum mörkum 1999: Guðmundur Benediktsson, KR ... 9 ( 3 mörk, 5 stoðsendingar, 1 flskaó víti) Bjarki Gunnlaugsson, KR.........9 (5 mörk, 4 stoósendingar) Steingrímur Jóhannesson, ÍBV ... 7 ( 7 mörk) Kristján Brooks, Keflavík.......7 (5 mörk, 1 stoðsending, 1 fiskað víti) Sigþór Júlíusson, KR ...........7 ( 3 mörk, 4 stoðsendingar) Une Arge, Leiftri...............6 (4 mörk, 2 stoösendingar) -ÓÓJ Ikvöld Úrvalsdeild karla í knattspymu: Valur-Breiöablik............20.00 1. deild karla í knattspymu: Víðir-KA....................20.00 4"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.