Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 21. JULI 1999 11 DV Fréttir Smábátaútgerð vestra: Verður lokaskriðan í hruni Vestfjarða - segir Ólafur Ragnarsson skipstjóri DV, Vestfjörðum: „Fiskiríið hefur verið lélegt núna síðustu vikurnar en var mjög gott framan af. Það hafa ver- ið lélegar gæftir og lítið hægt að róa. Menn muna ekki annað eins tíðarfar. Það byrjaði að bræla I september í fyrra, ég veit ekki hvort er aðeins að slá á það núna,“ segir Ólafur Ragnarsson, skip- stjóri á Margréti ÍS, frá Flateyri. Ólafur stundar línuveiðar á krókabáti á aflamarki og segir hann útgerðina hafa þurft að leigja Olafur Ragnarsson skipstjóri. DV-mynd Guðm. Sig. Saumastofa á Barðaströnd: Hefur staðið af sér allar sveiflur Þrjár af konunum á saumastofunni Strönd á Barðaströnd. Frá vinstri Sigur- björg Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Valgerður Kristjánsdóttir. DV-mynd Guðm. Sig. DV, Baröaströnd: Á Barðaströnd er saumastofan Strönd sem starfrækt hefur verið frá árinu 1978. í upphafí var talsvert umleikis hjá saumastofunni enda var þá mikið saumað fyrir Álafoss sem þá var einhver stærsta ullar- verksmiðja landsins. Á undanforn- um árum .hefur heldur dregið úr rekstri stofunnar þar til nú að stof- an hefur náð samningum um að sauma fyrir prjónastofuna ísprjón ehf. á Hvammstanga. „Við saumum úr ull og kamb- gami fyrir Isprjón auk þess sem við höfum verið að taka að okkur önn- ur verkefni. Meðal annars höfum við saumað nokkuð fyrir sjúkrahús- ið á ísaflrði og svo má ekki gleyma því að við saumum vinsælar jóla- sveinahúfur," segja þær stöllur á Strönd, Sigurbjörg, Guðrún og Val- gerður. Samningurinn við ísprjón trygg- ir jafnari vinnu en áður var og eru nú fjórar konur í fostu starfi við stofuna. Þegar mikið er að gera er lausráðið fólk fengið til starfa til að anna verkefnum. Saumastofan er mikil fylling í atvinnulíf kvenna á svæðinu og hefur stofan staðið af sér allar þær miklu sveiflur sem riðið hafa yfir slík fyrirtæki í land- inu á þessum ámm. „Það hafa komið kaflar sem lítið hefur verið að gera. Þá höfum við minnkað við vinnuna en stofan hef- ur verið starfrækt allar götur frá því hún var opnuð fyrst, þó mis- mikið hafi verið að gera. Enda hef- ur verið gott fyrir okkur hérna í sveitinni að hajfa þetta með búun- um.“ -GS til sín kvóta og kaupa, auk þess sem afla sé landað tonn á móti tonni þannig að fiskkaupandi leggi til hluta kvótans. „Við löndum bara þar sem hæst er verðið - höfum meira að segja landað töluverðu af aflanum til Húsavíkur. Kvótastaðan gerir okk- ur mjög erfitt fyrir þannig að við verðum að gera sem mest verðmæti úr aflanum." Mikið hefur verið þrengt að smá- bátaútgerð á undanfornum árum með þrengdum reglum um stjórnun fiskveiða. Og vist er að margir kvíða breytingum þeim sem boðað- ar hafa verið á næsta ári, á fiskviði- stjórnun smábáta, og telja smábáta- sjómenn að búið sé að þrengja nóg að þeim fyrir og varla á bætandi. „Mér líst mjög illa á framtíðina fyrir smábátaútgerð hér á Vestfjörð- um. Ætli maður verði ekki orðinn atvinnulaus eftir að steinbíturinn og ýsan verða komin undir kvóta. Það er óskiljanlegt að smábátar þurfi að sæta kvóta í þessum teg- undum. Mér sýnist að verið sé að hygla LÍÚ eina ferðina enn. Þeir vilja fá allt í kvóta til að auka verð- mæti skipanna og stjórnvöldum virðist vera að miklu leyti stýrt frá LÍÚ. Ég get ekki ímyndað mér að nýi sjávarútvegsráðherrann breyti neinu þar um. Ég held að hann sé steyptur í nákvæmlega sama mót og Þorsteinn Pálsson og gæti allt eins verið klónaður af honum. Þessi ráð- stöfun gengur frá vestfirskum sjáv- arplássum. Þetta verður lokaskrið- an í hruni Vestfjarða. Smábátarnir hafa tekið við hráefnisöflun eftir að búið er að selja flesta togarana burt með aflaheimildum. Menn verða að fara að átta sig á stöðunni hérna," segir Ólafur skipstjóri. -GS S.S. GUNNARSSON HF. VELSMIÐJA Rennismíði - Vélsmíði Dráttarkúlur - Varahlutir í fiskvinnsluvélar Tannhjól - Ásar - Fóðringar Nipplar -Valsar - Slífar Eigum á lager ryðfrítt vökvafittings. Framleiðum eftir pöntunum. Fljót og góð afgreiðsla. Trönuhrauni 10, Hafnarfirði. Sími 555 3343. Fax 565 3571. GSM 898 7449 Pallaolía Viðarvörn í rétta litnum Við blöndum rétta litinn á pallinn þinn 1.785 kr. ■ 3 liimr ul .loliin |uillcK)lui HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.