Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1999, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999
43
dv____________Kvikmyndir
Stjörnubíó - The Thirteenth Floor:
Fullkominn
sýndarveruleiki?
, Þær eru ekki ófáar kvik-
~ ” myndirnar sem á undan-
fornum árum hafa verið að fjalla
um mörkin sem skilja á milli
veruleika og sýndarveruleika.
Skemmst er að minnast eXistenZ
og The Matrix. The
Thirteenth Floor
gengur lengst í sýnd-
arveruleikanum enda
er áhorfandinn skil-
inn eftir i lokin villu-
ráfandi og veit ekki í
sinn haus hvort um
nokkum veruleika
hefur verið að ræða í
myndinni.
The Thirteenth
nær athygli áhorfand-
ans strax í byrjun í
vel gerðum og áhuga-
verðum atriðum Við
emm stödd i hjarta
Los Angeles árið 1937 og fylgjumst
með eldri manni sem gamnar sér
viö ungar stúlkur áður en hann
hverfur til síns heima í gamalt og
virðulegt hús. Hann leggst til
svefhs og vaknar á þrettándu hæð
í háhýsi innan um tölvur nútim-
ans. Hann er Hannon Fuller
(Armin Mueller-
Stahl), tölvugúru sem
hefur dvalið í full-
komnum sýndarveru-
leikaheimi sem hann
hefur skapað þar sem þátttakand-
inn frnnur engan mun á milli
raunveruleika og sýndarvem-
leika. Þetta er byltingarkennd
uppgötvun en áður en Fuller get-
ur látið nánasta samstarfsmann
sinn, Douglas Hall (Craig Bierko),
vita um árangurinn er hann myrt-
ur. Hall er granaður um morðið,
sjálfur veit hann að hann var ekki
á morðstaðnum og myrti ekki
Fuller en getur enga skýringu gef-
ið á því að vitni sáu hann myrða
Fuller. Svarið hlýtur að vera í
sýndarveruleikanum.
The Thirteenth Floor er góð
skemmtun framan af, framtiðar-
sakamálamynd þar sem sparlega
er farið með tæknibrellur en í
þess stað er góð sviðssetning. Hún
heldur dampi fram yflr miðju þar
sem farið er skemmtilega leið í
kringum hvað er veruleiki og
sýndarveruleiki. En þegar fara að
koma fram tákn um að veruleik-
inn, sem hingað til
hefur staðið á traust-
um fótum efnishyggj-
unnar, geti allt eins
verið sýndarveruleiki
fer myndin að fara fram úr sjálfri
sér og endirinn er eitthvað sem
engin leið er að fá botn í.
Leikstjóri Josef Rusnak. Handrit:
Josef Rusnak og Ravel Centeno-
Rodriguez. Kvikmyndataka
Wedigo von Schultzendorf. Tón-
list Harald Kloser. Aðalhlutverk:
Craig Bierko, Gretchen Mol,
Vincent D'Ononfrio og Armin
Mueller-Stahl.
Hilmar Karlsson
Vincent D’Ononfrio og Craig Bierko í hlutverk-
um tölvusnillinga sem fara út fyrir ystu mörk.
K v i k m y n d a
GAGNRÝNI
Sam-bíóin: - Wing Commander:
Geimhasar á
lágu plani
★ Tölvuleikir og kvikmyndir eru
ekki sami hluturinn og það hlýt-
ur að gefa augaleið að ef hægt á að
vera að gera mannsæmandi kvik-
mynd úr tölvu-
leik verður að
fmna leiknum
farveg innan
ramma kvik-
myndarinnar,
láta hann öðlast
líf umfram það
sem hægt er að
gera á skjánum.
Þetta er eitt-
hvað sem leik-
stjóri Wing
Commanders,
Chris Roberts,
Flugmennirnir Blair og Marshall f
hremmingum. Freddie Prinze jr. og
Matthew Lillard í hlutverkum sínum.
um leið jarðarbúum stríð á hendur.
Einhverra hluta vegna er geimskip-
ið, sem flugmennimir tveir em á leið
til, eina björgun jarðarinnar úr klíp-
unni, hvers
vegna er eins og
flest annað í
myndinni án
skýringa. Upp-
hefst nú sögu-
þráður sem er
með eindæmum
þunnur og án
nokkurrar
skynsemi þar
sem loftbardag-
ar em eina af-
þreyingin en
þeir em þreyt-
hefúr engan skilning á Kvikmynda andi til lengdar. Ekki
en hann er sjáifsagt FEÍ/MI bæta leikarar myndina
fyrsti tölvuleikjahöfund- uAuNK I Pll oger spum hvað gæða-
urinn sem fær milljónir
dollara upp í hendumar til að gera
kvikmynd úr eigin tölvuleik. Af-
raksturinn er ein leiðinlegasta
stjömustriðsmynd sem gerð hefur
verið. Það er ekki hægt að fá neinn
skynsamlegan botn í myndina, hún
er eins líflaus eins og tölvuleikurinn
sem hún er gerð eftir.
Wing Commander gerist árið 2564.
Tveir flugmenn, nýkomnir úr þjáif-
unarskóla, era á leið til geimstöðvar
þar sem þeir eiga aö leysa aðra flug-
menn af. Á meðan á ferð þeirra
stendur ná óvinimir, sem era heldur
ófrýnilegir, svo ekki sé meira sagt, að
komast yfir uppdrátt af vörðum sigl-
ingaleiðum tO jarðarinnar og segja
leikarar á borð við
Júrgen Prochnov og David Suchet
era að meina með því að leika í dellu
á borð við þessa. Markaðsverð ungu
leikaranna sem eiga að selja mynd-
ina hlýtur að hafa lækkað þegar
frammistaða þeirra í myndinni er
höfð í huga, þar sem helst má aétla af
látbrögðum þeirra að víðátta geims-
ins sé knattspymuvöllur.
Leikstjóri og handritshöfundur
Chris Roberts. Kvikmyndataka
Thierry Arbogast. Aöalleikarar:
Freddie Prinze jr„ Matthew Lill-
ard, Saffron Burrows, Jurgen
Prochnow, Tchéky Karyo, David
Warner og David Suchet.
Hilmar Karlsson
29" 100 riða sjónvarp
i fær SONY
Heppinn
heimabíó frá Japis sem er:
Dregið 20. ágúst
Vikulega verður dreginn
út áskrifandi sem fær
kr. 30.000 í vöruúttekt að
eigin vali í Útilífi.
Heildarverðmæti vinninga er
700.000 kr.
6 hátalarar
og auk þess:
14" sambyggt sjónvarp og vídeó, ferðageislaspilara fyrir öll börn
og unglinga á heimilinu sem eru yngri en 18 ára.
■
■ aniCA UI IL.U-
JAPISð eBGBiEI