Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Page 4
Þegar gengið er í gegnum Grjótaþorp er gott að vera í góðri mussu og fótlaga skóm. Ekki viljum við að íbúarnir fari að kvarta yfir sjónmengun líka. Ef hljómur borgarinnar er að sliga þig á nóttinni er óþarfi að hlaupa vælandi í blöðin og heimta að Borgin loki fyrir heilbrigða og hávaðalausa erótíska list. Betra væri einfaldlega að fá sér eyrnatappa. Parið af þessum kostar ekki nema 25 kall í næsta apóteki og þeir eru þar að auki viðurkenndir af sænskum háls-, nef- og eyrnalæknum. Ef tapparnir koma að litlum notum má benda á svokallaða h e d d - fóna sem hægt er að taka með í r ú m i ð . Heddfón- inn má tengja við geislaspilara og varla er hægt að hugsa sér þægilegri leið til að svífa inn í nóttina en góða básúnutónlist. Ef það gengur ekki þykir gott ráð að spila lagið Því ertu svona uppstökk? sem Björn R. Einarsson söng. Ef þú ert enn andvaka þrátt fyr- ir heddfóninn og ljúfu tónlistina eru svefntöflur næsta ráð gegn búksorgum þínum. Þær koma af öllum stærðum og gerðum og gam- an væri fyrir þig að gera tilraunir með að prófa hinar ýmsu tegundir á nóttunni. Svefntöflur fást þó að- eins gegn resepti læknis en það hlýtur að vera nóg að segjast búa í Grjótaþorpinu. Ef öll þessi ráð koma að engum notum má benda á að bærinn að Upp- sölum stendur enn ónotaður i S e 1 á r d a 1 . Hvernig væri að hefja búskap þar á ný? GRIM Lenging afgreiðslu- tíma veitingastaða hefur tekið á sig undarlegar myndir. Um síðustu helgi var næturklúbbastemn- ing á Akureyri og Reykvíkingar hugsuðu sér gott til glóðarinnar í vikunni þegar Helgi Hjörvar lýsti því yfir að við ættum von á því sama. En veitingamenn efast og taka öllum tíðindum með stóískri ró. Samúel Björnsson, veitingamaöur á JVkureyri. IRCHSS Ovissa næturklúbba Reykjavík Veitingastaðir í miðborg Reykja- víkur horfa fram á breytingar um helgina. Eða, þær ættu að endast þar til Þráinn Bertelsson og félag- ar í Grjótaþorpinu fara að senda fjölmiðlum lesendabréf. Þessar yf- irvofandi breytingar fela i sér að lengur er opið. Á Thomsen verður til dæmis opið eftir stuði. Ef það verður fullt hús og mikið um að vera þá ætla þeir bara að hafa opið þar til yfir lýkur. En þeir eru eini staðurinn sem hafði staðfest af- greiðslutímann við Fókus áður en blaðið fór í prentun. Staðir eins og Grand Rokk og 22 ætla að öllum Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar. líkindum að halda að sér höndum. Sama hljóðið var hjá eigendum flestra staðanna í miðbænum. Enda eru veitingahúsaeigendur í losti eftir að ákveðið var að loka Club Clinton. Þeir hugsa með sér: Hver er næstur? Það er því óvíst um næturklúbbastemmningu í Reykjavík af því að eigendur skemmtistaðanna ekki Helga Hjörvar, enn sem komið er. „Astró er ekki búið að fá neitt umframleyfi í hendurnar að svo stöddu,” segir Kiddi Bigfoot framkvæmdastjóri Astró. „Helgi Hjörvar er búinn að vera með yfir- lýsingar í fjölmiðlum áður. Þannig að við bíðum rólegir þar til að til- tekin leyfi eru komin í hendur á okkur á Astró,“ segir Kiddi og því gæti orðið bið á almennilegri næt- urklúbbastemningu í Reykjavík. Stuðið er á Akureyri Akureyringar toppa Reykvík- inga með því að hafa þetta allt frjálst hjá sér. Bæjarráð Akureyrar er nú búið að leyfa að afgreiðslu- tími skemmtistaða þar í bæ verði ótakmarkaður. Libómennska bæj- arstjórnar er þar með ekki upptal- in því Akureyringar hleypa einnig 18 ára fólki inn á staðina en auðvit- að þarf 20 ár í veigarnar. Já, nú mega Reykvíkingar fara að vara sig því Akureyri er komin með forskot. Baráttan fyrir að hafa lengur opið er í algleymingi og norðanmenn vita það. Helsti staður akureyrskra næturhrafna er spútnikstaðurinn Madhouse sem Samúel Björnsson rekur ásamt fé- laga sínum. Þeir voru einna fyrstir til að grípa frjálsa opnunarleyfið og nýta sér það. „Við erum búnir að hafa opið lengur núna nokkrar helgar og það hefur alltaf myndast eðalstemning. Fyrir tveimur helg- um var poflamót eða réttara sagt öldungamót, sem er fyrir 30 ára og eldri, og þá var stuð hjá okkur langt undir morgun. Annars verð- ur maður auðvitað að spila þetta eftir eyranu, það þýðir ekkert að hafa opið fyrir íjóra kunningja. Ef það eru hins vegar margir á svæð- inu og allir í stuði gengur þetta upp. Undanfarnar helgar hefur ver- ið mikið fjör, mikið gaman," segir Samúel Björnsson, annar af tveim- ur Madhouse-mönnum. Toppað um næstu helgi „Þessi næturklúbbabransi átti nú aldrei að vera neitt meira en smágrín hjá mér og félaga mínum,“ heldur Samúel áfram. „Það er bara búið að ganga svo vel. Reksturinn stendur alla vega vel undir sér þannig að þetta er hið besta mál. Aðalkosturinn við að hafa opið þar til stemningin býður ekki lengur upp á það er að þurfa ekki að ganga á lýðinn kl. 3 og byrja að reka út, það er ömurlegt. Salan er fín fram eftir nóttu þannig að það er engin ástæða fyrir því að hafa ekki opið lengur. Siðan toppum við málið um verslunarmannahelgina. Þá verður alltaf opið hjá okkur, nema þegar við þurfum að þrífa.“ Morgunfjörið rosalegt „Hér er dansað allar nætin: úti á torgi,“ segir Sigurður Árni Jós- efsson í jaðartískuversluninni Hol- unni á Akureyri. „Maður liggur samt ekki í vitleysunni fram eftir öflum morgnum þó svo að manni bjóðist það. Bara eins og maður endist. Það er allur pakkinn: æl- urnar, slagsmálin og grenjurnar. Morgunfjörið er rosalegt, þetta er sér akureyrsk stemning, mjög sér- stök. Annars er rúnturinn alltaf stimpill bæjarins. Fólk fer ekki heim fyrr en síðasti maður á rúnt- inum fer, þá ná menn sér 1 far. Ég er að fara að fá mér amerískan kagga og ætla að sækjast eftir titl- inum Rúntkóngur Norðurlands, ótakmarkaður afgreiðslutími opn- ar nýjar og betri víddir í rúntin- um,“ gegir Siggi í Holunni. f Ó k U S 23. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.