Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Blaðsíða 18
*
i
\%.jg
Fuckíng Ámál:
Vinsælasta
mynd í Svíþjóð
í mörg ár
Fucking Ámál, sem Háskólabíó
frumsýnir í dag, hefur fengiö frá-
bærar viðtökur annars staðar á
Norðurlöndum og er vinsælasta
kvikmyndin sem Svíar hafa gert í
mörg ár. Hún var frumsýnd með-
an Titanicæðið gekk yfir og
fleygði henni létt af toppnum. í
dag hafa 750.000 Svíar séð mynd-
ina sem auk þess hefur fengið
mjög góða gagnrýni. Var hún til-
nefning Svía til óskarsverðlaun-
anna á þessu ári. Það tók leikstjór-
ann Lukas Moodysson ekki nema
þrjátíu daga að kvikmynda og not-
aði hann að mestu óreynda áhuga-
leikara.
Stúlkurnar tvær í aðalhlutverk-
unum, Rebecca Liljeberg (Agnes)
og Alexandra Dahlström (Elin),
hafa þó báðar nokkra reynslu þótt
ungar séu. Rebecca, sem fædd er
1981, byrjaði leikferilinn níu ára
gömul og þegar hún var sautján
ára hafði hún leikið í mörgum
leikritum, sjónvarpsseríum og
einni annarri kvikmynd, Sherdil.
Alexandra Dahlström er fædd
1984. Hún lék aukahlutverk í
Truth or Dare (1997) og hefur leik-
ið í sjónvarpsseríum. Hún hýr í
foreldrahúsum i Stokkhólmi.
Lukas Moodyson fæddist 1969.
Sautján ára gamall gaf hann út
sína fyrstu ljóðabók. Hann fylgdi
henni eftir með skáldsögu og öðru
ljóðasafni. Hann gerði sína fyrstu
stuttmynd meðan hann var við
nám við Dramatiska Institutet.
Fucking Ámál er hans fyrsta kvik-
mynd í fullri lengd. Moodyson býr
í Málmey ásamt eiginkonu sinni
Coco og tveimur bömum.
-HK
Will Smith og Barry
Sonnenfeld
skemmtu sér svo
vel við gerð Men
in Black að þeir
ákváðu að endur-
taka leikinn í
Wild Wild West
sem frumsýnd er
dag í Sam-bíóun-
um, Laugarásbíói
og Nýja bíóí,
Akureyri
Leyni
í villta
Að sögn þeirra sem best til þekkja
kemst Wild Wild West í hóp dýrustu
kvikmynda sem gerðar hafa verið.
Hvar hún er í röðinni liggur ekki á
lausu, en hún er örugglega dýrasti
vestri sem gerður hefur verið. Svo er
annað mál að unnendur gömlu, góðu
vestranna segja örugglega að hún eigi
litla samleið með alvöruvestrum, enda
er það nánast bara nafnið og sumar
sviðsetningar sem minna á vestrið.
Sagan gæti allt eins gerst í nútíman-
um eða framtíðinni.
Aðalpersónurnar era leyniþjónustu-
mennimir James West (Will Smith) og
Artemus Gordon (Kevin Kline). Þeir
era sendir í vestrið til að leita uppi
snarbrjálaðan vísindamann, Dr. Arliss
Loveless, sem er langt á undan sinni
samtíð í uppfinningasemi sinni. Dr.
Arliss Loveless (Kenneth Brannagh)
hefur uppi áform um að myrða forseta
Bandaríkjanna. I fyrstu er lítið um
vinskap á milli West og Gordon, sem
líta hvor á annan sem keppinaut. Ekki
treysta þeir hvor öðrum betur þegcu-
hin dularfulla söngkona Rita Escobar
(Salma Hayek) óskar eftir að fá að
vera með í leitinni að Loveless - á hún
harma að hefna. Hópurinn er ekki
lengi að hafa uppi á vísindamannin-
um, en hann er vel varinn af alls kon-
ar tækjum og tólum, auk þess sem
hann hefur í kringum sig hirð hættu-
legra kvenna sem þeir félagar eiga
erfitt með að standast.
Leikstjóri Wild Wild West er Barry
Sonnenfeld sem síðast leikstýrði einni
vinsælustu kvikmynd allra tíma, Men
in Black. Þar hittust þeir fyrst Sonn-
enfeld og Will Smith og líkaði sam-
starfið svo vel að þeir ákváðu að end-
urtaka það sem allra fyrst. Sonnenfeld
byijaði feril sinn sem kvikmyndatöku-
maður í Blood Simple fyrir Coen-
bræður, sem þá voru jafnóþekktir og
blankir og hann. Sonnenfeld hélt sam-
starfinu áfram í Raising Arizona og
Miller’s Crossing, auk þess sem hann
starfaði með öðrum leikstjórum og
meðal kvikmynda sem hann stjórnaði
tökum á era Big, When Harry Met
Sally og Misery.
Dularfull söngkona, Rita Escobar
(Salma Hayek), óskar eftir samstarfi
við West og Gordon.
Barry Sonnenfeld leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd 1991, var það Add-
ams Family. í kjölfarið komu For Love
and Money og Addams Family Values.
Get Shorty og Men in Black. Altt eru
þetta kvikmyndir sem slegið hafa í
gegn að For Love and Money undan-
skilinni. -HK
^rni'ui
Will Smith, sem fæddist 28. september 1968, er
fæddur skemmtikraftur. Þegar hann var í bama-
skóla fékk hann viðurnefnið prinsinn vegna þess
að það var alveg sama í hvaða klípu hann lenti,
hann gat alltaf bjargað sér með mælskulist
sinni. Þegar Will Smith var tólf ára gamall
byrjaði hann að rappa og stuttu eftir það urðu
þeir á vegi hvor annars Will Smith og Jeff
Townes og hófu samstarf undir nöfnunum
Fresh Prince og Jazzy Jeff. Hófst nú farsælt
samstarf sem meðal annars gaf af sér tvær plöt-
ur sem seldust í tugum milljóna eintaka og
nokkur grammy-verðlaun. Átján ára gamall var
Will Smith orðinn milljónamæringur í dolluram.
Með aukinni velgengni í tónlistinni beindist
hugur Wills Smiths meira að leiklistinni og
tók því fegins hendi þegar honum var boðið
að hafa eigin þátt, þannig varð The Fresh
Prince of Beverly HOls til, sem var nokkurs
konar nútima útgáfa af Beverly Hillbillies.
Þetta var árið 1990 og hélt þátturinn vin-
sældum sínum í sex ár.
Þótt ætla mætti af ferli Smiths að hann
væri alinn upp á götunni þá er það fjarri
lagi. Faðir hans er tæknifræðingur og móð-
ir hans kennari. Will Smith var það góður
námsmaður að þegar hann lauk mennta-
skólanámi átján ára gamall stóð honum til
boða styrkur frá hinum virta háskóla M.I.T. sem hann ekki þáði, var með
hugann við skemmtibransann.
Meðfram kvikmyndaleik á undanfómum árum hefur Will Smith einnig
verið í plötubransanum og þótt vinsældir hans séu ekki eins miklar á þeim
vettvangi eins og i kvikmyndum þar sem hann er meðal hæst launuðu leik-
ara í heimi þá seljast plötur hans eins og heitar lummur. -HK
Kvi
Will
Smiths
Six Degrees of Separatlon
Made in America
Bad Boys
Independence Day
Men in Black
Enemy of the State
Wild Wlld West
(1993)
(1993)
(1995)
(1996)
(1997)
(1998)
(1999)
bíódómur
Háskólabíó - Fucking Ámál:
bíódómur
Stjörnubíó - Cube:
Völundarhús Rubiks
Það er eitthvað
v~v
línii
Handrit og leikstjórn: Lukas Moodys-
son. Aðalhlutverk: Alexandra Dahl-
ström, Rebecca Liljeberg, Erica Carl-
son, Mathias Rust.
Fucking Ámál er skemmtilega á skjön
við hina skandinavisku pedagógísku
heíð sem hefur oft getið af sér vandað-
ar og umhugsunarverðar sögur en
stundum um of gegnsýrðar af póli-
tískri rétthugsun, sérílagi á seinni
áram. Guðsblessunarlega hefur höf-
undur myndarinnar ákveðið að fara
aðra leið með þessari fyrstu mynd
sinni, sem svo sannarlega hefur upp-
skorið vel, enda hlaut myndin ekki að-
eins kvikmyndaverðlaun Svía á þessu
ári heldur hefur hún einnig notið mik-
illar aðsóknar á Norðurlöndum.
Kannski er ástæðan sú að lungi bíó-
gesta, sem flestir eru ekki fjarri aðal-
persónum þessarar myndar í aldri,
kann að meta frásögn sem kemur til
dyranna eins og hún er klædd, úfin,
hrá og grimm en svolítið skondin.
Agnes (Liljeberg) hefur búið í
krammaskuöinu Ámál í næstum tvö
ár og hefur enn ekki náð aö eignast
vini, enda hlédræg og fáskiptin. Aftur
á móti er hún bálskotin í Elínu
(Dahlström) sem er eiginlega aðalgell-
an í bænum, sæt, sexí og til í hvað sem
er - hvenær sem er. Hins vegar er ekki
mikið um að vera í plássinu, strákam-
ir púkalegir og almennur skortur á
lífsins nautnum. Agnes þarf að halda
upp á sextán ára afmælið en þegar eng-
inn dúkkar upp nema fótluð vinkona
hennar er henni allri lokið. Eftir að
hafa úthúðað hinni fótluðu lokar hún
sig af en þá dúkkar Elín óvænt upp
ásamt systur sinni Jessicu (Carlson).
Þær era í leit að tilbreytingu og vímu-
gjöfum og Jessica manar systur sína
til að kyssa Agnesi, sem hún og gerir,
um leið og þær stökkva flissandi á
braut. Agnes er niðurbrotin og hyggst
binda enda á sina ömurlegu tilveru en
Elín snýr aftur og biðst fyrirgefningar
á uppátækinu. Þær gerast umsvifa-
laust vinkonur og halda út á lífið þar
sem þær skiptast á blautum kossum.
En Elín er ekki alveg reiðubúin að láta
hlutina ganga lengra og lætur sem hún
sjái ekki Agnesi í skólanum. Upphefst
þá mikið taugastríð og Elín verður að
gera upp við sig hvort hún eigi að
fylgja sannfæringu sinni eða sigla með
straumnum og gera það sem allir bú-
ast við af henni.
Agnes er falleg stúlka að innan sem
utan en samt vinalaus, foreldrar henn-
ar era ekkert nema hjálpsemin en
standa engu að siður ráðþrota, sú fatl-
aða er ekki yfir það hafin að ná sér
niðri á Agnesi með því að kjafta frá
hennar hjartans málum til að koma
sér í mjúkinn hjá hinum krökkunum
og góði strákurinn, Johan (Rust) sem
einnig þráir Elínu, er skilinn eftir í
lausu lofti og með blæðandi hjarta. Al-
exandra Dahlström sem leikur Elínu
geislar af óttaleysi og óhamdri orku;
hún á slikan stórleik að helst verður
jafnað við Kate Winslet í Heavenly
Creatures á sínum tíma, glæsileg
frumraun. Sama máli gegnir með leik-
stjórann, honum hefur tekist að skapa
mynd sem er allt í senn skemmtileg,
spennandi, áleitin og að mestu laus við
klisjuafgreiöslur. Ekki spillir fyrir að
hann leyfir sér lokaatriði sem hossar
sálartetrinu svo hátt á loft að maður
svífur í stórum boga út úr bíóinu.
Ásgrímur Sverrisson.
Aðalhlutverk: Nicole de Boer,
Nicky Guadagni, David Hewlett
og Ándrew Miller. Leikstjóri:
Vincenzo Natali. Handrit: Andre
Bijelic og Graeme Manson.
Kvikmyndataka: Derek Rogers.
Tónlist: Mark Korven.
Myndin Cube er fyrsta mynd
kanadíska leikstjórans Vincenzo
Natali og óhætt er að segja að
hann hefði getað valið sér auðveld-
ara viðfangsefni. Myndin er eins
konar sálfræðilegur/stærðfræði-
legur tryllir en ekki er hægt að
setja hana í háan gæðaflokk.
Sagan fjallar um það að sex
ókunnugar persónur vakna upp i
völundarhúsi byggt úr herbergj-
um. Enginn þeirra veit hvaðan á
hann stendur veðrið en fljótlega
finna þau hvort annað. Þau taka
höndum saman við að reyna að
finna útgönguleið á sem skemmst-
um tíma þar sem þau hafa einung-
is þrjá sólahringa til stefnu
(mannslíkaminn getur lifað í þrjá
sólahringa án vatns og matar).
Völundarhúsið er byggt upp eins
og Rubik-ferningurinn sívinsæli,
með ótal herbergjum, en ekki
mega þau vera of fljót á sér þar
sem dauðagildrur hafa verið lagð-
ar í sum herbergin. í ljós kemur að
þau eru tilraunadýr í tilgangs-
lausri tilraun. Þau átta sig á því að
völundarhúsið byggist upp á
stærðfræði og ef út á að komast
þarf að beita henni. Þá kemur sér
vel að hafa stærðfræðisnillinginn
Leaven (Nicole de Boer) til að saxa
á gátuna. Hópurinn er samansett-
ur af alls konar fólki og virðist
hver og einn hafa tilgang fyrir
heildina á ferðalaginu út úr völ-
undarhúsinu. Ekki líður þó á
löngu þar til sýður upp úr innan
hópsins og ofsóknarhræðsla og
geðveiki banka upp á.
Byrjunaratriðið í myndinni var
mjög sterkt og bauð upp á ágætis
mynd. Einnig var mjög spennandi
að fylgjast með þegar hópurinn
var að fletta ofan af fyrstu lögum
ráðgátunnar þegar myndin var að
taka á skrið. Því miður hélt hún
ekki dampi. Fljótlega snerist allt
f Ó k U S 23. júlí 1999