Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Blaðsíða 28
ír Góðir hundar í bandi „Mér sýnist allt vera á upp- leið,“ segir Ómar Guðjónsson, gítarleikari í Funkmaster 2000, nornapotti grúvsins á íslandi. „Þessi bylgja fór af stað ein- hverntíma síðasta sumar og há- markinu hefur enn ekki verið náð. Og ég hef þá trú að fönkið muni halda sessi sínum um ókomna tið, enda þess eðlis að það hittir fólk vel fyrir.“ Funkmaster leikur um þessar mundir á Glaumbar öll sunnu- dagskvöld en það hefur sést til bandsins viða undanfarið ár auk þess sem hljómplata kom frá sveitinni fyrir síðustu jól. Platan ykkar var unnin mjög hrátt og það skilaði œðislegu sándi en hvernig hefur hún selst? „Svona sæmilega miðað við svona plötur. Ég gæti þó trúað að umslagið á henni hafi eitthvað dregið úr sölunni ef eitthvað er, það er ekki alveg að meika það í plöturekkum verslananna." Það var KK sem tók upp og framleiddi þessa skífu, ekki satt? „Jú, KK er fönkkóngurinn. Hann reyndist okkur frábærlega. Þakklætið er allt okkar megin.“ Eigió þið einhverjar hetjur og fyrirmyndir? „Það er þá helst grúppan The Meters og auðvitað JB’s. Svo eru það ýmsir Hammondkóngar. Annars er þetta allt svo laust í reipunum, við nálgumst þetta mikið eins og djass. Það er rennt í laglínu og síðan bara grúvað og sólóað allt þar til laglínan er tek- in aftur og endir fundinn á stykk- ið. Þetta gengur alltaf tint upp enda svo ógeðslega góðir hundar í bandinu. Já, ekki má gleyma að við vorum að taka inn nýja menn, Davíð Þór á sax og Valda Collins bassista." Hverjir eru fleiri innanborðs? „Helgi Svavar Helgason á slagverk, Sverrir Sævars á trommur og Hannes Helgason sem spilar á Rhodes, píanó, Nor- dlead og jafnvel klavinet." Tóm hamingja, sem sagt „Já, það eru allir að gefa svo mikið af sér. Mikill frumkraftur í gangi.“ Og önnur plata kannski á leið- inni? „Það er aldrei að vita. Þetta band er þó óútreiknanlegt. Við hugsum fyrst og fremst um að koma saman og spila. Það er ynd- islegt að hittast og taka ný lög. Lengra hugsum við ekki og erum því ekkert farnir að velta fyrir okkur plötu," segir Ómar að lok- um. kerfiö. Pas pá, núna kostar þúsundkall enda miklu lengra prógramm. Vissuð þið að það er þrettánda starfsár Sum- artónleika í Akureyrar- kirkju? Nú er það Tjarn- arkvartettinn úr Svarfað- ardal en ekki af Frikirkju- vegi sem heldur uppi stuðinu með Mariuversum, íslenskum helgi- kvæðum og íslenskum sönglögum allrahanda. Rýkur í gang klukkan sautján og kostar ekki krónu inn. Fegurð veraldar hverfur aftur í Skálholti því verk Snorra Sigfúsar við Ijóð Hallgrims Péturs- sonarverðurendurflutt klukkan 16.40. Svo er messa með þátttöku tónlistarmanna beint í kjölfarið. Hápunktur þeirrar dagskrár er þegar MargrétBóasdóttir sópran flytur stólvers úr !s- lensku handriti í útsetningu Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar. •Fundir Ljóðadagskrá Pjeturs Hafstein Lárussonar, „Tímans hringrás í Reykjavík", verður flutt í Deiglunni á Akureyri klukkan 21.30. Baldvin Halldórsson og Karl Guðmundsson lesa við undirleik Árna ísleifs sem flytur frumsamda tónlist. Eftir hlé koma fram Guðjón Pálsson pl- anóleikari og Haukur Ágústsson söngvari. •Feröir Dagsferð í Seljadal og að Nesseli á vegum Ferðafélagsins. Ú je. Lagt verður af stað klukkan 13. Mánudagur 26. júli' Síróp heldur þér við efnið á Kaffi Reykjavík. Sötra bjór, sötra bjór. Búinn að kaupa miða á Þjóðhátíð- ina? Óskar og samfélag sýrir hugann á Gauknum. Hvað segiði um smálögg af Caffrey með kræsingunum? ®Kr ár •Klassík Skemmtilegi kórinn Voces Boreales tekur lag- ið undir yfirskriftinni „Úrýmsum áttum í gamni og alvöru" í Deiglunni, Akureyri, klukkan 21. Stjórnandi er Michael Jón Clarke. •F u n d i r Á sumardagskrá Norræna hússins, sem hefur yfirskriftina Til móts við árið 2000, kemur arkitektinn Jaroslav Safer og slær upp fundi klukkan 20. Hann ætlar að kynna arkitektúr! Prag, fornan og nýjan. í hinum forna miðbæ í Prag birtast allar stíltegundir byggingarlistar! þúsund ár. Friðlýstar byggingar eru yfir 1400 og um 866 hektara svæði er á heimsminja- skrá UNESCO. Einkum hefur varðveist mikið af barokk-arkitektúr. Safer er kominn aftur til Tékklands eftir glæsilegan feril á alþjóðavett- vangi og réðst til starfa við tækniháskólann í Prag (CVUT) 1992 sem prófessor í arkitektúr og forstöðumaður arkitektúrdeildarinnar. Teiknistofa Safers og félaga hefur undanfarin fimm ár teiknað fjölmargar opinberar bygging- ar sem hlotið hafa verðlaun. Prag, höfuðborg Tékklands, með um 1,2 milljónir íbúa, hefur verið og er ein mikilvægasta miðstöð menn- ingar og viðskipta ! Evrópu. Prag nútímans er borgsem dregur að sér menntamenn hvaðanæfa úr heiminum. Dagskráin verður á ensku. Aðgangur er ókeypis. Þriðjudagur 27. júlí •K r á r Aldrei þreytast kellíngarnar á aö atast í prúö- menninu Eyjólfi. Hvort tveggja má sjá á Kaffi Reykjavík í kvöld. Kellllllííínnggaaaaaaar! I ENEMY DF THE STATE ÞAÐ ER EKKI IMYNDUNARVEIKI EF ÞEIR ERU í RAUN DG VERU Á EFTIR ÞÉR 28 23. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.