Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Page 15
plötudómur
Vel smurðir í 11
Því verður ekki neitað að SS-
Sól er traust rokk- og ballband.
Grípandi smellina á bandið I röð-
um og á böllum gengur prógram-
mið eins og vel smurt færiband
með Helga Bjöms framleiðslu-
stjóra í fararbroddi að æpa sig
hásan. Eftir tólf ár í baráttunni
er kærkomið fyrir fjölmarga
njótendur bandsins að fá jafn-
þykkan pakka og „88/99“ óneit-
anlega er; 35 lög á 2 diskum. All-
ir smellir Sólarinnar eru hér,
nema „Dísa“ sem kannski hefur
ekki þótt hafa elst vel.
Höfundareinkenni Sólarinnar
eru skýr: Fá-á-heilann-meló-
díurnar eru unnar úr Stóns-leg-
um töffaraskap, söngrödd Helga
sem reynslan hefur fágað og
næmu eyra bandsins fyrir því
sem hæst ber í poppinu hverju
sinni. Þvi er þessi ferilsplata Sól-
arinnar um leið hálfgerð
kennslustund í poppþróun síð-
ustu ellefu ára. Án þess að væna
bandið um heiladauða eftiröpun
er hægt að segja að Prefab Sprout
hafi verið þvi ofarlega í huga
þegar fyrsta platan var gerð árið
1988 og svo tínast rokkáhrifin
inn úr ýmsum áttum eftir þvi
sem á líður.
Þrjú áður óútgefin lög fylgja.
„Þú ert ekkert betri en ég“ er
hress og graður rokkari, „Geim-
skipið Sól“ er töffaragospelrokk a
la „Cry Myself Blind“ eða „Tend-
er“ og „Hvernig sem fer“ er hetju-
legt rokk sem minnir óljóst á eitt-
hvað úr rokksögunni. Nýju lögin
sýna að enn er hellings líf í
rokktuskum Sólarinnar enda lýsir
Helgi yfir í „Geimskipinu" að
„þetta sé bara rétt að byrja“.
SSSól - 88/99 ★ ★★
ár
Þegar horft er yfir farinn veg er
vaninn að gera sér glaðan dag.
88/99 er góð gjöf Sólarinnar til að-
dáenda sinna en það hefur gleymst
að pakka henni inn. Umslag þessa
pakka er vægast sagt metnaðar-
laust og allar upplýsingar af
skornum skammti. í staðinn fyrir
að láta fylgja með sílspikaðan
bækling með sögu sveitarinnar,
myndum og textum, fylgir upp-
talning á lögunum og búið. Þetta
er stór galli og óskiljanlegur. Fyrst
Sólin gat ekki gert það sjálf verður
Fókus að gera það og hér til hliðar
%
Nýju lögin sýna að enn er
hellings lífí rokktuskum
Sólarinnar enda lýsir Helgi
yfir í „Geimskipinu“ að „þetta
sé bara rétt að byrja“.
eru nokkrar myndir af ferli SSSól-
ar, rokkbandsins sem getur ekki
hætt. Gunnar Hjálmarsson
“a,'o/o í °u,> maí íQa?
rSwTsland.bantó, Ái 1» das,-H,l,
Ekki hoppa HOW - "?*«•'
ekki svo ömurlegt lag. en He/gi fattar ekkert ^lst n
23. júlí 1999 f Ó k U S
15