Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Page 8
vikuna 26.8-2.9. 1999 NR. 338 A Islandi drekka margir kaffi og horfa á sjónvarp. Þetta sá Damon Albarn í Blur síðast þegar hann var hér og samdi því lagiö Coffee & TV undir miklum innblæstri frá dagskrá Ríkis- sjónvarpsins. íslendingar finna þjóölegan tón í þessari dægurflugu og senda þaö því meö hraöi í númer 11. LAST KISS Vikur á lista .PEARL JAM WHEN YOU SAY NOTHING......RONAN KEATING { iy MAMBO NO. 5 .LOUBEGA | LATELY .SKUNK ANANSIE KING OF MY CASTLE .WAMDUE PROJECT r ( EVERYTHING IS EVERYTHING .LAURYN HILL \ Qg 2 TIMES .ANN LEE tjim | (j IF YOU HAD MY LOVE .JENNIFER LOPEZ i \ HANGIN’ AROUND .THE CARDIGANS <& BAILAMOS .ENRIQUEIGLESIAS I V 11 COFFEE &TV..... . .BLUR 12 JIVIN’ ABOUT .QUARASHI ^ 13 HEYÞÚ tH 14 SCAR TISSUE .RED HOT CHILLI PEPPERS 4 mmm 15 FÆ ALDREI FRIÐ ©m 16 MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON .l mm 17 ALEINN 1 mm 18 UNPRETTY 4 mm 19 IF YA GETTIN’ DOWN . . . t iii 20 I FEEL LONELY ^nl BILLS, BILLS, BILLS . . . . ©m GEIMSKIPIÐ SÓL t iii RENDEZ-VU tm (j^ SÆT 1 im ^ BETTER OF ALONE . . .DJ JURGEN & ALICE DEEJAY i0ii (^ LOUD AND CLEAR THE CRANBERRIES 4 mm ^ SONG IN A i m ^ SUMMER SON 4 m ÞAR SEM ALLT GRÆR . , . .ÚR LITLU HRYLLINGSB. t n ^ V.I.P. 4 mn Qf TELL ME IT’S REAL . . . . tg*l STRONGER .GARY BARLOW BLUE (DA BA DEE) .EIFFEL 65 fn| Qy SO PURE .ALANIS MORISSETTE | Q) MAMBO ITALIANO .FLABBY Qj BEAUTIFUL STRANGER .MADONNA fc Qf Ml CHICO LATINO .GERI HALLIWELL ^ DO SOMETHING .MACY GRAY GENIE IN A BOTTLE .CHRISTINA AGUILERA ^ Qy SING IT BACK .MOLOKO m\ lslenski listinn er samvinnuverkefni Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öilu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og tekiö þátt í vali listans. Islenski iistinn er frumíluttur á Mono á fimmtudags- kvöldum kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í Fókus. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express 1 Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard. («n -f- Nýttá listanum X" Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur síöustu viku síöustu viku í staö Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 If ókus Yílrumsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttlr - Framkvœmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimildaröílun og yfirumsjón með framleiðslu: ívar Guömundsson • Tæknistjóm og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir i útvarpi: lvar Guömundsson Hljómsveitin No Smoking Band kemur ásamt Emir Kusturica á Kvikmyndahátíð. Bandið spilar á tónleikum í Laugardalshöllinni annað kvöld og meðlimirnir spila auk þess fótboltaleik við landslið íslenskra kvikmyndagerðarmanna. Dr. Nelle Karajlic leiðir lesendur Fókuss í allan sannleika um bandið, stríðið, fortíð, framtíð. Sögðu brandara um Tfló eftir tónleika k og voru útskúfaðir Dr. Nelle Karajlic er forsprakki hljómsveitarinnar No Smoking Band sem Emir Kusturica spilar á rytmagítar í. „Við erum tíu manns í þessari hljómsveit," segir Dr. Nelle Kara- jllc, forsprakki hljómsveitarinnar No Smoking Band frá Serbíu, en þeir veröa einmitt á kvikmyndahá- tíð ásamt Emir Kustarica og halda tónleika á morgun. „í bandinu er gítar, bassi, trommur, fiðlur, trompett og bara allur pakkinn. Þessa blöndu köllum við unza unza hér í Júgóslavíu." Og hvernig er þetta unza unza eiginlega? „Þetta er blanda af öllu sem er í gangi hér á Balkanskaga,“ segir Nelle, en bandið hefur gefið út 6 plötar á þeim tattugu árum sem það hefur verið starfandi. „Sex plötur á 20 árum er kannski ekki svo mikið en líf okkar hefur verið stútfullt af uppákomum sem við höfum hingaö til ekki ráðið við. Þegar við byrjuðum að vinna þar- síðustu plötu kom til dæmis stríð og það kom síðan annað stríð þeg- ar við vorum að gera síðusta plötu. Ferill No Smoking Band er ferill platna á milli stríða." Siónvarpið segir ekki satt No Smoking Band hefur að sjálf- sögðu spilað mikið í Júgóslavíu í gegnum árin og nú fyrir stuttu komu þeir úr tónleikaferð á Ítalíu. Þar spiluðu þeir tuttugu gigg og voru ekkert að setja ástandið í heimalandi sínu fyrir sig. í haust eru svo á planinu tónleikar í Þýskalandi og Grikklandi. En veröiói varir viö einhverja for- dóma af því þió eruó Serbar þegar þiö spilió í Evrópu? „Nei,“ fullyrðir Nelle. „Þveröfugt held ég. Fólk skilur upp að vissu marki hvað við erum að ganga í gegnum. Það er heldur ekki margt satt af því sem sýnt er í sjónvarpi og fólk veit það. Sérstaklega 1 ítal- íu þar sem fólk þekkir okkur og veit hvaða mann við höfum að geyma.“ Og sá maður er auðvitað í ætt við Kusturica en Nelle og hann ólust upp saman. Nelle vann til dæmis við myndina Underground og lék auk þess sköllótta náungann í trompetbandinu. Svo gerði No Smoking Band tónlistina við nýj- usta affurð Kusturica: Black Cat White Cat. „Fyrir tíu, tólf árum spilaði Emir á bassa í The No Smoking Band en nú hefúr hann unnið sig upp og spilar á riþmagítar,“ segir Nelle um hlutverk Emirs Kust- urica í bandinu. „Hann er að vinna á karlinn. Eftir ár verður hann kannski farinn að hugsa,“ heldur Nelle áfram og hlær. Og þiö eruö allir óttalegar fót- boltabullur, er þaö ekki? „Já. Við erum helteknir af tón- list, fótbolta og sögu. Þannig er þjóðin okkar bara sköpuð.“ íslendingar bíöa líka eftir ykkur til aö spila viö landsliö kvikmynda- geröarmanna i Laugardalnum á morgun, hvernig líst ykkur á þaö? „Bara vel. Við hlökkum til. Þétta er virkilega sniðug hugmynd hjá skipuleggjendunum og við komum til með að vinna," segir Nelle án sannfæringar og hlær enn þá meira. Þaö ganga líka sögur hér heima um aö þiö séuö allir úr júgóslav- neska landsliðinu? „Nei. Það er ekki alveg satt. Við erum gamlir kallar og eigum í vandamálum með að hlaupa yfir heilan fótboltavöll," segir Nelle og nokkuð ljóst að kauði ætlar greini- lega ekki að tala neitt af sér þegar kemur að fótbolta. Brandari um Tító Hvað meö nafniö, Dr. Nelle? „í upphafi síðasta áratagar til- heyrðum við strákarnir ákveðinni hreyfingu, grasrótarhreyflngu sem kallaði sig Nýju frumbyggjana. Svona hreyflng var ' náttúrulega ekki vel séð í Júgóslavíu á tímum Títós. En við töldum aö okkur vantaði sannar rætur sem við gæt- um skapað list okkar út frá. Og í gamni og alvöru gengu allir undir dulnefnum í hreyfingunni. En síð- an kom í ljós að það var mjög gott að vera bara þekktur undir fölsku nafni þegar stríðið í Bosníu hyrj- aði. Það veit enginn hvaða þjóð maður tilheyrir." Hvaö meö pólitíkina? Er þetta pólitísk hljómsveit? „Við höfum aldrei verið á móti neinu nema tabúunum í samfélag- inu og okkar pólitík hefur alltaf snúist um fólk en ekki stjómendur. Og á þeim tíma sem við vorum í þessari hreyfingu var Júgóslavía mjög sterkt land með alveg útspek- úlerað kerfi sem fólkið lifði við. Að vísu fengum við mikið frelsi miðað við aðrar kommúnistaþjóðir. Við máttum ferðast og svona en tabúin voru samt til staðar. Tító var gott dæmi um það. Nafhið hans var mjög sterkt og þú þurftir að standa upp í hvert skipti sem þú sagðir nafnið hans. Árið 1984 sögðum við t.d. lítinn brandara um hann eftir eina tónleika og vorrnn útskúfaðir alls staðar í tæpt ár. Fengum ekki spilun í útvarpi og það var farið meö okkur sem óvini þjóðarinnar númer eitt í öllum íjölmiðlum.“ Sprengjuregn eða flugelaar Dr. Nelle segir að ástandið í landinu hans í dag sé vægast sagt forvitnilegt og svo hlær hann. Enda er Dr. Nelle mjög mikill húmoristi og gerir bara grin af þessu öllu saman. Segir að eitt stríð sé búið og það næsta hljóti að vera í bígerð. „Dóttir min er til dæmis bara níu ára en hefur lifað af tvö stríð nú þegar,“ segir Nelle um ástandið í heimalandi sínu. Já, maöur sá fullt af myndum af ykkur undir höröum sprengjuárás- um frá okkur, sorrí. En hvernig vor- uö þió aö höndla sprengjurnar? „Þetta var bara eins og flugelda- sýningar og sonur minn varð einmitt tveggja ára í loftvamabyrgi og þá stakk einn strákur úr hverf- inu upp á því að ég sendi NATÓ bréf til að þakka þeim fyrir flug- eldana í tilefni afmælisins." Þiö hafiö bara hlegiö aö þessu öllu saman? „Já. í stríðinu var mikið um góða brandara. Enda ekkert annað hægt að segja. Þegar við skutam niður ósýnilega sprengjuflugvél var komið grafflti á vegg héma í hverfinu daginn eftir þar sem skrifað var: „Sorry We Didn’t Know That You Were Invisible." (Okkm- þykir miður að hafa ekki vitað að þið vomð ósýnilegir). Stríöiö er sem sagt ekkert að gera ykkur þunglynda? „Nei. Það getur verið innblástur í stríði. Tolstoi hefði líklega ekki skrifað Stríð og frið ef Napóleon hefði ekki ráðist inn í Rússland." Og þiö veröiö í stuöi í Reykjavík á morgun? „Já. Við munum færa ísland austur um nokkrar mílur hvað stuð varðar," segir Dr. Nelle að lok- um. f Ó k U S 27. ágúst 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.