Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 15
 Lelkstjóri: Jim Fall. Handrit: Jason Schafer. Kvlkmyndataka: Terry Stacey. Kllpping: Brian A. Kates. Tónllst: David Friedman. Leikarar: Christian Campbell. John Paul Pitoc, Tori Spelling og Stephen Hayes. í Trick, sem er fyrsta kvikmynd Jims Falls, segir frá Gabriel, ungu og efnilegu tónskáldi sem reynir fyrir sér á Broadway. Félagi hans, hinn miðaldra Perry, segir lög hans góð en spyr hvar tilfinningin sé í þeim. Gabriel líkar ekki þessi athugasemd og verða nánast vin- slit þeirra í millum. Dag einn er Gabriel á bar einum í New York þegar hann rekst á Mark, sem eins og Gabriel er að reyna fyrir sér í stórborginni. Kynni takast með þeim og er ætlun þeirra að eyða Trick. Christian Campbell og John Paul Pitoc. nóttinni saman og skilja að henni lokinni. En leit þeirra að afdrepi þar sem þeir geta verið einir er brösótt og meðan á leitinni stendur komast þeir að því að þeir eiga mcirgt sameiginlegt. Trick er glæný kvikmynd sem frumsýnd var á Sundance-kvik- myndahátiðinni og fór þaðan á kvikmyndahátíðina í Berlín þar sem hún vann til minni háttar verðlauna. Trikk er gamanmynd með rómantísku ívafi um tvo unga homma sem reyna fyrir sér í hörðum heimi skemmtanabransans í New York. Rödd Bergmans Rödd Bergmans (Bergmans röst) er áttatíu og sjö mínútna heimilda- mynd um Ingmar Bergman, einn mesta kvikmyndagerðarmann sög- unnar, sem fyrir mörgum árum er hættur allri kvikmyndagerð, en þrátt fyrir háan aldur skrifar handrit og leikstýrir í leikhúsi. í rödd Bergmans segir Bergman Gunnari Bergdahl frá ferli jínum í samtölum og kynnum sínum af fólki, hann lýsir skoðunum sínum á kvikmyndagerð og kvikmynda- gerðarmönnum. Það sem gerir myndina sérstaka er að ekki sýnt eitt einasta atriði úr kvikmyndum hans. Ingmar Bergman ásamt kvikmynda- tökumanni sínum, Sven Nykvist. §sp Bergmans röst -Svíþjóð 1997 Lelkstjórl: Gunnar BergdahlKvlk- myndataka: Ralph M. Evers Kllpplng: Robert Stengárd Samtal við einn af meisturum kvikmynd- anna, Ingmar Berg- man, er efni heimilda- myndarinnar Berg- mans röst Franskur maður ferðast til Rúmeníu í leit að * söngkonu sem faðir hans hafði hlustað á stuttu l áður en hann dó. Dansað í þorpi í Rúmeníu. • • Aðalpersónan í Gadjo dilo er Stephane, ungur Frakki frá París sem ferðast til Rúmeníu til að hafa uppi á söngkonunni Noru Luca, sem hafði heillað föður hans svo mikið að hann hlustaði ekki á aðra tónlist • og lést undir söng hennar. Á ferða- lagi sínu hittir hann sígaunann Izidor og segir honum frá leitinni að Noru. Izidor viröist skilja hann og fer með hann i þorp sitt. Stephane telur sér trú um að Izidor muni koma honum á spor söngkonunnar og býr um sig í þorpinu. í fyrstu vantreysta þorpsbúar honum en með tímanum er hann tekinn inn í samfélagið og Stephane hrífst af hinni lífsglöðu Sabinu sem hann hittir í brúðkaupi. Hún segir honum að þorpsbúar skilji í raun ekki neitt af því sem hann er að reyna að segja • þeim. Smám saman gleymir Steph- • ane erindi sínu í þessum skrýtna heimi sígauna sem honum er farið að líka vel við. Leikstjóri Gadjo dilo, Tony Gatlif, • er fæddur í Alsír og ólst upp á göt- Gadjo dilo - Frakkland 1998 Lelkstjóm, handrlt og tón- list: Tony Gatlif. Kvlkmyndataka: Eric Guic- hard. Klipplng: Monique Dartonne. Leikarar: Romain Duris, Rona Hartner og Izidor Serban. um höfuðborgarinnar. Áhugi hans varð strax mikill á kvikmyndum og byrjaði hann að reyna fyrir sér sem leikari en sneri við blaðinu 1975 og leikstýrði þá sinni fyrstu kvikmynd. Gatlif hefur leikstýrt ellefu kvik- myndum og er þekktust, fyrir utan Gadjo dilo, tónlistarmyndin Latcho Drom sem er fyrsta myndin í þríleik sem endar með Gadjo dilo, r tiUi- myndin heitir Mondo. Gadjo dilo hefur unnið til margra verðlauna á kvikmyndahátíðum auk þess sem hún fékk tvenn César-verðlaun í ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.