Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Qupperneq 19
Kvikmyndatökumennirnir voru í tvö ár á ferða- lagi í ieit að fólki sem opnaði þeim dyrnar að mannlífinu árið 2000: Lucky People Center International Lucky People Center International er sænsk heimilda- mynd sem fengið hefur góðar við- tökur og vann til viðurkenningar á kvikmyndahátíðinni í San Francisco í ár. í myndinni fara leikstjórarnir Erik Pauser og Jo- han Söderberg með okkur í ferða- lag í kringum jörðina í leit að fólki, fólki sem hefur kraftinn til að takast á við framtíðina um leið og skyggnst er inn í fortíðina. Mikið er lagt upp úr tónlistinni sem ósjálfrátt verður hluti myndarinn- ar. Kvikmyndagerðarmennirnir voru í tvö ár á ferðlagi með mynda- vélar og lá leið þeirra allt frá Suð- ur-Ameríku til fjalla í Tíbet og ár- angurinn er mikið ferðlag þar sem einstaklingar opna dyrnar að mannlíflnu árið 2000. Við verðum vitni að voodoo-galdrasamkomu, fylgjumst með vísindamönnum sem rannsaka mannsheilann, fáum innsýn inn í hvemig búddatrúar- fólk upplifir dauðann og heyrum klámkvikmyndaleikkonu segja okkur frá því hvað hún þráir, svo eitthvað sé nefnt. Lucky People Center International - Svíþjóð 1998 Lelkstjóm og klipp- lng: Erik Pauser og Johan Söderberg. Kvlkmyndataka: Jan Röed. Tónllst: Lucky People Center. —(P 8SS - ■1 íslenskur kvikmynda- gerðarmaður, Ólafur Sveinsson, uppgötvar hina hliðina á Berlín: Áður en Ólafur hélt til náms hafði hann unnið með fram því að gera kvikmyndir, meðal annars Björt mey og hrein (1994), sem næt- urvörður og byggingaverkamaður hér á landi. Má kannski segja að hugmyndin að heimildarmynd um Berlín að nóttu, og þá Berlín sem hinn almenni ferðamaður sér aldrei, ekki frekar en hinn al- menni borgari, liggi í þvi að hann sjálfur vann verkamannavinnu og sá lífið að nóttu til. Vettvang kvik- myndar sinnar fann hann að segja má rétt við dymar á skólanum, bensínstöð sem opin er allan sólar- hringinn þar sem leigubílstjórar, verkamenn og aðrir nátthrafnar og furðufuglar hittast gjaman smá- stund þegar flestir em sofandi. Fær áhorfandinn að kynnast ýms- um skondnum persónum, meðal annars portúgölskum verkamönn- um sem ekki tala orð í þýsku, tveimur Þjóðverjum á eftirlaunum sem líta yfir farinn veg og kyn- skipting, sem er ein eftirminnileg- asta persóna myndarinnar. Kvikmynd Ólafs hefur vakið verðskuldaða athygli í Þýskalandi og sagði einn gagnrýnandi að það hefði þurft „útlend augu“ til að sjá lífið í Berlín sem Berlínarbúar ekki þekkja. Nonstop kemur nú í fyrsta skipti fyrir augu almennings hér á landi á Kvikmyndahátíð DV í Reykjavík. Berlínarbúar á bensínstöö aö nóttu til. ferðaskriFstofa k stúdenta j Ferðaskrifstofa stúdenta v/Hringbraut sími 5700800 Fax 5700811 studtravel@fs.is www.ferdir.fs.is 27. ágúst 1999 f ÓkUS 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.