Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1999, Síða 22
álÍUinWVMMlM
>
4
Sólveig Anspach, sem á íslenska móð-
ur, veróur einn af gestum Kvikmynda-
hátíöar.
„Ég tek alla ábyrgð á því ef fólki
finnst Haut les Cæurs líkjast heim-
ildarmynd en hún er skáldverk,
með handriti og leikurum. Ég er
aftur á móti sérlega hrifin af heim-
ildarmyndum og þeim möguleika
að heimildarmyndin geti verið
eins mikil kvikmynd og leikin
mynd og þær leiknu kvikmyndir
sem hafa mest áhrif á mig eru
gæddar raunsæi heimildarmyndar-
innar,“ segir Sólveig Anspack,
leikstjóri Haut les Cæurs, en fyrsta
leikna kvikmynd hennar hefur
vakið verðskuldaða athygli á und-
Haut les Cæurs er fyrsta leikna kvikmynd
Sólveigar Anspach og var hún frumsýnd á
Kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor.
Hertu upp hugann
anförnum misserum og var frum-
sýnd á Kvikmyndahátíðinni í
Cannes í vor þar sem hún var sýnd
í flokknum Directors Fortnight.
Áður hefur Sólveig gert nokkrar
heimildarmyndir.
Aðalpersóna myndarinnar er
Emma sem er ófrísk að sínu fyrsta
barni. Við reglulega skoðun kemur
í ljós að hún er með brjóstakrabba-
mein. Læknirinn sem tilkynnir
henni þetta leggur til að hún láti
eyða fóstrinu þar sem lækningaað-
ferðin gegn krabbameininu geti
aldrei gengið gangi hún með barn.
Emma er eyðilögð manneskja þeg-
ar hún tilkynnir barnsföður sín-
um, Símoni, tíðindin. Hann leggur
til að þau leiti til annars læknis til
að fá álit hans og fara til sérfræð-
ingsins Morins sem segir að vel sé
hægt að lækna krabbameinið þótt
Emma gangi með barn meðan á
meðferðinni stendur. Emma fær
trú á lífið og nú hefst barátta þar
sem Emma þarf að berjast fyrir
tveimur lífum.
■
■i
Haut les Cæurs
- Frakkland 1999
Lelkstjórl: Sólveig Anspach.
Handrjt: Sólveig Anspach og
Pierre-Ewan Guillaume.
Kvlkmyndataka: Isabelle
Razavet.
Kllpping: Anne Riegel.
Tónlist: Olivier Manoury og
Martin Wheeler.
Leikarar: Karin
Viard, Laurent
Lucas, Julien Cott-
ereau og Claire
Wauthion.
iliiii!
Karin Viard leikur hina veiku Emmu, meö henni á myndinni er mótleikari hennar, Laurent Lucas.
Limbo. Mary Elizabeth Mastrantonio í hlutverki söngkonunnar Donnu.
Nýjasta kvikmynd John Sayles,
Limbo, gerist í Alaska. Segir frá
kynnum tveggja manneskja sem eiga
við ýmis vandamál að striða. Joe
(David Straitham) er sjómaður sem
hefur í langan tíma beðið þess að
eitthvað vaknaði með honum sem
myndi gera það að verkum að minn-
ing um atburð, sem skeði fyrir tutt-
ugu og fimm árum, hætti að ásækja
hann en hann telur sig hafa átt sök
á því að tveir dóu í sjóslysi. Þegar
hann hittir Donnu (Mary Elizabeth
Mastrantonio) er eins og eitthvað
bresti innra með honum og hann fer
að líta tilveruna bjartari augum.
Donna hefur einnig sín vandamál að
glíma við. Hún þótti eitt sinn efnileg
söngkona en mislukkuð ástarsam-
bönd og mislukkaðm- ferill-hefur
gert það að verkum að hún hefur
enga trú á lífínu og það er aðeins
þegar hún er á sviðinu og syngur að
hún flnnur fyrir frið í sálinni.
Um mynd sína segir John Sayles:
„Ég er oft með í huganum frásagnir
sem ég á erfitt með að festa á blað
þar til ég finn þeim einhvem stað. Ef
við tökum Passion Fish sem dæmi
þá var ég með hugmyndina um tvær
konur í mörg ár sem ég vissi ekki
hvað ég ætti að gera við fyrr en dag
Limbo
- Bandaríkin 1999
■'v:'
Leikstjórn, klipping
og handrit: John Sayles.
Kvikmyndataka: Slawornir Idziak.
Tónllst: Mason Daring.
Lelkarar: Mary Elizabeth
Mastrantonio, David Straitharn,
■ ' Vanessa Martinez, Kris
Kristofersson
og Casey Siema-
szko.
Utangarðsfólk í
Alaska, sjómaður og
söngkona með
mislukkuð ástarsam-
bönd að baki, líta til-
veruna bjartari augum
þegar kynni takast
með þeim.
John Sayles viö tökur á Limbo ásamt
David Straitharn.
einn, er ég var staddur í Suður-Lou-
isiana, þá allt í einu gat ég púslað
þessu saman. Það var eins með Lim-
bo. Ég hafði lengi verið með í huga
sögu um tvær persónur sem taka
áhættu eftir að hafa orðið undir í líf-
inu. Eitt sinn var mér hugsað til
Anchorage í Alaska þar sem ég hafði
verið fyrir tíu árum og þá fóru per-
sónurnar fyrst að taka á sig mynd.
Eftir það var ekki aftur snúið, sagan
varð að gerast i Alaska."
í Alaska er mikil náttúrufegurð og
það var með þessa óspilltu náttúru í
huga að hann fór á fjörur við kvik-
myndatökumanninn Haskell Wexler,
sjálfsagt eins besta kvikmyndatöku-
mann sem uppi er, að kvikmynda
Limbo. Þeir hafa áður unnið saman
að tveimur kvikmyndum, Matewan,
en fyrir hana fékk Wexler eina af
sínum sjö óskarstilnefningum og
The Secret of Roan Inish.
*
*
\
Que personne ne bouge er heimildamynd um
fimm æskuvinkonur sem tóku upp á því að
ræna peningum til að eiga fyrir salti í grautinn.
Upp með
í fallegu umhverfi í Vaucluse í
suðurhluta Frakklands á árunum
1989 til 1990 tóku fimm konur, sem
allar voru æskuvinkonur, upp á
því að stofna ræningjaflokk, ná
peningum til að geta brauðfætt
fjölskyldur sínar. Þeim tókst að
komast undan laganna vörðum í
sjö skipti en í áttunda ráninu
snerist lukkuhjólið þeim í óhag og
voru þær handteknar. Blöðin voru
uppfull af frásögnum um ránin og
var glæpahópurinn nefndur
Amazon-gengið í blöðunum. Ekki
var tekið þungt á brotum vin-
kvennanna og voru fjórar látnar
lausar strax en ein dæmd í eins
árs fangelsi. Móðir mín er glæpon
er heimildakvikmynd eftir Sól-
hendur
veigu Anspach um konurnar fimm
sem tóku lögin í eigin hendur og
ekki síður um borgina sem neitaði
að dæma þær.
Que personne H
ne bouge!
- Frakkland 1998
Leikstjórn og handrit: Sól-
veig Anspach.
Kvikmyndtaka:
\:A Isabelle Razavet.
Tónlist: Martin
; Wheeler.
Cathy og Helena, tvær af fimm konum sem á tímabili stunduöu rán.
f Ó k U S 27. ágúst 1999
Beloved er gerð eftir samnefndri
skáldsögu Toni Morrison, en hún
fékk nóbelsverðlaunin stuttu eftir
að hún kom út. Beloved hefur
komið út á íslensku undir heitinu
Ástkær.
Sjónvarpsstjarnan Ophra Win-
frey leikur stærsta hlutverkið í
myndinni, Sethe, stolta konu sem
dulúð hvílir yfir. Hún er þræll á
flótta og berst við að sjá fyrir sér og
börnum sínum í Ohio árið 1873.
Henni reynist erfitt að ná fótfestu í
nýjum heimkynnum, fortíðin leitar
á hana og gerir hún allt til þess að
börn hennar lendi ekki í ánauð.
Danny Glover leikur Paul D., gaml-
an vin Sethe sem skilur vandamál
hennar. Kimberley Elise leikur
dóttur Sethe og Thandie Newton
leikur titilhlutverkið Beloved sem
verður hluti af fjölskyldu Sethe.
Ophrah Winfrey er hæst launaða
sjónvarpsstjarnan í Bandaríkjun-
Beloved
- Bandaríkin 1998
Leikstjóri: Jonathan Demme.
Handrit: Akosua Busia, Richard
LaGravenese og Adam
Brooks.
Kvlkmyndataka:»
Tak Fujimoto.
Tónlist: Rachel Portman
Leikarar: Ophrah Winfrey,
Danny Glover, Thandie Newton og
Kimberley Elise.
HHJSwbMMhBBBwí
1
Ástkær (Beloved) er gerð eftir
þekktustu skáldsögu nóbels-
verðlaunahafans Toni Morrison
og segir frá þrælnum Sethe sem
er á flótta ásamt fjölskyldu sinni.
um og er hún einn af framleiðend-
um myndarinnar og krafturinn á
bak við gerð hennar. Hún tók strax
ástfóstri við bókina þegar hún
hafði lesið hana og var ákveðin í að
koma henni á hvíta tjaldið. Win-
frey hefur leikið 1 einni kvikmynd
áður, The Color Purple, sem Steven
Spielberg leikstýrði og var hún þá
tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir
leik sinn.
Leikstjóri Beloved er Jonathan
Demme sem sjálfsagt er þekktastur
fyrir The Silence of the Lambs, sem
færði honum óskarsverðlaun sem
besta leikstjóra. Beloved er fyrsta
kvikmynd hans i rúm flmm ár eða
allt frá því hann gerði Philadelphia
en Tom Hanks fékk óskarsverð-
laun fyrir leik sinn 1 henni.
D e m m e
hlaut upp-
eldi, eins og
svo margir
aðrir leik-
stjórar, hjá Roger Corman. Sú
kvikmynd sem vakti athygli á hon-
um var svarta kómédian Married
to the Mob, áður hafði hann gert
meðal annars Melvin and Howard,
Something Wild og heimildamynd-
ina Stop Making Sense sem var
valin besta heimildamyndina af
bandarískum gagnrýnendum. Þrátt
fyrir frægð sína hefur Demme
haldið áfram að gera heimilda-
myndir og er skemmst að minnast
Mandela, sem fjallar um Nelson
Mandela, fyrrum forseta Suður
Afríku.
Ophrah Winfrey, fyrir miöri mynd, leikur Sethe, aöalpersónuna í Beloved.