Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Öryggisráðið samþykkir friðargæslusveitir til A-Tímor:
Vígasveitir búa
sig undir brottför
Göran Persson
þykir utanríkis-
ráðherrann latur
Thage G. Peterson, fyrrverandi
ráðherra og einn af helstu
stjórnmálamönnum sænskra
jafnaðarmanna, hefur valdið
uppnámi í Svíþjóð með bók sinni,
Ferðin til Mars. Peterson hefur
verið náinn samstarfsmaður
margra í flokksforystunni. Nú er
talið að fækki í vinahópnum eftir
útkomu bókar hans.
Peterson segir meðal annars að
Göran Persson forsætisráðherra
þyki Anna Lindh, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, löt. Peterson
skrifar jafnframt að jafnaðar-
menn visi kerfisbundið á bug
óþægilegum sannleika. Sjálfur
hafi hann tekiö þátt í slíku.
Bókartitillinn vísar til þess að
Peterson hafi verið fátækur
piltur. Það hafi verið jafnerfitt
fyrir hann að komast til æðstu
metorða í flokknum eins og að
ferðast til Mars.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í morgunsárið að senda
fjölþjóðlegar friðargæslusveitir til
Austur-Tímor til að koma aftur á
friði og lögum og reglu eftir margra
vikna ofbeldisöldu.
Fulltrúarnir fimmtán í Öryggis-
ráðinu samþykktu einróma að
styðja „allar nauðsynlegar aðgerð-
ir“ til að binda enda á blóðbaðið og
eyðilegginguna sem fylgismenn
áframhaldandi sambands við
Indónesíu hafa staðið fyrir að und-
anfomu.
Indónesar innlimuðu Austur-
Tímor árið 1976 en í ágústlok höfn-
uðu Austur-Tímorar áframhaldandi
sambandi við Indónesíu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Þúsundir manna hafa verið
drepnar í átökunum og tugir þús-
unda hafa misst heimili sín. Þá hafa
mörg hundruð þúsund manns flúið
til fjalla. Starfsmaður SÞ sem enn er
í Dili, höfuðborg Austur-Tímor,
sagði í morgun að svo virtist sem
vígasveitir sambandssinna séu að
búa sig undir að hverfa frá Dili.
Borgin er ein rjúkandi rúst eftir
berserksgang þeirra.
„Það em enn nokkrir vopnaðir
vígasveitarmenn á götum úti en al-
mennt virðast þeir vera að búa sig
undir brottfór," sagði Colin Stewart,
starfsmaður SÞ.
í ályktun Öryggisráðsins frá því í
morgun er ekki kveðið á um stærð
friðargæslusveitarinnar, sem
Indónesar samþykktu aðeins með
semingi að hleypa inn í Austur-
Tímor. Ekki fylgdi heldur með listi
yfir þau lönd sem munu leggja til
gæsluliða. Ástralir hafa þó, að
beiðni SÞ, verið að skipuleggja starf
gæsluliðsins sem búist er við að í
verði allt að átta þúsund manns frá
tæplega tíu löndum. Talað er um að
fyrstu gæsluliðamir fari til Austur-
Tímor um helgina.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hvatti indónesísk stjórnvöld í morg-
un til að stöðva „svívirðileg" ofbeld-
isverk í Austur-Tímor. Hann sagði
að margir kynnu enn að láta lífið
áður en fyrstu friðargæsluliðarnir
kæmust á áfangastað næstu daga.
Clinton sagðist enn fá fregnir af
ofbeldisverkum og hótunum í Aust-
ur-Timor sem Indónesum bæri
skylda til að stöðva.
Ástralska lögreglan handtók í
morgun tólf manns, sem þóttust
vera flóttamenn frá Austur-Tímor,
við komuna til Darwin. Talið er að
þrír hinna handteknu séu úr víga-
sveitum sambandssinna eða
indónesíska hemum.
Húsbréf
Útdráttur
Nú hefur farió fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 36. útdráttur
1. flokki 1990 - 33. útdráttur
2. flokki 1990 - 32. útdráttur
2. flokki 1991 - 30 útdráttur
3. flokki 1992 - 25. útdráttur
2. flokki 1993 - 21. útdráttur
2. flokki 1994 - 18. útdráttur
3. flokki 1994 - 17. útdráttur
Koma þessi bréf til innLausnar 15. nóvember 1999.
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess
eru númer úr ij'órum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt
í dagblaðinu Degi miðvikudaginn 15. september.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá íbúða-
lánasjóði, í bönkum, sparisjóóum og verðbréfafyrirtækjum.
húsbréfa
íbúðalánasjóður
Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Gömul kona frá Austur-Tímor fær aðstoð við aö stíga út úr flugvélinni sem
flutti hana og aðra flóttamenn til borgarinnar Darwin í Ástralíu. Þar er mið-
stöð fyrir alla þá sem hafa orðið að flýja ofbeldisverkin á Austur-Timor und-
anfarnar vikur þar sem vígasveitir andstæðinga sjálfstæðis hafa gengið ber-
serksgang. Friðargæslusveitir SÞ eru væntanlegar næstu daga.
DJ. Margeir:
Eitrað andrúms-
loft í kjölfar
sprengjuárása
Andrúmsloftið í Moskvu er
eitrað eftir sprengjuárásirnar að
undanfomu. Rétt áður en Vladi-
mir Pútín, forsætisráðherra Rúss-
lands, hélt þrumuræðu á þingi í
gær gegn hryðjuverkamönnum
frá Tsjetsjeníu hélt kommúnista-
leiðtoginn Gennadí Zjúganov
fund með fréttamönnum þar sem
hann réðst á stjómvöld. Sakaði
Zjúganov stjórn Jeltsíns Rúss-
landsforseta um að ætla að koma
á einræði í Rússlandi undir því
yfirskini að bæla niður hryðju-
verkastarfsemi. Stærsta blað
Moskvu, Moskovski Komsomo-
lets, gaf í skyn að sprengjuárás-
imar hefðu verið undirbúnar í
Kreml til þess að hægt væri að
setja neyðarlög og tryggja
áframhaldandi setu núverandi
stjórnar.
Flugvél rann út af
Að minnsta kosti fjörutíu far
þegar meiddust þegar bresk far-
þegaþota rann út af regnvotri
flugbraut þegar hún var að lenda
á flugvellinum í Girona á Spáni í
gærkvöld.
Clintoni líkar lambið
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hreifst mjög af lambakjöti þeirra
Nýsjálendinga
þegar hann sat
leiðtogafund
samtaka Asíu-
og Kyrrahafs-
ríkja í vikunni.
Ráðamenn not-
uðu hvert tæki-
færi til að gefa
Clintoni lambakjöt og hann borð-
aði það allt, enda þekktur fyrir
góða matarlyst.
Árás í Kosovo
Þrír særðust þegar hand-
sprengju var varpað á kaffihús í
serbneskum hluta þorps skammt
frá Pristina, héraðshöfuðborginni
í Kosovo, í gærkvöld.
Þrír skotnir á spítala
Þrír starfsmenn sjúkrahúss
Kaliforníu voru skotnir til bana i
gter. Ódæðismaðurinn var hand-
samaður.
Barak eins og Bíbí
Ehud Barak, forsætisráðhema
ísraels, endurómaði orð forvera
síns, Bíbís Netanyahus, þegar
hann heimsótti landnemabyggð á
Vesturbakkanum og sagði að hús
þar tilheyrðu Ísraelsríki að eilífú.
landnemar klöppuðu Barak lof í
lófa fyrir.
Berst fyrir lífi sínu
Raísa Gorbatsjov, eiginkona
Mikhails Gorbatsjovs, fyrrver-
andi leiðtoga
Sovétríkjanna,
berst nú fyrir
lífi sínu á
sjúkrahúsi í
Þýskalandi. Hef-
ur Raísa gengist
undir meðferð
við hvítblæði á
sjúkrahúsinu og
í gær sagði læknir Raísu ástand
hennar alvarlegt.
Öflugur skjálfti í Bólivíu
Öflugur jarðskjálfti, 6,4 á Richt-
er, reið yfir suðurhluta Bolivíu í
nótt. Skjálftinn varð í fjallendi
suðvestur af bænum Sucre.
Fórst í flugslysi
Aðstoðarutanríkisráðherra
Grikklands, Yannos Ki-anidiotis,
fórst í flugslysi í Rúmeníu í gær-
kvöld ásamt stjómarerindrekum
og blaðamönnum. Var vél þeirra
á leið frá Aþenu til Búkarest.
Njósnir á Ítalíu
Sovéska leyniþjónustan, KGB,
hafði tugi manna á launaskrá á
Ítalíu, þar af marga háttsetta, í
kalda stríðinu. Þetta kemur fram
í bók breska sagnfræðingsins
Christophers Andrews.
Viðræður á N-írlandi
George Mitchell, sendimaður
Bandaríkjanna, hittir í dag
breska og írska
embættismenn
til að ræða frið-
arferlið á N-ír-
landi. Bresk yf-
irvöld reyndu í
gær að draga úr
spennunni
vegna fyrirhug-
aðra breytinga á starfsemi lög-
reglunnar. Mitchell kom til N-ír-
lands í síðustu viku til þess að
reyna að blása nýju lífi í friðar-
ferlið.
Handtaka í Burma
Búist er við að bresk kona, sem
handtekin var í Burma fyrir að
hrópa lýðræðisslagorð, eigi yfir
höfði sér 7 ára fangelsi. Önnur
bresk kona var nýlega dæmd í 17
ára fangelsi fyrir að hafa komið
ólöglega til Burma með áróðurs-
plögg fyrir lýðræði.