Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
Spurningin
Er ísland fjölskyldu-
vænt land?
Rebekka Jóelsdóttir, nemi í MA:
Já, mjög svo.
Gunnar Tryggvi Ómarsson sjó-
maður: Já, það finnst mér.
Einar Jens Hafberg: Já, Island er
fjölskylduvænt land en glompur
eins og víða.
Klara Lind Guðmundsdóttir hús-
móðir: Já, það finnst mér.
Ester Guðmundsdóttir húsmóðir:
Já, ég myndi nú segja það.
Guðrún Gunnlaugsdóttir ræsti-
tæknir: Ekki miðað við hin Norð-
urlöndin.
Lesendur
Miður sín út
af hundunum
María Kristinsdóttir hringdi:
Ég er alveg miður mín út af hund-
unum í Sílakvíslinni en sjálf er ég
öryrki og á dýr og því vel meðvituð
um hvað þama er að gerast. Ég
þakka Sigurði hjartanlega greinar-
skrif í MBL. 10. september, ég er
honum hjartanlega sammála. Við
eigum að vera það þroskuð að láta
vonsku okkar ekki bitna á saklaus-
um dýr. Þau eiga enga sök á leiðind-
unum sem þessi eina reiða kona
skapar. Ég er vel kunnug þessu
máli og veit að kona sem býr þama
á 1. hæð hefur mikið öryggi af sín-
um dýmm. Fyrir utan væntumþykj-
una gagnvart dýrunum, þá eiga
böm lika hlut að máli. Konan er
mikið ein með heimilið þar sem dýr
em hluti af fjölskyldunni. Allar fjöl-
skyldur í húsinu eru sammála um
að leyfa dýmnum aö vera nema
þessi eina kona. Hún vill ráðskast
með allt og alla en ef meirihluti réði
eins og var hér áður fyrr hefðu
þessi leiðindi aldrei komið upp. Því
miður er til fólk sem getur ekki
búið í sambýli og finnur öðrum allt
til foráttu. Þetta fólk á að vera út af
fyrir sig. Ég stend heilshugar með
því fólk sem á við sama vandamál
að stríða, sem er því miður ekkert
einsdæmi. Ég vona hjartanlega að
þetta mál fái farsælan endi og ljúki
sem allra fyrst. Enginn getur verið
Því miður er til fólk sem getur ekki búið í sambýli og finnur öðrum allt til for-
áttu, segir bréfritari.
undir slíkri pressu til lengdar, um lengri tíma hefur átt við veik-
hvorki frískt fólk, hvað þá fólk sem indi að stríða.
100 prósent skattur
Carl J. Eiríksson skrifar:
Nú kemur fram í fjölmiðlum að
verðbólguhraðinn sé kominn upp í
6,3% á ársgrundvelli síðastliðið
hálft ár. Jafnvel hefur heyrst talan
6,5%. Þegar ég heyrði þessa tölu
datt mér í hug ræða sem alþingis-
kona flutti á Alþingi fyrir fáeinum
árum. Hún tók sem dæmi ekkjuna
sem ætti eina milljón króna af
sparifé á 7% ársvöxtum. Hún fengi
kr. 70.000 í vexti eftir ár sem af
væru teknar aðeins 7.000 í 10% fjár-
magnstekjuskatt. Hún ætti því eftir
kr. 63.000 sem átti víst að vera ágætt
að mati alþingiskonunnar. Hún
gleymdi bara því að alþingismenn
búa ekki bara til skatta, þeir búa
líka til verðbólgu.
Hvað kemur þetta nú 6,3% verð-
bólgu við? gæti einhver spurt. Til að
eiga sama verðmæti eftir eitt ár og
hún átti í ársbyrjun þarf ekkjan að
eiga eina milljón og kr. 63.000 að
auki, í 6,3% verðbólgu. Oll upphæð-
in sem hún heldur eftir af vöxtun-
um fer í verðbætur og raunvextir
verða engir. Þetta kallast 100%
skattur á raunvexti.
Svo getur hver reiknað út fyrir
sig hvað skattur á raunvexti verður
hár hjá ekkjunni ef verðbólgan
breytist. Finnið mismuninn á verð-
bólgustiginu og tölunni sjö. Deilið
síðan útkomunni í töluna sjötíu og
svarið er komið.
Það er hörmungarástand í löggæslumálum sem verður að stöðva strax, segir bréfritari.
Við krefjumst svara
Hafliði Helgason skrifar: og rætt er um niðurskurð og
Mikið hefur verið fjallað um lög- fjársvelti. Forsætisráðherra sagði í
reglu í fjölmiðlum að undanfórnu hátíðarræðu 17. júní að mikilvægt
væri að halda úti góðri löggæslu.
Það hefur því miður ekki staðist
frekar en annað. Fjársvelti er ekki
bara í Reykjavík því úti á landi eru
bara 2-3 lögreglumenn í hverju
þorpi og sinna þeir einnig sjúkra-
flutningum og eru ávallt i útkalli.
Einn lögreglumaður sagði í DV um
daginn að lögreglan væri án skip-
stjóra og útgerðar. Þetta eru stór
orð.
ÍUlp^n^llD)/^ þjónusta
allan sólarhrinsdinn
a sent mynd af
ér með bréfum sínum sem
lirt verða á lesendasíðu
Ég man eftir alvörulögreglu-
stjóra sem var Sigurjón Sigurðs-
son. Það var borin virðing fyrir
h,onum, bæði af hans mönnum og
borgurunum. í dag er annað uppi á
teningnum þegar lögreglumenn
auglýsa eftir störfum í blöðunum
vegna niðurskurðar hjá þeim. Þetta
ef hörmungarástand sem verður að
stöðva strax.
Dómsmálaráðherra, við hljótum
að krefjast svara frá yður hvor
yðar segir satt, þér eða formaður
Lögreglufélagsins.
DV
Klassísk
heimildarmynd
K.R. hringdi:
Ég vil hvetja alla til að horfa á
mynd sem sýnd verður á Omega á
laugardag. Myndin heitir Hið
þögla óp og er sígild heimildar-
mynd frá Bandaríkjunum um
fóstureyðingar. Ég horfði sjálf á
myndina nýverið og fannst mikið
til koma og finnst því tilvalið að
benda fólki á hana.
Guðjón áfram
heima
Vilhjálmur Alfreðsson skrifar:
Að undanfömu hefur verið
mikið rætt og ritað um framtíð
Guðjóns Þórðarsonar landsliðs-
þjálfara. Við megum ekki missa
menn eins og Guðjón úr landinu.
Hann er sá knattspyrnuforingi
sem við höfum lengi beðið eftir.
Það er skylda íslensku þjóðarinn-
ar að halda Guðjóni heima fyrir
og á góðum launum. Hann hefur
þjónað oss og við verðum að
þjóna honum.
Fréttaþynnka
RÚV
Lesandi hringdi:
Mér fannst afskaplega furðuleg-
ur fréttaflutningur RÚV um síð-
ustu helgi þegar KR-ingar unnu
loks meistaratitilinn. Sjálfur er ég
stuðningsmaður KR en mér
blöskraði þegar boðið var upp á
beina útsendingu frá bjórknæpu
þar sem stuðningsmenn fögnuðu.
Þetta á nú ekki mikið skylt við
íþróttina og ætti frekar að gerast
í Englandi. Myndi þessum pen-
ingum hafa verið eytt ef eitthvert
annað lið hefði unnið? Gæti
ástæðan fyrir að þessum tíma í
fréttum og peningum var eytt ver-
ið sú að Bogi Ágústsson frétta-
stjóri er sjálfur KR-ingur og var
bæði á leiknum og á bjórkránni?
Milljarðurinn
frægi
Ágústa hringdi:
Það er ekki laust við að maður
staldri við og íhugi hvort eitt-
hvert vit hafi verið í orðum fram-
sóknarmanna fyrir kosningar
þegar þeir lofuðu milljarði til að
vinna bug á fíkniefnavandanum.
Viku eftir viku sér maður fréttir
af þvi að tekin séu fíkniefni og
áhöld til neyslu og tölur um ung-
linga í meðferð segja sitt. Nú síð-
ast fannst gífurlegt magn fíkni-
efna og segja fróðir þó að þetta sé
aðeins dropi í hafið. Þarf ekki að
bæta meðferðarúrræði til að
koma í veg fyrir að markaður sé
fyrir allan þennan innflutning.
Gó6 þjónusta
Neytandi skrifar:
Ég fór á veitingahúsið Svörtu
pönnuna um daginn og verð að
þakka starfsfólkinu fyrir einkar
góða þjónustu. Þannig var mál
með vexti að við fjölskyldan
snæddum þarna ágætis máltíð en
þegar kom að því að greiða kom
það í ljós að maðurinn minn hafði
gleymt kreditkortinu heima. Við
vorum með einhverja peninga á
okkur en ekki nóg til að það
dygði. Þá sagði afgreiðslustúlkan
bara við okkur að við gætum
komið daginn eftir og borgað, sem
við svo gerðum. Ef allir hefðu
bara svona þjónustulund.
Leiðrótting
Vegna lesendabréfs sem birtist
í DV á mánudag vill blaðið koma
eftirfarandi leiðréttingu á fram-
færi. í bréfinu, sem bar heitið Op-
inberar bifreiðar í einkanotkun,
var það gefið í skyn að bifreiðar í
eigu Orkubús Vestfjarða væru
notaöar í einkaþágu og að jafnvel
fiölskyldumeðlimir nýttu sér þær.
Þegar málið var kannað kom í
ljós að ekki er fótur fyrir þessum
ásökunum og biður blaðið hlutað-
eigandi aðila afsökunar.