Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1999, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1999
17
Sport
Sport
*
'BMé,
Pétur
sterkur
Pétur Marteinsson og félagar í Stabæk lögðu Deportivo Coruna
frá Spáni, 1-0, í UEFA-bikarnum í gærkvöld og hér hirðir Pétur
boltann af Slavisa Jokanovic, leikmanni Deportivo. Reuter
GERALD HOULLIER HEFUR EKKERT TALAÐ VIÐ HAUK INGA
SPILA EKKI
&< MEiSTARADEILDIN
ÆfL.----------------
A-riðill:
Leverkusen - Lazio .... . ... 1-1
1-0 Neuville (14.), 1-1 Mihajlovic (18.)
Dynamo Kiev - Maribor . 0-1 Simudza (74.) . ... 0-1
B-riðill:
Fiorentina - Arsenal . . . . ... 0-0
AIK - Barcelona . ... 1-2
1-0 Novakovic (72.), 1-1 (86.), 1-2 Dani (90.) Abelardo
C-riðill:
Boavista - Rosenborg . . . . ... 0-3
0-1 Sörensen (10.), 0-2 Berg (43.), 0-3
Strand (73.) Feyenoord - Dortmund . . ... 1-1
1-0 Van Wonderen (67.), 1 (71.) -1 Bobic
D-riðill:
Man.Utd - Croatia Zabreb ... 0-0
Marseille - Sturm Graz . . ... 2-0
1-0 Pires (9.), 2-0 Ravanelli (33.)
UEPA-BIKARINN
1. umferð, fyrri leikir:
Partizan Belgrad - Leeds .... 1-3
1-0 Tomic (20.), 1-1 Bowyer (26.), 1-2
Radebe (39.), 1-3 Bowyer (82.)
Rauða stjarnan - Montpellier O-l
0-1 Loko (6.)
Udinese - AaB................1-0
1-0 Sottil (9.)
Stabæk - Deportivo ..........1-0
1-0 Finstad (57.)
Wolfsburg - Debreceni.......2-0
1-0 Akonnor (61.), 2-0 Juskowiak (87.)
Steaua Bukarest - LASK Linz 2-0
1-0 Ciocoiu (64.), 2-0 Danciulescu (82.)
Pétur Marteinsson kom inn á sem
varamaður eftir 15 mínútur hjá
Stabæk þegar einn félaga hans fór
meiddur af velli.
Júgóslavnesku liðin gátu ekki leikið
í Belgrad þar sem flugsamgöngur
þangað eru ekki komnar í lag eftir
loftárásir NATO. Partizan mætti
Leeds í Hoilandi og Rauða stjarnan
lék heimaleik sinn við Montpellier í
Búlgaríu.
-VS
- stefnan er sú að koma ÍA aftur á toppinn, segir Ólafur
Ólafur Þórðarson mun þjálfa úr-
valsdeildarlið ÍA í knattspyrnu
næstu þrjú árin. Hann er tekinn við
stjóm liðsins af Loga Ólafssyni, sem
var rekinn í fyrrakvöld, og mun
stýra Skagaliðinu í þeim tveimur
leikjum sem það á eftir í sumar,
deildarleik gegn ÍBV á laugardaginn
og úrslitaleik bikarkeppninnar gegn
KR um aðra helgi.
Á blaðamannafundi sem stjórn
Knattspymufélags ÍA efndi til í gær
þar sem kynnt var ráðning Ólafs
var dreift fréttatilkynningu sem í
stendur meðal annars:
„Stjórn Knattspyrnufélags lA
ákvað á fundi sínum þann 13. sept-
ember að leysa Loga Ólafsson, þjálf-
ara félagsins, frá starfsskyldum sín-
um viö félagið. Jafnframt var ákveð-
ið á sama fundi að ráða Ólaf Þórðar-
son þjálfara liðsins til næstu þriggja
ára. Ólafur mun jafnframt, þegar
hann hefur lokið verkefni sínu hjá
Fylki, taka við stjórn ÍA-liðsins og
annast undirbúning þess og stjórn-
un í þeim leikjum sem era eftir. Fé-
laginu þykir leitt að til þess þurfti
að koma varðandi Loga Ólafsson, en
telur þetta hafa verið óhjákvæmi-
lega aðgerð. Knattspymufélag ÍA
fagnar því að samningar hafi náðst
við Ólaf Þórðarson og væntir þess
að honum takist að koma meistara-
flokki félagsins aftur á rétta braut,“
segir í tilkynningunni.
Ólafur þekkir vel til á Skaganum
enda borinn og barnfæddur Akur-
nesingur sem lék í mörg ár í bún-
ingi ÍA. En hvernig finnst honum að
taka við liðinu undir þessum kring-
umstæðum?
Leiðinlegt gagnvart Loga
„Ég hefði kosið að taka við liðinu
við betri aðstæður en eftir nokkra
Ólafur Þórðarson stjórnar ÍA strax á
laugardaginn.
umhugsun gat ég ekki skorast und-
an þessu boði. Þetta er auðvitað
leiðinlegt gagnvart Loga en þar sem
ég er sannur Skagamaður vil ég
leggja mitt cif mörkum til að hjálpa
liðinu. Ég mun gefa mig allan í
starfið og stefnan er að koma ÍA aft-
ur á toppinn. Ég þekki vel til hér og
fyrir mig er þetta eins og að setjast
upp í bíl sem ég hef ekki keyrt lengi.
Það er auðvitaö erfitt að yfirgefa
Fylki en ég hef átt góðan tíma i Ár-
bænum. Ég vona hins vegar að
Fylkismenn fyrirgefi mér og þeir
hljóta að að sitja eftir með ljúfsárar
miningar gagnvart mér,“ sagði Ólaf-
ur Þórðarson.
Hann stjórnar liði Fylkis í síðasta
leiknum gegn Skallagrími á föstu-
dag og á laugardaginn er fyrsta
verkefnið með ÍA, leikur gegn ÍBV í
Eyjum. Ólafur sest i heitt sæti því
Skagamenn hafa verið iðnir við að
reka þjálfara á undanfórnum árum
en Logi er þriðji þjálfarin i röð hjá
ÍA sem fær að fjúka. Hinir tveir
voru Ivan Golac og Guðjón Þórðar-
son.
Nauðsynlegt að grípa til
aðgerða
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að þetta er slæmt út á við
en nú er mál að linni. Við erum að
ráða mann sem við treystum og trú-
um á að geti komið liðinu á rétta
braut. Það var margt í störfum Loga
sem var mjög gott og hann er góður
drengur. Það var hins vegar nauð-
synlegt að grípa til einhverra að-
gerða og strax eftir leikinn gegn
Breiðabliki um síðustu helgi sáum
við í stjóminni að það yrði að grípa
í taumana. Við viljum vera það afl á
landsbyggðinni sem getur keppt við
KR og með tilkomu Ólafs er ég
bjartsýnn á að svo geti orðið,“ sagði
Smári.
-GH
Frederik Ljungberg, Svíinn hjá Arsenal, leikur á Angelo Di Livio hjá
Fiorentina í gærkvöld. Ljungberg krækti í vítaspyrnu sem var ekki nýtt.
enskra
Evrópumeistarar
Manchester United
máttu sætta sig við 0-0
jafntefli á heimavelli
við Croatia Zagreb 1
fyrsta leik sínum í
riðlakeppni meistara-
deildar Evrópu á Old
Trafford i gærkvöld.
United komst lítið
áleiðis gegn vel skipu-
lagðri vörn Króatanna
en þeim stýrir Os-
valdo Ardiles, Argent-
ínumaðurinn gamal-
kunni sem lék með
Tottenham um árabil.
Arsenal gerði
einnig 0-0 jafntefli -
gegn Fiorentina á ítal-
íu. Það munaði litlu
að Arsenal hirti öll
stigin því Toldo, mark-
vörður Fiorentina,
varði vitaspyrnu frá
Nwankwo Kanu seint
í leiknum.
Rosenborg fór létt
með Boavista í Portú-
gal, 3-0. Ámi Gautur
Arason sat á vaira-
mannabekk norsku
meistaranna.
Barcelona bjargaði
andlitinu gegn AIK í
Stokkhólmi á síðustu
stundu. Svíarnir kom-
ust yfir seint í leikn-
um og sigur blasti við
þeim en mörk Abel-
ardo og Dani á síðustu
fjórum mínútunum
sneru dæminu við.
-VS
inn á 78 höggum og endaði í 10.-12. sæti.
Þetta verður að teljast góður árangur
hjá þeim Kristni og Kristinu sem er að-
eins 17 ára gömul.
Kvenfólkid lœtur œ meir að sér kveða á
sviði knattspymunnar og í fyrrakvöld
gerðist sá einstæði atburður að dóm-
aratríóið í leik Kidderminster og Nu-
neaton í ensku E-deildinni var allt
kvenkyns. Hin 36 ára gamla Wendy
Toms dæmdi leikinn og henni til aðstoð-
ar voru Janie Frampton, 38 ára, og
Arny Rayner, 24 ára. Þær þóttu standa
sig mjög vel í leiknum og hver veit nema
að þær eigi eftir að fá að spreyta sig í
efri deildum.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur
enga trú á að Manchester United takist
að veija Evrópumeistartitil sinn í vor.
„Ég er ekki bjartsýnn fyrir hönd
Manchester United. Liðið var mjög
heppið á síðustu leiktíð, ekki bara í úr-
slitaleiknum gegn Bayern Múnchen
heldur líka í öðrum leikjum í keppn-
inni,“ sagði Wenger í viðtali við þýska
knattspyrnutímaritið Kicker.
Caroliona Morace sem varð fyrsti
kvenmaðurinn til að þjálfa atvinnu-
knattspyrnulið karla i heiminum er
hætt störfum eftir að hafa stýrt liðinu
sínu í aðeins tveimur leikjum. Morace,
sem þjálfaði karlalið Viterbese i ítölsku
C-deildinni, ákvað að segja upp starfi
sínu þegar eigandi félagsins vUdi láta
reka aðstoðarkonu hennar.
-GH
og yngri keppa um rétt til þess að spUa
á lokamóti sem haldið verður á Spáni í
næsta mánuði.
Kristinn og Kristin komust í gegnum
niöurskurðinn eftir 36 holur. Kristinn
lék á 70 og 74 höggum og Kristín á 75 og
76 höggum. Ólafur lék hins vegar á 75 og
77 höggum og Kolbrún á 86 og 80
höggum. Á síðari deginum lék
Kristinn á 77. höggum og
endaði í 24. sæti. Krist-
ín Elsa lék lokahring-
Ólafur Þórðarson ráðinn þjálfari ÍA í gær:
Gat ekki skorast undan
Uðið hjá
Reykjanesbæ
10 manna hóp Reykjanesbæjar í
leikjunum gegn Greater London Leo-
pards skipa Njarðvíkingarnir Frið-
rik Ragnarsson, Friðrik Stefánsson,
Teitur Örlygsson, Hermann Hauks-
son og Purnell Perry, og Keflvíking-
arnir Guðjón Skúlason, Hjörtur
Harðarson, Gunnar Einarsson,
Fannar Ólafsson og Chianti Roberts.
-ÓÓJ
Birgir Leifur með forystu
Birgir Leifur Hafþórsson er efstur ásamt fjórum öðrum
kylfmgum eftir fyrsta keppnisdaginn í undankeppni fyr-
ir úrtökumót evrópsku mótaraðarinnar í golfi sem hófst
á Five Lakes golfvellinum í Englandi í gær. Birgir Leif-
ur, Ulrich Van Den Berg frá Hollandi, Paul Simpson og
“ Simon Bumell frá Englandi og Sean Quinlivan frá írlandi
léku allir á 67 höggum, eða fimm höggum undir pari vallarins.
Fyrstu 28 komast á úrtökumótið en þátttakendur eru 102.
-VS
Ráðstefna fyrir bikarúrslitaleikinn
Knattspyrnuþjálfarcifélag íslands gengst
fyrir þjálfciraráðstefnu i tengslum við bik-
arúrslitaleik karla laugardaginn 25. sept-
ember. Þjálfarar úrslitaliðanna tveggja
gera þar grein fyrir leikaðferðum sínum og
Guðjón Þórðarson verður með vangaveltur
um leikaðferð landsliðsins. Þar verður enn-
fremur svokölluð „Master Coach" kynning
frá Noregi og útskrift á E-stigi KSÍ frá 1995.
Knattspymuþjálfarafélagið hefur opnað
heimasíðu á Netinu þar sem finna má allar
helstu upplýsingar um félagið, fréttir úr
starfinu og ýmiss konar fróðleik, auk teng-
ingar á aðrar heimasíður þar sem er að
finna efni tengt knattspyrnuþjálfun. Slóð
síðunnar er www.toto.is/felog/kthi.
England:
Eiður tvö og
Guðni eitt
Eiður Smári Guðjohnsen og
Guðni Bergsson vom í aðalhlut-
verkum hjá Bolton í gærkvöld
þegar lið þeirra vann Gilling-
ham, 1-4, í 2. umferö ensku
deildabikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Eiður Smári skoraði tvö
markanna og Guðni gerði fjórða
og síðasta mark Bolton. Þeir
félagar léku báðir allan leikinn.
Úrslit í deildabikamum í gær-
kvöld (fyrri leikir liðanna):
Bamsley - Stockport...........1-1
Birmingham - Bristol Rovers ... 2-0
Bradford - Reading ...........1-1
Cardiff - Wimbledon ..........1-1
Charlton - Boumemouth........0-0
Chester - Aston Villa.........0-1
Chesterfield - Middlesbrough ... 0-0
Crewe - Ipswich ..............2-1
Crystal Palace - Leicester ...3-3
Gillingham - Bolton...........1-4
Grimsby - Leyton Orient......4-1
Huddersfteld - Notts County ... 2-1
Huil - Liverpool..............1-5
Norwich - Fulham..............0-4
Oxford - Everton..............1-1
Portsmouth - Blackburn .......0-3
Sheffteld Utd - Preston ......2-0
Stoke - Sheffíeld Wednesday ... 0-0
Sunderland - Walsall..........3-2
Swansea - Derby...............0-0
Tranmere - Coventry...........5-1
Watford - Wigan ..............2-0
WBA - Wycombe.................1-1
Jóhann B. Guómundsson lék síð-
ustu 7 mínúturnar með Watford gegn
Wigan. Siguróur Ragnar Eyjólfsson
og Bjarnólfur Lárusson sátu á
varamannabekk Walsall allan leikinn
gegn Sunderland og Lárus Orri
Sigurósson lék ekki með Stoke gegn
Sheffield Wednesday vegna meiðsla.
Danny Murphy og Erik Meijer
skomðu 2 mörk hvor fyrir Liverpool
gegn Hull.
Coventry fékk ótrúlegan skell gegn
Tranmere, 5-1, og komst þó yfir með
marki frá Gary McAllister.
-VS
Mikil umskipti hjá ÍA
- sjö farnir og fimm komnir, þar á meðal Kanadamaður
Bland í poka
fjögur islensk ungmenni képptu
t_ _ _ . Canon U-21 mótinu í golfi sem lauk í Sví-
V ^ ^ \ þjóð um helgina. Þetta vora Kristinn
„,,ö\d 1 \ Arnason, GR, Ólafur Már Sigurðsson,
coði sér i S®r rnU túeÖ d, \ GK, Kolbrún Sól Ingólfsdóttir,
VH trýge01 t ^nattspyr .g^ \ið- \ GK Kristtn Etsa Erlends-
l einnlursiiwu ^ , dd(ÍI> GK Mótið ,
\ V. : Ó Gf'-nl^aV11 Có fyrri erv^ óniundS' \ hluti af mótaröð þar
, dóttiroeBrSa^sdott
Sví-
Sjö leikmenn úrvalsdeildarliðs ÍA í körfuknattleik
hafa skipt yflr í önnur félög frá því síðasta keppnistíma-
bili lauk. Pálmi Þórisson, Trausti Jónsson (með við-
komu í Snæfelli) og Björgvin Karl Gunnarsson hafa all-
ir gengið til liðs við Borgnesinga. Þá hefur Jón Þór
Þórðarson skipt yfir í Fjölni. Áður höfðu Bjami Magn-
ússon, Dagur Þórisson og Alexander Ermolinskij skipt
yfir í Grindavik.
„Þetta gríðarlega umrót hefur að sumu leyti komið
okkur á óvart. Við tókum þá stefnu í vor að freista þess
í eitt skipti fyrir öll að rétta fjárhag félagsins af og hafa
einungis þjálfara á launum. Við gátum vænst þess að
missa eitthvað af mannskap í kjölfarið en ég held að
engan hafi órað fyrir þessu,“ sagði Siguröur Sverrisson,
formaður félagsins, í samtali við DV í gær.
En Skagamenn hafa ekki lagt árar í bát. Þeir fengu
fyrir rúmri viku til liðs við sig Kanadamanninn Reid
Beckett og þá gekk Keflvíkingurinn Bjöm Einarsson til
liðs við þá um mánaðamótin. Áður höföu þeir Magnús
Guðmundsson og Hjörtur Hjartarson úr Val og Ægir
Jónsson úr KR gengið til liðs við Akumesinga.
En hvemig líst Sigurði á veturinn?
„Þetta verður enginn dans á rós-
um. Brynjar Karl Sigurðsson,
þjálfari liðsins, er að vinna
þrekvirki við erfiðar
aðstæður. Hann er með
komungt lið í höndunum
og það tekur tíma að
slípa það til. Við höfum
fengið ágætan liðstyrk og
vonandi eigum við eftir að
koma einhverjum á óvart í
vetur.“ -DVÓ
Leikið i eib ^ de\\dar og weðsf 1 ur' \
valsdeuo o& -----
i ávs ðvoi- ____________-—■
Englendingarnir veröa
- segir Sigurður Ingimundarson
Reykjanesbær spilar fyrsta opinbera
íþróttakappleik sinn I kvöld þegar
sameinað liö Keflavíkur og Njarðvikur
mætir enska liðinu London Leopards í
fyrri leik liðanna í Evrópukeppni
félagsliða.
Hörðustu stuðningsmenn setja
kannski upp skrítinn svip við að sjá
helstu keppinauta undanfarinna ára í
íslenska körfuboltanum snúa bökum
saman en verkefnið er afar spennandi
enda mynda þessi tvö lið afar sterkan
og öflugan 10 manna hóp sem reynir á
í íþróttahúsi Keflavikur kl. 20 í kvöld.
Friðrik Ingi Rúnarsson og Sigurður
Ingimundarson stjórna liðinu og Sig-
urður var spenntur fyrir að takast á
við þetta verkefni í vetur.
„Við ætlum okkur áfram og það er
ótrúlega spennandi að sjá hvemig
þetta þróast. Þetta veröur bara að
ganga upp vegna þess hve spennandi
samstarfið er. Það verður líka
skemmtilegt fyrir stuðningsmenn þess-
ara tveggja liða, því þeir verða að gera
eins og við að vinna saman í þessum
leikjum og skapa góða stemningu í
kvöld og síðan áfram í vetur.
Samvinnan gengur vel því þegar við
spilum fyrir ÍRB þá erum við bara ÍRB.
Það em ööruvísi áherslur í þessu verk-
eftii en hjá liðun-
um í íslandsmót-
inu. Þeir reyna ör-
ugglega að keyra
upp leikinn en það
sem þeir vita ekki er
að við erum með
mun breiðari hóp
en þeir og tökum
hraðanum því
fagnandi. Okkar
lið er einnig með
marga stóra leik-
menn, semernýtt
fyrir íslenskt lið,
með fimm menn
með kringum tvo
metra. Ég hef það á til-
finningunni að þeir bú-
ast við léttum sigri en ég
hef það einnig á tilfmning-
unni að þeir verði mjög hissa
eftir leikinn," sagði Sigurður Ingi-
mundarson kokhraustur í viðtali við
DV í gær.
Vinni Reykjanesbær þessa tvo leiki,
kemst liðið í riðlakeppni Evrópu og
mætir þá sterkustu liðum álfunnar.
Óhætt er því að segja að körfubolta-
tímabilið hefjist á einum af
stórleikjum vetrarins. -ÓÓJ
Reykjanesbær mætir London
Guðjón Skúlason úr Keflavík og Teitur Örlygsson úr Njarðvík hafa oft barist
hart á undanförnum árum. í kvöld verða þeir samherjar þegar sameinað lið
Reykjanesbæjar tekur á móti Greater London Leopards í Evrópukeppninni í
Keflavik. DV-mynd Hilmar Þór
/ '■ | i
____________________i_n__________________
Meistaradeild Evrópu:
Engin
mörk