Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1999, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1999, Side 10
10 A Fréttir MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1999 Kósý \ *** Húsgögn 7 dago skiptiréttur kr. 65.900,- Megrunarkúrar draga úr gáfum agi Símmúla 28 - 108 Reykjavik - Simi 568 0606 Ólafur á Þorvaldseyri farinn aö slá kornakurinn: Kalt og sólarlaust en dágóð uppskera Þótt sumarverðráttan á Ströndum hafi verið hagstæð er sýnt að heyfengjur margra bænda er í knappara lagi að þessu sinni. DV-mynd GF Lokið viö snjóflóðagarða: Stóri- og Litli-Boli vígðir DV, Siglufirði: Framkvæmdum viö tvo snjóflóöa- varnargarða í Siglufirði er aö ljúka. Aðeins er eftir sáning, uppgræðsla og þökulagning á görðunum og mun það verk fara fram næstu tvö sum- ur. Áformað er að garðamir verði formlega vígðir 24. september. Þeim hefur þegar verið gefið nafn og heita þeir Stóri-Boli og Litli-Boli. Vinna við þá hófst snemma sumars 1998 og stóð þá yfir i um fjóra mánu- jði. Aftur var hafist handa í júní í ár og lauk verkinu í byrjun þessa mán- aðar. Verktaki var Héraðsverk á Eg- ilsstöðum. -ÖÞ 7 daga skiptiréctur er á öllum 7 stjörnu bílum. Þetta er ein af sjö ástæðum til að kaupa sjö stjörnu bíl hjá B&L. BHaland B8.L • Grjóthálsi 1 • Sími 575 1230 DV, Eyjafjöllum: „Þetta er fyrsti sláttudagurinn í haust, það hefur ekki verið hægt að byrja fyrr vegna ótíðar en nú verð- ur slegið á fullu næstu daga,“ sagði Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor- valdseyri, í samtali við DV þar sem hann var við komslátt á akri neöan við bæinn á Þorvaldseyri á mánu- dag. Hann sagði að sprettan væri þokkaleg en þó minni en í meðalári, sagðist búast við að fá um tonni minni uppskeru af hektara en í Nýr ofn Járnblendifélagsins gangsettur: 42 þúsund tonna viðbót - án þess að fjölga þurfi starfsfólki Dy Akranesi: Nýi ofninn í Jámblendiverk- smiðjunni á Grundartanga var gangsettur nýlega og reyndist bún- aður hans í stakasta lagi eins og við mátti búast. Undirbúningur og smíði ofnsins hefur staðið í um eitt og hálft ár. Bjarni Bjarnason, for- stjóri íslenska járnblendifélagsins, hélt fyrirlestur um smíði og gerð ofnsins. Umsjón með verkinu hefur verið í höndum Knuts Qvenilds og stjórnaði hann gangsetningunni. Nú fer i hönd tímabil tilraunareksturs og hitunar en stefnt er að því að ofn- inn veröi kominn í fullan rekstur í byrjun næsta mánaðar. Þessi þriðji ofn verksmiðjunnar er töluvert frábrugðinn þeim tveim- ur sem fyrir era og fyrsti ofn sinnar tegundar sem Elkem rekur. Ofninn er stærri og öðruvísi hannaður og er framleiðslugetan um 42 þúsund tonn á ári. Kostnaðaráætlun fyrir stækkun verksmiðjunnar hljóðaði upp á þrjá milljarða króna. Ekki er gert ráð fyrir því að fjölga þurfti starfsfólki vegna stækkunnar verk- smiðjunnar. -DVÓ Allt er hey í harðindum: Knappur heyfengur á hlýju og góöu sumri DV, Ströndum: „Ég fékk svona helming venjulegs heyskapar af túninu, nokkuð sótti ég lengra og svo eru það fymingam- ar. Það verður að duga,“ var svar bónda á Ströndum sem undirritað- ur ræddi við um heyfeng sumars- ins. Þrátt fyrir að sumarveðráttan hafi verið afar hagstæð og hlýviðri oftast er sýnt að heyfengur margra bænda í Strandasýslu er í knappara lagi að þessu sinni. Kal frá síðasta vetri er orsökin en tún margra bænda vom illa skemmd í sumar- byrjun. í það minnsta einn vetur þarf að líða áður en þau jafha sig að fullu. Allmargir bændur hafa slegið tún og bletti sem ekki hafa verið nytjuð nema að litlu leyti undanfarin ár, svo sem tún eyðijarða. Nokkrir hafa farið í fjarlægar sveitir, marga tugi kílómetra, meira að segja hefur ver- ið heyjað á útengjum og ógirtu landi sem legið hefur óslegið í áratugi. Von flestra er að með því að kroppa nánast allt sem hægt er megi kom- ast hjá fækkun í bústofninum, enda komi ekki jafnóhagstætt árferði í kjölfarið. Sannast nú hið forn- kveðna að allt er hey í harðindum. Þeir eru fáir bændurnir sem sluppu alveg við uppskerubrest að þessu sinni. -GF tö 1 vu i tækni og vísinda Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, við kornsláttuvélina úti á akrinum. DV-mynd Njörður fyrra, eða um 2,5 til 3 tonn af hekt- aranum. „Sprettan fór seint af stað, kuldi og sólarleysi var ríkjandi í sumar og það er ótrúlega mikil uppskera miðað við tíðina í sumar,“ sagði Ólafur. Hann sagði að norðan- og austanlands væri góð komuppskera þetta árið og hann viti ekki um neinar frostskemmdir þetta áriö en frost sem kemur í júlí og ágúst skemmi komið. „Ég held að yflr heildina séð sé þetta gott ár í korn- rækt á landinu og að alls staðar á landinu verði þreskt korn þetta árið,“ sagði Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri -NH Hvíldarstóll úr ledri TILBOÐ Hvíldarstóll iírtaui kr. 39.900,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.