Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1999, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1999, Blaðsíða 30
42 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1999 Afmæli___________________ Ármann Snævarr Ármann Snævarr, fyrrv. háskóla- rektor og hæstaréttardómari, Ara- götu 8, Reykjavík, varð áttræður á laugardaginn. Starfsferill Ármann fæddist á Nesi í Norð- firði og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1938, embætt- isprófi í lögfræði við HÍ 1944, stund- aði framhaldsnám í lögfræði við há- skólana í Uppsölum 1945-46, í Kaup- mannahöfn 1946-47, í Ósló 1947-48 og við Harvard Law School 1954-55. Ármann var prófessor í lögum við HÍ 1948-72, rektor HÍ 1960-69, gistiprófessor við Uppsalaháskóla 1969-70, við Ohio Northem Univer- sity 1971 og 1972 og við McGeorge lagaskólann í Sacramento í Kali- fomíu 1976. Hann var hæstaréttar- dómari 1972-84, stundakennari við lagadeUd HÍ um árabU frá 1973, við guðfræðideild 1967-79 og 1992 og við Fósturskóla íslands. Hann hefur verið prófdómari við lagadeUd HÍ. Ármann var formaður Náttúru- verndamefndar Reykjavíkur 1957-62, sat í stjórn Norræna húss- ins 1965-76 og formaður þar 1965-68, í stjóm norrænu lögfræð- ingaþinganna, íslandsdeildar frá 1951 og formaður þar 1972, formað- ur stjómar Lögfræðingafélags ís- lands 1958-65 og Bandalags háskóla- manna 1958-64, forseti Þjóðvinafé- lagsins 1962-66, í stjórn Vísinda- sjóðs 1957-74, fúUtrúi HÍ í háskóla- og vísindanefnd Evrópuráðsins 1961-69, i fyrstu stjóm Samtaka há- skólarektora frá Evrópu- löndum i Göttingen 1964, í stjórn Handritastofnun- ar íslands 1962-66, fuU- trúi Sáttmálasjóðs í stjóm Árnastofnunar í Kaupmannahöfn 1969-73, formaður stjórnar Dóm- arafélags íslands 1977-84, formaður Félags Samein- uðu þjóðanna á íslandi 1960-69, forseti Rotaryklúbbs Reykjavík- ur 1987-88, formaður hegningalaga- nefndar 1970-85 og sifjalagancfndar frá 1957, hefur átt sæti í dómnefnd- um varðandi prófessorsembætti, þ. á m. við Árósaháskóla og Óslóarhá- skóla, hefur verið andmælandi við doktorsvöm við lagadeUd Hf 1968, 1971 og við Cambridgeháskóla 1973. Hann hefur Uutt fyrirlestra við há- skóla á öUum Norðurlöndunum og í Kanada, Þýskalandi og í Rússlandi. Þá hefur hann samið fjölmörg fmm- vörp tU laga, einn eða ásamt öðr- um. Ármann hefur samið fjölda rita og ritgerða um lögfræðileg efni, sum hver margsinnis útgefin. Má þar nefna Almenna lögfræði, Þætti úr refsirétti, sifjarétt, barnarétt og erfðarétt. Þá hefur hann setið í út- gáfustjómum, verið ritstjóri og gef- ið út fjölda laga- og dómasafna. Hann sat í útgáfustjóm Kulturhi- storisk Leksikon 1961-80. Ármann var sæmdur doktors- nafnbót i lögfræði við Uppsalahá- skóla 1970, við Ohio Northem Uni- versity 1973, Helsingfors- háskóla 1980 og Óslóar- og Kaupmannahafnarhá- skóla 1986. Hann var sæmdur norrænu lög- fræðivísindaverðlaunun- um 1993 sem veitt eru þriðja hvert ár. Hann hef- ur verið félagi í Vísinda- félagi íslendinga frá 1955 og var forseti þess 1962-65, varð erlendur fé- lagi í finnsku vísindaaka- demíunni 1971, Academy of Human Rights frá 1964 og alþjóðasamtökum háskólarektora 1964. Ármann er heiðursfélagi í finnska lögfræðingafélaginu, Juri- diska Föreningen í Finnlandi, í Islándska sállskapet í Uppsölum, í Lögfræðingafélagi íslands, Dómara- félagi íslands, Orator, félagi laga- nema og í flnnska sakfræðingafé- laginu. Hann var sæmdur stórridd- arakrossi fálkaorðunnar 1982 og hefur verið sæmdur fjölda annarra orða og heiðursmerkja, íslenskra og erlendra. Fjölskylda Ármann kvæntist 11.11. 1950 Valborgu Sigurðardóttur, f. 1.2. 1922, uppeldisfræðingi og skóla- stjóra Fósturskóla íslands. Hún er dóttir Sigurðar Þórólfssonar, skólastjóra Lýðháskólans á Hvltár- bakka, og s. k. h., Ásdisar Margrét- ar Þorgrímsdóttur. Börn Ármanns og Valborgar eru Sigríður Ásdís, f. 23.6. 1952, M.A. í alþjóðasamskiptum, sendiherra ís- lands í Paris, gift Kjartani Gunn- arssyni, lögfræðingi og fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins; Stefán Valdemar, f. 25.10.1953, dr. í heimspeki, ljóðskáld og há- skólakennari í Lillehammer; Sig- urður Ármann, f. 6.4. 1955, M.Sc. í hagfræði, forstöðumaður hjá Þjóð- hagsstofnun; Valborg Þóra, f. 10.8. 1960, fóstra og hdl., gift Eiríki Thorsteinssyni kvikmyndaleik- stjóra; Árni Þorvaldur, f. 4.3. 1962, BA í sagnfræði, fréttamaður á Stöð 2, en kona hans er Unnur Valdís Kristjánsdóttir. Systkini Ármanns: Árni, verk- fræðingur og ráðuneytisstjóri í Reykjavík, nú látinn; Laufey, hús- móðir í Reykjavík; Stefán, prófast- ur á Dalvík, nú látinn; Guðrún, húsmóðir í Garðabæ. Foreldrar Ármanns voru Valde- mar Valvesson Snævarr, skóla- stjóri á Húsavík og síðar i Nes- kaupstað, f. 22.8. 1883, d. 18.7. 1961, og k.h., Stefanía Erlendsdóttir, f. 6.11. 1883, d. 11.12. 1970, húsmóðir. Ætt Föðurforeldrar Ármanns voru Valves Finnbogason, b. og há- karlaformaður á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjar- sýslu, og kona hans, Rósa Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja. Móðurforeldrar Ármanns voru Erlendur Árnason, b. og útgerðar- maður í Hellisfirði, síðar á Orms- stöðum og víðar í Norðfirði. Ármann Snævarr. Bergþóra S. Þorsteinsdóttir Bergþóra S. Þorsteinsdóttir, for- stöðumaður Skammtímavistunar, Móaflöt 24, Garðabæ, til heimilis að Skipholti 47, Reykjavík, er fimmtug í dag. Starfsferill Bergþóra fæddist á Ólafsflrði og ólst þar upp. Hún lauk kennara- prófi frá KÍ 1971 og sérkennara- prófi frá Kí 1973. Bergþóra kenndi við Barnaskóla Ólafsfjarðar 1971-73, var sérkenn- ari við Hagaskóla í Reykjavík 1973-85, kennari við Foldaskóla í Reykjavík 1985-86, deildarstjóri við Meðferðarheimilið við Kleifar- veg 15 í Reykjavík 1986-96 og hef- ur verið forstöðumaður Skamm- tímavistunarinnar að Móaflöt 24, Garðabæ, frá 1996. Bergþóra var trúnaðarmaður við Hagaskóla um nokkurra ára skeið, sat i fulltrúaráði Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar í fimm ár, var formaður Ólafsfirð- ingafélagsins í sjö ár, sat í stjórn landsmálafélagsins Varðar í fjögur ár og í stjóm íbúasamtaka Grafar- vogs og formaður þeirra í eitt og hálft ár. Fjölskylda Bergþóra giftist 20.3.1982 Jóhanni Runólfssyni, f. 16.10. 1944, bankastarfsmanni. Hann er sonur Runólfs Jó- hannssonar, skipasmiðs í Vestmannaeyjum, og Kristínar Skaftadóttur húsmóður. Sonur Bergþóm er Þor- steinn Kristjánsson, f. 20.7. 1970. Systkini Bergþóru eru Jón Þorsteinsson, f. 11.10. 1951, óperusöngvari í Amsterdam; Þorsteinn I. Þorsteinsson, f. 17.1. 1953, Bergþóra S. Þorsteinsdóttir. framkvæmdastjóri í Reykjavik; Þyri E. Þorsteinsdóttir, f. 6.8. 1957, sölu- stjóri, búseft í Bessa- staðahreppí; Ragnhildur F. Þorsteinsdóttir, f. 13.3. 1961, kennari í Bandaríkj- unum; Kristín Þorsteins- dóttir, f. 20.8. 1962, skrif- stofustúlka i Reykjavík; Arnheiður S. Þorsteins- dóttir, f. 6.2. 1965, gjald- keri og söngvari í Reykja- vík. Foreldrar Bergþóru eru Þorsteinn S. Jónsson, f. 13.5. 1928, forstjóri í Reykjavík, og Hólmfríður S. Jakobsdóttir, f. 20.11. 1929, hús- móðir. Fréttir Tvær gestabækur á Akrafjalli: 2.500 príluðu á Háahnjúk DV, Vesturlandi: Það er ekki of fast að orði kveðið að segja að gönguferð á Háahnjúk, næsthæsta tind Akrafjalls, sé orðin ein vinsælasta fjallganga Akurnes- inga og nágranna. Tindurinn er í 550 metra hæð og ekkert stórmál að príla þangað upp. Gangan tekur hálfan annan til tvo tíma ef gengið er frá vatnsveitu Akumesinga. Um áramót 1997-98 kom Jón Pét- ursson, göngugarpur og listamaður, ásamt félögum gestabók fyrir í jám- kassa á Háahnjúki. Á nærri 20 mán- Gabriei höggdeyfar fyrtr íotksbila, jeppa og vbrubda QJvarahlutir HAMMSHÖHIA1 S. 567 6744 Fax 667 3763 Akureyri Blaðbera vantar í Innbæinn. Upplýsingar í síma 462 5013 milli kl. 13 og 18. Göngugarparnir á næsthæsta tindi Akrafjalls. DV-mynd dvó uðum höfðu um 2.500 manns skrifað nöfn sín í bókina og greinilega voru það fleiri en heimamenn sem þar voru á ferð. Til dæmis kom hópur starfsmanna Ríkisspítala í sumar, 122 manns, og skrifaði í bókina. Undir sumarlokin lagði Jón enn upp ásamt hópi 14 félaga sinna, göngukappa mikilla, með gestabók og annan jámkassa. Nú var stefnt á Geirmundartind, hæsta tind Akra- fjalls. Ganga frá Fosskoti við Akra- fjall upp að Geirmundartindi tekur 2-3 tíma. Tll hamingju með afmælið 20. september 85 ára Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku, Mjóafjarðarhreppi. 80 ára Arinbjörn Hjálmarsson, Grenivöllum 14, Akureyri. Óli Sigurðsson, Hauksstöðum II, Norður-Héraði. 75 ára Axel Kristjánsson, Álagranda 8, Reykjavík. Jón S. Óskarsson, Klömbrum, Aðaldælahreppi. 70 ára Guðrún Kolbrún Jónsdóttir, Gyðufelli 14, Reykjavík. Guðrún Steingrímsdóttir, Hvassaleiti 56, Reykjavík. Hafsteinn Ólafsson, Gullsmára 9, Kópavogi. Jón Ásmundsson, Baugholti 7, Keflavík. Víkingur Þór Björnsson, Munkaþverárst., Akureyri. 60 ára Gunnlaugur Sigurðsson, Lindarflöt 40, Garðabæ. Hrefna Magnúsdóttir, Meðalholti 15, Reykjavík. Júlíus G. Bjarnason, endurvarpsstöðinni á Eiðum, Austur-Héraði. Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Grensási 1 B, Njarðvík. Kristján Kristjánsson, Sunnuflöt 1, Garðabæ. Ólína Steingrlmsdóttir, Bjarmastíg 5, Akureyri. Sigríður H. Þórarinsdóttir, Hátúni, Skaftárhreppi. Sigríður VUbergsdóttir, Stekkholti 9, Selfossi. 50 ára Helgi M|k Haraldsson, f 1 Lækjarbraut 7, Holta- og V ' ■ Landsveit. Hann er að x, JMí heiman. Fjóla Rögnvaldsdóttir, Brekkugötu 26, Hafnarfirði. Gunnlaugur Óskarsson, Þórsbergi 12, Hafnarfirði. Heiða Björk Jónsdóttir, Heiðarlundi 3 H, Akureyri. Héðinn Sverrisson, Geiteyjarströnd I, Skútustaðahreppi. Ingibjörg Ingadóttir, Byggöarhorni, Árborg. írena Wróblewska, Ásvegi 11, Breiðdalsvík. Ragnhildur Ásmundardóttir, Hraunbæ 190, Reykjavík. Steingrímur Viktorsson, Grenstanga, Austur-Landeyjum. Teresa Skarzynska, Óseyjarbraut 26, Þorlákshöfn. 40 ára Anna Michalina Magnusen, yíkurbraut 3, Sandgerði. Áki Ingvason, Hegranesi 25, Garðabæ. Björn Valur Gíslason, Aðalgötu 3, Ólafsfirði. Guðrún Brynja Jónsdóttir, Hringbraut 96, Keflavík. Jóna Freysdóttir, Goðheimum 2, Reykjavík. Jónína H. Pálsdóttir, Víkurtúni 15, Hólmavík. Kolbeinn Sigurðsson, Breiðvangi 20, Hafnarfirði. Magnús Guðmundsson, Spóarima 10, Selfossi. Sigríður Jónsdóttir, Steinahlíð 3 G, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.