Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1999, Side 36
Vinningstölur laugardaginn: 18. 09.'99 ,
'S- ,
7 14 20 33 34 19
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5af 5 1 19.805.410
2. 4 af 5+S^Ss 10 120.020
3. 4 af 5 214 9.670
4. 3 af 5 7.424 650
Jókertölur
vikunnar:
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1999
Ránið í Kópavogi:
Ræningi
ófundinn
Einn þriggja manna sem lögreglan
í Kópavogi telur hafa tekið þátt í rán-
inu í versluninni Strax í Kópavogi á
fóstudag gekk enn laus í gærkvöld.
Öðrum mannanna tveggja sem voru í
haldi vegna málsins var sleppt þar
sem þáttur hans í málinu þótti upp-
lýstur en hinn hefur verið úrskurð-
aður i gæsluvarðhald til 2. október.
Lögreglan telur sig hafa sig hafa full-
vissu fyrir því hver þriðji ræninginn
er. Ránsfengurinn, um 100 þúsund
krónur í peningum og greiðslukorta-
nótur, er ófundinn. -GAR
Fáklædd við
, skrifstofu
forseta
„Ég sá hana ekki fara úr öllu en
það er ekkert venjulegt að vera á
brjóstahaldaranum hjá forsetanum,
það gerist ekki á hverjum degi,“
sagði ungur maður við DV sem varð
vitni að dansi fáklæddrar blökku-
konu á bílastæði við skrifstofu for-
seta íslands við Skothúsveg á laug-
ardag. Hann varð að sjá á eftir ljós-
myndum af atburðinum í hendurn-
w ar á lögreglunni í Reykjavík.
Maðurinn var á bíi nálægt heim-
ili sínu þegar hann kom auga á kon-
una þar sem hún dansaði á nærfot-
unum einum fata í garðinum. Hann
hraðaði sér heim til sín og náði í
einnota myndavél til að festa við-
burðinn á filmu til framtíðar. Náði
hann myndum af konunni sem fljót-
lega gekk alkædd af vettvangi. Áður
hafði konan veifað vinalega til
heilirar lúðrasveitar sem átt leið
framhjá eftir æfingu í Hljómskálun-
um.
Lögreglan kom skömmu eftir að
konan fór. Ungi maðurinn gaf lög-
reglumönnum upplýsingar um kon-
una og höfðu þeir upp á henni í
næsta nágrenni.
Maður um sextugt lést eftir að ekið
var á hann þar sem hann var fót-
gangandi á Breiðholtsbraut um
klukkan átta á föstudagskvöid.
Myndin er frá slysstaðnum.
Heimsókn popparans Robbie Williams var heldur endaslepp en hann fór af landi brott á laugardagsmorgun. Á
tónleikum kvöldið áður var flösku kastað að honum og hafði nær hæft hann í höfuðið. Hætti Robbie strax að syngja.
Myndin er frá tónleikunum í Laugardalshöll. Sjá myndir á bls. 40 DV-mynd Hari
Fangi til
landsins
Maður um þrítugt var fluttur til
landsins í gær frá Kaupmannahöfn í
fylgd tveggja lögreglumanna. Ekki
fengust upplýsingar hjá lögreglu í gær-
kvöld hvort þar hefði verið á ferð ann-
ar mannanna sem gefin hefur verið út
handtökuskipun á í stóra fikniefna-
málinu. Mennirnir voru búsettir í
Danmörku. Var talið öruggt að þeir
hafi flúið land, líklega til Spánar. Þá
hefur DV heimildir fyrir þvi að annar
mannanna sé Herbjöm Sigmarsson,
sem á að baki afbrotaferil í tengslum
við sölu ólöglegra fikniefna. Hinn
maðurinn var starfsmaður Samskipa í
Danmörku eins og fram hefur komið.
Maður á tvítugsaldri var handtekinn í
Reykjavík á fóstudagskvöld í tengslum
við málið og úrskurðaður í gæsluvarð-
hald og sitja því nú alls fimm menn í
gæsluvarðhaldi. -GAR
Eltingaleikur
í þoku
Gangnamenn í Fnjóskadal lentu í
miklum eltingaleik við útigengnar
kindur um helgina. Þær komu ekki
fram í fyrrahaust og höfðu því gengið
úti sl. vetur. Kindurnar, önnur tví-
lemd, en hin með veturgamalt hrút-
lamb, héldu sig norðan til í Hvann-
dalabjörgum. Fjallið er um 1000 metra
hátt og þurftu gangamenn að fara yfir
það til að komast að kindunum. Þegar
þeir voru búnir að eltast við þær í 3-4
klukkustundir skall á niðadimm þoka.
Ekki tókst betur til en svo að ein kind-
anna hljóp fyrir björg. Gangnamenn-
imir sneru heim við svo húið. -JSS
Baldur Hjaltason hættur hjá Lýsi eftir umrót í kjölfar eigendaskipta:
Hætti þegar meðstjórn-
endur voru reknir
Baldur Hjaltason, forstjóri Lýsis
hf., hefur hætt störfum hjá fyrirtæk-
inu eftir að öllum meðstjómendum
hans við fyrirtækið, aðstoðarfor-
stjóranum, nýráðnum sölustjóra
innanlands, markaðsstjóra erlendis
og framkvæmdastjóra framleiðslu-
sviðs, var sagt upp sl. föstudag.
Baldur Hjaltason staðfesti í gær-
kvöldi í samtali við DV að hann
hefði hætt störfum.
„Það eru komnir nýir eigendur.
Þeir vilja taka aðra stefnu og það er
ekkert óeðlilegt að þá vilji menn
breyta um stjómendur," sagði Bald-
ur, í samtali við DV í gærkvöldi.
Baldur óskaði að öðru leyti ekki eft-
ir að tjá sig um
ástæður þess að
hann hætti en
vísaði á stjómar-
formann Lýsis
hf., Gunnlaug
Sævar Gunn-
laugsson.
Fyrir mánuði
síðan keypti
Katrín Péturs-
dóttir, eigandi Fiskafurða - lýsisfé-
lags hf. öll hlutabréf í Lýsi hf.
Fiskafurðir - lýsisfélag framleiðir
einnig lýsi og hefur átt í samkeppni
á innanlandsmarkaði við Lýsi hf. Á
hinn bóginn hefur Lýsi hf. undan-
farin ár haslað
sér völl með lýsi
sem heilsuvöru á
erlendum mörk-
uðum í Evrópu
og Asíu. í Dan-
mörku hefur
markaðssetning-
in tekist það vel
að læknar mæla
sérstaklega með
neyslu til að
koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúk-
dóma og fleiri kvilla og sjúkrasam-
lög stefna að því að taka þátt í að
■ greiða lýsi fyrir neytendur.
Hinir nýju eigendur Lýsis hf.
stefna að því að sameina fyrirtækin
tvö að sögn Gunnlaugs Sævars.
„Við ætlum að fara nýjar leiðir og
við teljum að hægt sé að gera betur
í rekstrinum," sagði Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson stjórnarfor-
maður við DV. Hann sagði að margt
hefði veriö vel gert í rekstri Lýsis
en hin nýja stjóm félagsins teldi nú-
verandi rekstur of kostnaðarsaman.
Því verði að draga saman seglin.
Hann sagði að Baldri Hjaltasyni
hefði ekki veriö sagt upp. Undir-
menn hans hefðu hins vegar fengið
uppsagnarbréf á fóstudag og verið
gert að hætta þegar í stað störfum.
-SÁ
Baldur Hjaltason.
Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson.
Veðrið á morgun:
Hægviðri
Fremur hæg austlæg átt verð-
ur á landinu. Skýjað með köflum
við suður- og austurströndina en
nokkuð bjart annars staðar.
Heldur kólnandi veður.
Veörið í dag er á bls. 45.
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-igoa
íslenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar I tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443