Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Page 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 33 Sport DV Sport Fyrsta mark Ólafs Ólafur H. Kristjánsson skoraði sitt fyrsta mark fyr- ir AGF i dönsku A-deildinni í knattspymu á sunnu- daginn þegar liðið tapaði, 1-2, fyrir Vejle á heima- velli. Ólafur kom inn á sem varamaður á 56. mínútu og minnkaði muninn þegar 6 mínútur vora eftir. Tómas Ingi Tómasson byrjaði einnig á varamanna- bekknum en lék allan síðari hálfleikinn. Með þessum ósigri er AGF komið í fallsæti, er næstneðst í deildinni eftir 9 umferðir með 6 stig, en Esbjerg er neðst með 4 stig. Gömlu íslandsvinimir í AB unnu Viborg úti, 1-3, og eru komnir með fjögurra stiga forskot, eru með 21 stig en AaB og Viborg koma næst meö 17 stig. -VS Bjarni líklega til Fýlkis Bjarni Jóhannsson verður mjög líklega ráðinn þjálfari karlaliðs Fylk- is í knattspyrnu í vikunni. Bjami hefur undanfarna daga átt fundi með forráðamönnum Árbæjar- liðsins og að sögn þeirra er Bjami efstur á blaði yfir hugsanlega þjálf- ara hjá félaginu. Fylkismenn tryggðu með glæsibrag sæti í úrvalsdeildinni undir stjórn Ólafs Þórðarsonar en hann er sem kunngt er tekinn við liði ÍA. Bjami, sem nýverið hætti hjá IBVeftir þriggja ára starf, er ekki ókunnugur herbúðum Fyikis en hann þjálfaði liðið i eitt tímabil, 1994, í 1. deildinni en þá höfnuðu Fylkis- menn i þriðja sæti deildarinnar. Að sögn forráðamanna Fylkis halda þeir öllum sínum mannskap að því undanskildu að Ólafur Þórðarson er horfinn á braut. Stefnan hjá Ár- bæjarliðinu er að fá sterkan varnar- mann tU liðs við sig og markaskor- ara. -GH Leikmenn Stoke standa með Gary Megson Leikmenn enska knattspymufélagsins Stoke City virðast mótfalinir því að skipt verði um ffamkvæmdastjóra þó íslenskir aöilar kaupi meirihluta í félaginu. Eins og kunnugt er, vUl íslenski hópurinn sem stendur að hugsanlegum kaupum gera Guðjón Þórðarson að framkvæmdastjóra félagsins. Graham Kavanagh, miðjumaður Stoke, sagði í viðtali við fréttavefinn Teamtalk í gær að leikmenn væru mjög ánægðir með Gary Megson, sem tók viö liðinu í sumar, og þeir styddu hann aUir heils hugar. Það væri líka kominn tími til að hætta að skipta um stjóra þvi hann hefði á undanfórnum árum spUað undir stjórn sex mismunandi framkvæmdastjóra hjá félaginu. _yS i r Bland i P oka HM-farar með sýningu í dag Elva Rut Jónsdóttir, Jóhanna Sigmundsdótt- ir og Dýri Kristjánsson, sem öll taka þátt í heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í Kína í næsta mánuði, leika listir sínar á sýn- ingu í íþróttahúsinu á Seltjamamesi í kvöld. Þar koma einnig fram Halldór B. Jóhanns- son og Jóhanna Rósa Ágústsdóttir sem kepptu á heimsmeistaramótinu í þolfími fyrr á árinu en þar hreppti Halldór bronsverðlaunin. Þau taka þátt i Evrópumótinu í Birmingham í des- ember. Sýningin hefst kl. 20 í kvöld og aðgangseyr- ir, 400 krónur á mann, rennur í ferðasjóð Kínafaranna. -VS Tveir með FH Amar Ægisson og Ásgrímur H. Einarsson hafa verið ráönir þjálfarar FH sem vann sér á dögunum sæti í úrvalsdeUd kvenna í knatt- spyrnu. Arnar hefur þjálfað FH undanfarin tvö ár með góðum árangri. Ásgrímur hefur þjálfað 2. flokk kvenna hjá Stjömunni undanfarin ár en hann stjómaði liði Þróttar frá Neskaupstað í efstu deUd 1993 og 1994. -VS ¥ Ryder-bikarinn f ígolfl: Colin Montgomerie og Jose Maria Olazabal urðu fyrir óskemmtilegri reynslu í baráttunni við Bandaríkjamenn um Ryder-bikarinn í golfi. Framkoma áhorfenda og leikmanna bandaríska liðsins var til skammar. Reuter Dónaskapur - Bandaríkjamanna hefur vakið mikla athygli Sigur og tap hjá Jóhanni á HM Jóhann Marel Viðarsson hefur leikið tvo leiki á heimsmeistaramóti 21 árs og yngri í snóker sem nú stendur yfir í Kaíró í Egypta- landi. Jóhann tapaði fyrst, 0-4, fyrir Ian Baker frá Ástralíu en vann síðan M.H. Jamaldeen frá Sri Lanka, 4-2. Jóhann er íslandsmeistari í þessum flokki og þetta er hans fyrsta mót á erlendri grundu. _ys Slæm hegðun áhorf- enda og leikmanna bandaríska liðsins á Ryder-bikarnum í golfi um liðna helgi hefur vakið mikla athygli. Langt er síðan kylfíng- um hefur verið sýndur annar eins dónaskapur á golfmóti og leikmenn Evrópuliðsins máttu þola. Strax á fyrsta degi tóku bandarískir áhorf- endur upp á því að kalla ókvæðisorð að Colin Montgomerie í þeirri von að trufla leik Skot- ans. Það tókst þeim ekki en framkoma áhorfend- anna var einstök og gæti dregið dilk á eftir sér. Um þverbak keyrði síðan á lokadegi mótsins er Justin Leonard setti niður langt pútt á 17. flötinni. Leikmenn bandaríska liðsins og eiginkonur þeirra létu þá sem óð væm enda lík- ur á að Leonard hefði tryggt bandaríska liöinu sigur. Spánverjinn Jose Maria Olazabal átti hins vegar sitt pútt eftir og gat því jafnað og fellt holuna. Framkoma Bandaríkjamanna var slík að menn trúðu vart sínum eigin augum. Montgomerie og 01- azabal voru mjög undr- andi á framkomu áhorf- endanna og bandarísku kylfinganna. „Hreinn viðbjóður“ Sam Torrance, aðstoð- arliðsstjóri Evrópu, sagði framkomu Bandaríkja- manna hreinan viðbjóð og þeim til minnkunar á allan hátt. í gær kepptust banda- rísku kylfingarnir við að biðjast opinberlega af- sökunar á framkomu sinni og þar var Ben Crenshaw, liðsstjóri bandaríska liðsins, fremstur í flokki. Ljóst er að framkoma Bandaríkjamanna er lit- in alvarlegum augum í golfheiminum. Golfið hefur ætíð verið sú íþrótt þar sem ómæld virðing er borin fyrir andstæðingnum og hefur þá einu gilt hvort um er að ræða áhorfendur eða leikmenn. -SK Bandarísku kylfingarnir urðu sér til ævarandi skammar er þeir fögnuðu pútti Justins Leonards á 17. flötinni. Reuter Brynjar Björn var góður gegn Malmö Brynjar Bjöm Gunnarsson átti góðan leik með Örgryte gegn Malmö í sænsku A-deildinni i knattspyrnu í gærkvöld. Lokatölur mðu 1-1 og átti Brynjar þátt i marki Örgryte. Sverrir Sverrisson lék allan leikinn fyrir Malmö og stóð sig vel. Hammarby vann Elfsborg, 2-1, og var Haraldi Ingólfs syni skipt út af á 65. mín. Þórður Þórðarson var ekki í marki Norrköping sem vann Halmstad, 4-0. Örebro tapaði gegn Frölunda, 0-1. -SK/- inni í borðtennis á laugar- daginn. Hann lék tvo leiki, vann annan sem var gegn fjórða besta manni Dana, en tapaði hinum. Virum var danskur meistari fyrir tveimur árum. Guömundur var síðan mættur á fyrsta stigamót tímabilsins sem haldið var í TBR-húsinu á sunnudag- inn og þar sigraði hann Kristjún Jónasson, félaga sinn úr Víkingi, af öryggi i úrslitaleik, 21-14 og 21-11. Markús Árnason og Bjarni Bjarnason uröu í 3.4. sæti. Tryggvi Áki Pétursson sigraði í 1. ílokki, Tryggvi Rós- mundsson í 2. flokki og Gisli Antonsson í eldri flokki en allir þessir koma úr Víkingi. Brynjar Valdimarsson sigraði Sumarliöa Gúst- afssoti, 5-2, í úrslitaleik í meistaraflokki á fyrsta stigamóti vetrarins i snóker sem fram fór á sunnudaginn. Þeir Ásgeir Ásgeirsson og Magnús Jó- hannesson urðu í 3.4. sæti. Jóhannes R. Jó- hannesson sigraði í 1. flokki og Börkur Sigurös- son í 2. flokki. Arnar Grétarsson lék síð- ustu 25 mínúturnar með AEK þegar liðið tapaði, 1-2, fyrir Panathinaikos í 2. umferð grísku A-deildar- innar i knattspymu í fyrra- kvöld. Helgi Sigurösson var ekki í liði Panathinaikos, sem er með 6 stig á toppnum ásamt Olympiakos og Et- hnikos Asteras. Rosenborg sigraði Trom- sö, 2-1, í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspymu á sunnudag- inn. Tryggvi Guömunds- son lék fyrri hálfleikinn með Tromsö en Árni Gaut- ur Arason var ekki i markinu hjá Rosen- borg, sem mætir Molde eða Brann í úr- slitaleikn- Þrjú rauð Kevin Campbell tryggði Everton sætan sigur gegn erkifiendunum í Liverpool í ensku A-deildinni í knattspymu gærkvöldi. Campbell skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu. Leikmenn Everton börð- ust eins og grenjandi ljón allan tímann og tókst heimamönnum ekki að finna glufur á sterkri vöm gestanna. Spennustigið var hátt hjá leikmönnum beggja liða og það kom ekki á óvart þegar upp úr sauð und- ir lokin. Sander Westerveld, markvörður Liverpool, og hinn ungi Francis Jeffers lentu í slagsmálum á 74. mínútu og fengu að launum rautt spjald og rétt fyrir leikslok fauk Steven Gerard út af fyrir að brjóta mjög illa á Campbell. Everton hefur komið á óvart í upphafi leiktíðar og er í 5.-7. sæti með 16 stig en Liverpool er í 13.-14. sæti með 10 stig. -GH Sander Westerfeld, markvörður Liverpool, og Francis Jeffers í liði Everton slást á Anfield í gærkvöld. Reuter Leist vel á Ulleström Knattspymumaðurinn Grétar Ólafur Hjartarson, sem sló í gegn með Grindavíkurlið- inu í sumar, kom frá Noregi í gær en þar var hann að skoða aðstæður hjá norska A- deildarliðinu Lilleström. Grétar kom heim með tilboð í farteskinu en norska félag- ið vill gera við hann fiögurra ára samning. „Ég ætla að gefa mér tima til að skoða tilboöið vel. Mér leist mjög vel á klúbbinn og finnst þetta spennandi kostur en ég vil þó frekar semja ti' þriggja ára. Ég myndi segja að líkurnar væru meiri heldur en minn; að ég taki tilboðinu," sagði Grétar í samtali við DV í gær. Það er fleira sem hangir á spýtunni hjá Grétari. Sænska A-deildarlið ið Trelleborg hefur sett sig í samband við Sandgerðinginn og eitt enskt A-deildarlið er með hann í sigtinu. Þá hafe borist fyrirspurnir frá enskum B- og C-deildarliðum. Grétar er 21 árs gamall. Hann hefur tvö undanfar- in ár leikið með Grindavík í úrvalsdeildinni en fram að því lék hann með Reyni úr Sandgerði, auk þess sem hann lék um tíma með skoska B-deildarliðinu Sterling Albion -GH Siggi brotinn? - verður sendur í frekari rannsókn Sigurður Jónsson, landsliðsfyrirliði í knatt- spymu, er að öllum líkindum með brotið bein í fæti eftir að hann meiddist í leik með Dundee United gegn Hearts í skosku A-deildinni í knattspymu á laugardaginn. Sigurður var borinn af velli á 72. mínútu og óttast var í fyrstu að um mjög alvarleg meiðsli væri að ræða, jafnvel slitna hásin. Svo reyndist ekki vera, en bein við tá virðist vera í sundur. Hann verður sendur í frekari rannsókn og það á að skýrast síðar i vikunni hversu alvarleg meiðslin eru og hve lengi hann verður frá keppni. Dundee United á ekki leik fyrr en þann 12. október, þannig að næsti leikur Sigurðar ætti að vera landsleikurinn mikilvægi gegn Frökk- um í París þann 9. október. Miðað við stöðu mála virðist ólíklegt að hann verði leikfær og það er mikið áfall fyrir íslenska landsliðið, ekki síst vegna þess að Eyjólfur Sverrissón verður væntanlega einnig fiarri góðu gamni. -VS Fýlgst er með Hemma - Wimbledon og Tottenham með landsliðsmanninn í sigtinu Bland í noka Tvö félög úr ensku A- deildinni í knattspymu, Wimbledon og Tottenham, hafa augastað á íslenska landsliðsmannin- um Hermanni Hreiðarssyni sem leikur með Brentford i C-deildinni. George Graham, framk væmdastj óri Tottenham, og Sam Hammam, eigandi Wimbledon, voru mættir á leik Brentford við Preston á laugar- ! daginn til að fylgj- ast með Her- manni. Á fréttavefnum Teamtalk var í gær sagt að Helgi Kolviösson og félagar í Mainz unnu sinn fyrsta leik í þýsku B-deildinni á tímabilinu þegar þeir iögðu Hannover, 1-0, um helgina. Helgi lék allan leikinn i vörn Mainz sem komst upp í 12. sætið með 6 stig en á toppnum eru Númberg og Aachen meö 13 stig. Eiður Smári Guöjohnsen fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína með Bolton í 3-2 sigrinum á Nottingham Forest í ensku B-deildinni i knattspyrnu á laugardaginn. Eiður krækti í vítaspyrnu sem Bolton jafnaði úr, 2-2, og átti síðan þátt í sigur- markinu á lokamínútunni sem Neil Cox skoraði. Lúrus Orri Sigurösson, landsliösmaður í knattspymu, meiddist í leik WBA við Crystal Palace i ensku B-deildinni á laug- ardaginn. Hann lék þó leikinn á enda og talið er að hann verði leikfær um næstu helgi. Kári Gunnlaugsson er hættur störfum sem knattspymudómari en lokaverkefni hans var bikarúrslitaleikur KR og ÍA á sunnudag þar sem hann var aðstoðar- dómari. Kári hefur verið alþjóðlegur að- stoðardómari undanfarin ár en þar er aldurshámarkið 45 ár og hann nær því siðar á þessu ári. Meistarakeppni KKÍ í karlaflokki fer fram i kvöld. Þá mætast í Keflavík heima- menn og Njarðvík. Leikurinn hefst klukkan 20 og rennur aliur ágóði af leikn- um til LAUF, Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki. Kjartan Guöjónsson og Sigriöur Sig- uróardóttir, GKG, sigruðu í hjónakeppni Samvinnumferða-Landsýnar í golfl sem haldin var á Spáni á dögunum. Þau léku á 59 höggum. Leifur Gunnarsson og Ingibjörg Sigursteinsdóttir, GV, komu næst á 60 höggum og Gunnlaugur Ósk- arsson og Lovísa Hermannsdóttir, GSE, léku á 63 höggum. Þá var haldiö punktamót SL f karla- flokki og sigraði Kjartan Guöjónsson, GKG, með 31 punkt, Guðmar Sigurös- son, GSE, kom næstur með 30 og Jón Björnsson, GO, þriðji með 23 punkta. f * . kvennaflokki sigraði Sigríöur Siguróar- dóttir, GKG, með 34 punkta. Ester Krist- jánsdóttir, GV, kom næst með 29 punkta og Jólianna Sveinsdóttir, GSE, þriðja með 26 punkta. í nýliðaflokki sigraði Ólafur Pálsson, GÚ, með 30 punkta. Brentford vildi fá í kringum 200 milljónir króna fyrir Hermann en félagið keypti hann frá Crystal Palace fyr- ir ári fyrir 90 milljónir króna. Hann er dýrasti leik- maður í sögu Brentford og var jafnframt dýrasti leik- maður í ensku D-deildinni í fyrra. Hermann var á dögunum valinn besti leikmaður C- deildar á fyrstu vikum tíma- bilsins en hann er langstiga- hæstur í einkunnagjöf nefndar á vegum Carling, styrktaraðila neðri deild- anna í Englandi. Hann hefur þegar skoraö tvívegis fyrir Brentford í deildinni á þessu tímabili en liðið hefur byrj- að mjög vel og hefur ekki tapað leik til þessa. -VS Wimbledon hyggst mót- mæla brottvísun Johns Hartsons í leik liðsins við Tottenham á sunnudag. Hann var rekinn af velli með sitt annað gula spjald, fyrir meint olnbogaskot þegar hann stökk upp til að skalla. Á upptökum frá leiknum er ekkert athugavert að sjá og Wimbledonmenn vilja að spjaldið verði ekki talið með. Jim Smith, framkvæmda- stjóri Derby, vill kaupa ítalann Benito Carbone frá Sheffleld Wednesday. Steve Bruce, framkvæmda- stjóri Huddersfield, hefur ákveöið að leggja skóna á hilluna og stjórna liði sínu frá hliðarlínunni. Steve Bruce, sem lék lengi með Manchester Vnited, er 38 ára og hefur spilað 937 leiki á farsælum ferli. „Ég var valinn lélegasti leikmaðurinn á æfingu um daginn og þá sá ég að það væri tími kominn til að hætta,“ sagði Bruce. Alex Manninger, mark- vörður Arsenal, meiddist á úlnlið I leik liðsins við Watford á laugardag. Það bendir því allt til þess að David Seaman fái stööuna á ný þegar liðið mætir Barcelona í meistaradeild- inni annað kvöld. Það kom i hlut varnar- mannsins Steve Stuntons að taka við hlutverki Westervelds í marki Liver- pool þegar markvörðurinn var rekinn af leikvelli. -VS/-SK Auður áfram í Stjörnunni Auður Skúladóttir verður áfram þjálfari og leikmaður kvenna- liðs Stjömunnar í knattspymu. Frá þessu var gengið í gærkvöld. Jörundur Áki Sveins- son veröur áfram þjálf- ari Breiðabliks og Rakel Ögmundsdóttir og Margrét Ólafsdóttir leika áfram með Blik- unum. -SK/-ih Þorvaldur næsti þjálfari KA-manna? Við höfum á undaníornum dögum verið í viö- raoðiuri við Þorvald Örlygsson og ég er bara nokkuð bjartsýnn á að hann verði næsti þjálfari félagsins. Það er stefnt að því að gera við hann tveggja ára samning. Von- andi verður gengið frá þessu máli í vik- unni,“ sagði Stefán Gunnlaugsson, for- maður knattspyrnudeildar KA, í samtali við DV í gærkvöld. Stefán sagði að ef þetta gengi allt saman eftir myndi Þor- í valdur að öllum líkindum verða spilandi þjálfari. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.