Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 9 Utlönd Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama afsláttur af annarri auglýsingunni. o\\t mil/í him, "Os Smáauglýsingar 550 5000 Chile varar við ólgu deyi Pino- chet erlendis Stjórnvöld í Chile segja að deyi Augusto Pinochet, fyrrum ein- ræðisherra, í útlöndum geti það valdið mikilli pólitískri ólgu heima fyrir. Réttarhöld hófust í London í gær um hvort framselja heri hinn 83 ára gamla Pinochet til Spánar svo hann geti svarað til saka fyrir glæpi sem framdir voru í stjórnartíð hans. Réttarhöldun- um verður haldið áfram í dag. Óeirðir brutust út í Chile í fyrrahaust eftir að Pinochet hafði verið handtekinn í London. Stjórnvöld í Chile hafa farið fram á lausn harðstjórans fyrr- verandi og höfða til hás aldurs hans og meints heilsubrests. Breska stjómin hefur hins vegar ítrekað að málið sé í höndum dómstólanna. Viö upphaf málflutningsins í gær voru pyntingarákærur á hendur Pinochet lesnar upp og var það ófogur lesning. Lögmaður spænskra yfirvalda sem vilja fá Pinochet sagði að pólitískir fang- ar Pinochets hefðu verið lamdir með spýtum, fengið rafstuð í kyn- færin, verið kaffærðir, yflrheyrð- ir naktir og bitnir af hundum, svo eitthvað sé týnt til. Naína Jeltsín ver Æ fleiri Færey- ingar stúdera í Danmörku Færeyskum nemendum hefur fjölgað mjög í dönskum skólum, að því er fram kemur í fréttabréfi danska menntamálaráðuneytis- ins. Á síðastliðnum tólf árum hef- ur fjöldi færeyskra nemenda tvö- faldast. Ástæðan mun að ein- hverju leyti vera efnahagskrepp- an í Færeyjum í byrjun áratugar- ins þegar margir flýðu land. Islenska leit.is leitarvélin á Netinu bónda sinn og dóttur Naína Jeltsín, eiginkona Borís Jeltsíns Rússlandsforseta, vísar á bug ásökunum um að fjölskylda hennar hafi þegið mútur eins og ný- lega hefur verið haldið fram í fjöl- miðlum. Forsetafrúin sagði jafn- framt í sjónvarpsviðtali um helgina að barnabörn hennar hefðu orðið leið vegna ásakananna. Samkvæmt frásögnum ýmissa fjöl- miðla hefur yngri dóttir Jeltsínhjón- anna, Tatjana Djatsjenko, þegið mút- in frá svissnesku byggingarfyrir- tæki sem fékk það verkefni að gera endurbætur á byggingum í Kreml. „Það særði mig mikið að heyra þessar sögur um hana,“ sagði Naína Jeltsín í viðtali við rússnesku sjón- varpsstöðina ORT. Auk Tatjönu hafa aðrir starfs- menn rússneska forsetans verið bendlaðir við mútuhneykslið. Yfir- völd í Kreml hafa hins vegar vísað því á bug að forsetinn, fjölskylda hans og starfsmenn hafi verið viðriðnir mútumálið. „Dótturdóttir mín hefur spurt mig áhyggjufull að því hverju hún eigi að svara í skólanum. Ég hef sagt henni að hún viti að við eigum hvorki glæsihús né lystisnekkjur erlendis," sagði forsetafrúin. Tatjana, dóttir forsetahjónanna, er sögð hafa keypt sér höll í Þýska- landi. Auk ásakana um mútuþægni eru hún og eiginmaður hennar einnig talin viðriðin peningaþvott í Bandaríkjunum. Rússneska mafían er sögð hafa leiðbeint um peningaþvottinn. Þetta er i fyrsta sinn sem einhver í fjölskyldu Borís Jeltsíns tjáir sig um fregnir fjölmiðla af meintri spillingu forsetafjölskyldunnar. Naína er tiltölulega vel liðin meðal almennings í Rússlandi. Vinsældir Naína lagar skyrtuna á Borís bónda sínum í bústað þeirra við Moskvu. forsetans hafa hins vegar dalað Símamynd Reuter mikið. í sjónvarpsviðtalinu kvartaði Naína yfir því að eiginmaður henn- ar og börn hefðu verið dregin niður í svaðið. Rúmlega fimmtíu manns létu lífið í fjórum sprengingum í borginni Celaya í Mexíkó á sunnudag. Stjórnvöld hafa handtekið fjóra menn og fjórir opinberir starfsmenn hafa verið kvaddir til að bera vitni í málinu. Fyrsta sprengingin varð í ólöglegri flugeldageymslu en sú næsta á veitingahúsi þar sem eldur komst í gaskút. Tripp stefnir Hvíta húsinu Linda Tripp, ritarinn sem hafði næstum komið því til leiðar að Bill Clinton Bandaríkjaforseti missti embætti sitt, stefndi í gær Hvíta húsinu. Fullyrðir Linda Tripp að starfsmenn Hvíta hússins hafi notað leyniskjöl til að ófrægja hana eftir að hún hafði upplýst um samband Clintons og Monicu Lewinsky, fyrr- verandi lærlings í Hvíta húsinu. í stefnunni eru ellefu manns í Hvíta húsinu nafngreindir, þar á meðal Hillary Clinton forsetafrú. Er forsetafrúin sökuð um að hafa dreift út óhróðri um Tripp í kjölfar upp- ljóstrananna. Linda Tripp stefnir einnig bandaríska varnarmálaráðu- neytinu þar sem hún starfaði. Sakar hún ráðuneytið um að hafa veitt persónulegar upplýsingar um hana, meðal annars ákæru um þjófnað írá því að hún var ung. Tripp stefnir Hvíta húsinu. Símamynd Reuter Aldraðir breskir ferðalangar deyja i rútuslysi Tuttugu og sjö aldraöir breskir ferðalangar týndu lifi í rútuslysi í Suður-Afríku í gær. Á sjö dögum hafa þá 59 manns látist í rútuslys- um. Suður-afrísk stjómvöld og skipuleggjendur hópferða hafa af því töluverðar áhyggjur. Rúta Bretanna, sem í voru 34 ferðamenn, fór út af veginum í norðausturhluta Suður-Afríku og rifnaði þakið af henni í látunum. Tuttugu og þrír létu samstundis lífið. Fjórir létust síðar af sárum sínum og tveir eru þungt haldnir. Draumurinn um gos til bjargar Löngunin í gosdrykki varð til þess að tveir bræður á Taívan misstu ekki kjarkinn á meðan þeir höfðust við í 5 daga í húsa- rústum eftir skjálftann mikla í fyrri viku. Bræðrunum var bjarg- að um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.