Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 41 * Myndasögur Veiðivon Min skoðun er -sú að EKKERT meðlæti þurfi með GÓÐRI I STEIK! } íaÍM I) \ 'mih. 1 / / BUILS • rH e e s Þeir eru vígalegir við Hvolsá í Dölum, Örn Hafsteinsson, Guðmundur Örn Guðmundsson og Ægir Már Kárason. Veiði lýkur í henni næsta föstudag. DV-mynd G. Bender Hvolsá og Staöarhólsá: 15 laxar 1110 bleikjur - fréttir úr Dölunum „Noblerinn hefur verið sterkur í bleikjunni í sumar hérna fyrir vest- an og þá sérstaklega sá svarti. Ég hef veitt mikið af bleikju á þá £lugu,“ sagði Sigurdór Sigurdórsson en hann var við veiðar í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum um helgina. Veiði lýkur í ánum á fóstudaginn en veiðimenn sem voru í gær við veið- ar voru búnir að fá nokkrar bleikj- ur og sumar þeirra vænar. Umsjón Gunnar Bender Ámar hafa gefið 15 laxa og voru tveir þeir stærstu 12 punda. Klapp- aríljótið hefur gefið helminginn af þessum 15 löxum. Bleikjurnar vora 1110 og voru þær stærstu 5 pund. Flugan hefur verið sterk í silungn- um en best hafa gefíð Ármótahylur og Húshylur. 944 laxar veiddust í Laxá í Dölum Við skulum aðeins líta á lokatöl- ur úr nokkrum veiðiám í Dölunum í viðbót og renna í laxveiðiámar þar. Veiði er lokið í Laxá í Dölum og veiddu síðustu veiðimennirnir 36 laxa. „Við vorum þarna undir það síð- asta og hollið fékk 36 laxa. Hann var 14 pund hjá okkur sá stærsti. Lax- inn var mjög dreifður um ána,“ sagði Girnnar Bjömsson en hann var einn af þeim sem var i þessu holli í Laxá í Dölum. „Mér fannst áberandi hvað við sáum mikið af ekki mjög legnum fiski,“ sagði Gunnar enn fremur. Lokatölur úr Laxá vom 944 laxar og hann er líklega 18 pund sá stærsti. Menn eru ekki búnir að lesa sig í gegnum veiðibókina en vegna nýs fyrirkomulags í veiðibók- um getur verið erfitt að sjá hvaða lax er stærstur. 145 laxar á þurrt í Fáskrúð „Við vorum að loka Fáskrúð í » Dölum og lokatölur vom 145 laxar. Vð fengum einn lax þegar við hætt- um. Það var ekki mikið af fiski í ánni,“ sagði Eiríkur St. Eiríksson og bætti við: Þeir stærstu sem veiddust voru þrír 13 punda en það er mikið af seiðum víða um ána og þau eiga eftir að skila sér seinna," sagði Eiríkur í lokin. Haukadalsá í Dölum endaði í 674 löxum og Flekkudalsá í 132 löxum. -------^---------------- jjrval - 960 síður á ári - fróðleikur og skemmtun sem lifir mánuðum og árumsaman Blaðbera vantar I Fákafen - Faxafen - Skeifuna Laugaveg - Bankastræti. Upplýsingar á afgreiðslu DV W 1 í síma 550 5000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.