Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1999, Blaðsíða 32
M
*
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
Dorrit Moussaieff átti erfiðar stundir er hún beið með forsetanum eftir aðstoð í Landsveit í gær. Biðin var Iðng og tár blikaði á kinn í Ijósaskiptunum. Komið var með forsetann í þyrlu á Sjúkrahús
■Reykjavíkur um háiftíuleytið i gærkvöld og fylgdi Dorrit fast á eftir í fylgd forsetabílstjórans.
DV-myndir GVA og Pjetur.
Líðan eftir atvikum:
Átta bak við rimla í stóra fíkniefnamálinu:
Hafnardeildin
handtekin
Dorrit nær
dottin
- reið óbeisluðu
Líðan forseta íslands er eftir atvik-
um eftir að hann axlarbrotnaði við að
falla af hestbaki í útreiðartúr við
Leirubakka í
Landsveit um
kvöldmatar-
leytið í gær.
Minnstu mun-
aði að Dorrit
Moussaieff, vin- Brotin gleraugu
kona hans, féUi Dorrit- DV-mynd GVA
einnig af baki
er hún reið óbeisluðu hrossi á stökki
berbakt i gerði. Forsetinn og Dorrit
voru að strjúka hrossi í gerðinu þegar
Dorrit skellti sér á bak með þeim af-
leiðingum að hrossið stökk af stað og
stöðvaði ekki fyrr en í stóði allfjarri.
Um tíma var Dorrit runnin niður á
síðu hestsins en tókst að rétta sig af.
Sýndi vinkona forsetans þar að hún
er ekki óvön hrossum en hún missti
gleraugu sín sem brotnuðu.
Læknar bæklunardeildar Sjúkra-
húss Reykjavikur sátu á fundi í morg-
un þar sem röntgenmyndir af axlar-
«4 broti forsetans voru til skoðunar.
Sjá nánar „Dorrit felldi tár... “ á bls. 2.
-EIR
Herbjörn Sigmarsson, 35 ára, og
Gunnlaugur Ingibergsson, 27 ára,
sem eftirlýstir voru um alla Evr-
ópu vegna gruns um aðild að stóra
fíkniefnamálinu, voru teknir
höndum á götu i Kaupmannahöfn
síðdegis í sunnudag. Tvímenning-
arnir, sem höfðu verið eftirlýstir
síðan 11. september sl. eða í fimmt-
án daga þegar þeir voru handtekn-
ir, voru leiddir fyrir dómara í
Danmörku í gærmorgun og úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald uns
krafa íslenskra yflrvalda um fram-
sal verður til lykta leidd. Hvorug-
ur mannanna mun hafa mótmælt
framsalskröfunni og verða þeir
því fluttir heim eins fljótt og unnt
er. Hefur DV heimildir fyrir því að
Herbjörn verði fluttur til landsins
i kvöld.
Veittu ekki mótspyrnu
Sigurgeir Sigmundsson hjá al-
þjóðadeild rikislögreglustjóra sagði
við DV í gær að tvímenningamir
hefðu verið handteknir úti á götu í
miðborg Kaupmannahafnar en sag-
ist ekki geta lýst kringumstæðum
nánar. Þó virðist ljós að Herbjöm
og Gunnlaugur veittu ekki mót-
spymu við handtökuna og þess má
geta að þeir vora ekki handteknir
við Aðaljámbrautarstöðina.
Eins og fram kom í DV á dögun-
um hermdu heimildir að Herbjöm
og Gunnlaugur, sem starfaði hjá
Samskipum í Kaupmannahöfn,
hefðu yfirgeflð Danmörku og haldið
suður á bóginn eftir að sjö kílóa
hasssending sú sem þeir er gmnað-
ir um að hafa komið fyrir í gámi á
leið til Islands fannst við leit toll-
gæslu og lögreglu. Tveir menn frá
íslensku lögreglunni héldu til Kaup-
mannahafnar mánudaginn 13. sept-
ember og leituðu í borginni ásaunt
dönskum kollegum sínum að mönn-
unum tveimur fram til fostudagsins
18. september en án árangurs. Ekki
liggur fyrir hvar mennimir hafa
dvalið á meðan leitin að þeim stóð
yfir.
Alls sitja nú átta manns í gæslu-
varðhaldi grunaðir um aðild að
stóra flkniefnamálinu.
-GAR
Sj ávarútvegarisi:
Gunnar Orn
verður forstjóri
Gunnar Örn Kristjánsson, for-
stjóri SÍF, verður einn forstjóri hins
nýja sjávarútvegsrisa sem verður til
við samruna
Sambands ís-
lenskra fiskfram-
leiðenda og ís-
lenskra sjávaraf-
urða. í gærkvöld
náðu viðræðu-
nefndir ÍS og SÍF
samkomulagi um
samrana. ÍS
rennur inn i SÍF
sem ræður um
tveimur þriðju í hina nýja fyrirtæki
sem verður stærsta útflutningsfyrir-
tæki íslendinga. Samruni undir
þessum formerkjum er túlkaður sem
sigur fyrir Friðrik Pálsson, stjórnar-
formann SÍF. Friðrik, sem áður var
forstjóri SH, glímdi um árabil við
stjómendur ÍS og var ýmsum brögð-
um beitt í þeim slag.
Mikil hækkun hefur orðið á hluta-
bréfum ÍS síðan i ágúst þegar gengi
þeirra var 1,55. Þann 24. september
var gengið 2,44 sem bendir til þess
að um innherjaviðskipti hafi verið
að ræða vegna áforma um samruna.
-rt
Gunnar Örn
Kristjánsson.
Veðrið á morgun:
Þurrt og
bjart fyrir
austan
Á morgun verður suðvestanátt,
8-13 m/s og rigning með köflum,
en þurrt og fremur bjart veður
austanlands framan af degi. Hiti
yfirleitt á bilinu 3 til 8 stig.
Veörið í dag er á bls. 45.
reyklaust
flug
með Nicotinell
.UTIBU
I APOTEK
.ISUÐURHESJA
MERKILEGA MERKIVÉLIN
brother PT-igQa.
Islenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar i tvær línur
Verð kr. 6.603
H
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443