Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1999, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1999 19 Fréttir „Barnagámurinn“ fékk grænt ljós í bæjarstjórn Akureyrar: Tel að flokksforust- an hafi kippt í spotta - segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi sem greiddi einn atkvæði gegn gámnum DV, Akureyri: „Gámurinn er auðvitað kominn með stöðuleyfi, fyrir þvi er sam- þykkt bæjarstjórnar. Það sem ég vil hins vegar fá fram í dagsljósið til skoðunar er málsmeöferðin sem slík. Ég uni ekki þessari málsmeð- ferð,“ segir Oddur Helgi Halldórs- son, bæjarfulltrúi á Akureyri, í kjöl- far þeirrar ákvörðunar bæjarstjórn- ar að heimila notkun gáms sem inn- réttaður hefur verið fyrir bama- gæslu við líkamsræktarstöðina World Class við Strandgötu. Þótt þetta gámamál geti sem slíkt varla talist til stórmála hefur það veriö eitt „heitasta" málið í bæjar- kerfmu á Akureyri að undanfómu. Það hófst þannig að bygginganefnd samþykkti leyfi fyrir notkun gáms- ins en þegar málið kom fyrir bæjar- stjórn bar Oddur Helgi upp tillögu um að vísa málinu frá. Sú tillaga var samþykkt með 4 atkvæðum gegn tveimur, fimm sátu hjá. Þeir bygginganefnd sem samþykkti að nýju að heimila notkun gámsins við líkamsræktarstöðina. Málið fór svo að nýju fyrir bæjarstjórn nú í vik- unni og var þar samþykkt með 10 atkvæðum gegn atkvæði Odds Helga að heimila notkun gámsins. „Ég á ansi erfitt með að sætta mig við þennan framgangsmáta, eins og það að bygginganefnd taki fram fyr- ir hendur kjörinna bæjarfulltrúa og samþykkt þeirra í bæjarstjórn. Ég tel líka að eftir fyrri samþykkt bæj- arstjómar í þessu máli hafi ein- hverjir í forustu Sjálfstæðisflokks- ins kippt í spotta og málið þannig farið í gang að nýju. Ég kem til með að afla mér frekari upplýsinga og sé svo til hvort ég sný mér til félags- málaráðuneytisins varðandi með- ferð þessa máls. Það er hún sem ég er ósáttur við. Ég sætti mig við stöðuleyfíð fyrir gáminn úr því aö meirihluti reyndist fyrir þvi i bæj- arstjórn þegar málið kom þangað öðm sinni,“ segir Oddur Helgi. -gk Oddur Helgi Halldórsson: „Uni ekki þessari málsmeðferð." DV-mynd gk bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks. Þremur dögum eftir fund bæjar- stjórnar var haldinn skyndifundur í sem greiddu tillögu Odds um frávís- arlistanum, Friðrik Sigþórsson, un atkvæði utan hans sjálfs voru varabæjarfulltrúi Framsóknar- Oktavía Jóhannesdóttir af Akureyr- flokksins, og Kristján Þór Júlíusson „Barnagámurinn" margumdeildi á Akureyri. DV-mynd gk Blöndun á staön- um vaknar aö nýju DV, Vesturlandi: Framkvæmdir við 6,8 kílómetra langan kafla frá Borgarfjai'ðarbrú og meðfram Hafnarfjalli hafa vakið talverða athygli. Þar hefur flokkur frá Borgarverki ehf. í Borgarnesi verið að fræsa veginn og leggja á hann nýtt slitlag.Hafa margir öku- menn lent í hremmingum vegna þessara vegaframkvæmda. Vegurinn við Hafnarfjall var orð- inn gamall og slitinn, byggður upp fyrir 1980, og því ekki vanþörf á að laga hann. Sú aðferð sem notuð er núna, blöndun á staðnum, hefur ekki verið reynd síðan 1988. Á næsta ári á svo að halda áfram og lagfæra kafl- ann að Akranesvegamótum. „Stærðar fræsari fræsir veginn niður á 15 sentímetra dýpi. Vegur- inn hefur bælst og efsta burðarlagið er að verða ansi fínefnaríkt. Við þessa fræsingu er dælt heitu biki sem blandast saman við örlítið af vatni og við það að kalt vatnið og heitt bikið blandast verður það að froðu og hrærist saman við efnið sem er fræst upp. Þannig verður þetta efni bikblandað og það verður til þess að fínefnin sem eru í þessu hætta aö virka, þau eru fest ef svo má segja, þetta verður einn sam- felldur massi,“ sagði Birgir Guð- mundsson, umdæmisstjóri Vega- gerðarinnar í Borgarnesi, þegar DV ræddi við hann. í kringum 1970 var Sverrir Run- ólfsson vegagerðarmaður með hug- myndir um aðferð sem hann kallaði einmitt „blöndum á staðnum", am- eríska aðferð sem hann kunni. Vöktu tilraunir hans gífurlega at- hygli. Birgir segir að þessi „blöndun á staðnum" sé í raun ósköp svipuð. Meining Sverris var að láta sement binda fínefnin þannig að úr yrði harður massi en telur það hafa ver- ið misskilning hjá Sverri á þeim tíma að hann reyndi að binda sem- ent við nánast hvað sem var og það mistókst. -DVÓ Fjárlagafrumvarp: Þaö er engin þensla úti á landi Einar Oddur Kristjánsson, D- lista, segir að í fjárlagafrumvarp- inu sé verið að reyna að hamla gegn þenslu. „Við höfum þó verið að beina sjónum manna að því að það sé engin þensla úti á landi, því verði að draga úr framkvæmdun- um á höfðuborgar- svæðinu. Það er samt ekki verið að hætta viö neinar framkvæmdir held- ur aðeins verið að fresta þeim. Við eigum auðvit Einar Oddur Kristjánsson. að að vera hræddir við verðbólg- núll,“ segir una og hún er allt of mikil eins og jánsson. hún er í dag. Hitt er þó annað að það er sitthvað að vera hræddur og láta óttann ná tökum á sér. Menn eru örugg- lega á réttu róli og ég tel þetta varfæm- islegt fmmvarp. Það er t.d. gert ráð fyrir mjög mikilli minnk- un á hagvexti. Við erum að reyna að koma skuldunum undir lok næsta árs í 30% af vergri lands- framleiðslu. Það er hins vegar ekkert gott fyrr en þær eru komnar niður í Einar Oddur Krist- -H.Kr Læknar heita vatnið í Hólminum psoriasis? Vilja markaössetja heitt vatn - bæjarfulltrúar segja fjölda manns hafa fengið bót meina sinna DV, Vesturlandi: Tillögu þeirra Erlings Garðars Jónssonar, Davíðs Sveinssonar og Aðalsteins Þorsteinssonar í bæjar- ráði Stykkishólms um að hefja und- irbúning að markaðssetningu á heita vatninu á Hofsstöðum var ný- lega vísað til bæjarstjórnar Stykkis- hólms. Tillagan hljóðaði þannig: „Við of- anritaðir bæjarfulltrúar leggjum til að nú þegar verði hafist handa um markaðssetningu heita vatnsins með tilliti til þeirra steinefna og salta sem Hofsstaðavatnið inniheld- ur. Ljóst er orðið að fjöldi manns telur sig fá bót á ýmiss konar húð- meinum, og þá sérstaklega psorias- is. Þess vegna þykir rétt með til- komu sundlaugarinnar að finna leiðir til að koma á framfæri upplýs- ingum um gæði þessa vatns og sundlaugarinnar sem koma til mós við þarfir þessa fólks.Til þessa verks þarf að fá markaðssérfræð- inga og sérfræðing Orkustofnunar um heilsuvatn, Hrefnu Kristmanns- dóttur. Samráð skal haft við sjúkra- húsið, hótelið og aðra ferðamálaað- ila og auk þess ferðamálafulltrúa Vesturlands til undirbúnings- vinnu.“ -DVÓ Víkingasveit kölluð út: !,eigubílstjóra ógnaö - byssan reyndist kveikjari Rögnvaldur Eiríksson. DV-mynd S „Ég fór út úr bílnum og áður en ég vissi af var miðað á mig byssu,“ segir Rögnvaldur Eiriksson, leigu- bílstjóri á Bæjarleiðum, sem varð fyrir árás í Reykjavík. Farþegar Rögnvalds neituðu að borga gjaldið og steig hann þá út úr bílnum og elti þá. Hann vissi ekki fyrr en miðað var á hann byssu. At- burðurinn átti sér stað á horni Bald- ursgötu og Freyjugötu. Víkingasveit lögreglunnar mætti á staðinn og vígbjóst en eftir að hafa verið afhent vopnið kom í ljós að þetta var ekki annað en kveikjarabyssa. Rögnvaldur fékk þessar upplýs- ingar hjá varðstjóra nokkrum tím- um síðar. Þetta er nær daglegt brauð að viðskiptavinir leigubíl- stjóra svíkist um gjaldið en eins og Rögnvaldur sagði „maður lætur ekki skjóta sig fyrir 1600 krónur!“ Farþegarnir voru góðkunningjar lögreglunnar. -hól

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.