Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1999, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999
9
Stuttar fréttir i>v
Samráð olíufélaga
Færeysku olíufélögin Shell og
Statoil hafa haft ólöglegt verðsam-
ráð og ber að hætta því. Þetta er
niðurstaða skoðunar færeysku
samkeppnisstofnunarinnar á
verðlagningu olíufélaganna. Shell
hefur kært úrskurðinn.
Landnemana burt
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, hefur ákveðið að uppræta
fimmtán ólög-
legar landnema-
byggðir gyðinga
á Vesturbakk-
anum. Tuttugu
og sjö land-
nemabyggðum
verður hins
vegar leyft að
vera áfram þar sem þær eru, að
sögn háttsetts embættismanns á
skrifstofu forsætisráðherrans.
Reiði hjá SÞ
Ráðamenn hjá Sameinuðu þjóð-
unum lýstu yfir reiði sinni og
hneykslan í gær vegna morðsins
á starfsmanni samtakanna. Mað-
urinn, 38 ára Búlgari, vann sér
það eitt til saka, að því er virðist,
að segja eina setningu á serb-
nesku á götu i Pristina í Kosovo.
Bók Oskars selst vel
Bók eftir Oskar Lafontaine,
fyrram leiðtoga þýskra jafnaðar-
manna, selst nú eins og heitar
lummur. í bókinni ræðst La-
fontaine meðal annars að
Schröder kanslara.
Engar vísbendingar
Talsmaður SÞ á Austur-Tímor
segir að ekki hafl fundist neinar
vísbendingar um að vígasveitir
sambandssinna hafi framið
grimmileg fjöldamorð, eins og
staðhæft hefur verið.
Hague í hægribeygju
WUliam Hague, leiðtogi breska
íhaldsflokksins, fékk á baukinn
frá tveimur fyrrum þungavigtar-
mönnum í
flokknum, þeim
John Major og
Chris Patten.
Þeir sögðu að
Hague og flokk-
urinn hefðu
tekið hættulega
hægribeygju í
Evrópumálunum.
Full yfirráö
Igor Sergejev, varnarmálaráð-
herra Rússlands, tilkynnti í gær
að markmið Rússa væri að ná
fullum yfirráðum yfir Tsjetsjeníu.
11 ára í varðhald
11 ára drengur hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í
Colorado í Bandarikjunum. Ná-
grannakona kærði drenginn fyrir
kynferðislega misnotkun á 5 ára
systur hans.
Sjálfstæðisyfirlýsing
Þingið í Abkazíu lýsti í gær yf-
ir sjálfstæði. Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna segir niðurstöðu
þjóöaratkvæðagreiðslunnar frá 3.
október ólöglega.
Útilokar Þjóðarflokkinn
Poul Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, sagði í
gær að Þjóðarflokknum yrði ekki
boðin þáttaka í
samningavið-
ræðum um fjár-
lagagerð.
Ástæðan er yfir-
lýsing Piu
Kjærsgaard,
leiðtoga Þjóðar-
flokksins, um
að vísa eigi úr landi fjölskyldum
nýbúa sem gerast sekir um ítrek-
aða glæpi.
Milljón e-töflur
49 voru handteknir og hald lagt
á milljón e-töflur er fikniefna-
hringur var upprættur. ísraelsk
lögregla greindi frá þessu í gær.
Fíkniefnahringurinn flutti efiii til
V-Evrópu og Bandaríkjanna.
Útlönd
Mandelson fundaöi með deiluaðilum á Norður-írlandi:
Friðarsamningar
eini valkosturinn
Peter Mandelson, nýskipaður ráð-
herra málefna Norður-írlands í
bresku ríkisstjórninni, lýsti því yfir
á fyrsta starfsdegi sínum i gær að
ekkert gæti komið í staðinn fyrir
friðarferlið í héraðinu.
Mandelson, sem er sestur aftur í
ráðherrastól eftir tíu mánaða eyði-
merkurgöngu, hélt til Belfast í gær
þar sem hann ræddi við leiðtoga
bæði kaþólikka og mótmælenda.
Hvorki hefur gengið né rekið í að
hrinda friðarsamkomulaginu frá
því í fyrra, sem kennt er við föstu-
daginn langa, i framkvæmd. Þar er
um að kenna tregðu skæraliða við
að láta vopn sín af hendi og fastsetja
tímaáætlun um afvopnunina.
Mandelson bar mikið lof á for-
vera sinn í starfi, Mo Mowlam, og
varaði deiluaðila við að ekki gæti
neitt komið í staðinn fyrir friðar-
samkomulagið sem hún átti þátt í
að gera.
„Það er enginn annar valkostur,
það er engin varaáætlun. Það er
annaðhvort samkomulagið eða ekk-
ert,“ sagði Mandelson, með Mowlam
sér við hlið, á fundi með frétta-
mönnum á þeim stað þar sem frið-
arsamkomulagið var undirritað í
fyrra.
Nýi ráðherrann þykir snjall mað-
ur og gerir Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, sér vonir um að
hann geti blásið nýju lífi í friðar-
samkomulagið.
Mandelson sagði af sér ráðherra-
embætti í desember síðastliðnum
eftir að hafa fengið tugmilljóna
króna lán til fasteignakaupa hjá
samráðherra. Mandelson var þá
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
var ráðuneyti hans á þeim tíma að
rannsaka hinn ráðherrann.
Hillary og Bill Clinton hlustuðu af áhuga á það sem fram fór á fundi í Hvíta húsinu í gærkvöld. Fundarefnið var upp-
lýsingatækni og erfðatækni og áhrif þeirra á daglegt Iff.
K
simon
RAFSOL
SKIPHOLT 33 • REYKJAVÍK
SÍMI: 553 5600
www.rafsol.is
Stjórnarkreppa í Austurríki:
Þjóðarflokkur
slítur samstarfi
Þjóðarflokkurinn í Austurríki
ákvað í gærkvöld að hætta stjórnar-
samstarfi með Jafnaðarmanna-
flokknum. Leiðtogi Þjóðarflokksins,
Wolfgang Schússel, hafði lýst því yf-
ir fyrir kosningarnar að flokkurinn
myndi segja sig úr stjóminni yrði
hann ekki ofar en í þriðja sæti.
Lokaúrslit þingkosninganna í
Austurriki urðu þau að Frelsis-
flokkur Jörgs Haiders varð í öðra
sæti ásamt Þjóðarflokknum. Hlaut
hvor flokkur 52 þingsæti en Jafnað-
armannaflokkurinn 65 sæti. Græn-
ingjar fengu 14 þingsæti. Jafnaðar-
mannaflokkm'inn hefur útilokað
samstarf við Frelsisflokkinn og því
blasir við erfið stjórnarmyndun.
Utanríkisráðherra ísraels, David
Levy, tilkynnti í gær að ísraelsk yf-
irvöld myndu slíta diplómatísku
sambandi við AusturrJki yrði Frels-
isflokkurinn með i stjóm. Haider
hefur lýst yfir aðdáun sinni á stefnu
Adolfs Hitlers.
Levy hitti Schússel í Luxemborg
síðastliðinn mánudag og greindi
honum þá frá því hver viðhrögð
ísraela yrðu. Lagði Levy á það
áherslu að leiðtogar Austurríkis
bæru ábyrgð á því að Haider komist
ekki í stjóm. Schússel svaraði með
því að leggja áherslu á að Austur-
Stjórnarflokkarnir neita að starfa
með Jörg Haider. Símamynd Reuter
riki væri ekki nýnasískt land. Ekki
hefði verið um andgyðinglegan áróð-
ur að ræða i kosningabaráttunni.
Viktor Klima, kanslari Austurrík-
is og leiðtogi Jafnaðarmannaflokks-
ins, fullvissaði Ehud Barak, forsæt-
isráðherra ísraels, um það um
helgina að flokkur sinn myndaði
ekki stjóm með flokki Haiders.
Motorlift 2000
Rofi á vegg
Tvær fjarstýringar
Neyðarstop
Tilboð
Kr. 17.990
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is