Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 9
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 9 uv Útlönd Neyðarástandi lýst yfir í Pakistan Hershöfðinginn Pervez Mus- harraf í Pakistan lýsti í gær yfir neyðarástandi í landinu og útnefndi sjálfan sig sem æðsta leiðtoga lands- ins. Hershöfðinginn leysti einnig upp þingið og kvaðst hafa numið stjómarskrána úr gildi. Aðeins nokkram mínútum eftir aö tilkynnt hafði verið um neyðarástandið heyrðu ibúar Islamabad hertlugvél- ar fljúga yfír höfuðborgina. Hershöfðinginn er sagður hafa rætt við forseta Pakistans, Rafiq Tarar, til þess að reyna að koma á borgaralegri stjóm á ný. Ýmislegt þykir þó benda til að svo verði ekki. Hermenn umkringdu þinghúsið og ráku starfsmenn út. Áður en valdaránið var framið var ákveðið að þing kæmi saman í dag. Kauphöllin í Pakistan opnaði á ný í gær í fyrsta sinn eftir valdarán- ið. Strangar reglur vora settar um viðskipti með erlendan gjaldeyri. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að valdaránið hefði í fór með sér vissa óvissu á svæðinu. Leiðtogar margra þjóða hafa fordæmt valdaránið og hvatt Musharraf hershöfðingja til að koma á borgaralegri stjórn hið fyrsta. Flokkur Benazir Bhutto, fyrrver- andi forsætisráðherra Pakistans, hefur hvatt herinn til að boða til nýrra kosninga. Náinn samstarfs- maður Bhutto, Nisar Khuhro, sagði Háskólastúdentar f Mexíkó hafa staðið fyrir mótmælaaðgerðum í sex mánuði eða allt frá því stjórn skólans boðaði skólagjöld. Símamynd Reuter Indónesía: Óeirðir undir ræðu forsetans Óeirðir brutust út á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, skömmu áður en Habibie forseti ávarpaði þing landsins. I næstu viku mun indónesíska þingið kjósa nýjan forseta. Habibie sækist eftir endurkjöri og sagði hann í ræðu sinni að hann hefði unnið hörðum höndum að því að efla bæði efnahag og stjórnmálalif landsins. Habibie hefur ekki náð miklum vinsældum meðal almennings og tóku að minnsta kosti 10 þúsund manns þátt í mótmælaðgerðunum í gær. Lögregla þurfti að beita táragasi til að ráða við æstan lýð- inn. Mótmælendurnir köstuðu molotov-kokteilum og grjóti að lög- reglunni. Habibie hefm- að öllum likindum stuðning stjómarflokksins, Golkar, en meirihluti þingsins, sem er skipað 700 manns, þarf að samþykkja tilnefninguna. almenning óánægðan með neyðará- standslögin. „Ég vona að við miss- um ekki af tækifærinu til að gera umbætur á kerfinu á ný,“ sagði Khuhro. Musharraf lagði á það áherslu að stjóm sinni væri alvara og að ekki væri hægt að kæra neyðárástandið til dómstóla. Allir dómstólar eigi vissulega að starfa áfram. Þeir hafi hins vegar ekki vald til að hunsa neyðarástandslögin. Bandarískir embættismenn segj- ast fylgjast vel með þróun mála í Pakistan. Sendiherra Bandaríkj- anna í Pakistan snýr aftur til lands- ins í dag og mun ganga á fund nýju valdhafanna. Mun hann hvetja þá til að koma á borgaralegri stjóm sem fyrst og biðja um útskýringu á neyðarástandslögunum. Vann í lottói eft- ir að hafa tapað aleigunni Tyrkneskur fjölskyldufaðir, bú- settur í Istanbúl, datt heldur bet- ur í lukkupottinn á dögunum þeg- ar hann vann 25 milljónir ís- lenskra króna í tyrkneska lottó- inu. Hús mannsins fór mjög illa í jarðskjálftanum sem skók Tyrk- land fyrir skömmu og kvaðst hann hafa búið í tjaldi ásamt eig- inkonu og þremur bömum. Maðurinn ætlar að nota vinn- inginn til að koma upp nýju húsi fyrir fjölskylduna og nota síðan afganginn af peningunum til að hjálpa öðrum fórnarlömbum skjálftans. Risaútsala íeinnistærstu og glæsilegustu tölvuleikjaverslun landsins dagana 2.-17. október. Síðasta helgi! \ .499,- kr’ JO'/tO' Playstation leikir frá 899,- kr. Allir Playstation-Platinum leikir 1.999,- kr. Joyrider stýri fyrir PC 4.999,- kr. SONY Playstation stýripinnar í ýmsum litum 999,- kr. Sendum í póstkröfu S K • I • F A N Laugavegur 26 • Opið alla daga til kl: 22:00 • Sími 525 5042

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.