Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 Messur Árbæjarkirkja: Almenn guösþjónusta kl. 11 árdegis. Kirkjukór Árbæjarkirkju syng- ur. Organleikari Pavel Smid. Bamaguös- þjónusta kl. 13. Foreldar, afar, ömmur eru hjartanlega boöin velkomin meö bömunum. Prestamir. Áskirkja: Bamaguösþjónusta kl. 11. Guös- þjónusta kl. 14. KafTi eftir messu. Árni Berg- f ur Sigurbjömsson. Breiöholtskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guösþjónusta á sama tíma. Sr. Sigurjón Eyjólfsson messar. Organisti: Daníel Jónas- son. Gísli Jónasson. Bræðratungukirkja: Messa veröur kl. 14. Sr. Amgrímur Jónsson og sr. Guðmundur Óli Ólafsson annast prestsþjónustuna. Sókn- arprestur. Bústaöakirkja: Barnamessa kl. 11. Léttir söngvar, biblíusögur, bænir, umræður og leikir viö hæfi barnanna. Guösþjónusta kl. 14. Organisti Guöni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Kl. 11. Messa. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti: Kjartan Siguijónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Léttur málsverður eftir messu. Dómkirkjan: Guösþjónusta kl. 11. Bam 3 boriö til skímar. Dómkórinn syngur undir stjóm Marteins H. Friðrikssonar. Prestur sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. AUir velkomnir. Elliheimiliö Grund: Messa kl. 14. Prestur sr. Ragnar Fjalar Lámsson. Organisti Kjart- an Ólafsson. Félagar úr Húnakómum syngja, undirleikari Eiríkur Grímsson. Fé- lag fyrrverandi sóknarpresta. Eyrarbakkakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Fella- og Hólakirkja: Guösþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guömundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón- usta á sama tíma. Umsjón Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Prestamir. Fríkirkjan í Rcykjavík: Barnaguösþjón- usta kl. 11. Umsjónarmenn Komelía og Hrafnhildur. Guösþjónusta kl. 14. Barn bor- iö til skírnar. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns- son. Gaulverjabæjarkirkja: Messa kl. 14. Sókn- arprestur. Grafai'vogskirkja: Sunnudagaskóli í Graf- arvogskirkju kl. 11. Prestur sr. Sigurður * Amarson. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Sunnu- dagaskóli í Engjaskóla kl. 11. Prestur sr. Anna Sigríður Páisdóttir. Umsjón: Signý, Guðrún og Guðlaugur. Guösþjónusta í Graf- arvogskirkju kl. 14. Vænst er þátttöku for- eldra og fermingarbama í Hamra-, Húsa- og Rimaskóla. Prestar sr. Vigfús Þór Ámason, sr. Siguröur Arnarson og sr. Anna Sigríöur Pálsdóttir. Dregið verður um væntanlega fermingardaga. KafFiveitingar. Prestarair. Grensáskirkja: Bamastarf kl. 11. Messa kl. 11. Altarisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árai Arinbjamarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. Haligrímskirkja: Fræöslumorgunn kl. 10. Með orðsins brandi: Dr. Gunnar Kristjáns- son prófastur. Messa og barnastarf kl. 11. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju ; syngur undir stjóm Bjameyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur. Organisti Höröur Áskels- son. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Háteigskirkja: Barna- og fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Helga Soffla Konráös- dóttir. Messa kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. Hjallakirkja: Messa kl. 11. Sr. íris Krist- jánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkjunn- ar og böm úr kór Snælandsskóla syngja og leiða safnaöarsöng. Einsöngvari María Guö- mundsdóttir. Stjómandi bamakórs Heiörún Hákonardóttir. Organisti: Jón ólafur Sig- urðsson. Bamaguösþjónusta í kirkjunni kl. 13 og í Lindaskóla kl. 11. Viö minnum á bæna- og kyrröarstund á þriöjudag, kl. 18. Prestamir. Kópavogskirkja: Barnaguösþjónusta í safnaöarheimilinu Borgum kl. 11. Guösþjón- usta kl. 14. Prestur sr. Guöni Þór Ólafsson. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. Langholtskirkja, kirkja Guðbrands bisk- ups: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Lena Rós Matthíasdóttir seg- ir sögu. Böm syngja. Bamastarfiö verður í kirkjunni þennan dag. KafFisopi eftir guös- þjónustu. Laugameskirkja: Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju syngur, organisti Gunnar Gunnarsson. Hrund Þór- arinsdóttir stýrir sunnudagaskólanum meö sínu fólki. Prestur sr. Bjarni Karlsson. MessukafFi og djús fyrir börnin á eftir. Skemmtidagskrá kl. 13 í Dagvistarsalnum aö Hátúni 12. Þorvaldur Halldórsson mætir með sínum mönnum og flytur gömlu „smell- ina“ með síungri sveiflu. Neskirkja: Sunnudagaskólinn kl. 11. Átta til níu ára starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Kvöldmessa meö léttri sveiflu kl. 20. Reynir Jónasson og félagar leika og einkavinavæö- ingin syngur. Tónlist leikin frá kl. 19.30. Aö lokinni messu er fundur með foreldrum fermingarbama og em þau og forráðamenn t þeirra sérstaklega boöin velkomin til þess- arar messu. Njarövíkurkirkja (Innri-Njarövík): Messa og altarisganga kl. 14. Sunnudaga- skóli kl. 11 og fer hann fram í Ytri-Njarðvík- urkirkju. Bíll fer frá Safnaöarheimilinu i Innri-Njarðvík kl. 10.45. Ytri-Njarövíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku meö bömum sínum. Seljakirkja: Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Mikill söngur og fræðsla fyrir krakka. Guösþjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur. Seltjarnameskirkja: Messa kl. 11. Barna- starf á sama tíma. Organisti Sigrún Stein- grímsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guö- mundsdóttir. ^ Skálholtskirkja: Messa verður kl. 11. Sr. Amgrímur Jónsson og sr. Guömundur Óli Ólafsson annast prestsþjónustuna. Sóknar- prestur. Þorlákskirkja: Fjölskyldumessa, þ.e. sunnudagaskóli og messa, kl. 11. Vænst er þátttöku fermingarbama og foreldra þeirra og fundur verður meö foreldrum eftir messu. Sóknarprestur. Afmæli Andrés H. Valberg Andrés H. Valberg framk væmdastj óri, Langagerði 16, Reykja- vík, er áttræður í dag. við náttúrugripi sína. Fjölskylda Starfsferill Andrés fæddist á Syðri-Mælifellsá í Skagafirði, ólst þar upp fyrstu þrjú árin og kennir sig við þann bæ. Hann flutti með fjöl- skyldu sinni að Kálfár- dal í Gönguskörðum þar sem þau áttu heima til 1931 er þau fluttu á Sauðárkrók. Andrés gekk í barna- og unglinga- skóla á Sauðárkróki. Þá var hann virkur í skátafélaginu Andvara og stundaði ýmsar íþróttir. Andrés var m.a. verkamaður, loð- dýrabóndi og sjómaður á Sauðár- króki. Þá tók hann meirapróf bif- reiðarstjóra. Hann flutti til Reykja- víkur 1946 þar sem hann var leigu- bílstjóri um skeið. Lengst af vann hann þó við járn- og trésmíðar á eig- in verkstæði og hefur stundað heild- sölurekstur sem hann hefur verið forstjóri fyrir fram á þennan dag. Andrés er einn kunnasti hagyrð- ingur þjóðarinnar og með hrað- kvæðustu mönnum. Hann hefur lengi verið virkur félagi í kvæðafé- laginu Iðunni og gefið út nokkrar ljóðabækur. Auk þess á hann í fór- um sínum handrit af ýmsu tagi sem bíða útgáfu. Andrés er mikill safnari. Mest af vöxtum voru fomgripa- og forn- bókasafn hans og náttúrugripasafn. Valbergssafnið, fornminjadeild gaf hann til Byggðasafnsins á Sauðár- króki, hluta náttúrugripasafnsins gaf hann að Varmahlíð en megin- hluta náttúrugripasafnsins gaf hann að Byggðasafninu að Skógum, ásamt fágætum biblíum og öðrum fornbókum. Þess má til gamans geta að á safninu á Sauðárkróki er valnastakkur Andrésar sem hann föndraði við að setja saman úr sauðavölum eftir að hafa hlustað á Hellismannasögu sem barn. Hin síð- ari ár hefur Andrés unnið langan vinnudag og setið við skriftir á kvöldin auk þess sem hann dundar Andrés kvæntist 1951 Þur- íði Jónsdóttur, f. 12.12. 1925, húsmóður. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Jónsson, f. 12.2. 1886, og Guðný Aradóttir, f. 2.7. 1891, bændur á Fagurhóls- mýri. Böm Andrésar og Þuríðar era Guðný Jónína Valberg, f. 2.10.1953, kennari og húsfreyja að Þorvaldseyri, gift Ólafi Eggertssyni bónda og eiga þau fjögur böm og eitt barnabam; Gústaf Valberg, f. 27.7.1955, bifvélavirki og verslunar- maður, í sambúð með Kanlaya Shitticot og eiga þau eitt barn auk þess sem Gústaf á þrjú börn frá fyrrv. hjónabandi; Hallgrímur Ind- riði, f. 29.7. 1961, löggiltur rafverk- taki, kvæntur Ingveldi Donaldsdótt- ur og eiga þau þrjú böm. Sonur Andrésar frá því áður er Gunnar, f. 1.2. 1950, Ijósmyndari á DV, kvæntur Önnu Ágústsdóttur og eiga þau fjögur börn og fimm barna- böm. Systkini Andrésar: Margeir, f. 25.2. 1922, d. 14.9. 1995, sjómaður og kaupmaður; Guðrún, f. 27.1. 1934, húsmóðir, gift Jóni Einarssyni. Foreldrar Andrésar voru Hall- grímur A. Valberg, f. 27.5. 1882, d. 1.2. 1962, bóndi á Reykjavöllum, Mælifellsá og í Kálfárdal og loks á Sauðárkróki, og Indíana Sveinsdótt- ir, f. 3.8. 1891, d. 2.7. 1968, húsfreyja frá Mælifellsá. Ætt Hallgrímur var sonur Andrésar, b. á Reykjavöllum, Bjömssonar, b. á Starrastöðum, Björnssonar, b. á Valabjörgum, bróður Andrésar á Álfgeirsvöllum, afa Konráðs, móð- urafa Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþm. Andrés var einnig afi séra Jóns í Hvammi, föður Magnúsar, dósents og ráðherra, og Þóris Bergs- sonar rithöfundar. Bjöm var sonur Ólafs, ættföður Valadalsættarinnar eldri, Andréssonar. Móðir Björns á Starrastöðum var Margrét yngri, Andrés H. Valberg. systir Ólafs, föður Amgríms, pr. og alþm. á Bægisá. Annar bróðir Mar- grétar var Guðmundur, langafi Jó- hönnu, móður Tryggva Ófeigssonar útgerðarmanns. Margrét var dóttir Bjöms, b. á Auðólfsstöðum, Guð- mundssonar „Skagakóngs", ættfoð- ur Hafnarættarinnar eldri, Björns- sonar. Móðir Andrésar var Halldóra Jónsdóttir yngra, b. á Leifsstöðum, bróður Björns Blöndal, ættfóður Blöndalsættar. Móðir Hallgríms var Guðrún, systir Jóhannesar Reykdal, afa Jó- hannesar Reykdal, gæða- og verk- efnastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. Annar bróðir Guðrúnar var Ólafur Reykdal, afi Ólafs Ragnarssonar í Vöku-Helgafelli. Guðrún var dóttir Jóhannesar, b. á Litlu-Laugum, Magnússonar. Móðir Magnúsar var Bergþóra, systir Sigurðar, afa Hall- dórs á Jódísarstööum, langafa Sig- urðar Guðmundssonar vígslubisk- ups, föður Sigurðar vígslubiskups. Bergþóra var dóttir Randvers í Ytri- Villingadal, ættfóður Randversætt-. arinnar, Þórðarsonar. Indíana var dóttir Sveins, b. og hagyrðings á Mælifellsá, Gunnars- sonar, oddvita að Syðra-Vallholti Gunnarssonar, hreppstjóra á Skíða- stöðum, bróður Þorvalds, afa Ragn- heiðar, langömmu Magnúsar ráð- herra frá Mel og Halldórs Þormars sýslumanns, föður Jóns Orms dós- ents. Þorvaldur var einnig afi Ingi- bjargar, móður Jóns alþingisforseta frá Akri, fóður Pálma, fyrrv. ráð- herra. Gunnar var sonur Gunnars, ættföður Skíðastaðaættarinnar, Guðmundssonar. Móðir Indíönu var Margrét Þór- unn, hálfsystir Margrétar, ömmu Elínborgar Lárusdóttur rithöfund- ar. Hálfbróðir Margrétar var Sæ- mundur, langafi Jóhönnu, móður Sighvats Björgvinssonar, fyrrv. ráð- herra. Margrét var dóttir Áma, silf- ursmiðs í Stokkhólma, Sigurðsson- ar, útvegsb. í Keflavík, bróður Magnúsar, langafa Guðrúnar, móð- ur Bjama Benediktssonar forsætis- ráðherra, föður Bjöms menntamála- ráðherra. Andrés verður að heiman á afmælisdaginn. Sveinn Sverrir Sveinsson Sveinn Sverrir Sveinsson verka- maður, Reynigrund 71, Kópavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Sveinn fæddist í Borgarfirði eystra en flutti á fyrsta árinu í Nes- kaupstað og ólst þar upp til fjórtán ára aldurs. Hann var á sautjánda árinu er hann flutti til Vestmanna- eyja þar sem hann átti heima fram að gosi. Þá fluttu þau hjónin í Kópa- voginn og hafa búið þar síðan. Sveinn fór ungur til sjós og stund- aði sjómennsku á unglingsáranum. Hann stundaði nám við Iðnskólann í Vestmannaeyjum, lærði múrara- iðn, tók sveinspróf í þeirri grein og starfaði síðan við múrverk um ára- bil. Auk þess stundaði hann sjó- mennsku, verkamannastörf, vann í Hraðfrystistöðinni í Eyjum og hjá Rafveitunni þar. Eftir að Sveinn flutti í Kópavoginn starfaði hann lengst af hjá Kópavogsbæ. Fjölskylda kvæntur Freydísi Fann- bergsdóttur og er sonur þeirra Sverrir; Svein- borg, f. 4.1. 1946, d. 7.4. 1946; Sveinborg Helga, f. 13.6. 1948, geðhjúkrunar- fræðingur, búsett í Hafh- arfirði en maður hennar er Finnbogi Jónsson og era dætur þeirra Esther og Ragna; Ragnar, f. 9.7. 1955, húsasmiðameistari í Mosfellsbæ, en kona hans er Gunnhildur Sæ- mundsdóttir og eru böm þeirra Ófeigur, Bergþóra og Auður; Sveinn Sigurður, f. 21.4. 1957, sjó- maður í Kópavogi, en kona hans er Margrét Bragadóttir og eru börn þeirra Sveinn Bragi, íris Gróa og Garibaldi; Birgir, f. 7.2. 1959, húsa- smiður í Reykjavík, en kona hans er Steinunn Gísladóttir og era dæt- ur hennar Hjördís og Gréta Jóna. Alsystkini Sveins era Arthúr, f. 19.8. 1926, búsettur í Reykjavík; Inga, f. 18.10. 1927, búsett í Reykja- vík; Guðbjörg, f. 13.11. 1928, búsett í Bandaríkjunum; Guðmundur Bjöm, f. 11.1. 1930, búsettur í Reykjavík; Már, f. 16.11. 1933, búsettur í Neskaup- stað; María, f. 8.5.1935, d. 17.7.1935; Sveina María, f. 14.10. 1938. Hálfsystir Sveins, sam- mæðra, er Kristjana Ágústsdóttir, f. 27.12.1920, búsett í Búðardal. Foreldrar Sveins vora Sveinn Sigurður Sveins- son, f. 16.9. 1900, d. 29.4. 1941, matsveinn í Nes- kaupstað, og k.h., Anna Herborg Guðmundsdóttir, f. 7.10. 1896, d. 11.10. 1979, húsmóðir. Ætt Sveinn Sigurður var sonur Sveins Bjamasonar í Viðfirði og Guðbjargar Bessadóttur frá Geitdal í Skriðdal. Anna Herborg var dóttir Guð- mundar Bjömssonar frá Borgarfiröi eystra og Guörúnar Jónsdóttur. Sveinn verður að heiman á af- mælisdaginn. Sveinn Sverrir Sveinsson. Til hamingju með afmælið 15. október 80 ára________________ Eyjólfur Guðmundsson, Hvassaleiti 58, Reykjavík. Kristín Guðlaugsdóttir, Safamýri 36, Reykjavík. Tafil Zogaj, Álakvísl 35, Reykjavík. 70 ára Björn Ingi Þorvaldsson, Fannafold 158, Reykjavík. Guðný Stefáns, Eyrargötu 14, Siglufirði. Kári Þorsteinsson, Birkihlíð 14, Sauðárkróki. Petra Gunnarsdóttir, Nesvegi 4, Dalvík. Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir, Ofanleiti 29, Reykjavík. Þór Halldórsson, Brúnalandi 10, Reykjavík. 60 ára Haukur Guðmarsson, Hraunbæ 67, Reykjavík. Karl Þór Þorkelsson, Hverfisgötu 112, Reykjavík. Ólöf G. Guðmundsdóttir, Haukanesi 12, Garðabæ. Páll Hannesson, Reynigrand 14, Akranesi. Sigurður Vilhjálmsson, Holtsgötu 42, Njarðvík. Steinunn Axelsdóttir, Brekkustig 6b, Reykjavík. Þór Símon Ragnarsson, Bjargartanga 8, Mosfellsbæ. Þórður Stefánsson, Arnheiðarstöðum, Reykholti. 50 ára Haukur Haraldsson, Eyjabakka 28, Reykjavík. Margrét Jóhannsdóttir, Efstasundi 98, Reykjavík. Sigrún HáUdórsdóttir, Vesturströnd 23, Seltjamamesi. 40 ára Anna Birgitta Bóasdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. Einar Kristján Hilmarsson, Háagerði 61, Reykjavík. Erla Helgadóttir, Ásabyggð 4, Akureyri. Friðbjörg Kristmundsdóttir, Miðskógum 1, Bessastaðahreppi. Guðrún Hvönn Sveinsdóttir, Mávahlíð 2, Reykjavík. Helena Heiðbrá Svavarsdóttir, Skipagötu 6, Suðureyri. Hrafn S. Melsted, Melabraut 8, Seltjarnamesi. Kári Halldórsson, Skaftholti I, Gnúpverjahreppi. Kristinn Brynjólfsson, Stekkjarhvammi 6, Hafnarfirði. Sigurður Arnórsson, Grettisgötu 12, Reykjavík. Sveinn kvæntist í janúar 1948 Sigríði Rögnu Júlíusdóttur, f. 28.1. 1926, saumakonu. Hún er dóttir Júl- íusar Jónssonar múrarameistara og Sigurveigar Björnsdóttur sauma- konu sem bæði vora ættuð undan Eyjafiöllum. Börn Sveins og Sigríðar Rögnu eru Júlíus, f. 25.6. 1944, útvarps- stjóri Hljóðnemans í Reykjavík,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.