Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 10
10 f enhmg FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 Hinir heittelskuðu Á tónleikum í íslensku óperunni í gær- kvöld sungu þær Elín Ósk Óskarsdóttir sópran og Rannveig Fríða Bragadóttir messósópran um unnusta sína í dúett úr óp- erunni Cosi fan tutte eftir Mozart. Á meðan héldu þær á stórum myndum sem þær horfðu hugfangnar á, en áheyrendur sáu bara bakhliðamar. 1 lokin kom þó í ljós að maður strax að kórinn er greinilega í prýði- legu formi, raddirnar vel þjálfaðar og veiku hlutar tónlistarinnar einstaklega fagurlega sungnir. Rannveig Fríða var hér í aðalhlut- verki og söng afar fallega - enda er hún yf- irleitt mjög örugg uppi á sviði, hefur góða tækni og túlkar margt á áhrifaríkan hátt. Aríuna úr La clemenza di Titto eftir Mozart Kolbeinn Jón Ketilsson, Gerrit Schuil, Rannveig Fríða Bragadóttir og Elín Ósk Óskarsdóttir fyrir úrvalstónlist í íslensku óperunni. þetta voru myndir af þeim Gerrit Schuil, nýráðnum listrænum stjórnanda íslensku ópemnnar, og Bjama Daníelssyni, nýbökuð- um óperustjóra. Skelltu áheyrendur þá upp úr, enda óvænt uppákoma. Ásamt Elínu Ósk og Rannveigu Fríðu kom fram Kolbeinn Jón Ketilsson tenór, einnig söng Kór íslensku óperunnar, en stjómandi kórsins var Garðar Cortes. Píanó- leikarar voru Gemit Schuil og Claudio Rizzi. Fyrst var flutt atriði úr óperunni Orfeus og Evridís (Ah, se intorno a questíuma fu- nesta) eftir Gluck, og síðan arían Che faró senza Euridice úr sömu óperu. Þar heyrði Tónlist Jónas Sen söng hún bæði hreint og afslappað, og Habaneran úr Carmen eftir Bizet var frá- bær, röddin eins og hún átti að vera og leik- urinn tælandi. Á hinn bóginn var of mikið haft fyrir aríunni úr Öskubusku Rossinis, skalarnir að vísu hreinir, en virkuðu ein- hvern veginn ekki nógu hættulegir. O don fatale úr Don Carlos eftir Verdi söng Rann- veig Fríða aftur á móti glæsilega, af tækni- legri fullkomnun og með miklum dramatísk- um tilþrifum. Kolbeinn Jón Ketilsson tenór flutti fyrst aríuna Durch die Walder, durch die Auen úr Der Freischútz eftir C.M. von Weber, og gerði margt vel. Stemningin var hetjuleg, enda hefur Kolbeinn kröft- uga, karlmannlega rödd sem hristir gólf og veggi. Hann var þó helst til grófur og saknaði maður óneitanlega flnlegu blæbrigðanna. í aríu Don José (La fleur que tu míavais jetée) úr Carmen söng hann allt í sama styrk- leika, og í aríu Gabriele úr Simon Boccanegra eftir Verdi var hann góð- ur þegar hann söng sterkt, en sýndi litla tilfinningu fyr- ir hinu lýríska. Best var E lucevan le stelle úr Toscu eftir Puccini, þar voru línumar í tón- listinni skýrar og fallegar. _______ Elín Ósk Óskarsdóttir kom fyrst fram í aríu Fior- diligi úr Cosi fan tutte, Come scoglio, og var nokkuð óstyrk þó krafturinn væri mikill. Á hinn bóginn var aría Leonore (Díamor sullí- ali rosee) úr II Trovatore eft- ir Verdi öldungis frábær, lý- rikin himnesk og raddbeit- ingin fullkomin, hvort sem sungiö var sterkt eða veikt. Aría Leonoru úr Valdi örlaganna eftir Verdi (Pace, pace mio Dio) var sömuleiðis stórkostleg, einnig arían úr Cavaleria rusticana eftir Mascagni (Voi lo sapete, o mamma). Kórinn var til fyrirmyndar undir stjóm Garðars Cortes, raddir ávallt í ágætu jafn- vægi og söngurinn tær. Píanóleikaramir stóðu sig sömuleiðis með prýði, og vora þetta í heild skemmtilegir tónleikar. Óperutónleikarnir í íslensku óperunni verða endurteknir í kvöld kl. 20.30. íslenska tríóið og Einar Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 eru tónleikar á vegum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaða- kirkju. Þar leikur Einar Jóhannesson klar- inettuleikari ásamt íslenska tríó- inu verk eftir Mozart, Brahms og Beethoven. íslenska tríóið skipa Nína Mar- grét Grímsdóttir pianóleikari, Sigurbjörn Bernharðsson fiðlu- leikari og Sigurður Bjarki Gunn- arsson knéfiðluleikari. Þau hafa ferðast víða um heim undanfarin ár og getiö sér firnagott orð fyrir leik sinn. Þau leika saman hið glæsilega „Erki- hertogatríó" fyrir flðlu, knéfiðlu og píanó eftir Beethoven og er gaman að segja frá því að þetta verk var á dagskrá fyrstu tónleikanna á vegum klúbbsins í Melaskólanum 7. febrúar 1957. I tríói Mozarts fyrir klarínettu, lágfiðlu og píanó, „Kegelstatt-trió“, og tríói Brahms fyrir klar- ínettu, knéfiölu og píanó kemur Einar Jóhann- esson til liðs við íslenska tríóið. Björk sjá áheyrendum DV-mynd Pjetur Stuð á sviðinu Fyrstu tónleikarnir í grænni áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar íslands voru haldnir í gærkvöldi. í grænu röðinni er boðið upp á létta og aðgengilega tónlist sem allir hafa gaman af, eins og segir í kynningu, og átti það svo sannarlega við um þessa tónleika. Að minnsta kosti fjölmenntu óperettu- og söngleikjaunnendur á tónleikana og var húsið fullskipað. Einsöngvarar vom þau Hanna Dóra Sturludóttir sópran og Bergþór Pálsson bariton og stjórnandi var Bemharð- ur Wilkinson. Fyrri hluti efnisskrárinnar samanstóð af atriðum úr valinkunnum Vínaróperettum og hófst hún á forleiknum úr Leichte Kavallerie eftir Franz von Suppé og var hann ágætlega fluttur þótt á stundum væri jafhvægi miUi hljóðfærahópa ekki eins og best verður á kosið. Einhvem veginn bland- aðist hljómur þeirra ekki nógu vel og slag- verkið var á tíöum allt of yfirþyrmandi fyr- ir hljómburð bíósins. í Cancan-dansi Offen- bachs, sem var siðasta verkið fyrir hlé, örl- aði einnig á þessu ójafnvægi þótt í heild væri leikur sveitarinnar góður og afar fjör- mikill í endannv Leiðarar klarinettu, óbós, sellós og flautu áttu þar einkar fallegar sólóstrófur, svo og konsertmeistari kvölds- ins, Szymon Kuran. Bergþór Pálsson. Hanna Dóra Sturludóttir. Tónlist Arndís Björk Ásgeirsdóttir Hanna Dóra og Bergþór hófu söng sinn í Traumwalz eftir Oscar Straus og gerðu það ljúflega með huggulegri sveiflu. Sömuleiöis var Schenkt man die Rosen eftir Karl Zeller vel flutt af þeim þó maður hefði á tilfinning- unni að Bergþór fyndi sig ekki alveg nógu vel. Hljómmikil rödd hans barst þó mun bet- ur en Hönnu Dóra sem týndist stundum, sérstaklega á neðra sviðinu, en að öðru leyti voru þau einkar vel samstiht. Fyrir hlé söng Bergþór Gem hab’ich die Frau’n gekússt eft- ir Lehár og gerði það ágætlega en virkaði nokkuð stífur og hraðabreytingar ósannfær- andi og ósamtaka. Tónmyndun hans var líka stundum svolítið ýkt, hreint og beint eins og hann væri að reyna of mikið, og var það leiðigjamt, sérstaklega í enda hendinga. Hið undurfagra Keiser meine Seele sein eftir Tobert Stolz var hrífandi í meðfórum Hönnu Dóru sem söng svo fallega og mús- íkalskt að maöur hreinlega fékk tár í augun. Allur söngur hennar í gærkvöld einkenndist af mikilli fágun og öryggi. Eftir hlé var skipt um gír og farið yfir í ameríska söngleiki. Forleikurinn að Show- boat eftir Jerome Kern var prýðilega leikinn og jafnvægið í góðu lagi. Þau Hanna og Bergþór sungu síðan hvort sitt lagið úr verk- inu, Can’t help loving that man þar sem lif- andi og afslappaður flutningur söngkonunn- ar var hreint framúr- skarandi og Ol’man river, en fyrir flutning á því lagi hældi gagn- rýnandi Bergþóri í há- stert fyrir ekki svo löngu síðan. Ég ætla að gera það aftur þó svo að ég sé ekki frá því að túlkunin hafi verið ýkt- ari í þetta sinnið og kannski svolítið yfir markið. Eftir það færðist virkilegt fjör í leikinn. Candide-forleikurinn eftir Bernstein var skemmtilega fluttur af sveitinni og var tölu- vert stuð á sviðinu á köflum. I got rhythm eftir Gershwin var hreint út sagt stórkost- legt, söng- og leikgleðin geislaði af flytjend- um og söngvaramir fóru á kostum í frjáls- legri sviðsframkomu. You will never walk alone eftir Richard Rogers var að sama skapi glæsilega flutt af Hönnu og Bergþóri en þau sungu einnig sitt lagið hvort úr South Pacific, hiö hugljúfa Some enchanted evening sem var ákaflega fallegt í meðfömm Bergþórs og Happy talk sem Hanna Dóra fór létt og skemmtilega með. Sveitin var líka vel með á nótunum allan tímann í leik sínum í sönglögunum undir öruggri stjóm Bem- harðar. Það er óhætt að lofa þeim ágætri skemmtun sem ætla á tónleikana á morgun (kl. 16) en þá verða þeir endurteknir. og Svana á Hofsósi Björk Jónsdóttir söng- kona og Svana Víkings- dóttir píanóleikari halda tónleika í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi á morgun kl. 16. Efnisskrá- in er fjölbreytt, þar eru ís- lensk og norræn sönglög, franskir kaffihúsasmellir, Vinarljóð og lög úr banda- rískum söngleikjum. Hörkuklumpnrinn Á sunnudaginn kl. 14 verður sýnd sænska kvikmyndin Dunderklumpen (Hörkuklumpur- inn) í fundarsal Norræna hússins. Þetta er leik- in mynd, ætluð bömum og fullorðnum, með teiknuðu ívafi. Aðalpersónurnar em Hörkuklumpurinn, strákurinn Jens, álfurinn Blómahárið og Jorm jötunn. Myndin var gerð 1974. Hún er með sænsku tali. Aðgangur er ókeypis. Opið Borgarleikhús I tilefni af opnun nýbyggingar við Kringluna verður opið hús í Borgarleikhúsinu á morgun. Húsið verður opnað kl. 13 og eftir kl. 14 verður gestum boðið að sjá brot úr sýningum á Stóra og Litla sviðinu á hálftíma fresti fram til kl. 16, auk þess sem leiðsögumaður stjómar skoðunar- ferðum um húsið fyrir þá sem þess óska, á milli kl. 14 og 16. í skoðunarferðunum skýtur ýmis- legt óvænt upp kollinum og mega þátttakendur eiga von á að rekast á persónur úr sýningum Leikfélags Reykjavikur á ólíklegustu stöðum! í forsal leikhússins getur fólk sest niður og keypt sér kaffi og meðlæti meðan bömin fylgjast með flugi Péturs Pan og átökum hans við sjóræn- ingja á Stóra sviðinu. Húsinu verður lokað kl. 17, en kl. 19 hefst sýning á Litlu hryllings- búðinni. Uppselt er á þá sýningu en enn eru ör- fáir miðar til á sömu sýningu kl. 23 um kvöld- iö. Bókmenntadagskrá Á sunnudaginn kl. 16 hefst bókmenntadag- skrá með fimm finnskum rithöfundum í Nor- ræna húsinu. Þetta eru þau Timo Ernamo, Jakko Heinimaki, Tapio Koivukari, A.W. Yrjana (einn vinsælasti rokktónlistarmaður Finna) og Asta Piiroinen sem öll eiga sameigin- legt að taka sjálf sig ekkert alltof hátíðlega. Boð- ið verður upp á tónlist og orð vel krydduð með grallaraskap og prakkarastrikum, eins og segir í fréttatilkynningu. Dagskráin verður á finnsku og íslensku og aðgangur er ókeypis. Rithöfundamir tengjast allir litlu forlagi í Finnlandi, LIKE, sem hefur vakið mikla athygli undanfarin ár fyrir bækur sínar. Það er helsti útgefandi íslenskra bókmennta í Finnlandi. í haust koma út á vegum þess verk eftir Einar Má Guðmundsson, Vigdísi Grímsdóttur og Þór- arin Eldjám. Vindarnir sjö Á sunnudaginn kl. 15 verða Vindamir sjö eft- ir Stanislav Rostotskíj sýnd í bíósal MÍR, Vatns- stíg 10. Kvikmyndin var gerð í Moskvu 1962 og fjallar um heimsstjrjaldarárin í Sovétríkjunum og hvemig alþýða manna brást við mótlæti og grimmd stríðsins af hugprýði. Myndin er talsett á ensku. Aðgangur er ókeypis. Umsjón Silja AJalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.