Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 17
16
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
17
Sport
Sport *
Bland í poka
Evrópukeppni landsliða í kvennaknattspyrnu:
Stórt tap
- gegn Evrópumeisturum Þjóðverja í Þýskalandi í gær
islenska piltalandsliðið í knatt-
spyrau, skipað leikmönnum 18 ára og
yngri, tapaði í gær fyrir Króatíu, 2-0,
í riðlakeppni Evrópumótsins. Næsti
leikur liðsins verður á laugardag
gegn Makedóniu.
í gœr var dregiö í riðlana tvo í
heimsmeistarakeppni félagsliða 1
knattspyrnu en keppnin fer fram i
Brasilíu dagana 4.-14. janúar. í
A-riðli sem leikinn verður i Sao Pa-
olo leika Real Madrid, Spáni, A1
Nassr, Sádi Arabíu, Corinthians,
Brasilíu, og lið frá Afríku en það
ræðst í desember hvaða lið það verð-
ur. í B-riðli leika Manchester United,
Necaxa, Mexíkó, Vasco da Cama,
Brasilíu, og South Melbourne, Ástral-
íu. Þessi riðill fer fram í Rio de Jan-
eiro. Fyrirkomulag keppninnar er
þannig að sigurvegarar riðlanna
leika hreinan úrslitaleik 14. janúar.
Sex leikmenn úr byrjunarliði þýska
kvennalandsliðsins gegn íslandi hafa
náð 100 landsleikjamúrnum. Bettina
Wiegmann fékk viðurkenningu frá
þýska knattspymusambandinu fyrir
leikinn, en hún var að leika sinn 104
landsleik og skoraði mörk númer 33
og 34 á ferlinum.
Þjóöverjar fœróu íslendingum þau
tíðindi í Oldenburg að áfrýunardóm-
stóll UEFA hefði staðfest fyrri dóm
um að leikur Úkraínu og íslands
skyldi dæmdur 3-0 íslandi í hag. ítal-
ía sigraði Úkraínu 1-0 í 3ja riðli Evr-
ópukeppninnar á miðvikudag og er
Úkraína eina liðið án stiga í riðlin-
um.
Wuppertal tapaði fyrir Minden,
33-22, í þýska handboltanum í gær-
kvöld. Heiömar Felixsson var ekki á
meðal markaskorara Wuppertal.
Snókerspilarinn Kristján Helgason
tapaði í gær fyrir Englendingnum,
Jimmy White, 4-5, á alþjóðlegu móti
í Englandi og er hann því úr leik á
þessu sterka móti í Preston
íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spymu átti aldrei möguleika gegn
Öórföldum Evrópumeisturum Þjóð-
verja þegar liðin mættust í 3ja riðli
Evrópukeppninnar í bænum Olden-
burg í gær. íslensku stelpumar vora
á eftir þeim þýsku á öllum sviðum,
hraða, tækni og skipulagi, auk þess
sem það bætti ekki úr að leikgleðin,
sem var aðall íslenska liðsins gegn
ítölum í lok síðasta mánuðar, var víðs
fjarri.
Inka Grings, Bettina Wiegemann
og Martina Voss skoraðu þrjú mörk í
fymi hálfleik, en Guðlaug Jónsdóttir
fékk besta færi íslands á 10. mínútu
þegar hún var ein á móti markverði
þýska liðsins, en færið rann út í sand-
inn. í seinni háifleik bætti Bettina Wi-
egemann við öðru marki sínu og
fjórða marki Þjóðverja og varamaður-
inn Claudia Múiier því fimmta sjö
mínútum fýrir leikslok.
Leikur íslenska liðsins olli miklum
vonbrigðum. Það var allt annar svip-
ur á liðinu heldur en var gegn ítölum
fyrir fjórum vikum. Leikmenn virt-
ust þreyttir og þungir og sumir sáust
hreinlega ekki á vellinum í lengri
tíma. Þórður Lárasson landsliðsþjálf-
ari og stelpumar hans þurfa heldur
betur að taka til í sínum ranni ef lið-
ið ætlar sér að eiga einhverja mögu-
leika í seinni umferð riðilsins. Það
verður að koma með leikskipulag sem
hentar liðinu og leggja upp taktík sem
stefnir að einhverju ákveðnu marki.
Hvort það er að verjast framarlega
Staöan í riölinum
Þýskaland 2 2 0 0 8-0 6
Italía 2 1 1 0 1-0 4
ísland 3 1 1 1 3-5 4
Úkraina 3 0 0 3 0-7 0
eða aftarlega eða sækja upp kantana
eða miðjuna skiptir ekki máli, það
þarf að sjást á liðinu að einhver taktik
hafi verið lögð upp fyrir hvem leik en
sást ekki gegn Þjóðverjum í gær.
Get tekið gagnrýni
„Það er erfitt að finna einhverja
skýringu á þessu en stelpurnar virt-
ust ekki hafa neina trú á því að þær
gætu unnið þennan leik. Við lögðum
upp með nákvæmlega sömu hluti og
gegn ítölum, og stefndum að því að
ná í hagstæð úrslit. Það vantaði
reyndar Ásthildi frá Ítalíuleiknum
en það á ekki að breyta svona miklu.
Ég ætla ekki að skella skuidinni á
stelpumar frekar en mig, ég þoli al-
veg gagnrýni og er maður til að taka
henni. En við verðum að fá fleiri
verkefni. Kvennaknattspyrnan er í
mikilli sókn en knattspyrnuforystan
verður að fylgja þessu miklu betur
eftir og útvega fleiri verkefni. Stelp-
urnar komu hingað til að gera sitt
besta en því miður varð þetta niður-
staðan og við erum alls ekki sátt við
hana,“ sagði Þórður Lárasson.
Vart er hægt að segja að einhver
leikmanna íslenska liðsins hafi átt
góðan dag. Þóra B. Helgadóttir mark-
vörður varði oft vel og verður ekki
sökuð um mörkin fimm - enda vörn-
in hripiek fyrir framan hana. Mar-
grét Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdótt-
ir áttu ágætar rispur en aðrir leik-
menn íslenska liðsins léku langt
undir getu.
Lið íslands: Þóra B. Helgadóttir - Rósa
Júlía Steinþórsdóttir (65. Guðrún
Gunnarsdóttir), Edda Gardasdottir (57.
íris Sæmundsdóttir), Auður
Skúiadóttir, Sigrún S. Óttarsdóttir - Guö-
laug Jónsdóttir, Margrét R.
Ólafsdóttir, Katrin Jónsdóttir, Guðrún
Jóna Kristjánsdóttir, Rakel
ögmundsdóttir - Ásgerður H. Ingibergs-
dóttir. _jjj
Keflavíkurkonur
fagna því að
vinna KR, fyrst
liða í heila 13
1 \
Mp•■ «. oMKl
Jii I ■ Wsjr :■ ®
Sigurgangan stöðvuð
Knattspyrna:
Þormóður ffam-
lengir dvölina
hjá Walsall
KR-ingurinn Þormóður Egils-
son lék i fyrrakvöld varaliðsleik
með enska' B-deildarliöinu
Walsall er liðið gerði 1-1 jafntefli
við Exeter City. Ray Graydon,
framkvæmdarstjóra Walsall,
leist ágætlega á frammistöðu
Þormóðs og bað hann að vera
hjá liðinu út vikuna svo hann
gæti skoðað hann betur.
Þormóður féllst á það og í
vikulok mun hann og Graydon
taka ákvörðun um framhaldið.
Hjá Walsall eru fyrir íslending-
arnir Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son og Bjarnólfur Lárusson.
-ÍBE
Keflavíkurkonur bundu enda á 13
mánaða og 31 leiks sigurgöngu KR-
kvenna í körfubolta í gær er þær
unnu þær 60-57 í æsispennandi leik
liðanna i Keflavík.
KR byrjaði leikinn mun betur og
hélt framkvæðinu aflan fyrri
hálfleik og leiddi 22-28 í hálf-
leik. Þar munaði samt miklu
fyrir heimamenn að Anna Mar-
ía Sveinsdóttir skoraði tvær
miklvægar körfur á síðustu
minútu hálfleiksins og kom
muninum niður í sex stig fyrir
hlé.
Keflvíkurliðið kom mun
ákveðnara til leiks í seinni há-
fleik, Kristinn Einarsson, þjálf-
ari liðsins, breytti vörninni í
svæðisvöm og liðið komst í
fyrsta sinn yfir eftir 4 mínútur.
Keflavík varð þá fyrir áfalli er
Anna María Sveinsdóttir
meiddist og spilaði ekkert síð-
ustu átta mínútur leiksins.
KR-konur tóku þá við sér og
komust yfir, 56-57, þegar 1 mínúta
var eftir en Birna Valgarðsdóttir
kórónaði þá frábæran leik með
sinni þriðju þriggja stiga körfu,
Keflavík komst síðan í 60-57 með
vítaskoti Öldu Leifar Jónsdóttur og
þriggja stiga skot Guðbjargar Norð-
fjörö skoppaði síðan af hringnum
rétt áður en lokaflautið gail.
Keflavíkurkonur fögnuðu inni-
lega enda búnar að stöðva lengstu
sigurgöngu í íslenskri kvennakörfu
frá upphafi en KR-konur vita að þó
að þessi bardagi hafi tapast mun
barátta þessara jöfnu liða verða
hörð og opin í allan vetur.
Sóknarleikur Keflavíkur var bor-
inn upp af framtaki Birnu og Erlu
Þorsteindóttur sem gerðu 40 af 60
stigum liðsins en liðið átti í vand-
ræðum með pressu KR-kvenna og
tapaði 26 boltum í leiknum. Anna
María Sveinsdóttir skilaði líka sínu
og Kristín Blöndai barðist vel. Hjá
KR léku þær Guðbjörg Norðfjörð,
Kristín Jónsdóttir og Hanna Kjart-
ansdóttir best en sú síðastnefnda
átti 11 stoðsendingar í leiknum.
Stig Keflavikur: Birna Valgarðsdóttir
21, Erla Þorsteinsdóttir 19 (7 af 7 í vítum),
Anna María Sveinsdóttir 11 (4 varin
skot), Kristín Blöndal 6 (9 fráköst og 7
stoðsendingar), Alda Leif Jónsdóttir 3.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörö 14, Kristin
Jónsdóttir 13, Hanna Kjartansdóttir 8,
Hildur Sigurðardóttir 8, Linda Stefáns-
dóttir 5 (8 fráköst), Emilie Ramberg 5,
Gréta Grétarsdóttir 4. -ÓÓJ
Anna María meiddist
Anna María Sveinsdóttir, fyrirliöi Kefla-
víkur, meiddist á hné þegar 9 mínútur voru
eftir af leik Keflavíkur í gær og spilaði ekk-
ert siðustu 8 mínútur leiksins. Ekki er ljóst
hvort meiðslin eru alvarleg en það kemur í
ljós við nánari athugun í dag.
Þess má geta að leikurinn var stöðvaður
þegar Anna Maria
skoraði sin fyrstu
stig í gær og fékk
hún þá viðurkenn-
ingu fyrir að skora
fyrst kvenna meira
en 4000 stig í efstu
deild, sjá hér til
hægri. -ÓÓJ
l.deild karla í handbolta:
HK hefur
gott tak á
Stjörnunni
Einn leikur fer fram í 1. deild
karla i kvöld þegar Stjarnan tek-
ur á móti HK í Garðabæ klukk-
an 20:00.
Kópavogsliðið við botn-
sætið
Kópavogsliðið er sem stendur
á botni deildarinnar, enn án
stiga, en Stjörnumenn unnu sinn
fyrsta sigur i síðasta leik eftir að
hafa tapað fyrstu tveimur leikj-
um sínum. HK hefur strítt
Stjömuliðinu mikið frá því þeir
unnu sér sæti I deildinni á ný
vorið 1996 og Stjömumenn hafa
ekki náð að vinna HK í deildinni
síðustu þrjú tímabil.
HK hefúr á þeim tíma unnið
fimm af sex leikjum liðanna en
þau gerðu síðan jafntefli i Garða-
bæ í fyrra.
Sigurður Valur Sveinsson,
þjálfari HK, verður í leikbanni í
þessum leik en hann fékk rautt
spjald gegn Fram í síðustu um-
ferð og mun Páll Ólafsson því
stjórna liðinu í kvöld.
-ÓÓJ
Körfuknattleikur:
David Colbac
til liðs við
Snæfell
DV, Vesturlandi:
Úrvalsdeildarlið Snæfells í
Stykkishólmi hefur fengið nýjan
leikmann. Nýi leikmaðurinn
kom til landsins sl. föstudag og
hefur hafið æfmgar með liðinu.
Hann heitir Colbac David og
varð 26 ára daginn eftir að hann
kom til landsins. Á síðasta leik-
tímabiii lék hann i Rúmeníu.
Hann er 205 cm á hæð og 110 kg.
Fyrsti leikurinn hans verður
gegn Njarðvík í Njarðvík fjóröa
nóvember. -DVÓ
Leikmenn í norsku úrvalsdeildinni velja leikmann ársins:
Rúnar bestur í
Leikmenn í norsku úrvalsdeildinni
í knattspymu kjósa árlega besta leik-
manninn fyrir hvert tímabii og í gær
kom í ljós að það var
Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður,
hjá Lilleström. Val þetta ætti ekki að
koma neinum á óvart sem hefur fylgst
með norska fótboltanum í ár. Rúnar
hefur átt frábært tímabil með liðinu
og fyrir vikið hafa félög utan Noregs
fylgst grannt með íslendingnum.
Það er knattspyrnutímaritið Fotball
Noregi
sem stendur að þessu kjöri. í öðra
sæti varð Magnus Svensson hjá Vik-
ingi í Stavanger og í þriðja sæti hafn-
aði Erik Hoftun hjá meisturunum
Rosenborg í Þrándheimi.
-JKS
Jónatan Bow átti mjög
góðan leik hjá KR
gegn Skagamönnum í
gær og hér kemst
hann fram hjá Magnúsi
Guðmundssyni, leik-
manni ÍA.
DV-mynd Hilmar Þór
«*
Urvalsdeildin í körfuknattleik í gærkvöld:
- það eina sem gladdi augað í sigri KR-inga á Skagamönnum, 73-60
Leikur KR og ÍA í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik var slakur og oftast nær
var engu líkara en lið úr neðri deildum
væra að leika. Hittni beggja leikmanna
var með ólíkindum slök og sóknarleikur-
inn var almennt í molum, sérstaklega hjá
Skagamönnum. KR sigraði, 73-60, í
leiknum sem fram fór í nýja
íþróttahúsinu þeirra KR-inga.
KR-ingar byrjuðu betur en Skagamenn
náðu að jafna leikinn um miðjan seinni
hálfleik með því að þétta vömina hjá sér
en KR-ingum tókst svo að ná fimm stiga
forystu í leikhléi. í síðari hálfleik settu
KR-ingar síðan á fullt og gerðu 11 stig
gegn tveimur og til marks um þennan
góða kafla gerðu Skagamenn ekki stig i
síðari hálfleik fyrr en eftir fjórar og hálfa
mínútu. Þetta bil tókst Skagamönnum
aidrei að brúa og leikurinn varð aldrei
spennandi eftir þetta.
Lið KR þurfti engan stórleik til að sigra
og það sem helst gladdi augað vora
skemmtileg tilþrif Jóntatans Bow auk
þess sem Guömundur og Sörensen sýndu
oft ágæta takta.
Hjá Skagamönnum bar mest á Beckett
auk þess sem Bjöm Einarsson átti ágæt-
an endasprett. Þeir sem stóðu sig þó best
í leiknum voru dómararnir sem gerðu
hvað fæst mistök af þeim sem inni á vell-
inum vora.
-HI
Ross vill koma aftur til íslands
Englendingurinn Ian Ross, sem þjálfaði liðs Vals og KR með góðum
árangri á sínum tíma, hefur mikinn áhuga á að koma aftur til íslands að
þjálfa.
Ross var þjálfari hjá Sunderland áður en Peter Reid tók við stjóminni
hjá félaginu og var þar áður knattspymustjóri hjá Huddersfield.
Ross er búsettur rétt utan við Manchester og rekur þar bar en hann
hefur frá því hann yfírgaf ísland fylgst með knattspymunni hér heima.
Ross þjálfaði lið Vals í fjögur ár, frá 1984-1987, og skilaði tveimur
íslandsmeistaratitlum tii félagsins og síðan tók hann við þjálfun hjá KR
og var hjá vesturbæjarliðinu i þrjú ár.
Ross sneri svo aftur til íslands árið 1994 og gerðist þjálfari Keflavíkur
en hætti snemma það sumar vegna fjölskylduerfiðleika og hélt aftur til
Englands. -GH
Gamalreyndur
kappi á Krókinn
Tindastólsmenn ákváðu i gær að láta er-
lendan leikmann sinn, Ryan Williams, fara eft-
ir aðeins tvo leiki.Wiiliams var með 20,5 stig
og 12 fráköst að meðaltali í fyrstu 2 leikjunum.
í stað hans kemur Shawn Myers, 30 ára
Bandaríkjamaður. Hann er 1,97 m og lék meðal
annars með Pyrbasket í Finnlandi í fyrra þar
sem hann var annar stigahæstur með 22,2 stig
í leik auk þess að taka 10,3 fráköst. Hann hitti
líka 34,7% úr 3ja stiga körfum og gerði yfir
eina slíka að meðaltali í leik. -ÓÓJ
URVALSDEILDIN
Hamar 3 3 0 258-223 6
KR 3 2 1 221-195 4
Keflavik 2 2 0 240-148 4
Grindavík 2 2 0 189-138 4
Haukar 2 1 1 164-151 2
ÍA 3 1 2 195-245 2
Skallagr. 2 1 1 162-180 2
Njarðvík 2 1 1 187-179 2
Tindastóll 3 1 2 232-253 2
Þór A. 2 0 2 158-236 0
KFÍ 2 0 2 137-153 0
Snæfell 2 0 2 132-174 0
í kvöld eru tveir leikir, Snæfell tekur á móti KFÍ í Stykkishólmi klukkan átta og hálftima síðar hefst leikur Þórs og Skallagríms á Akureyri.
Leikjum Grindavik vió Keflavík og Hauka viö Njarðvík var frestað til 14. desember vegna þátttöku ÍRB 1 Evrópukeppninni. -ÓÓJ
Kristinn Hafliðason knattspyrnumaður:
Með samning
frá Raufoss
- Hácken viH fá að skoða hann
DV, Sviþjóð:
Kristinn Hafliðason,
sem hefur leikið með
Eyjamönnum síðastlið-
inn tvö knattspyrnu-
tímabil, hefur þessa viku
verið við æfingar hjá
norska liðinu Raufoss og
í gær bauð norska liðið
honum samning sem
Kristinn ætlar að skoða
betur.
Það er fleiri lið á hött-
Perry látinn fara
unum á eftir íslendingnum því
sænska liðið Hácken hefur boðið
honum að æfa með lið-
inu alla næstu viku.
Kristinn ætlar að þekkj-
ast boðið og kemur til '•
Gautaborgar um helg-
ina. Töluverður
uppgangur er á Hácken
en liðið er á góðri leið
með að tryggja sér sæti í
sænsku A-deildinni á
næsta timabil.
-JKS/EH
Purnell Perry, sem hefur skilað
miklu til liðs Reykjanesbæjar í
Evrópukeppninni og er sem dæmi
stigahæsti leikmaður Korac-
bikarsins að meðaltali það sem af
er, var rekinn eftir leik ÍRB og
Huima á miðvikudagskvöid. Perry
er látinn fara vegna frammistöðu
utan vallarsins frekar en innan
hans. í stað Perry kemur til liðsins,
Jason Hoover sem lék síðast í Sviss
en kemur upprunanlega úr sama
skóla og Brenton Birmingham, er
nú leikur hjá Grindavík. Með því að
láta Perry fara þarf að tilkynna
nýjan útlending til FIBA vegna
þátttöku ÍRB i Evrópukeppninni og
það kostar víst sitt. -ÓÓJ
Þriðji sigurinn í röð
DV, Hveragerði:
Hcunar vann sinn þriðja leik í röð
í deildinni og hafa nýliðamir sannar-
lega komið á óvart. í gærkvöld vora
Tindastólsmenn lagðir að vefli,
98-93. Tindastólsmenn byrjuðu betur
í fyrri hálfleik og höföu yfirhöndina
mestcillan tímann. Leikmenn Ham-
ars tóku sig á í lokin og komust yfir
þegar 3 mín. vora til loka fyrri hálf-
leiks og vora yfir i hálfleik, 53-49.
Rodney Dean hjá Hamri var lengi að
komast í gang. Hann skoraði sjö stig
í fyrri hálfleik en hrökk í gang í
seinni hálfleik og skoraði 25 stig og
var þar af leiðandi með 32 stig og
stigahæstur í leiknum. Einnig var
Skarphéðinn Ingason atkvæðamikill
hjá Hamri.
í seinni hálfleik var Ryan Wifli-
ams atkvæðamestur hjá Tindastól.
Ryan skoraði 26 stig og var með flest-
ar þriggja stiga körfúr hjá Tindastól
eða þrjár. Tindastóll missti leikinn í r
villuvandræði, sem og Hamar, og
missti tvo leikmenn út af í seinni
hálfleik og var Tindastóll með alls 20
villur en Hamar 25.
Leikurinn þróaðist vel en
greinilega kunnu hvorki leikmenn
liðanna né áhorfendur að meta dóm-
gæsluna í lok fyrri hálfleiks. Mikil
spenna var í lok seinni hálfleiks og
var staðan 95-93 Hamar í vil, 23 sek-
úndur eftir og þeir vora með boltann.
Tindastólsmenn reyndu hvað þeir
gátu til að stela boltanum en hann
endaði hjá Kristni L. Karlssyni sem
sá um að koma boltanum öragglega í
körfuna.
KR (36) 73 - ÍA (31) 60
7-0, 15-4, 19-19, 24-25, 32-29, (36-31), 47-33, 55-42, 69-48, 71-55, 73-60.
?
KR:
Jónatan Bow 18, Guö-
mundur Þ. Magnússon
18, Jakob Öm Sigurðar-
son 12, Jesper W. Sören-
sen 8, Ólafur Már Ægis-
son 7, Ingvar Ormars-
son 6, Atli F. Einarsson
2, Hjalti Kristinsson 2.
Fráköst: KR 43, ÍA 32
3ja stiga: 26/4, ÍA 11/5
Vítahittni: KR 22/13. ÍA
11/6.
Dómarar (1-10): Jón
Bender og Helgi Bragason
8.
Gceöi leiks (1-10): 4.
Víti: KR 22/13, ÍA 11/6.
Áhorfendur: Um 100.
IA:
Reid Beckett 17, Bjöm
Einarsson 12, Ægir H.
Jónsson 12, Brynjar
Sigurðsson 8, Magnús
Guðmundsson 7,
Hjörtur Þ. Hjartarson 4.
Maður leiksins: Jonathan Bow, KR
Hamar (53) 98 -Tindastóll (49) 93
3-0, 9-5, 12-16, 23-20, 28-25, 33-39, 40-43, 4545, 50-48, (53-49,). 57-57, 59-60, 66-60,
69-60, 74-72,76-67, 82-67, 86-73, 91-76, 93-85, 95-90, 95-93, 98-93
Hamar:
Fráköst: 27, Tindastóll 28.
Tindastóll:
Rodney Dean 32, Pétur
Ingvarsson 16, Hjalti
Pálsson 13, Kristinn
Karlsson 12,
Skarphéðinn Ingason
12, Ómar Sigmarsson
11, Óli S. Barðdal 1.
Áhorfendur: 450.
Dómarar (1-10): Kristján
Möller og Einar
Einarsson.
Gœði leiks (1-10): 7.
Ryan Williams 26, ísak
Einarsson 14, Svavar
Birgisson 10, Valur
Ingimundarson 10,
Flemming Stie 9,
Kristinn Friðriksson 6,
Sune Henriksen 6,
Sverrir Þór Sverris-
son 2, Lárus Dagur
Pálsson 2.
T
Maður leiksins: Rodney Dean, Hamar.